Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1898, Side 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1898, Side 2
82 Þjóðyiljinn ungi. VII, 21. er á frammistöðu „Austra“ í þessu máli. Hann úthúðar „Valtýskunni“ á allar lund- ir fyrir það, að hún vilji leggja sérmál íslands undir ríkisráðið danska, sem sam- kvæmt Alþingistíðindum eru reyndar örgustu ósannindi, en i niðurlagi sömu greinar, ræður hann til að næsta alþingi samþykki miðlunarfrumvarpið frá 1889, það frumvarp, sem með berum og ótví- ræðum orðum, leggur öll sérmál Islands óskoruð undir úrskurð og atkvæði ríkis- ráðsins danska. En miðlunin frá 1889 heíir einu sinni verið vegin, og léttvæg fundin, og svo mun og fara um hana að þessu sinni, þótt hún nú sé „komin til Islands aptur alla viðskilin prakt“. - -OOO^OOO---- Bréf úr Bjúpinu. A kyndilmessu 1898. Það er fremur dauft hljóðið í Djúp- manninum um þessar mundir, dag eptir dag, og viku eptir viku, varla fært út úr dyrum fyrir óveðursfullum og ofviðris- fullum útsynningi. Það má þvi svo að orði kveða, að hver kúri þar, sem hann kominn er, og enda kútvetlist og formæli sér. Sumir óska jafn vel eptir norðan- garði, vilja heldur, að Þorri syngi á þær nótur, heldur en Iíarpa í vor. Síðan með jólaföstu hefur að kalla verið fisk- laust, og varla fiskvart hjá almenningi, síðast er róið var, svo okki er heldur liægt að gjöra sér dagamun með bless- uðum bútungnum. Haustvertíðin var einnig með rýrara móti. — Þau þokka- lijúin Sultur og Seyra eru þegar farin að gægjast inn í hýbýli surnra, og allt útlit fyrir, að þau verði harðvistuð á páskum hjá.mörgum, rætist ekki úr með aíiann. Það er að vísu íllt afspurnar fyrir Isfirðinga, að bjargarleysi skuli vera fyrir dyrum hjá mörgum, ef ekki fiskast í nokkrar vikur; reyndar lifir fjöldi fólks eingöngu af sjónum, en undanfarin ár hafa alls ekki verið nein fiskleysis ár, þótt tvær seinustu vertíðirnar hafi verið rýrar hér við Inn-Djúpið. Það verður því ekki með réttu kennt árferðinu, enn sem komið er, þótt hagur sumra sé bágborinn, heldur því, hvernig með það er farið, sem í bætur berst. — ísfirðing- ar lofa Djúpið sitt mjög, og kalla það gullnámu, og víst er um það, að mikilli björg er árlega ausið úr þessari námu, en það er eins og ausið sé í botnlaus ker hjá ærið mörgum. Þvi meira, sem aflast, því meiru er eytt, án þess að mæða sig nokkuð með áhyggju um ókominn tíina; að þvi leyti fylgjum vér ísfirðing- arnir margir hverjir trúlega reglunni, að láta hverjum degi nægja sína þjáning. G-ullnáman okkar má því helzt aldrei bregðast á neinum tima ársins, ef ekki á að vera sultur og seyra hjá miklum fjölda manna. Margir hafa næstum ó- bifanlega trú á þyí, að hér við Djúp bregðist aldrei fiskafli til langframa; en það er eins og trúin á sparsemi og fyr- irhyggju um ókomna tímann sé ekki eins rótgróin. Það er þó vissulega ekki ómögulegt, að fiskur geti brugðist hér, sem annars staðar upp við land, og það eru að minnsta kosti miklu raeiri lfkur til að vertíðirnar hér við Jnn-Djúpið fari frem- ur versnandi, en batnandi, eptir því sem þilskipasægurinn verður meiri, sem mest allt sumarið girðir fyrir allt Djúpið. Jeg hef stundum verið að hugsa um, hvilík óttaleg bágindi yrðu hér við Djúp, ef eins langvinnt fiskleysi bæri hér að höndum, og nú hefir gengið yfir sjávar- sveitirnar