Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1894, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1894, Page 3
IV, 8. ÞjÓÐVILJINN' unqi. 31 salt, að á því væri mjög mikil tregða, og mörgum algerlega neitað; var því ekki annað sýnna, en að almenningur yrði að neyðast, til að láta allan afla sinn blautan fyrir það verð, er kaup- rnenn vildu góðfúslega gefa; og undu margir þvi ekki vel. Úr þessu kefir nú ræzt blessunarlega. En nú er Djúpmanna að sýna, að þeir kunni að nota sér þetta happ, og fari þvi ekki með mest allan afla sinn blautan, eptir sem áður, til kaup- nianna. Það er nú farið að rætast, sem „Þjóðviljinn“ hefir löngu spáð, að blaut- fisksverzlunin myndi verða héraði þessu til bölvunar og niður-dreps. Eptir því sem hún hefir vaxið, hefir efnaliagur og ástæður almennings almennt stórum versn- að; þeir fáu, sem enn eru að streytast við að verzla, eins og siðaðir menn, ogverka sjálfir fisk sinn, fá ár frá ári lægra verð fyrir hann, sökum þess, að kaupmenn fá allan ki'afann af fiskinum blautan á vet- urna, og kæra sig þvi ekkert um, að bjóða í þessa drætti, sem eptir eru hjá stöku mönnum. Jöfhum liöndum hafa og vaxið vanskil, bæði við kaupmenn og kaupfélagið. Kaupmenn virðast að vísu lialda mjög upp á þessa blautfisksverzl- un; getur hún og að ýmsu leyti fært þeim stundarhagnað; þeir koma vöru sinni út á vetrum fyrir hátt verð, og geta náð hverjum drætti hjá mörgum manni fyrir litið verð; en hvort verzlun þessi verður, þegar á allt er litið, nota- drjug íyrir kaupmennina, læt jeg ósagt; fj'rir kaupfélagið er hún til hins mesta niðurdreps; og þótt kaupmönnum kunni að takast, að halda henni við, félagmu til knekkis, þa mun sannast þar, að skamina stund verður hönd höggi fegin. Kaup- mönnum er að visu vorkun, þótt þeir reyni að sporna a moti broddunuin, Jiar sein kaupfélagið er; það er því miður allt 0f títt, að menn taka til láns hjá þeim, en svikjast svo um að standa 1 nokkrum skiluin, og lata fisk smn annað hvort í kaupfélagið, eða til aðvífandi 1 ausakaupmanna. Þetta er mjög livim- leitt fyrir kaupmenn; en rangt er að kenna, kaupfélaginu um slíkt, því engan neyðir það til að ganga á bak loforöa sinna við kaupmenn. Þeir, sem mest svikja kaupmenn, eru lika verstu skipta- menn félagsins; það eru blautfisksmenn- irnir, sjálfir vinir kaupmanna; þeir eiga aldrei neinn fisk til muna verkaðan, nema kann ske eptir eina vertíð, og þegar þeir eru nú bæði skuldugir kaupmönnum, og hafa pantað riflega i félaginu, þá verða þeir annan hvern að svikja; en kaup- maðurinn verður optar fyrir þvi, af því að kaupfélagsvörurnar hafa meira aðdrátt- ar-afl í kauptíðinni, heldur en skiptavin- m-inn við búðarborðið undan vetrinum, sem hirti allan blautfiskinn. Þess er lika að gæta, að flestir vilja sitja við þann eldinn, sem bezt brennur; og í félaginu fa menn flest með nokkru betra verði, en hjá kaupmönnum, og optast dálitið meira fyrir vöru sína. Auðvitað er slíkt ekki lögmæt ástæða, til að bregða loforð sín, ef annars er nokkur kostur. Það er eitt með öðru íllu, sem af blautfisksverzluninni leiðir, að hún gerir menn kærulausa um að halda loforð sín, eða borga skuldir sínar. Þetta er kaup- mönnum sjálfum lika nokkuð að kenna- Meðan þeir voru að koma verzlun þess- ari á, var það víst nokkuð almenn regla hjá þeim, að taka blautan fisk ekki upp í skuld, hve mikið sem blautfisksmaður skuldaði, heldur svara út á hann í hverju, sein blautfisksmanni datt í hug að nefna, og kaupmaður liafði til. Þetta