Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.08.1894, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.08.1894, Qupperneq 2
138 ÞjÓðviljinn tjngi. III, 35. eigi fyr verið borið fram á þingi þessa lands; en ekki eru þess háttar lög nein nýung á þingum erlendis, þar sem öflug félög framkvæma svo mörg stórvirki. Vilja þeir menn, sem taka sér fram um að stofna til slíkra félaga, einatt hafa skýra réttindaskrá sína lögtekna, áður en þeir gjöra verulega gangskör að stofn- un félagsins, hvað þá heldur áður en þeir hefja nokkrar kosnaðarsamar fram- kvæmdir til myndunar félagsskaparins, eða framkvæmdar því starfi, sem félag- inu er ætlað að vinna. -— Tiðust mun slík lagasetning, sem „stóra frumvarpið", þó vera í „parlamentiu Englands, og öðrum enskum þingum, enda á laga-ný- mæli þetta ætt sína að rekja til ensks hugsunarháttar, og enskrar löggjafar- venju. Bendir saga „stóra málsins“, áð- ur en það kom inn á alþingi, á það ætterni, og skal hún n*ú stuttlega sógð: Maður heitir Sigtryggur og er Jönas- son, norðlenzkur að ætt og uppruna. Hann fluttist héðan af landi til Ameriku, fyrir nær 20 árum; víðar hefir hann og farið um lönd. Hefir hann verið hvað framtakssamastur og atkvæðamestur allra leikmanna íslenzkra vestan hafs, og get- ið sér bezta orðstír. Hefir hann verið mjög riðinn við hlutafélög þau, er land- ar vorir vestra hafa myndað, til fram- kvæmda ýmsum gagns-fyrirtækjum til eflingar hag sinum. Sjálfur hefir hann og haft með höndum all-miklar fram- kværndir vestur þar, t. d. kom hann upp sögunar-mylnu við Winnipeg-vatn, og flutti hinn sagaða við á gufuskipi, er hann sjálfur stýrði, og átti talsverðan hlut i. — Það ræður því að líkindum, að hann muni, flestum ísl. mönnum bet- ur þekkja til slíkra hluta, sem frum- varpið hljóðar ura, enda bar fyrirlestur, er hann hélt urn þetta mál í Reykja- vík 11. þ. m., Ijósan vott um það. I fyrirlestri þessum skýrði hann frá á þessa leið: Fyrir nokkrum áram síð- an, flutti síra Jón Bjarnason í Winnipeg fyrirlesturinn „Ísland að blása uppu. Út af því sem þar var sagt, fór Sigtryggur alvarlegar en nokkra sinni áður að hugsa um, hvað gjöra þyrfti atvinnuvegum vor Islendinga til viðreisnar. Ritaði hann nokkru síðar um það efni ýtarlega rit- gjörð í „Lögbergia, og ritaði undir grein- ina „Islendingafélagsmaðura. Síðan hefir hann æ alvarlegar hugsað um þetta sama efni; i fyrra sumar fór hann hér um- hverfis land, og kynnti sér sem bezt hann gat, liversu verzlun vorri og at- vinnuvegum væri nú komið, og styrkt- ist þá enn meir í þeirri sannfæring sinni, að lífsspursmál væri fyrir verzlun vora og atvinnuvegi, að fá verulega bót sam- gangna vorra á sjó og landi, í líkum stýl og í menntalöndum heimsins. Ásetti hann sér þá, er hann fór héðan af landi í fyrra sumar, að gjöra ýtarlega tilraun til framkvæmda þessu áhugamáli sínu. I því skyni flutti hann sig um rniðjan vetur frá Winnipeg til Englands, og dvaldi þar á suinar fram og varði þeim tíma til að fá enska rnenn, líklega til slíkra hluta, til að veita málefni hans fylgi. Árangurinn varð sá, að slíkir menn vilja nú sinna þessu máli og hafa lofað 50,000 pd. sterling eða 900,000 krónum í hlutum, ef áskilin lógtekin réttinda-skrá yrði fyrir hendi, þá er til framkvæmda kæmi. Einnig hefir fiski- kaupmaður einn mikill í Liverpool stað- ráðið, að verja 30,000 pd. sterling eða 540,000 krónum í ísliús og frystihús á Vestfjörðum, við Faxaflóa og á Austfjörð- um, og verzlun með nýjan fisk héðan af landi, ef