Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.08.1895, Qupperneq 1
Verð árgangsins (miimst
40 arka) B kr.; í Ameríku
1 doll. Borgist fyrir júni-
mánaðarlok.
M 30.
ÞJÓÐVILJINN DNGI.
-1 ; 11 ':[= FjÓEÐI ÁRGANÖUR. ==|— .---7=;-
-s—ls»g|= RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =|sc6g—-i-
ísAFIRÐI, 3. ÁGUST.
Uppsögn skrifleg ógild
nema komin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar.
1895.
Fregnir fra alþingi.
Rvík, 15. júlí ’95.
er enn skammt liðið á þing-
timann, þegar þetta er ritað, — að eins
3 /2 mánuður —, svo að örðugt er enn að
dæma um það, hvern ávöxt þingstarfið
muni bera þjóð vorri að þessu sinni; en
þrátt fyrir ágreining þann um stjórnar-
sliipunarmálið, sem fram hefir komið, svo
sem vikið var að í síðasta blaði voru,
þá munu þó flestir þingmenn hafa það
iiugfast, að láta ekki þann ágreining hafa
áhrif á önnur þingmál, svo sem stundum
liefir þó áður viljað við brenna í þing-
sögu Islendinga.
Alþingi Islendinga má og sízt við
því, að kröptunum só sundrað, þar sem
þingið er bæði fáliðað, og stjórnin, sem
kunnugt er, hin versta viðureignar, að
því er ýms áhugamál landsmanna snertir.
En sundrung öll getur auðveldlega
orðið vatn á stjórnarinnar mylnu, getur
orðið sú vegabótin, sem hún bjargast á
yfir ógöngur gjörræðis og lagasynjana;
en slíka vegabót er alþingi voru óþarft
að gjöra, þar sem stjórnin jafnan hefir
ábyrgðarleysið að fleyta sér á, liversu
ógreið Sem yfirfór hennar virðist að vera.
Gamal-kunningjar. Ýms af
lagafrurnvörpum þeim, sem alþingi vort
fjallar um í sumar, eru gamal-kunningj-
ar þings Og stjórnar; það eru lög þau,
sem stjórnii) synjaði staðfestingar í vetur,
on sem þingið sendir lienni nú aptur á
nýjan leik, svo að hún geti yfirvegað
málin að nýju, og þá annað tveggja séð
H*g uni liönd, svo seni mannsins börnum
er titt, eða þá fyllt enn betur mæli poli-
tiskra synda sinna.
Af garnal-kunningjurn þessum munu
lesendur vorir kannast við frv. um kjör-
[jengi Irenna í sveita- og safnaða-málum,
sem Shúli Thoroddsen flytur nú í þriðja
skipti á þingi, og er reiðubúinn til að
flytja áiram þing eptir þing alla embætt-
istíð þeirra Magnúsar og Nelleinanns, ef
á þarf að lialda, og lionurn endist aldur
og þingseta til þess, enda er það ofur-
bágborinn politiskur einstrengingsskapur
af stjórninni, að lofa ekki þingi og þjóð
að ráða, þegar um jafn mikið smámál
er að ræða. — Frv. um kosningar presta,
sem síra Einar Jónsson og lector Þór-
hallur Bjarnarson o. fl. flytja nú á þingi,
er annar gamal-kunninginn, sem hætt er
við, að stjórnin eigi lengi við að glíma,
ef hún ekki skipar honum í laga-sessinn,
og sarna má engu srður segja um eptir-
launa-lœklcunur-frv., sem Guðjón Guðlaugs-
son o. fl., ota nú framan að þeim vinun-
um, landshöfðingja og ráðherra, í annað
skiptið. — Um léttun gjalda á jafnaðar-
sjóðunum, frumvarp það, sem synjað var
á síðastl. vetri, kom landshöfðinginn
Magnús með þá kynlegu ástæðu, að stjórn-
in hefði eigi viljað aðhyllast það, af því
að það hefði verið samþykkt á aultaþing-
inu í fyrra, en samskonar frv. hafnað
áður á reglulegu alþingi ’93(!!); taldi því
stjórnin nauðsynlegt, að lieyra nú álit
reglulegs alþingis um málið(!!), enda þótt
á þessu þingi sitji allir sömu þingmenn-
irnir, eins og á aukaþinginu í fyrra. —
Já, þær eru mergjaðar kann ske synjun-
ar-átyllur stjórnarinnar!
