Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.10.1895, Page 4
12
ÞjÓðviljinn ungt
Alþingistíóijidin eru ný komin, og
einstöku irienn búnir að skera u])]> rir
þeirn. Annars mætir nú blaðalestur og
]>olitik afgangi hjá oss Djúpkörlum, þeg-
ar „vel er um síld og fisk“. Það kunn-
um vér samt ílla við, að oss sé brugðið
urn apturkipp í stjórnarskrárniálinu, eins
og Jón Jakobsson virðist vilja gefa í
skjm í efri cleilrl i surnar, þótt vér ber-
urn það traust til þingmanna vorra, að
vér ekki bindum atkvæði þeirra við ein-
stök orð eða setningar í sjálfstjórnarmáli
voru. Annars hafa riienn hér almennt
ekki mikla trú á verulegum árangri af
tilbreytni þingsins í stjórnarskrármálinu,
og greinilegur apturkippur er liún, hvern-
ig sem á er litið, og því undarlegri, sem
jrað eru sörnu þingmennirnir, er á undan
fórnum þingum hafa orðalaust greitt at-
kvæði með stjórnarskrárfrumvarpinu, er
uú í sumar telja þessu sama frumvarpi
allt til foráttu, og enn kynlegra, að þeir
skuli svo í sömu andránni biðja stjórn-
ina um stjórnarbót, byggða á þessu frum-
varpi, eins og tillögumenn í neðri deild
gerðu í sumar.
Óbreyttum kjósendum er lítt skiljan-
leg slik kringrás í hugsun og sannfær-
ing hinna virðulegu þingrnanna. Það er
ofur-hætt við, að stjórnin lofi Islending-
um að snriast nokkur ár enn í kringum
sjálfa sig í þessu máli, meðan annað eins
hringl og staðfestuleysi á sér stað í þing-
inu, eins og að undan förnu.
Yfirleitt held jeg, að menn séu ánægð-
ir með gerðir þingsins í samgöngumál-
inu, þótt bregðast megi til beggja vona,
hvort vér Vestfirðingar höfum manntak
í oss, til að nota lánleyfi þingsins til
gufubátskaupa; hefir frá þingsins hálfu
aldrei boðizt betra færi, til að taka nú
rögg á sig; en þar sem svo margar sýsl-
ur eiga hlut að máli, er við búið, að
allar geti ekki orðið á eitt sáttar, og þá
veikjast kraptarnir strax til þess, að nokk-
uð verulegt verði gort. Mest vandhæfn-
in verður auðvitað á úthaldi og útgerð
slíks gufubáts, er gangi fyrir allt amtið;
þar er undir því komið, að fá góðan og
duglegan mann, til að taka að sér alla
umsjón og stjórn á bátnum.
Þótt ísfirðingar beri ekki sérlega mik-
ið traust til stjórnarinnar, þá dettur víst
sárfáum í hug, að leggja nokkurn trúnað
á bráðabirgðarfjárlaga-vaðandann í „ísa-
fold“; þeir fáu, sem lesa, hrista bara
höfuðin yfir þessum ærslum í aumingja
karlinum honum Birni, er virðist nú telja
það mesta lífsspursmálið fyrir landið, að
Skúli kunningi hans fái ekki þessar 5000
kr., og því verði „kóngurinn“ að passa
sig, að láta ekki þingið kúga sig, og
taka nú ráðin af þessum óvita, löggjafar-
þingi íslendinga, og smella á þá bráða-
birgðarfjárlögum!! Er þá ekki bezt, að
kóngur gefi út „resolation“ um, að alþingi
skuli aftekið, Björn sæll? þá ryður það
ekki fé í óvini „ísafoldar“, og kóngur
er alveg sjálfráður, að gjöra vinum sínum
s\ro mikið gott úr lanclsins kassa, sern
honurn þóknast;liið „löghelgaða jafnrétti“
er þá líka horfið.
Það þykir annars taka steininn úr
með framkomu „ísafoldar“ í flestum lands-
málum, siðan hún fékk þessa meðhjálp
þarna vestan að. Yér megum vel vera
að óska eptir nýjum lífsstraumum inn
í þjóðlíf vort vestan úr Vinnipeg, ef þeir
verða álika hollir, eins og fýla sú, er leggur
úr dálkum „ísafoldar“ gegn öllu poli-
tisku sjálfstæði þings og þjóðar, síðan í
sumar, að „Lögbergs“-ritstjórinn „kom
lieim til íslands aptur“.
ísafirði, 29. okt. ’95.
