Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1895, Page 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1895, Page 4
116 ÞjÓðviljinn u.vor IV, 29. óvíst, er síðast fréttist, hverijr gefa myndu kost á sér í stað Þörarins heitins Buðvars- sonar, en líklegt talið, að fylgismenn stjórnarinnar myndu vilja smeygja þar inn jHannesi landritara Hafstein. f 29. maí þ. á. varð 0. Nickolín tann- læknir í Reykjavík bráðkvaddur, og þarf því ekki lengur að telja eptir styrk þann, er hann fékk úr landssjóði til tannlækn- inga sinna. — En vera má, að suraum þyki þó eptirsjá í Nickolín, er hann, mx er dauður. .Aiptu í'liöll imin á Þingvalla- fundarboði Ben. sýslumanns Sreinssonar hefir nú einnig birt verið í Reykjavíkur blöðunum, og verður því Þingvallafund- xxrinn 28. júní, svo sem skýrt var frá í 27. nr. blaðs vors. Prestskosning fór fram í Stað- arprestakalli á Reykjanesi 8. þ. m., og hlaut cand. theol. Filippus Magnússon öil atkvæði, er greidd voru, enda hafði hann verið þar á ferðiimi i kosninga-leiðangri. ; JÞingva 11 aí undar-fulltrxii fýrir Strandasýslu er kosinn síra Arnbr Arnason á Felli. ísafirði, 15. júní ’!)5. Tíðarfar liefir verið óstöðugt og næðingasamt að undan förnu; 10. þ. æ- varð livitt af snjó ofan í miðjar fjalls-hlíðar, og nokkur snjór féll í byggðum, en bx'áðnaði jatn harðan; hinn 11. fór svo að þorna upp, og liefir lialdizt bezti þerrir síðan. Danska strandgæzluskipið „Heimdal“ lcom hingað 9. þ. m. sunnan úr Reykjavik, og hafði á leiðinni skotið .Júlíusi amtmanni Havsteen á land í Stykkishólmi. Með „Heimdal“ er einn sonar-sona konungs vors, prinz C ar 1, og höfðu böfðingjarnir f Reykja- vík haldið honum veizlu. Stramlferðaskipið „Thyra“ kom hingað loks 13. þ. m. að kvöldi, eða iullum 12 dögum eptir áætlun! Ritstjóri blaðs þessa lagði af stað héðan 11. þ. m. suður i Stykkishólm, til þess að vera þar á amtsráðsfundmum, sem haldast á 14. þ. m., og biður hann að heilsa öllum kunningjum sín- um og vinum, er þetta blað sjá eða heyra. Viljirðu gleðja vini þina eða frænduriAme- ríku, þá pantaðu handa þeim „Þjóðv. unga“, og borgaðu hann á skrifstofu blaðsins, og verður hann svo sendur þeim skilvíslega með hverri póstferð. Saltskip kom til Leonh. Tang’s verzlunar fyrir skömmu. Að þar til fengnu leyfi hefir bind- indisfélagið „Dagsbrún“ á Isafirði áform- að, að halda tombolu i næstk. ágústmán- uði, og verður ágóðanum varið til þess, að koma upp fundahúsi fyrir félagið. Þeir, sem styðja vilja fyrirtæki þetta með því, að gefa muni til tombolunnar, eru beðnir að senda þá einhverjum af oss undirrituðum. ísafirði, 14. júni 1895. Helgi Sveinsson, Kristján Friðriksson, Stefán Bunólfsson. I >ií s5i 1>y í-gða r 1V>lagið „STAR“ Það kunngjörist hér með, að lierra sýslumaður Slcúli Thoroddsen á Isafirði hefir tekizt á iiendur umboð fyrir enska lífsábyrgðarfélagið „STAR“, og geta því þeir, er tryggja vilja lif sitt, snúið sér til lians. Reykjavfk, 12. mai 1895. <>1íi f‘iii .Í ohsiiiiisílót t ii-, sem hefir aðal-umboð félagsins á Islandi. PRENTSMIÐJA PJÓBVILJANS UNGA. 42 hrundið af stóli, og hinn 15. apríl eru fangar ýinsir í höllinni i Fenestrelle látnir lausir. Einn af föngum þess- um er lotinn af þrautum og þjáningum, og ellilegur orðinn löngu fyrir tímann af sorg og örvæntingu. I sjö ár hefir hann dvalið þarna, en þau sjö ár hafa orðið honum eins löng, eins og þótt þau hefðu verið sjö sinn- um sjö. Enginn þekkir hann, og þegar hann í fyrsta skipti fær tækifæri til, að líta i spegilinn, er svo langt frá því, að hann þekki sig sjálfur. Maður þessi nefndi sig Joseph Lucher, og hafði í varðhaldinu verið nokkurs konar þjónn lijá ítölskum guðfræðingi, er þar var, eða öllu heldur gengið honum í sonar stað. Guðfræðingur þessi var aðalsmaður, gamall að aldri, og auðugur mjög, og höfðu erfingjar lians verið þess valdandi, að hann var settur í varðhalil, til þess að þeir gætu notið eigna hans. En hann grunaði fyrir fram, livað verða vildi, og vissi, hverjir valdir voru að þessu óláni hans, og sá þvi svo um, að þeir gætu ekki náð i fé það, er hann átti i banka einuin í Hamborg, og ekki hehlur í fé, er hann hafði sett á vöxtu í Englands-banka; einnig hafði hann selt meginið af fasteignum sínum á Italíu, og sett andvirði þeirra á vöxtu í banka einum i Amsterdam. Aðalsmaður þessi andaðist 14. janúar 1814, en hafði áður arfleitt þennan fátæka þjón sinn, Joseph Lucher, 43 að öllum eignum sínum, en það voru hér um bil sjö miljónir franka í verðbréfum; og þar að auki hafði hann skýrt honum frá fylgsni einu i Milano, þar senx geymt var hér um bil tólf hundruð þúsund franka virði í gim- steinum, og að minnsta kosti þrjár rniljónir í mótuðum peningum, innlendum og útlendum. Oðara en Joseplx Lucher var látinn laus, lagði hann af stað til Turin, og þaðan til Mílano; hann fór varlega að öllu, en að nokkrum dögum liðnum hafði hann fundið fjársjóð þann, er hann leitaði að. Frá Mílano hélt Joseph Lucher til Amsterdam, þaðan til Hatnborgar, og síðan til Lundúnaborgar; hann smalaði saman eignum sínum úr bönkunum, og voru það auðæfi mikil. Aðalsmaðurinn italski hafði skýrt honum nákvæmlega frá ýmsum ábata- vænlegustu, en þó ugglausustu, verzlunaraðferðum, og kom honuin það nú að góðu liði; hann kom eignum sín- um svo fyrir, að hann, auk gimsteinanna og 1,000,000 franka, er hann stakk í vasabók sína, hafði sex hundruð þúsundir franka i árstekjur, sem áttu að borgast lionum á víxl úr bönkuin á Englandi, Þýzkalandi, Frakklandi og Ítalíu. Þegar Lucher hafði komið þessu í kring, lagði liann aptur af stað áleiðis til Parísarborgar, og kom þangað 15. febrúar 1815. Daginn eptir lagðisb Iiann veikur, og með því að hann átti enga vini eða ættingja

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.