Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.02.1895, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.02.1895, Blaðsíða 2
58 ÞjÓBVILJINN ungi. IV. 15 Hvað er ranglátara, en það, að kvenn- inaður, sem í dag er flug-rík og fjár síns ráðandi, skuli á morgun vera jafn ó- myndug, eins og barnið í ruggunni, að eins fyrir þá smá-synd, að henni heíir litizt vel á pilt, og látið til leiðast að giptast honum? Eða er það ekki stór-tjón fyrir vís- indin, að konu, sem af náttúrunnar hendi er gædd framúrskarandi gáfum og and- legu atgjörfi, skuli vera meinaður að- gangur að mennta-stofnunum* og em- bættum landsins, svo hún verður að neyðast til að hafa fyrir lífinu með því, annað hvort að sitja við sauma, eða hræra í grautar-potti, vinna sem er sára arðlitil, og sem henni opt og einatt er svo ógeðfelld, að hún leysir hvorugt vel af hendi. Það hlýtur því að vera hverjum góð- um dreng auðsætt, að konur eiga heimt- ingu á borgaralegum réttindum til jafns við karla, að það er bráðnauðsynlegt, að bæta úr þeim rangindum, sem giptar konur hafa um langan aldur orðið við að búa, að hafa engin umráð yfir eign- um sínum; og acl það er í fyllsta máta sanngjarnt, að konur jafnt og karlar hafi aðgang að menntastofnunum landsins með sömu hlunnindum og þeir, og að þær svo að loknu embættisprófi geti fengið embætti, því bæði skólarnir og embættin eru kostuð af beggja fó; og það má að líkindum telja víst, að allir, sem frjálslyndir vilja kallast, stuðli að því, að þetta komist í kring, ekki sízt ef konurnar sjálfar sýna í verkinu, að þeim sé umhugað um að fá því fram gengt. Ð. Ný norðurför. AustuiTÍkismenn hafa áform- að að senda nokkra vísindamenn til norðaustur- strandarinnar á Grænlandi, og heitir sá Júlíus Payer, sem fyrir förinni og rannsóknunum stendur; leggja þeir félagar af stað i norðuríör þessa I júnímán. næsta ár, og gera ráð fyrir, að verða að heiman í 1—2 ár. 25 anðmcnn dóu í Englandi árið, sem leið, er iótu eptir sig frá 100 þús. til 1 milj. pnnd sterling hver, og voru eignir þeirra allra sam- tais 11,296,914 pund sterling. Blöð i Japan. Sem dæmi þess, hve menn- ing er á háu stigi í Japan, má geta þess, að *) Stjórnar-auglýsingarnar 4. des. 1886 og 7. nóv. 1887 eru varla metandi að neinu. Höfundurinn. þar í landi eru gefin út yfir 900 hlöð, og hafa Japansbúar sjálfir ritstjórn alla á hendi. I Kína eru aptur á móti mjög fá blöð gefin út, og í blöð þeirra rita nær . eingöngu útlend- ingar. Hiti sölarinnar. Eðlisfræðingum tveim í Birmingham, Wilson og Gray að nafni, reikn- ast hiti sólarinnar vera 6,200 stig á Celsíus- hitamæli. Sorgar-klæðnaðiir nmnrta er ekki eins litur i öllum iöndum; í Tyrklandi er hann t. d. fjólu-blár, og i Egyptalandi gulur; á miðöidunum var sorgar-búningur Evrópumanna hvítur, og svo er enn i Kina. í Atlants-hafinn eru að meðaltali 8 pd. af salti i hverjum 2000 pd. af sió, en i „Dauða hafinu (Balir el Lut) á Gyðingalandi eru talin 187 pd. salts í hverjum 2000 pd. af vatni, enda lifa þar engir fiskar. Eldspítna eyðslan. Svo telst til, að í Evrópu sé að meðaltali eytt 2 milljörðum af eldspítum á dag (1 milljarð = 1,000 milj.), enda koma i Þýzkalandi að meðaltali 12 eldspítur á hvert mannsbarn á dag, í Belgíu 9, í Englandi 8, og í Frakklandi 6. Islenzkar kennslubækur. (Hiðurl.) Að