Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.05.1894, Blaðsíða 2
98
ÞjÓBVILJINN ungi.
gömlu þingmenn, cand. Þorleif Jónsson
og Björn Sigfússon.
I Isafjarðarsýslu lieyrist þess enn eigi
getið upp hátt, að aðrir verði í boði, en
gömlu þingmennirnir, Skúli Tlioroddsen
og síra Sigurður Stefánsson; en vel má
þó vera, eptir því sem hagar til hér á
Tanganum, að einhver önnur þingmanna-
efni vekist upp, þegar á kjórfundinn
kemur.
Itjörfundurinn, sem haldast
á hér á Isafirði miðvikudaginn 6. júní
nœstkomandi kl. 12 (hádegi), virðist hafa
verið mjóg illa boðaður, eða vera því
nær sem óboðaður, út um sýsluna.
í 30. grein kosningarlaganna 14.
sept. 1877 er oddvita kjörstjómarinnar
gjört að skýlausri lagaskyldu, að auglýsa
kjörþingið „með 4 vikna fyrirvara á
kirkjufundum, eða á annan venjulegan
hátt“; en þrátt fyrir þessi ákvæði, kvað
enn þann dag í dag ekkert kjórfundar-
boð hafa sézt í hreppunum, og fjóldi
kjósenda hefði því ekkert um kjórþing-
ið vitað, ef blað vort hefði eigi, áfvana-
legum góðvilja, hlaupið undir bagga
með oddvita kjörstjórnarinnar, og skýrt
almenningi frá því, hvenær kjörfundur-
inn ætti að vera, af því að vér kom-
umst á snoðir um það, að kjórfundar-
boðið hefði einhvern tíma í síðast liðnum
marzmánuði staðið auglýst einu sinni
innan um annað góðgæti(!) í „Gretti“.
En að auglýsa kjórþingið, sem jafn
mikið varðar allan almenning, i blaði,
sem færstir vilja sjá eða heyra, og lík-
lega enginn les eða heldur í sumum
hreppum sýslunnar, það getur naumast
heitið full nægjandi auglýsing, samkvæmt
ofan nefndri grein kosningarlaganna,
enda þótt oddviti kjörstjórnarinnar sé
vitanlega einn af máttar-stólpunum und-
ir því blaði.
Yonandi er, að kjósendur þessa kjör-
dæinis láti þó ekki þessa bágbornu fund-
ar-auglýsingu aptra sér frá þvi, að fjöl-
menna á kjórfundinn, né heldur hitt, að
kjörþingið er sett i miðri viku, og þannig
á óhentugasta tíma fyrir kjósendur.
500 ÁRA MINNINGAR-HATÍÐ. 4. marz
þ. á. yoru hátíðahöld mikil í Portugal, og í
ýmsum landfræðinga félögum, i minningu þess,
að þá voru liðin 500 ár frá fæðingu Hinriks
„Sæfara“ (Hinriks ,,navigators“); hann fæddist
4. marz 1394, og var sonur Jóhanns konungs
I. í Portugal; varð hann frægur mjög af sjóferð-
um sinum suður með Afríku ströndum, og komst
alla leið til Síerra Leone, svo að þekking manna
í landafræði óx mjög við ferðir hans.
UM 2000 KRISTNIBOÐAR kvað um þessar
mundir hafast við i ýmsum héruðum i Kína,
til þess að boða þar kristna trú, og kostar
kristniboð þetta árlega svo miljónum skiptir;
en sýnilegur árangur af starfi þeirra, kristni-
boðanna, er þó sára lítili, og segja menn, að
það stafi meðfram af þvi, að kristniboðarnir eru
af ýmsum trúflokkum, og liggja hver i hárinu
á öðrum.
EINN af afkomendum Marteins Luther’s,
Edv. Luther að nafni, andaðist síðasta nýársdag
í Hagenow i Mecklenburg í hárri elli.
í HERAÐINU Tlaxiaco, sem er sunnarlega
í Mexico, eru fornmanna rústir miklar, sem
stafa frá tímunum löngu aður, en nokkur Ev-
ropu-manna steig þar fæti á land; í rústum þess-
um hafa i vetur fundizt í jörðu ýms h'kneski
úr gulii,: sett ýmis konar letri, er mönnurn þó
eigi hefir enn tekizt að þýða; en takist það,
þá má ætla, að fást muni ýmsar þýðingarmikl-
ar bendingar um menntunar-stig hinna fornu
Mexico-manna.
