Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.03.1895, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.03.1895, Blaðsíða 2
70 Þjóbviljinn tjngi. VI, 18. unsmenn sprengt í lopt upp; misstu Kínverjar þar margt manna; og eptir sjó-orustu þessa unnu Japansrnenn mót- spyrnulítið virki Kínverja á Lívlcuncftao- eyjunni. -------------- E>ingvallaíun(lur. það mun nú fast-ráðið, að stefnt verði til Þing- vallafundar, senr lialdinn verði rétt fyrir þing-byrjun í sumar, og að Þingvalla- fundarboðið verði birt í blöðunum um næstk. inánaða-mót. Kar' í síðasta blaði voru var gert ráð fyrir, að skýrt yrði í þessu nr. blaðsins nokkuð frá gangi „Skúla-málsins“ svo nefnda í lræztarétti; en með þvi að verið getur, að ýms atriði þess ináls verði nokkuð rædd á öðrum stað, áður langt uin líður, sleppum vér að hreifa því meira að sinni. Sýsluskiptingarmálið, sem drepið var á í síðasta nr. blaðs vors, var nú samþykkt með öllum þorra atkvæða á sýslunéfndarfundinum 20. þ. m., og verður því borið undir amtsráð og al- þingi á komanda sumri. Kosnir anitsráðsmenn. A sýslunefndarfundinum 19. þ. m. voru þeir Skúli Thoroddt en og síra Sigurður Stefáns- son endurkosnir sem amtsráðsmenn fyrir Isaijarðarsýslu, hinn fyr nefndi sem aðal- amtsráðsmaður, og hinn síðar nefndi sem vara-amtsráðsmaður. S .:»iif-ií fr*á jirestskap. 21. febr. síðastl. hefir sira Jóni Jónssgrti á Stað á Reykjanesi verið veitt lausn frá prestskap frá næstk. fardöguin að telja. - Staðarprestakallið er inetið 1415 kr. 16 a., sem margir munu líkl. gjarna vilja ná í. ur læknir, Eugen Dubois að nafni, ný skeð fundið bainagrind af apa-tegund einni, sem löngu er út dauð, og þykist hann af beinagrind þess- ari geta ráðið það, að apar þessir hafi verið eins konar milliliður niilli apa og manna, hafi t. d. gengið uppréttir, og haft stærri 0g þroskaðri lieila, en apa-tegundir þær, sem nú lifa. A rið, sem leið, voru í Frakklandi prentaðar alls 12 þús. nýjar bækur, og voru 5,489 þeirra gefnar út í Parísar-borg. Sl.ysíarir. 10. febr. þ. á. drukkn- aði maður ofari um ís á Pollinuni á Ak- ureyri; hann hét Kristján Bjarnason, og var frá Geldingsá. 14. s. m. fórst bátur frá Árskógsströnd innan til við Hjalteyri á Eyjafirði, og drukknuðu tveir menn: Yigfús Magnús- son frá Kálfskinni og HóJm Þorsteinsson frá Litlu-Hámundarstöðum. I síðastl. janúarmán. drukknaði maður á Hrútafirði; liann hét Konráð Jóhannes- son, og var trósmiður á Borðeyri. 19. des. f. á. livarf smaladrengur frá Skíðastöðum í Laxárdal í Skagafjarðar- sýslu, Friðrik Friðriksson að nafni, og er það ætlun manna, að hann hafi drukkn- að í á einni þar nálægt. Kona hvarf frá Egilsstöðum í Ölfusi i f. m.; hún fór um nótt upp úr rúminu frá bónda sínum, og ungbarni, er hjá þeim svaf, og hefir eigi fundizt, svo að vafalaust er talið, að hún hafi fyrirfar- ið sér. -----e*= a J--- ísafirði, 23. marz ’95. Tíðarfar. Síðan slðasta blað vort kom út, liefir optast verið norðan-brynu garður, en snjó- komu- og frosta-litið. Sýslunefndarfundur hefir verið baldinn bér í bænum 18.