varmjög notaleg verzlun fyrir óhófsama ráðleys- ingja, sem einungis hugsuðu um að lifa „flott“ þann og þann daginn. Hvað mikið sem aflaðist, minnkuðu skuldirnar ekkert hjá blautfiskungum með þessu verzlunarlagi; allt var upp jetið saina daginn. Sá liugsunar háttur varð smá- saman ríkjandi, að það væri endaósvifið af kaupmönnum, að taka blautan fisk upp i skuldir; og þegar svo kaupmenn sáu, að þetta dugði ekki, Jjá gekk allt ógreið- ara. Blautfiskungar flögra með þessa „klattau sina úr einum stað í annan, og koma sizt þar, sem þeir skulda. „Innlegg- ið“ er vanalega svo litið i hvort skiptið, að af því þykir ekkert takandi, til að borga með skuld sína, til þess að hægt sé að taka út það, sem bæði ímynduð og sönn þörf iitheirntir. Efnahagurinn er einlagt jafn auinur, hvort mikið fiskast eða lítið, því að eptir því sem „innleggið“ er meira eptir hverja vikuna eða daginn, ejitir því er jetið og drukkið meira. Sífellt er verið að þessu kaupstaðarrápi, og eytt til þess beztu sjóveðursdögunum; gefi svo ekki á sjó nokkra daga, eða ekki fiskist, er sultur og seyra í Jjverri krá hjá görmum þessum. í stuttu máli: blaut- fisksverzlun gjörir menn óorðheldna, ó- sjálfstæða, óhófsama og fyrirhyggjulausa um ókomna tímann. Ljót, en sönn, saga! Mér er það kunnugt, að sumir kaup- félagsmenn, sem í fyrra lofuðu fiski í félagið, og pöntuðu í því vörur, áttu ekki nándar nærri nóg, til að standa í skilum við félagið í sumar, af því, að þeir höfðu „látið blautt“ allan veturinn í fyrra; og svo brást vorvertíðin. Það er því mjög hæpið fyrir deildarfulltrúa, að treysta á fiskloforð þeirra félagsmanna, sem „láta blautt“ allan veturinn; bregðist vorvertíð- in, hafa þeir ekkert að láta, og því verða deildarfulltrúar, annað hvort að sitja uppi með vörurnar, eða lána þær þessum mönn- um til næsta árs, upp á mjög óvísa borg- un, en borga sjálfir félaginu, ef að þeim er gengið. Yerzlun kaupfélagsins verð- ur að vera skuldlaus frá rótum; annars kemst hun von bráðar i sama horf, eins og lansverzlun kaupmanna. Komist sumar deildir upp á það, að skulda ár eptir ár, og ef sá kostnaður, sem þar af leiðir fyrir felagið, lendir að meiru og minna leyti á þeim, sem standa í skilum, þá er ekkert eðlilegra, en þeir verði óánægðir með félagið; og er þá eitt af aðal-skilyrðunum fyrir góðum og fóstum félagsskap horfið. Orðheldni og skilsemi er sá grundvöllur, sem kaupfélagsskap- urinn aðallega hvilir á; þeir, sem svikja félagið, eru þess verstu óvinir, og í þeirra flokki tel jeg allan fjöldann af blautfisk- ungum; þeir ættu ekki að vera í félag- inu, enda hefi jeg heyrt, að fulltrúaráðið hafi hérna um árið ályktað, að sá væri „enginn góður kaupfélagsmaður, semléti blautt“. Heiður sé fulltrúaráðinu! ■---------------- + Bjarni iireppstjóri Jönsson i Tröð. Eins og skýrt var frá í 3. nr. „Þjóðv. ungau þ. á. drukknaði Bjarni hreppstjóri Jónsson frá Tröð í Álptafirði 6. nóv. þ. á. Hann var fæddur að Reykjarfirði á Ströndum 30. nóv. 1846. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson og Guðríður Sig- urðardóttir. Þau hjón voru fátæk, og gátu því ekki aflað syni sínum neinnar menntunar, framar en þá almennt gjörð- ist. Snemma bar á þvi um Bjarna, að hann var tápmikill, og ötull í hvívetna. Um tvítugs aldur fluttist liann vistferl- um til óðalsbónda Guðmundar Arasonar i Eyrardal; gjörðist hann formaður fyrir sjávarútveg hans, og reyndist brátt einn hinna mestu og duglegustu formanna

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.