Tiðarfar. Staðviðri og bezta tíð hefir hald-
izt liér vestra |>essa síðustu vikuna.
Afliibröjrð haldast enn inikið géð hv/vetna
hér við Djúpið, enda haía ýmsir aflað all-vel af
síld í lagnet.
Gnfuskipið ,,Á. Ásgeirsson“ kom hingað sunn-
an úr Reykjavík 2t. þ. m., og fór héðan aptur
27. þ. m., ætlaði að skreppa til Akureyrar, og
k nokkrar aðrar hafnir á Norðurlandi, k undan
„Thyru“, en kemur svo hingað aptur að norð-
an, líklega epti.t 10—12 daga, og tekurþánokk-
uð af fiski, sem Ásgeirsverzlunin sendir með
skipinu til útlanda.
Sýsluneíndarfundur
fyrir ísafjarðarsýslu verður haldinn í
þinghúsinu á Isafirði þriðjudaginn 12.
nóvbr. þ. á., eða næstu daga í færu veðri,
til þess meðal annars, að ræða um gufu-
bátskaup.
Skrifstofu ísafjarðarsýslu, 26. okt. 1895.
Sigurður Bi’ieiUj
settur.
UflP Enda þótt jeg verði fjarver-
andi í vetur, fæst þó á Arngerðareyri,
eins og að undanförnu, allt, sem að reið-
skap lýtur, sélegt og varanlegt.
JSjai’ni Ásgeirsson,
söðlasmiður.
I ^ifsábyrgðarf élagið
„STAR.“.
Umboðsmenn félagsins á Vestur-
landi eru:
á ísafirði Skúli Thoruddsen,
- Bildudal kaupm. Pétur Thorsteinsson,
- Dýrafirði síra Kristinn Daníétsson,
í Stykkishólmi verzlm. Ingotfur Jónsson,
og gefa þeir þeim, sem tryggja vilja
líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
V, 3.
PíT' Nj'ir kaupendur að V. árg.
„Þjóðv. unga“ fá í kaupbæti sögusafri
„Þjóðv. unga“ I.—If., eða alls 148 blað-
siður af skemmtilegum sögum,
HNTýtt skósmiði er byrjað. Greið mót-
taka, skilvis afhending eptir loforðum,
rýmilegir borgunarskilmálar, innskrift
tekin hjá flestum kaupmönnum hér á
staðnum. Abyrgð tek jeg á öllu nýju
skótaui, er jeg smíða.
ísafirði 7/)0 ’95. — Skúli Einarsson.
SOO Kroner
tilsikres enhver Lungelidende, som efter Be-
nyttelsen af det verdensberömte Maltose-Præ-
parat ikke finder sikker Hjælp. Hoste, Hæshed,
Asthma, Lunge- og Luftrör-Katarrh, Spytning
o. s. v. ophörer allerede efter nogle Dages For-
löb. Hundrede og atter Hundrede have be-
nyttet Præparatet med gunstigt Resultat.
Maltose er ikke et Middel, hvis Bestanddele
holdes hemmeligt, det erlioldes formedelst Ind-
virkning af Malt paa Mais. Attester fra de
höieste Autoriteter staa til Tjeneste. Pris 3
Flasker med Kasse 5 Kr., 6 Flasker 9 Kr., 12
Flasker 15 Kr., 24 Flasker 28 Kr. Albert
Zenkner, Opfinderen af Maltose-Præparatet,
Berlin S. 0. 26.
Kína-lifs-elixir
Jeg undirrituð hefi í mörg ár þ.jáðst.
af veiklun í taugaherfinu, og hefir bæði
sálin og líkaminn liðið við það. — Eptir
margar, en árangurslausar, lækninga-til-
raunir, reyndi jeg fyrir 2 árum síðan
„Kína-lífs-elixír“ frá hr. Valdemar Peter-
sen í Frederikshavn, og eptir að jeg hafði
brúkað úr 4 flöskum, var jeg þegar orð-
in tnikið hressari; en þá hafði jeg ekki
ofni á því, að kaupa mér meira.
Nú er sjúkdómurinn aptur farinn að
ágerast, og er það vottur þess, að batinn,
sem jeg fékk, var hinum ágæta bitter
að þakka.
Litlu-Háeyri, 16. janúar 1895.
Gufírún Símonardóttir.
Itina-lífe-elixirinn fæst hjá
flestum kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera vissir um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eptir því, að Výy‘
standi á flöskunum í grænu lakki, og
eins eptir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firma nafnið Valdemar Peter-
sen Frederikshavn, Danmark.
PKENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS UNGA.