Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.12.1894, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.12.1894, Blaðsíða 1
Verð ái'gangsins (minnst 40 arka) 3kr.; i Ameríku 1 doll. Borgist fyrir júní- mánaðarlok. DJÓÐVILJINN DNGI. -"'" ■ ■■•--[== Í’jÓBÐI ÁBGANGUB. =|====- -,—RITSTJÓRI: SKÍJLI THORODPSEN. j-— Uppsögn skrifleg ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júni- mánaðar. JYs «». ÍSAFIBÐI, 10. DES. 1894. Hvernig á að útrýina holdsveikinni? -0— 1 skýrslu þeirri, er dr Elúers hefir gefið isl. ráðaneytinu um holdveikis rannsóknir sínar, telur hann alls 143 holdsveikra manna liér á landi, og er það miklu fieira, en áður var talið í embættis-skýrslum ísl. lækna. Mega því læknar vorir sannarlega biðja fyrir sér, að landshöfðinginn, eða landsstjórnin í Höfn, viki þeim eigi all- flestum frá embættum fyrir embættis- vanrækzlu og rangar skýrslur, — sbr. 134., 135. og 144. gr. almennra hegn- ingarlaga —, og láti þar á ofan rann- sókn heija um allan þeirra embættis- rekstur, og ætti þá rannsókn sjálfsagt helzt að fela embættislausum lækna- kandídötum, sem embættín gætu fengið, ef hinum yrði bolað í burtu! En það er nú reyndar vonandi, að landsstjórninni takizt að finna einhver ráð til þess, að rannsóknarferð dr. Ehlers dragi ekki svo óþægilegan dilk eptir sig fyrir lækna-stétt vora, og að menn leggi íeldur alla álierzluna á hitt, að finna ænlogustu ráðin til þess, að út rýma þessari viðbjóðslogu veiki, — holdsveik- inni ? ber a lancli. í skýrslu sinni til ráðaneytisins tekur dr. Ehlers fram þrjú atriði, er mfest um varðandi seu í þessu efni: 1. að út býtt sé meðal almennings prentuðum ntlmgum um eðli 0g sótt-næmi veikinnar. 2. að gjörðar séu ráðstafanir til þesg að holdsveikir þurfamenn, eða niður- setningar, flakki ekki bæ frá bæ, eins °g nú sé all-títt, og 3- Að stofnaður verði holdsveikra spítali a einhverjum afskekktum stað („Iso- lations-hospital “), er tekið geti á móti 10—80 af veikustu sjúklingunum. \ írðist oss sjálfsagt, að þessum bend- ingum dr. Ehlers verði góður rómur gef- inn, bæði af stjórn og alþingi, enda mun mega telja það vist, að stjórnin leggi fiv. um stofnun holdsveikra-spitala fyrir næsta alþingi, og þá ekki síður, að þingið taki því vel, svo að ekki þurfi að koma til þess, — sem dr. Ehlers hálf-partinn hefir á orði —, að farið verði að leita samskota í Danmörku í þessu skyni. Það er þjóð vorri ekki meira en skylt, og henni er það engan veginn of-vaxið, að sjá sjálf sómasamlega fyrir sinum holdsveiku aumingjum, án þess styrks só leitað til annarar þjóðar. Rússneskur fræðimaður, sem um mörg ár hefir rannsakað eðli og háttu flugnanna, fnll- yrðir, að vanalegar hús-flugur geti slegið vængj- unum 30 sinnum á sekúndunni, eða 108 þúsund sinnum á hverri klukku-stundu. Hugsi maður sér, segir hann enn fremur, að flugan vildi bregða sér í kringum hnöttinn, og færi beina leið, þá myndi ferð hennar eigi þurfa að standa yfir lengur, en 28 daga, með því að hún gæti flogið 40 mílur enskar á klukku- stund hverri. eða 202,100 kúlur, þá á Bellfort 112,500, á París 110,300 kúlur o. s. frv., talsvert minna á ýmsa aðra bæi og kastala. --------------------- Forth-hrúin í Skotlandi, — som er eitthvert mesta mannvirki í heimi —, var nýlega máluð, og var það rétt svo, að 50 smálestir af farfa nægðu til þess, að mála hana einu sinni, enda er rúmmál hennar talið um 120 ekrur. Yfir brú þessa fara að meðaltali 200 járn- brautar-lestir á sólar-hring hverjum. Ný í-it. I. Landafrœði handa barnaskólum. Samið hefir Morten Hansen. Rvík 1894. 