Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.10.1898, Page 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.10.1898, Page 2
18 Þjóðviljinn ungi. all-mikla eptirtekt, því að keisarinn lýsti því þar vfir, að liann myndi láta leggja fyrir næsta ríkisþing lagafrumvarp, er leggði typtnnarhússhegningarvinnu við því, að hindra verkamenn frá vinnu, eða enda við því, að hvetja til verkfalla. Mælist þessi tillaga, sem von er, hið versta fyrir hjá verkmannalýðnum, þar sem verkföllin hafa til þessa reynzt lang- áhrifamesta vopnið, sem verkamenn geta beitt, til þess að bæta verkakjör sín; er það og mjög hæpið, að slíkt frumvarp nái fram að ganga á ríkisþinginu, enda þótt apturhaldsflokkarnir munióefað styðja þær tilraunir stjómarinnar sem rækilegast. Ekki þótti það síður tíðindum sæta, er Nicolaj ítússakeisari sendi siðast í á- gústmánuði ávarp til allra þjóðhöfðingja, er sendiherra hafa í Pétursborg, og skor- aði á þá, að leggjast á eitt með sér, aö afnema lcostnað til hers og morðtola, sem nú fœri árlega vaxandi, svo að þjóðfélögin fengju eigi til lengdar undir risið, og sem fyrirsjáanlegt vœri, að hlyti að leiða til eyðileggingar. — Leggur þvi Nicolaj keis- ari það til, að allar menntaðar þjóðir sendi fulltrúa á eins konar friðarþing, fyrir eða um áramótin næstu, þar sem rætt sé um það, hver ráð muni tiltæki- legust, til þess að tryggja ævarandi frið í heiminum. Þessari tillögu keisarans mun af flest- um hafa verið vel tekið í orði, svo að telja má óefað, að friðarþing þetta komist á laggirnar; en um hitt er vart nema ein skoðun, að slíkt fundarhald verði alls- endis árangurslaust, þar sem mörg eru ágreiningsmálin, og sumir, svo sem Erakkar, þykjast eiga sín i að hefna, og vilja því síður en ekki leggja vopnin niður að svo stöddu. — Að öðru leyti mun blað þetta síðar minnast á þatta mál, og undirtektir stórveldanna undir það. Ýmisleg tíðindi. Bakara.sveinar í Kaupmannahöfn hafa ný skeð hætt vinnu, og er orsök verltfalls þess sú, að sveinarn- ir vilja fá vikulaunin hækkuð úr 24 kr. í 30 kr., og daglegan vinnutíma styttan úr 10 kl.tímum í 8. — Fyrir eptirvinnu vilja þeir fá 1 kr., um kl.tímann, og hafa 14 daga fría að sumrinu, en fá þó kaup þann tímann, svo sem væru þeir að vinnu. — Kröfur þessar þykja bökurum allsendis óaðgengilegar, og segja, að brauð hlyti að hækka að iniklum mun í verði, ef þeim yrði sinnt. — Pest geysar enn á Indlandi, og dóu þar 2 þúsundir manna á viku, er síðast fréttist. — I Koreu gjörðist það ný skeð, að konungurinn og krónprinzinn urðu báðir snögglega veikir eptir kvöldverð, og er talið, að maturinn hafi verið eitraður. 11 hirðmennvoru því hnepptir í varðhald. — Ákafir livirf- ilbylir gengu yfir eyjarnar í Vestur-Indi- um 10. sept. síðastl., svo að sjór gekk víða á land, skolaði burtu kirkjum, íbúð- arhúsum o. fl., og urðu mikil tjón af; á eyjunni St. Vincent týndust t. d. 300 inanna, og 20 þúsundir stóðu eptir hús- viltar, á eyjunni Barbados týndust 100, og 2 þúsundir urðu húsviltar. — Um miðjan sept. gjörðu snikkarar og verka- menn í París, er störfuðu að húsabygg- ingum, til undirbúnings heimssýningunni 1900, verkfaU, og kröfðust launahækkunar, og var það mál enn ójafnað, er síðast fréttist. -•■7. sept. hrundi brú ein, á St. Laurencefljótinu í Canafla, og fórust 13 menn, en 12 meiddust. + Lovísa Vilhelmína, Danmerkur- drottning, andaðist í Kaupmannahöfn 29. sept. síðastl., háöldruð, fædd 7. sept. 1817. — Hún hafði i surnar öðru hvoru verið veik og lasburða, en þó optast á ferli, svo að fáir munu hafa vænzt þess, að dauða hennar bæri svo bráðan að. — 1842 gekk hún að eiga Kristján, prinz af Grlúcksburg, er ríki tók í Danmörku 1863, og hafa þau hjón lifað i ástúðleg- asta hjónabandi, og orðið rnjög kynsæl, sem kunnugt er. — Lovísa drottning var í hvívetna merkasta