Hosnin "'a-horfurnar
(úr bréfum)
Reykjavík 14. maí ’94: „Kjörfundur-
inn hér í Víkinni á að haldast 8. júní,
og það er þetta, sem veldur því, að hér
í höfuðborginni heyrist ofur-lítið minnzt
á „politíku þessa dagana; en endranær
erum vér Víkverjarnir vanastir því, að
láta stjórnina okkar hafa fyrir því, að
„þenkja og álykta“ í þeim sókum, enda
vitum við, að henni muni koma það bezt.
Eptir því sem heyrzt liefir, verða
hér í boði: HaTldór gamli Friðriksson og
Jön Jensson yfirdóinari, og svo er sagt,
að Tryggvi vilji ólmur fá Hannes Haf-
stein, frænda sinn, á þing, en það er
víst enn óákveðið, hvort hann býður sig
fram; hann treystir því víst ekki meira,
en svo, að hann nái kosningu, en vill
síður falla. — Halldór gamli gengur á
milli, og er haft eptir honum, að hann
segist sannarlega ekkert skilja í því, með
hverju hann hafi brotið af sér traust
kjósendanna; en jeg held nú samt, að
meiri hluti kjósendanna verði á því, að
lofa honum, að hvíla sig frá þingstörf-
unum í þetta skipti, hvað sem skilningn-
um hans líður“.
Borgarfjarðarsýshi 13. maí ’94: „Jeg
III, 25.
held, að óhætt sé að fullyrða, að Bjórn
búfræðingur verði endurkosinn liér;
skammirnar og hnúturnar í „ísafold“
hafa mikið tekið ómakið af fylgismönn-
um hans, að „agitera“ fyrir lionum“.
Barðastrandarsýslu 18. maí ’94: „Hér
heyrist svo sem ekkert minnzt á þing-
kosninguna enn, og líklega fara engir á
kjórfundinn hér úr austur-sýslunni; síra
Sigurður Jensson prófastur fær samt, að
jeg vona, sín vanalegu 20—30 atkvæði“.
Árnessýslu 10. maí ’94: „Þingkosn-
ingin liér á að fara fram laugardaginn
9. júní, en ekki get jeg sagt yður með
neinni vissu, hvernig fara muni, því að
hér verða svo margir í boði, að atkvæði
hljóta að falla mjóg á víð og dreif; mest-
ur er gauragangurinn í fylgismónnum
Tryggva riddara, og hálf-broslegt að
heyra, hvaða meðulum þeir beita sumir
hveijir, til þess að ánetja kjósendurna;
það er nú svo sem segin saga, að það er
látið kveða við, að það sé Tryggva að
þakka, að Ölfusárbrúin er komin, já, og
meira að segja, þess eru dæmi, að reynt
hefir verið að telja sumum fáfræðingum
trú um, að Tryggvi hafi gefið(!!) brúna,
þó að hann léti borga sér dá-laglega
laumu í lófann á síðasta þingi fram yfir
um samið kaup; sumir skulda hér
líka bankanum, eða búast við að þurfa
að taka bankalán út á jarðir sínar, og þá
er nú bétra, að koma sér vel við banka-
stjórann, segja þeir!! Sagt er, að hr.
Tr. Gb ætli að koma hingað austur, og
vappa a milli kunningjanna svo sem
viku tima á undan kjörfundinum. Það
er því alls ekki ómögulegt, að svo geti
farið, að vér fáum þennan kjórgrip stjórn-
arinnar fyrir þingmann, þó að jeg raun-
ar vilji vona, að oss Arnesingum hafi
ekki farið svo aptur, síðan 1892.
Margir beztu menn sýslunnar eru
sinnandi kosningu Hannesar ritstjóra
Þorsteinssonar; og sumir, svo sem síra
Magnús Helgason á Torfastöðum, ákafir
fylgismenn Boga Melsted; ýmsir bændur
vilja líka halda í Þorlák, og held jeg,
að það sé mest af gamalli tryggð, og
svo kenna þeir lika í brjósti um hann
af útreiðinni, sem hann hefir fengið hjá
„Þjóðólfi“. — Gruðmundur í Nesi mun,
eins og enn stendur, hafa hér minnst-
an byr“.