Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.10.1895, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.10.1895, Qupperneq 2
10 Þjóðviljinn ungi. 79. nr. „ísaf'oldar“ sé innblásin þaðan, eða eigi svona fyrir fram að undirbria hugi manna, gjöra þá móttækilegri fyrir „bráðabirgðafjárlaga-farganið11 danska, ef svo heppilega skyldi til takast, að draum- f)rar ritstjórans rættust. En þessi skoðun manna er að likind- um sönnu fjarri, því að enda þótt Magnús landshöfðingi Stephensen sýnist óneitan- lega að hafa verið töluvert blindaður í máli þessu frá fyrstu, þá er þó tæplega trúlegt, að hann tefli svo djarft, að fara að ráða til fjárlaga synjunar, enda er nú ráðherranum, — fyrir aðgjörðir þingsins—, orðin öll frammistaða hans í málinu ó- líku kunnari, en áður. Slíkar tillögur hlytu líka að gjöra landshöfðingjann svo óþokkaðan hjá öll- um landslýð, að ólíklegt er, að hann vilji safna slíkum glóðum sér að höfði, enda myndi þjóðin þá, að sóma sínum óskert- um, eigi geta varizt þess, að kjpra slíkar atfarir, og beiðast náðarsamlega endis þessa aldar-langa Stephensena-ríkis, sem landinu og ríkinu hefir lítil hamingja staðið af frá fyrstu, en löngum verið sjálfri ættinni hollast, að því er virðist. En, sem sagt, þá erum vér fyrir vort leyti fyllilega sannfærðir um það, að til slikra tillaga af Iandshöfðingja hálfu kem- ur alls eigi; hann er of skynsamur mað- ur til þess Magnús, þótt einráður þyki nokkuð á stundum. Og því síður er ráðherranum ætlandi, að fara að synja fjárlögunum staðfesting- ar, út af öðru eins smáræði, sem ráðherr- anum þar á ofan auðvitað er ekkert kapps- mál; slíkt gjörræði myndi, eins og dr. Váltyr tók fram, vekja eptirtekt, og mæl- ast ílla fyrir, um allan hinn menntaða heim, meira að segja gjöra dönsku stjórn- ina að athlægi i augum annara þjóða. Það er og kunnugt, að heimild stjórn- arinnar, til að gefa út bráðabirgðalög á inilli þinga, er engan veginn ótakmörk- uð, svo að stjórnin geti gripið til þess, hvenær sem henni sýnist, heldur er sú heimild samkvæmt 11. gr. stjórnarskrár vorrar bundin þröngum og ákveðnum takmörkum, þeim takmörkum sem sé, að „brýna nauðsyn beri til“, svo sem ef landi og þjóð kynni að bera einhvem þann voða að höndum á milli þinga, sem þyrfti skjótari aðgjörða, en svo, að bíða mætti afskipta alþingis. En þar sem stjórnin nú hefir í hönd- um fjárlög, samþykkt af alþingi, þá er það ljóst, að um enga slíka nauðsyn get- ur verið að ræða, nema stjórnin fari að skapa sér hana sjálf með synjun fjárlag- anna. En bráðabirgðafjárlög, sem sköpuð væru af þann’g til orðinni nauðsyn, væru ótvírætt brot á 11. gr. stjórnarskrár vorr- ar, og hlyti því slíkt tiltæki að varða ráðherranum ábyrgðar, ef að væri gengið, enda ótrúlegt, að alþingi leitaði eigi dóms- úrskurðar, þegar stjórnin færi sjálf að skammta sér fé landsmanna. En, sem sagt, þí stendur allt þetta bráðabirgðafjárlaga-íjas íslenzka aptur- lialds-flokksins fyrir vorum sjónum sem hégóminn einber, sem draum-órar, er ekki rætast. Það var virðingar-skortur við þingið, að reyna nokkurn tíma, að leiða bráða- birgðafjárlaga-aSnann þar inn, og það er ekki siður virðingar-skortur við ráðherra- stjórnina dönsku, að lialda áfram að ala slikar gjörræðis-vonir, eptir að fjárlög voru samþykkt af þinginu. En söm er gjörð þeirra Bjarnar, og lians nóta, sem spanað liafa stjórnina til stórræðanna, þótt eigi fái þeir fjörráðun- um fram gengt, og tillögur þeirra skrifar þjóðin sjálfsagt bak við eyrað. ------------------ Norðurför Jat-kson’s, sem getið var um í 1. nr. IV. árg. blaðs vors, liefir mistekizt, sem við var búið, og komu þeir félagar af „Vindwarii“ í f. m. til Vardö í Noregi, eptir að hafa þolað all-miklar raunir, höfðu verið vistalausir síðasta mánuðinn, og því ekki liaft annað sér til matar, en ísbirni og fugla, sem þeir veiddu. Fiskis.