—21. þ. m., og mununi vér geta hins lielzta, er þar gjörðist, í næsta nr. blaðs vors. ý 10. þ. m. andaðist hér í bænum, eptir langa sjúkdómslegu, búsfreyjan Elizabet Jóns- dóttir, kona Björns kaupmanns Guðniundssonar, væn kona og vel gefin. Hvalisyeiðarnar eni nú ný byrjaðar, og hefir hr. H. Ellefsen á Sólbakka þegar fengið 2 hvali, og L. Berg ú Framnesi 1 hval. Sjónleikir. Auk Ieikrita þeirra, sem áður hefir getið verið, hefir nú nokkrum sinnum verið leikið: „Hinn setti eiginmaðui-11 eptir E. Bögh; var það eitt kvöldið loikið, ásamt tveim: smá-stykkjum öðrum, fyrir sjúkrahússjóðinn isfirzka, og varð þá ágóðinn rúmar 70 kr. í Súgandafirðinum hefir að undan förnu verið all-góður haldfæra-afli öðru hvoru, en megn- ið af þeim afla kvað hafa verið „látið blautt'4 til kaupmanna. t rílíinu 'W’yoming, sem er eitt í tölu Bandaríkjanna í Norður-Ameríku, hafa konur í 25 ár haft kosningarrétt til þings, og hefir því fulltrúa-þingið í Wyoming 12. des. f. á., í minningu þessa, samþykkt yfirlýsingu þess efnis, að kosn- ingarréttur kverma hafi engar slæmar afieiðingar liaft, en þvert á móti haft beztu áiirif á löggjöf og stjórn að mörgu leyti; meðal annars hafi hluttaka kvenna í hinu politiska lífi stuðlað mikið til þess, að kosningar hafi síðan farið fram friðsaiulegar og skipulegar, en áður, af- brot og eymd hafi minnkað, landið hafi fengið góða stjórn, og tekið iniklum og margvislegum framfórum. Yfirlýsingin endar með því, að ráða öllum þjóðum til þess, að draga það eigi, að veita konurn sem fyrst politisk rett- indi til jafns við karlmenn. Sumum dönskum blöðum þykir það hart fyrir gjaldendur landssjóðs, að verða fyrir útlátum (eiga að gjalda 7/8 málskostnaðar í „Skúla-málinu“) fyrir þær sakir, að landshöfðingja hafi orðið það á, að fela hinum „óníta skjólstæðingi sínum“, hr. Lárusi Kr. Bjarnason, „jafn ábyrgðarmikla stöðu, eins og rannsókn- ardómara-staðan só“; en þannig er það jafnan, að þjóðirnar verða að bera afleið- ingarnar af gjörðum stjórnenda sinna, og skiptir því eigi litlu, að stjórnendurnir fari vel og skynsamlega að ráði sínu. Próíasts 22. febr. þ. á. iiefir biskup landsins skipað præp. lion. sira Sigurð Gunnársson alþm., prest í Helgafells-prestakalli, sem prófast í Snæfellsnesprófastsdæmi. ----oOO^OOo----- Stjnrnan Ycnus gjörir stjöinufræðingununi í nioira lagi örðugt fyrir, með því að hún er að staðaldxú liulin svo þykkum skýjum, að nær úmðgulegt má heita, að íræðast nokkuð um yfirborð honnar, og vita menn enda eigi með vissu, hve langan tíina hún þarf til þess, að snúast um möndul sinn. — Árið 1G0G þóttist stjörnufræðingurinn Cassini að visu hafakom- izt að þeirri niðurstöðu, að snúningstinii hennar væri 23 stundir og 21 mín.; en fyrir nokkrum árum þóttist ítalski stjörnufræðingurinn Sohia- parelli liafa komizt að því nieð rannsóknum sinuin, að Venus hefði „bundna rötatio11, sem kallað er, þ e. að snúningstinii hennar væri jafn langur, eins og umferðartítni hennar kring- um sólina, og hefir þessari skoðun verið fylgt í almanökunum síðustu árin. En ný skeð hefir nú nafnkunni frakkneski stjörnufræðingurinn Caniille Flammarion birt fjölda-margar Venus-athuganir, er virðast sanna, að skoðun Schiaparelli’s sé ekki rétt, en að Yonus snúist að rninnsta kosti mörgum sinn- um um sjálfa sig þann tímann, sem hún þarf til einnar umferðar kringum sólina, og ætla ýmsir stjörnufræðingar þv( að taka þetta atriði að nýj u til nákvæmrar rannsóknar. Lanilfiæðinga-fundur. 2G. júlí —3. ág. þ. á. ætla landfræðingar frá ýmsum löndum að eiga fund með sér í Lundúnum, og verður það þá 6. „internationali“ landfræðinga-fundurinn, sem haldinn liefir verið. Mann-apinn. Á eyjunni Java hofir hollenzk-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.