við Faxaflóa sunnanverðan. Þar hefir hin mikla garðrækt treint lífið í mörgum manni, en hér er þvi bjarg- ræði ekki til að dreifa, sökum skeyting- arleysis mannannai —- Það er víst hrein- asta undantekning, ef tómthúsmaður hér við Djúp á garðholu, og hjá bændum er garðrækt varla teljandi. Heldur ganga menn iðjuláusir dag eptir dag, og viku eptir viku, er ekki gefur á sjóinn, held- ur en að rækta garðblett í kringum kofann sinn, þótt nóg efni séu fýrir hendi til að fá á þann hátt töluverðan forða. Milliónir manna annars staðar í hinum menntaða heimi iifa afgarðrækt, en vér lslendingar viljum heldur lifa mestmegnis á méli frá útlöndum, sem opt er svikið, og svelta, þegar vér ekki getum keypt það góðgæti dýrurn dómum, heldur en að fá holla og góða fæðu upp úr óræktarmóunum umhverfis kofana okkar, með sárlítilli fyrirhöfn, í saman- burði við arðinn. ——ooogooo----- Lausamennskan. Þeir segja sumir bændurnir hérna, að jeg hafi alveg gleymt lausamönnunum, þegar jeg heilsaði upp á tómthúsmennina síðast. Lausamennirnir séu þó engu betri, heldur verri kynslóð, en tómthúsmennirn- ir. Það lækki þó all-optast rostinn í tómthúsmannagreyjununi, þegar tómthús- mennskubaslið sé búið að taka úr þeim húskarlagorgeirinn, og svo geti bændurn- ir haft þá fastráðnn á útvegnum sínum, með því að leigja þeim einhvern kumb- aldann; hvort sá útvegur fær nokkurn tíma bein úr sjó, eða ekki, gerir lítið til, það má einlægt segja sveitinni til þessara manna, þegar þá þrýtur algjörlega. Við þossa lausamenn ræður maður þar a moti ekkert, þeir eru út í kvippinn og kvappinn, stundum suður á landi, stundum fyrir austan, rói svo þar sem þeirn sýnist, og sé.u yfir höfuð allra mestu gikkir. Þetta er nú og, - bændur góðir, þið eruð af gamla skólanum, eins og jeg, og ekld betri. Mér hefir allájafna þótt það ljótt, hvernig þið farið sumir hverjir með tómthúsmennina ykkar, þeir eru miklu fremur ánauðugir þrælar, en frjálsir menn hjá ykkur. En þvi fer betur, að þossi hugsunar- háttur er óðum að hverfa; en áður var hann ekki fátíður. En jeg ætla þá að stjaldra dálítið við hjá lausamönnunum, þessum ungu borg- urum, sem nú þjóta upp á hverri þúfu, eins og gorkúlur i vætutíð. Jeg skal þá strax segja ykkur það, að mér er miklu botur við lausaménnina, en tómthúsmennina, og þó hefir mcr opb sárnað, að missa dugloga vinnumenn frá rríér í lausamennskuna. í mínu ungdæmi þekktust varla þessir lausamenn; þá þótti ungum mönnum það full-lífvænlegt, að vera. í vist, þangað til þöir fóru að hokra, og íatt að segja, áttu þoir þá að öllum jafnaði eins mikið, til að byrja með búskapinn, eins og ungu mennirnir almennt nú, þótt kaupið væri niiklu lægra. En þárfirnar voru þá líka miklu færri, sannar og ímyndaðar. Jeg man lika, þegar gömlu lausa- mennskulögin komu, sem gáfu mönnum kost á að kaupa sig frá vistarskyldunni fyrir 6 vættir, þá þótti sumum gömlu bændunum það allt annað, en þörf lög. „Bara til að ala upp lausung og flakk í landinu“, sögðu þei^. Mér hofir jafnan fundizt það óeðiilegt, að menn þyrftu að kaupa það dýrum dóm- um, að mega leita sér atvinnu á hvern ærlegan liátt, sem þeir teldu sér bezt henta, og þess vegna þóttu mér nýju lausamennskulögin góð réttarbót, þau lækka þó mikið þetta rangláta gjald, en

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.