kona, er meðal annars lét sér mjög annt um að koma á fót ýmsum líknarstofnunum fyrir mun- aðarlausa og bágstadda i Danmörku, og veitti mörgum slíkum stofnunum árleg- an styrk. Stjórnarskrármálið. Það er orðið hljótt um það mál nú upp á síðkastið, ekki nefnt á nafn í blöð- unum, og litt gert að umtalsefni hjá al- menningi. Það er eins og svefnværð só á ölluin, komið logn ofan á storminn. í yfirlýsingu þeirri, er landshöfðingi flutti þinginu í fyrra, var þó svo látið í veðri vaka, sem ráðherranum væri það „áhugamáP, að fá þeirri stjórnarbreyt- ingu á komið, sem þá var i ráði. En svo er að ráða, sem sá áhugi hafi annað tveggja ekki verið mjög einlægur, eður hann só þá þegar farinn talsvert að dofna. Að minnsta kosti munu þess fá dæmi, að nokkur stjórn hafi nokkum tíma í nokkuru landi sýnt annan eins fádæma lognhúfuhátt á „áhugamálum“ sinum, eins og ráðherra Islands hefir sýnt, síðan í fyrra, að því er stjórnarskrármálinu við- víkur. Það er nú liðið meira en ár, síðan alþingi lauk í fyrra, og allan þann tíma hefur ráð- herra Islands verið í strangasta bindindi, ekki látið eitt einasta orðið til sín heyraum stjórnarskrármálið, ekki einu sinni svarað, þótt á hann væri yrt af efri deild alþingis. Slík þagmælska um „áhugamálin“ er eigi öllum gefin, og má heita annálsverð. Eptir yfirlýsingu stjórnarinnar á síð- asta þingi munu flestir þeir, er töldu yfirlýsingu þessa alvarJega meinta, hafa talið það sjálfsagt, að til þingrofs og nýrra kosninga kæmi, annaðtveggja á síðastL vori, eða þá á yfirstandandi hausti. Á þann hátt gat ráðherrann bezt sýnt það, að honum væri alvara. Og með því mótinu einu gat hann VIII, 5.-6. einnig vænzt þess, að fá „áhugamálinu“ sínu fram komið á næsta þingi. Því enda þótt það sé að vísu eigi óhugsandi — eptir hringlanda ýmsra is- lenzkra þingmanna að dæma — að frum- varpið fáist fram á næsta þingi, þótt þingmenn séu sömu, þá er það þó óneit- anlega nokkuð djarft, að byggja á slíku, eða að eiga „áhugamál“ sín undir annari eins hendingu. Það er því sýnt, að annaðtveggja leggur stjórnin nokkuð annan skilning í orðið „áhuga“, en almennt gerist, eða þá, að ráðherrann hefur sóð sig um hönd, eins og mannanna börnum er títt. Hvort beldur er, sózt líklega naumast úr þessu, íýr en í júní næstk. Má ske heyrum vér þá sömu söguna um „áhugann“ aptur. En sleifaralag og áhugaleysi hyggjum vór þó að réttast só úr þessu að fara að skýra aðgjörðarleysi stjórnarinnar. Sannleikurinn er, að ekhert íslenzkt mál er, eða getur verið dönskum dóms- málaráðherra áhugamál. Hann hefur svo ótal mörgum öðrum ’«löðum að fletta. ——®00§§©0»----- Aldna eikin. Jeg stóð úti’ í skógi hjá aldirmi eik, sem orðin var skrautlaus, og visin ogbleik, Og svipt var gjörlega sórhverri grein; jeg sá, að hún skalf, þegar vindurinn hvein. En þó hennar misst væri blómskrúð og bar, af björkunum öllum hún tignlegust var. I anda jeg sá hennar ágæta skraut, sem allt fyrir löngu var horfið á braut. Því yppurstu litirnir fiölna æ fljótt, og fjörleiki æskunnar hverfur svo skjótt; en glögglega má þó á sérhverju sjá þann svipinn, er eitt sinni hvíldi því á. -----------------oooggoœ---- Húðar-klár inn. Yeslingur, ill var þín æfi, og opt hafa högg dunið á þór; en þrautin er búin, því þrællinn þeytt hefur svipunni frá sór. Hér liggurðu lúinn og dapur, í lungunum heyri’ eg að sýður; í leggina bæklaða, bólgna, og blóðugu kaunin þig svíður. Þig sviður í svipuförin, því samvizkulaust varstu barinn; og út-taugaður nú ertu, og allstaðar sár og rnarinn. Hann húsbóndi þinn var þór liarður, — hjartalaus níðingur var ’ann — á meðferð á mállausum þjóni hið minnsta skyn ekki bar ’ann. Hann lét þig opt veikan vinna, já, vinDa jafnt nætur, sem daga; í hitanum lét hann þig hlaupa, og hungraðan kerruna draga.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.