110 bls. 8vo. Bók þessi er ljóslega og skipulega samiii, og handhæg fyrir byrjendur; hún þreytir eigi hugann með of löngum upp- talningum, en gefur stutt og glöggt yfir- lit yfir hið helzta, sem börnin þurfa að festa sér í minni, svo að ætla má, að eigi líði á löngu, áður bók þessi verður almennt notuð i barnaskólum vorum. II. „Ðen islandske Bólig i Fristats- tiden“, heitir ofur-lítill ritlingur á dönsku, sem dr. Valtyr Ouðmundsson hefir samið, og prentaður er í ár; hefir félag eitt í Danmörku, er nefnist: „Udvalget for Folkeoplysningens Fremme“ gefið hann út, og er liann stuttur útdráttur úr doctors- ritgjörð Valtýs um sama efni, en gefur þó all-gott yfirlit yfir híbýla-háttu for- feðra vorra á lýðveldis-tímunum. Væri óskandi, að höf. vildi, áður langt um liður, gefa löndum sínum sams kon- ar ágrip, — og þó nokkru ýtarlegra — á þeirra eigin máli. í frakkncsku blaði er þess ný skeð gotið, hvernig forsetar lýðveldisins hafi beitt náðunar- vaidi þvi, er stjórnar-skráin heiniilar þeim: Á forseta-árum Mac Mahon’s, 1873—’78, voru 179 til dauða dæmdir, og náðaði hann 112 þeirra, eða nálega 63 %; á forseta-árum Grévy’s. 1878—’86, voru 211 dæmdir til dauða, og 162 þeirra, eða nálega 76%, náðaðir; og loks voru á forseta-árum Carnot’s, — sein myrtur var í sumar —, 157 menn dæmdir t.il lífláts, en að eins 68 þeirra, eða tæplega 44%, náðaðir, og er það alveg sama hlutfallið, eins og á síðustu árum keisaradæmisins. Af þessu má það ráða, að Grévy hafi verið þeirra' forsetanna hjarta-beztur; en t.il þess er einnig tekið um Mac Mahon, — sem þó var gamall hermaður —, hve hágt hann liati att með það, að synja bænum frænda og venzla- manna hinna dauða-dæmdu. Bátstapinn einn varð á Álpta- nesi syðra 5. þ m., og drukknuðu tveir menn: bondinn i Akrakoti, Elías að nafni, og uppeldissonur hans, er Marjón liét; höfðu þeir róið til fiskjar þennan dag, en veður var livasst, og hvolfdi bátnum á siglingu; 4 menn voru alls á bátnum, og var tveim þeirra bjargað. »21 þús. sprengi-kúluin, segja þýzk blöð, að skotið hafi verið alls og alls á borgir og kastala á Frakklandi i fransk-þýzka stnðinu 1870—71; mest var skothriðin látin dynja á Strassburg, Háskólasjóðurinn. Yið tom- bólu þá, er „ísl. kvennfélagiðu hélt í Reykjavík 27.-29. okt. siðastl., áskotn- uðust háskólasjóðnuui um 1200 kr. Blaðið „Þjóðólfuru getur þess, að fátt embættismanna í Rvik hafi sótt tombólu þessa, og skyldu menn þó ætla, að fá- um stæði það nær, en þeim, að styrkja þenna litla sjóðvísi, sein orðið getur til ómetanlegs gagns, þegar fram líða stundir. En niá vera, að liér liafi nokkru um valdið, að Magnús landshöfðingi er máli þessu vitanlega mjög móthverfur, og þá er, eins og þar stendur, að — nePtu’ höfðinu dansa limirnir“.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.