Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.08.1897, Side 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.08.1897, Side 2
122 ÞJÓÐVILJINN UN'OI. VI, 31—32. kvæmlega öllum sömu kröfunum, enda gerir dr. Valtýr sér í „launungarbréfinu“ þær vonir, að „landshöfðingi muni styðja málið drengilega“. Getsakir „Dagskrár" eru því svo fjarri öllum líkum, sem framast má vera. En politik „Dagskrár“ er allt um það auðskilin. Landshöfðingi, — sem „Dagskrá11 hef- ir úthúðað, svo að hann hefir til neyðzt, að verja æru sína með laganna tilstyrk, — er nú útmálaður, sem ofsóttur píslarvott- ur, rógborinn vegna þjóðlyndrar framkomu sinnar (!) Er það ekki hryllilegt að hugsa til þess, ef rógberunum kynni nú að takast, að svipta þenna ástsæla (!!) höfðingja embætti sínu, þessu embætti, sem hann hefir jafn vel eigi hikað við, að leggja í hættu, til þess að berjast fyrir „hinum helgustu rétt- indum þjóðarinnar", berjast „með þjóð- inni“, þ. e. með Einari Ben., sem er eitt og hið sama? En hvers má ekki vænta, þegar allir láta stjórnast, annað tveggja af óvild, eða af embætta von? Með þannig löguðum getsökum, hyggst „Dagskrá“ bezt geta safnað öllum sam- bandshernum saman. Dað er síðasta óyndisúrræðið. -------m*------ Dagskrár-söiiminiii. 1 ísafold 4. þ. m. lýsti ég því yfir, að ef Dagskrá hefði seðil í höndum með þeim orðum, sem mér voru eignuð í því blaði 1. þ. m., þá væri hann falsaður, því „seðil með þeim orðum hefði ég aldrei skrifað". Að þetta var rétt, hefir Dagskrá nú sjálf sannað í blöðum þeim, sem út komu af henni 4. og 5. þ. m., þar sem hún skýrir frá því, að hún hafi aldrei haft neinn slíkan seðil í höndum, heldur beinlínis búið þær setningar til, sem hún þykist tilfæra orðrétt eptir mér, eptir skot-spóna- fregn frá tveim mönnum, sem aptur hafa þetta eptir öðrum. Dessa ósvífni vildi ég fá sannaða, til þess að menn gætu af því séð, hve samvizkusamt blaðið er í með- ferð þeirra mála, er það ræðir i dálkuin sínum. Og'úr því að blaðið hefir svo á- þreifanloga sannað, að það ekki svífist að gera sig sekt í annari eins óhæfu, og hér er komið fram, þá er mér fuilnægt, því að af því má ráða, hversu aðrar staðhæf- ingar þess muni áreiðanlegar. En þar sem Dagskrá staðhæfir nú, að ég hafi neitað því, að ég hafi skrifað nokkr- um þingmanni nokkuð svipað því, sem haft er eptir mér, þá eru það tilhæfulaus ósannindi. Eg hefi sagt hverjum, sem hafa vildi, að ég hafi sent einum þing- manni, þingmanni Strandamanna, seðil með prentaða bréfinu minu 8. apríl 1896, þar sem þess var getið, að landshöfðingi M. Stephensen mundi ekki verða ráðgjafi, þó hið nýja fyrirkomulag kæmist á, og heldur ekki líklegt, að hans álits mundi leitað um það. hver það skyldi verða. Detta átti ég hægt með að segja, þar sem M. St. hafði sagt það við mig sjálfan 1895 — og mér var kunnugt um, að hann hafði látið hið sama í ljósi við aðra menn líka — að ekki kæmi til nokkurra mála, að hann tæki á móti ráðgjafastöðunni, þó svo færi, að hún stæði sér til boða Dar sem ég taldi það „ekki líklegt“, að álits hans mundi heldur verða leitað um það, hver skyldi skipa ráðgjafasætið, þá var slíkt auðvitað hverjum þcim manni, sem þekkti þær almennu reglur, sem fylgt