Frv. um húsetu fastakaupmanna mun
í ráði, að borið verði fram á þinginu
innan skamms, svo að stjórnin og kaup-
mennirnir hennar sjái óinnig þennan
fornvin sinrr aptur; en vafasamt mun
það, hvort háskóJamáUð hefir nvi byr á
þessu þingi, með því að mörgum mun
það kærara, að samþykkja að eins frv.
um lagaskóla, en halda háskólahugmynd-
inni vakandi með þvi, að leggja fó nokk-
urt í háskóla-sjóðinn, enda skiptir það
og minnstu, hvor vegurinn er valinn í
þessu efni.
Hamgöngnmalefiii verða að
likindum eitt af aðal-verkefnum þessa
þings, enda mun þjóðinni þ.ið kærast,
að eitthvað verulegt spor i frarn faraáttina
verði nú stígið á þessu þingi, til þess að
bæta sarugöngur við útlönd, og með frain
ströndum landsins, •— Hefir því þingið
þegar skipað 5 manna nefnd (dr. Yaltý
G-úðin., Sk. Th., Jens Pálsson, Klemenz
sýslumann og Jón Þórarinsson), til þess
að íhuga málefni þetta sérstaklega, og
láta uppi tillögur um það. — Hafa þing-
inu borizt tilboð frá 0. Wathne um strand-
ferðir frá Seyðisfirði til Isafjarðar, norðan
um land, frá 15. marz til 15. nóv. ár
hvert, og vill lrann í því skyni fá 35
þús. króna fjárveitingu á fjárlögunum,
og ætlar að nota gufuskip sitt „Egil“ til
ferðanna. — í annan stað hefir og enski
fjárkaupmaðurinn mr. Frants boðið lið-
sinrri til þess, að koma á fót ensku hluta-
félagi, er Islendingar eigi þó 2/5 b °g
annist það félag milliferðir stöðugar milli
íslands og Englands; en með þvi að van-
; séð mun þykja, hvort mr. Frants geti
komið því fram á Englandi, sem hann
ætlar sér í þessu efni, þá er hæpið, að
þingið þiggi boð hans; enda væri það
leitt, ef þingið skildist við mál þetta í
hálfgerðri óvissu. —- Mörgum þingmönn-
um mun því fast i huga, að landið láti
smíða sér fleytu, á stærð við „Lauru“,
og væri þá gátan heppilega ráðin; en
hér er það líklega versti Þrándurinn i
Götu, að stjórninni er ekki treystandi til
framkvæmdanna; það eru kontor-störfin
og skriffinnskan sem láta þeim herrum
allt betur; verður þvi þingið, — ef þessi
leið er farin —, að ráða menn til alls,
sem gjöra þarf, og er það auma ástandið,
að stjórnin er ekki notandi til slíks; en
svo verður að segja hverja sögu, sem
liún gengur.
Holdsveikra-spítalinn verð-
ur líklega eigi reistur bráðlega, þvi að
mál þetta var svo ílla undir-búið af stjórn-
arinnar hendi, að nefnd sú, er neðri deild
fal að fjalla um það (Þ. Th., dr. Valtýr,
Þ. Guðm., Þorlákur og Jón Þór.), hefir
ekki sóð sér fært að ráða deildinni, að
fallast á það í þetta skipti; vantar enn,
-— þrátt fyrir allan gauraganginn i dr.
Ehlers —, vissu um tölu holdsveikra
manna liér á landi. en eptir henni verð-
ur stærð hússins að fara, og sönruleiðis
vantar allar áætlanir um kostnaðinn, þar
sem frv. stjórnarinnar er að eins bj’ggt
f á lauslegri ágizkun landlæknis Scliiei heck’s,