Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.07.1895, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.07.1895, Side 1
Vorð Arganfrsins (minnst 40 arka) 8 kr.; i Aineríku 1 doll. Borgist fyrir júní- má.naðarlok. DJÓÐVILJISS DNGI —— —:|= Fjórði árö ang-ur. =|— . — Uppsögn skrifleg ógild nema komin sé til útgef'- anda fyrir 30. dag júní- múnaðar. M : i: i. RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =l^gg---------i- IsAFIRÐI, 16. JULÍ. Alþingi sett. Mánudaginn 1. jólí þ. á. var alþingi sett í Reykjavík, að af lokinni guðsþjón- ustu í dómkirkjunni, þar sem síra Einar Jónsson, þingmaður Norðmýlinga, sté í stólinn. — Elzti þingmaðurinn, Sighvatur Arnason, gekk því næst til forseta-sætis, og kosningar þeirra Þórðar Thoroddsen og Kl. Jónssonar, sem eigi mætti á al- þingi í fyrra., voru samþykktar. — Að því búnu var gengið til forseta kosning- ar í sameinuðu þingi, og dreifðust at- kvæðin svo við fyrstu kosninguna, að enginn hlaut næg atkvæði (Ól. Briern 16, Sk. Th. 8 og Ben. Sv. 7); var því kosið að nýju, og lilaut þá hr. Olafur Briem kosningu með 19 atkv.; voru það kon- ungkjörnir þingmenn og lahdshöfðingja- liðið svo nefnda í neðri deild (Tryggvi og félagar hans), sem einkum réðu þeirn úrslitum, og verður hr. Ól. Br. þó ekki talinn til þess floliks. — Um varaforseta kosninguna í sameinuðu þingi varð og •'kki síður sundrung, atkvæða, svo að þrí- kjósa varð; við fyrstu og aðra kosningu skiptust atkvæðin milli Tr. G., Sk. Th. og sira Sig. Gunn., og hlaut enginn næg- an atkvæða-fjölda; en er konungkjörnir og Tryggva-liðar sáu, að Tryggva varð eigi kornið að, köstuðu þeir atkvæðurn einum yfir á síra Sig. Gunnarsson, þótt hann se Sizt af þeirra liði, rneð því að þeir vildu fyrir hvern mun eigi, að Sk. Th. næði kosningu, og fór þá svo, við bundna kosningu milli síra Sig. Gunn. °g Sk. Th., að síra Sigurður Ounnarsson var kosinn vara-forseti með 17 atkv., en 8k- Th. Iilaut 15 atkv. — Skrífarar í sameinuðu þingi voru kosnir: síra Sig- urður Stefánsson og Guðiaugur sýslumað- ur Guðmundsson. Uá skildu deildirnar, og fóru fram kosningar embættismanna í hvorri deild. í efii deild var Árni landfógeti Thor- steinsen aldurs-forseti, og greiddi því ekki atkvæði við forseta-kosninguna, en ókora- irm t.il þings var einn hinna þjóðkjörnu þingmanna, svo að forsetann áttu að kjósa 5 þjóðkjörnir og 5 konungkjörnir þing- menn; mun því Magnús landshöfðingi hafa hugsað sér til hreifings, og eggjað lið sitt, til þess að revna að koma því til leiðar, að forsetinn yrði þjóðkjörinn, svo að hinir konungkjörnu yrðu í meiri hluta í deildinni, og gætu tekið af lion- um skellina, fellt öll þau málefni, sem stjórnin hefir ýmigust á o. s. frv.; vildu menn í fyrstu ekki trúa þvi, að hinir konungkjörnu myndu hlaupa erindi stjórn- arinnar í þessu efni, og taka sér á herð- ar allar þær bannsyngingar þjóðarinnar, sem óhjákvæmilega koina þeim í koll, sem eyðileggja löggjafar-st.arfið, að því er öll markverðustu málin snertir; en það sýndi sig við kosninguna, að liðið er vel vanið, því að hinir konungkjörnu