ýidngu mikla ætla Þjóðverjar að halda i Berlín á komandi sumri. Frakkneska blaðið „Figaro“ hefir heitið 500 franka verðlaunum handa þeim, er bezt geti samið sögu Frakka frá fyrstu til síðustu tíma; en verðlaunin eru því skilyrði bundin, að öll sagan má eklti vera lengri, en — 1000 orð. í Ameríku hafa menn ný skeð fundið iáð til þess, að gera við eldtraustan, en aðferðinni er enn haldið leyndri fyrii- almenningi; varþessi nýi eldtrausti viður nýlega reyndur i viðurvist nokkurra herforingja i Bandaríkjunum, viðurinn látinn vera i 5 mínútur í 1000 gr. hita, og sak- aði eigi. — Er nú í orði, að Bandamenn láti smíða sér herskip úr þessum nýja eldti-austa við. Stór deinant. í Braziliu hefir nýlega fund- izt demant, sem vegur 3100 karat, og er hann V, 3. þvi nálega 2 þús. karötum þyngri, en stærsti demantinn, sem áður hetír fundizt. 1N olikui* orð út íif" i*itpf sfra Jóli. L. L. Jóhannssonar, um Kaupmannahafnar-háskóla. Kptir Boga Th. Mélsteð. (Framh.) Síra J. J. segir, að ef menn taki einstakar vísindagreinar, hverja fyrir sig til skoðunar, þá muni „brátt koma í ljós, að Hafnarskóli sé einn af liinum ómerki- legriu. . . . „I sagnafræðum eru háskól- arnir á Ítalíu og í Belgíu fullt svo góðiru. Jeg er nú eigi kunnugur því, hvern- ig sagnafræðin er lcennd við háskólana á Italíu og í Belgíu, en sagnfræðingar þeir, sem nú vekja mesta eptirtekt á sér í Evrópu, eru hvorki Italir, eða Belgir, og eru þessi orð síra J. J. alveg töluð út í bláinn. En að því er snertir sagna- fræðina hér við háskólann, þá eru 3 „prófessoraru i henni, og er einn þeirra sérstaklega kennari í Danmerkur-sögu, en þó leggja hinir líka mestu stund á sögu ættjarðar sinnar. Edvard Holm heitir hinn elzti þeirra; þá er Johannes Steenstrup, sormr etatsráðs Jap. Steen- strups, vinar Jónasar Hallgrímssonar; en Kristjan Erslev er þeirra yngstur. Allir eru þeir víðf'rægir menn, hafa ritað mikil og ágæt sögu-rit, og eru svo framúrskar- andi vísindamenn í sinni grein, að hver háskóli er vel sæmdur af slíkum inönnum. Þeir skipta kennslunni í sagnfræði á milli sm, og er kennsla þeirra svo, að því fer Ijarri, að kennslan í sagnfræði hér við háskólann hafi vorið áður betri, því hún hefir sjaldan, eða aldrei, verið eins góð, og nú. Einn kennaranna (Kr. Erslev), sem voitir kennslu í heimildarrita-rann- sóknum, hefir þegar myndað hér „skólau af ungum sagnfræðinguni, og sá hópur vex ár frá ári. Elztu lærisveinar hans eru þogar farnir að korna fram á víg- völlinn, og hafa rit þeirra bæði verið höfundum þeirra og sagnafræðinni til gagns og sóma. Auk þessara 3 kennara í sagnafræði er 4. kennarinn, prófessor Jul. Lange, í sögu fagurra lista. Um hann ritaði Georg Brandes í vetur, að hann ætti eigi neinn sinn jafningja, og er það satt. I sögu höggmynda-listarinnar og málara-listar- innar er liann einn af hinum ágætustu vísindarnönnum, sem nú eru uppi.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.