millilanda- og strand-ferðum þessum yrði framgengt, og veralegan fisk væri að fá hér á landi, sem kunn- ugir ekki efast uin. Þannig er í stuttu máli saga þessa máls til þess er það kom nú inn á þingið. í næsta blaði inun „Þjóðviljinn ungia gjóra nokkra grein fyrir hinni afarmiklu þýðingu þessa máls fyrir verzlun og atvinnuvegi Islands. ------------------ „Ef Kristur kicmi til Ohicag;ow. Hinn ötuli útgefandi tímaritsins „Review of Revie\v’s“, W. T. Stead í Lundúnum, koin í vor heim frá Ame- ríku, og er nú í suinar að gefa út bók, sem heitir: „Ef Kristur kænii til Chicago11. Hann fer mjög hörðum orðum um, hvilikt spillingar- bæli Chicago sé orðin, og segir að menn hafi algjöriega fengið Kölska öll völd í hendur þar í borginni, eða réttara sagt, umboðsmönnum hans: vínsölumönnunum. Morðum fjölgar mjög í Ameríku á síðari árum. Árið 1889 voru myrtir þar í landi 3,568 menn; árið 1890: 4,290; árið 1891: 5,908, og árið 1892: 6,790. Pappfrs-ej’ðsla lieiinsins. Það eru alls til 3,955 pappírsverksmiðjur, og i þeim búin til á ári hverju 830,000 ton af pappír. Hér um bil helmingurinn af öllum þessum pappir, er not- aður fyrir prentpappír, og þar af 300,000 ton eingöngu í fréttablöð. í verksmiðjum þessum iiafa 270,000 manna stöðuga atvinnu, og eru tveir þriðju hlutarnir þar af kvennfólk. Miniisla barn í heimi er sjálfsagt barn eitt, sem fæddist 4. marz i vetur í Killingsworth í Connecticut. Foreldrarnir eru sænskir, og veg- ur faðirinn 190 pd., en móðirin 00 pd. — Lað er sveinbarn, vel skapað að öllu leyti, en svo lítið, að það vóg að eins 50 kvint, þegar það fæddist; höfuðið var á stærð við hnetu, og hring, sem móðirin bar á litia fingri mátti smeygja upp á fót.inn á þvi, upp undir hné; það er svo smávaxið, að þrjú börn af sömu stærð gætu hæglega leikið feluleik í vindlakassa. — Lækn- ar álíta, að barnið muni lifa. Nvja briíin yfir ána Tems er nú loks full- gjör, og eru 7 ár liðin siðan byrjað var á henni. Hún er 940 fet að lengd, og byggð eingöngu úr stáli; undir henni eru 4 steinstólpar, og eru þeir stólparnir, sem nær eru miðjunni, 293 fet að hæð; brúin hefir kostað nálægt 18'/» milj. króna. --------------- Frá alplngi. Stjórnar,»l?rár,í>x*e.yting-in. Þegar í þingbyrjun beindi Bm. sýslu- maður Sveinsson þeirri fyrirspurn til lands- höfðingja, hvort stjórnin ætlaði sér eigi að leggja fyrir aukaþingið stjórnarskrár- frumvarpið frá síðasta alþingi, og kvað landshöfðingi nei við því, tjáðist eigi hafa fongið til þess neitt umboð frá stjórnarinnar liendi; sáu því þingmenn, að eigi mátti svo búið standa, og að eigi tjáði að sitja, og halda að sér liöndum, svo að það var að ráði gjórt, að Ben. sýslumaður Sveinsson skyldi flytja málið inn á þingið, enda þótt svo virtist að vísu, sem þetta hefði verið stjórnarinn- ar hlutverk samkvæmt 61. gr. stjómar- skráarinnar. Fyrsta umræða um málið í neðri deild var á þingfundi 7. ág., og talaði þá Ben. Sveinsson nokkur inngangsorð, en engar urðu aðrar umræður um málið, nema hvað Tryggvi Gmmarsson var eitthvað að dylgja um áhugaleysi almennings á málinu, kvaðst liann eiga sér sérstaka heyrnar- pípu, til þess að prófa með hjartsláttinn, og væri þar lítið lífsmark að finna o. s. frv.; taldi hann og ráðlegast, að þing- menn notuðu nú aukaþingið, til þess að hugsa upp breytingar við frv.! og yfir höfuð var það auðsætt, að hann sárlang- aði til þess, að reyna að koma ringulreið á rnálið; en bæði framsögumaður málsins,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.