kusu sem einn inaður síra Sig. Jensson, alþm. Barðstrendinga, sem forseta, en þjóðkjörn- ir þingmenn kusu Arna landfógeta Tlior- steinsen; hlaut því hvorugur meira en helming atkvæða, svo að hlutkesti réð, að Arni Thorstcinsen varð forseti efri deildar, og er sagt, að landshöfðingja hafi heldur brugðið, er svona tókst til; en — „ýmist vildi’ honum öfugt ganga ept- ir það“. — Vara-forseti efri deildar var kosinn L. E. Sveinbjörnsson, en skrifárar deildarinnar Jón A. Hjaitalin og Jón Jakobsson. I neðri deild var Brnedilt Sveinsson kosinn forseti með 19 atkvæðum, en Tryggva Gunnarssyni tókst að ná vara- forseta kosningu með 11 atkv., enda voru tveir af þinginönnum deildarinnar fjar- verandi sjúkdóms vegna. — Skrifarar deildarinnar voru liosnir: síra Einar Jóns- son og Kiemens sýslumaður Jónsson. Lengra er þá þingstörfunum enn ekki komið, þegar þetta er skrifað, og er van- séð, hvernig þau fara úr hendi, því að stjornin virðist eiga sér all-mikinn flokk 1 neðri deildinni, og fylgja þeim flokkn- um stðku þingmenn i blindni og liugs- unarleysi,- og stafar það allt. af því, live hörmulega kosningarnar rnistókust í fyrra í súraum kjördæmum sunnanlands. ------------------ Enn nm „Skúla-málið“. —o— Þess liefir áður verið getið í blaði þessu, að hæztaréttarmálfærslumaður 0. M. lue, sá er mál Skúla varði fyrir hæzta- rétti, taldi hann eiga sanngirnis- og rétt- lætis-kröfu til þess, að honum yrði end- urgoldinn sá tekju-halli, er stjórnin hefði bakað honum við allsendis ástæðulausa „suspension“, og var ráðherra Islands því skrifað þessu viðvíkjandi. En svo sanngjarnt og eðlilegt sení þetta virtist vera, þá liefir þó aðferð stjórnarinnar verið í sama stýl, eins og fyr, með því að ráðkerrann liefir með bréfi, dags. 30. maí þ. á., falið Magnúsi lands- höfðingja að tilkynna Skiila, að hann „finni ekki ástæðu“, til að taka þessa fjár-kröfu til geina. Það eru því alls c. 9300 kr. útgjöld, sem ráðherrann vill leggja á Sk. Tli., eptir þessum úrslitum, líklega í hegning- ar skyni fyrir það, hve herfilega stjórn- inni mistókst í „eltinga-leiknumu, og mun Sk. Th. auðvitað ekki vilja una við það, heldur leita til þingsins, sem fyrir þjóðarinnar hönd nýtur þeirrar ánægju, að borga stjórnarinnar brotnu brúsa. Má og ætla, að raðlierranum hafi, af ýmsurn alþekktum ástæðum, þótt það fremur óþægilegt, að leita aukafjárveit- ingar hjá alþingi í þessu skyni, enda þótt honum hafi fráleitt blandazt hugur um sanngirni og réttmæti kröfunnar. í blaðinu „Austri“ stóð ný skeð grein- ar-stúfur í þá átt, að Skúli Thoroddsen myndi vonandi láta „náð ganga fyrir rétt“, og eigi krefjast skaðabóta af lands- sjóði, þótt stjórnin hefði bakað honum margra þúsund króna tekju-halla við á- stæðulausa „suspension“. Má og vera, að ritstjóri blaðs þessa hefði landssjóðs vegna gjarna viljað þola þennan órétt, ef eigi hefði verið bætt nýrri ofsókn á ofsóknir ofan. En þegar landstjórnin, sem lögunum á að lilýða ekki síður en aðrir borgarar landsins, bætir gráu ofan á svart, og virð-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.