þessu má ekki lengi svo fram fara, sjá allir skynberandi menn. Og það má segja kennendum skólans til lofs, að liafi verið kostur á gbðum íslenzk- um kennslubókum, nota þeir þær líka við kennsluna*. Og auðvitað er betra að nota góðar útlendar bækur, en vond- ar og vitlausar íslenzkar, að minnsta kosti hvað kennsluna snertir. En hvernig á þá að ráða úr þessum vandræðum? Svarið liggur beint við: Með því að semja góðar íslenzkar kennslu- bækur, og nota þær við skólann. Fyrst verður þá að gæta að, hvort til séu menn, færir urn að semja þess háttar bækur. Það inun enginn neita, að svo sé, af þeirn, er til þekkja. Það eru bæði kennarar latmuskolans, og þar að auki margir aðrir ungir og dugarrdi menn, sem menntazt hafa, bæði á íslancii og erlendis, og myndu fúsir til þess. En þá ber þess að gæta, að þessir menn yrðu að hafa eitthvað fyrir vinnu *) Undantekning er það þó með íslenzku- kennsluna, þar sem, eins og áður er um getið, hin danska kennslubók Wimmers er notuð í 1. bekk, þótt til sé bók, sem einmitt væri ágæt- lega fallin til notkunar við islenzku kennsluna i 1. bekk, nfl. „Sýnisbók ísl. bókm. á 19. öld“ útg. af Boga Th. Melsteð. sína, og engin líkindi eru til þess, að bækurnar gætu borgað sig sjálfar, nema ef til vill einstaka bok, sem væri um efni, er almenningur gæti fylgzt með í, t. d. sögu. Og þar eð það verður að skoðast sem mjög mikilsvarðandi vel- ferðar-mál fyrir þjóðina, að notaðar sóu íslenzkar kennslubækur í helzta skóla landsins, œtti aljnngi að iáta til sín talca, Off veita fé úr landssjöði,, til að styrlja menn í því, að semja oy gefa út íslenzlcar kennslubœkur handa latínuskolanum. Auðvitað væri ekki hægt að taka allt fyrir undir eins, og væri þá skynsam- legast að byrja á þeim námsgreinuin, sem menn byrja á, þegar þeir eru ný komnir í skóla, og þurfa að læra vand- lega, og segja frá með eigin orðum, svo sem sögu, landafræði og náttúrufræði. í kennslubókum í þessum greinum ætti auðvitað saga Islands, náttirrufræði þess og landafræði, að vera ýtarlegast og bezt tekið fram i kennslubókunum. Þessu næst er að fá kennslubækur í eðlisfræði, stjörnufræði og nýju málunum; svo í gömlu málunum og stærðfræði. Álít jeg hyggi- legast, að bækurnar verði gefnar út í þessari röð, og býst jeg við, að jeg hafi þar með mér flesta skólagengna menn, sem annars nokkuð hafa hugsað málið. Einkum er það sagan og náttúrufræðin, sem ríður á, að samdar séu innlendar kennslubækur í. Jeg hefi nú tekið fram aðal-atriði málsins. Jeg gæti, ef jeg hefði tíma til, skrifað miklu orðmeira um þetta mál, og tekið ýmislegt merkilegt fram um það. En þetta ætla jeg nóg að sinni. Vonandi væri, að alþingi sinnti mál- inu, og bezt væri, að það gæti komið fram þegar á næsta þingi. Enginn mun neita, að málið sé mikilsvert, af þeim er til þekkja og vit á hafa. íslenzluir stúdent í Kaupmannahöfn. -----cooggco®---- „Dr. Ehlers og siðferðið á Islandí“. -OÖO- í tilefni af grein þeirri, er út korn i 11. nr. „Þjóðv. unga“ þ. á. um „dr. Elilers og siðferðið á Islandiu, vil jeg biðja yður, herra ritstjóri, taka í blað yðar nokkur orð, er mættu verða til þess, að réttlæta mig lítið eitt í augum Dýrfirð- inga, sem hafa orðið meira eða minna æstir gegn mér, eins og að nokkru leyti

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.