er í því efni. Dað inun hvergi siður, þegar verið er að skipa æðri cmbættismenn, að þeir, sem undir hann eiga að verða gefnir, séu spurðir til ráða um það, hver skuli settur yfir þá. Mér var því óhætt að segja, að ekki mundi líklegt, að brugðið yrði út af þeirri reglu við skipun ráðgjafans. Að nokkur ályktun verði dregin út af þessu, um óvild frá minni hálfu til lands- höfðingja, neita ég með öllu. Til þessa var heldur engin ástæða, Okkur hefur ! aldrei borið neitt á milli, fyrri enn nú á þingi, og þegar þetta var skrifað, var stefna okkar í stjórnarskrármálinu alveg hin sama, enda tók ég það fram í bréfi mínu, að hann mundi „styðjamálið drengi- lega“; og að ég þá hafði ástæðu til að hafa þá skoðnn, má sjá af bréfi hans til stjórnarinnar 20. des. 1895, þó raunin hafi orðið önnur síðan. Af orðum mínum verð- ur ekki einu sinni dregin sú ályktun, að ég hafi haft nokkuð á móti því, að M. St. yrði ráðgjafi, heldur einungis það, að ég hafi áiitið, að þeim þingmanni, scm ég skrifaði þetta, mundi ekki standa það á sama. Ef ég ætti að svara upp á allar þær fjarstæður og ósannindi, sem sögð hafa verið um inig í Dagskrá, mundi ég hvorki fá mikinn tíma til þingstarfa, né rúm fyrir svör mín. Eg mun því varla framar anza henni neinu, þótt hún haldi áfram gaspri sínu, úr því ég einu sinni er búinn að sýna og sanna, hve vönduðum meðulum hún beitir til þess, að reyna að sverta sína pólitisku mótstöðumeun. Detta eina dæmi er nóg til að sýna, hve áreiðanlegt annað muni vera. 6. ágúst 1897. Valtyr Guðmundsson. -----O—<^5>-o-- „Fíflinu skal á foræðið vísa“. Út af fyrirspurn frá þingmanni Reykvíkinga 30. f. m. þess efnis, hvort nokkur von væri, að stjórnin mundi samþykkja stjórnar- skrárfrumvarpið, ef ákvæðinu um rikis- ráðið í 1. gr. frumvarpsins væri haldið, svaraði landshöfðingi, að þess væri að vísu engin von, en hvatti þó þingið að halda þessu ákvæði í frv.(!) Sýnir þetta, sem fleira, hve einkar annt landshöfðingi nú lætur sér um það, að ekki náist samkomulag í málinu, svo að haldizt geti ástandið, sem er, þar sem hann jafnvel eigi kynokar sér við, að eggja þingið, að ganga þvert ofan í það, sem hann hefir sjálfur haldið fram í bréfi sínu til ráðaneytisins 20. des. ’95, að til þess að losa sérmálin úr ríkisráðinu sé stjórn- arskrárbreyting óþörf. Hvað landshöfðingja gengur til þess, að vilja halda þanuig dauðahaldi í stjórn- arástandið, sem er (þar á meðal í ábyrgð- arlausa landshöfðingjadæmið), látum vér auðvitað ósagt. En mikið leggur hann óneitanlega 1 sölurnar, að ganga bæði i berhögg við sjálfan sig og húsbónda sinn, ráðherrann. -----O-Eg—O---- Sarnur yíÖ sig er síra Dorkcll Bjarnason, þegar ræða er um kvennfrelsismálin. Árið 1893, þegar frumvarpið um „kjör- gengi kvenna í sveita- og safnaðamálum" var til umræðu í efri deild, gjörði síra Doi'k. þá grein fyrir atkvæði sínu á móti málinu, að það væri að eins af hlífð og velvild við kvennfólkið að hann ekki gæfi frumvarpinu atkvæði sitt, með því að skyid- ur þær, er kjörgenginu fylgdu, væru þeirn þyngri byrði, en þær gætu risið undir. (Skaði, að brjóstgæðin skyldu ekki ná svo langt, að hann færi að berjast fyrir að

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.