Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.11.1898, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.11.1898, Page 1
Verð árgangsins (minnst 60 arka) 3 kr. öO aur.; erlendis 4 kr 50 cmr.,og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN UNGrl. - -1-: ÁTTUNDI ÁE8AN8US. =|rrr-==r- --í—RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. - M 12. ÍSAFIBÐI, 24. NÓY. | Uppsiign skrifleg, ógild J nema komin sé til útgef- j anda fyrir 30. dag júní- J mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni horgi skuld sína fyrir blaðið. 18 9 8. Bífldirfska. Fá munu þess dæmi, að nokkur poli- tisk stefna hafi nokkuru sinni hlotið jafn eindreginn fordæmingardóm, eins og „miðlunin frá 1889“. Svo gagngjört var þjóðin á móti þeirri stefnu, að hún hikaði ekki við, að hafna jafn vel nýtustu og þjóðkunnustu þingmannaefnum, svo sem t. d. Einari sál. Asmundarsyni í Nesi o. íl., af þvi að þeir höfðu látið flekazt að „miðluninni“, eða þóttu ekki nógu öruggir i fjand- mannatlokk hennar. Og ýmsir þingmanna þeirra, er ver- ið höfðu „miðlaninni“ fylgjandi á alþingi 1889, og ná vildu þingkosningu að nýju, áttu sér eigi annars úrkosti, en að af- neita þessu afkvæmi sínu, „miðluninni“, opinberlega, frammi fyrir kjósendum, og látast vera gamla endurskoðunarfrum- varpinu fylgjandi með lifi og sál. Annar aðal-frumkvöðull „miðlunar- innar“, hr. Páll Briem, dró sig í hlé frá politíkinni, og settist í notalegt embætti, en hinn höfundurinn, hr. Jön Ólafsson, fluttist til Ameríku. „Miðlunin“ var þvi dauð og grafin, og feðurnir höfðu sjálfir sungið yfir henni útfararsálminn. Það má því heita stakasta fífldirfska, að vér ekki segjum ósvífni, að fara nú að vekja draug þenna upp aptur, og ætla þjóðinni þann dæmafáa hringlandahátt, að hún fari nú að jeta þann dóminn ofan i sig aptur, er svo einróma var ujip kveð- inn fyrir örfáum árum. Það hefir því heldur ekki heyrzt, að prédikanir hr. Jóns Ólafssonar í „Nyju öldinni“ liafi til þessa borið nokkurn árangur. Almenningur, sem heyrt hefir, hve eindreginn hann var með „Valtýsstefn- unni“ í fyrra sumar, og hve hastarlega hann snerist svo að „miðluninni“ í fyrra haust, þegar honum bauðst atvinna, sem ritstjóri „miðlunarmálgagns“, mun naum- ast hafa tekið greinar hans alvarlega. Þar við bætist og, að agnúarnir við „miðlunarfrumvarpið frá ’89“ eru hverj- um hugsandi manni svo auðsæir, að engum getur blandazt liugur um það, að þjóð vor væri engu betur farin, þótt það stjórnarfyrirkomulag yrði lögleitt, er frumvarp það fer fram á. Eða hvaða gagn er þjþðinni að því, að hafa hér landstjóra og inienda ráð- herra, þegar danskur ráðherra, sem sæti á í nkisráði Dana, getur svo ónýtt, eða apturkallað, þau lög, sem innlenda stjórn- in hefir staðfest. Að vilja lögleiða liér slíkt fyrirkomu- lag væri að eins að kasta út fé þjóðar- innar til einkis, setja upp flokk dýrra embættismanna, er valdlausir stæðu gagn- vart útlenda valdinu. Að halda slíku fram, þrátt fyrir það, hve eindregið þjóðin hefir þegar einu sinni hafnað því, getur því að eins ver- ið í þvi skyni gjört, að reyna að vekja sundrungu, og hindra þannig, að þjóðin verði aðnjótandi stjórnarumbóta þeirra, sem liún á kost á. -i>«3^Sj£gýe<!n Vjfefsi-'r'-s- Stutt athugasemd viö fríkirkjugrein síra Sig. Stefánssonar. Alþingismaður síra Sigurður Stefáns- son i Yigur hefir nú i 3 nr. blaðsins lýst skoðun sinni á fríkirkjumálinu skýrt og skorinort. Hann er þar gallharður á móti, vill halda fast við ríkiskirkjufyrirkomulagið, og telur það þjóðinni og kristindóms- lifinu fyrir beztu. Og hann dregur ekki dulur á, hverjar ástæður hans eru. Hann játar, að hér á landi sé, eins og nú stendur, litið af sönnum og lifandi kristindómi. Hann segir, að landsmenn hætti óðum að hafa guðsorð (þ. e. kenningar kristin- dómsins) um hönd, bæði í kirkjum og heimahúsum, afræki náðarmeðul kirkjunn- ar, og hafi þá í hávegum, er i ræðu og riti sýni kristindóminum beran fjandskap. Hann ber því kvíðboga fyrir, að af- leiðingin af skilnaði ríkis og kirkju verði sú, að þeir verði næsta fáir, semnokkuð vilji til kirkju og kennilýðs leggja; en án fjárframlaga geti fríkirkjan eigi þrifizt. Svo langt gengur hann, að hann gerir jafn vel ráð fyrir, að að eins ]/4 lands- manna myndi vilja i frikirkjufélagi vera, en að */4 rnyndu eigi þjTkjast þurfa kirkju né klerka, og að minnsta kosti heldur kjósa, að standa utan alls slíks kirkju- félagsskapar, en að leggja fram fé til þeirra hluta. Það er nú að vísu vafalaust, að þeim mönnum hefir mikið ijölgað hér á landi á seinni árum, sem ekki leggja trúnað á kenningar kristilegrar kirkju. Menn eru æ fleiri og fleiri að komast á þá skoðun, að kristindómurinn muni eiga sammerkt við önnur trúarbrögð heimsins að því leyti, að öll séu þau manna tilbúningur, eða fálm hinnarleit- andi mannssálar, sem þyrstir eptir sann- leikanum, þráir að skilja tilgang lífsins, og tilverunnar, sýnilegrar og ósýnilegrar, sem- umhverfis oss er. Og séu menn á þeirri skoðun, finnst þeim það að sjálfsögðu skipta svo afar- litlu, hvTaða trúarbrögðin, hver um sig aðhyllist. Menn treysta þvi, að alheimsstjórnin, sem gætt hefir mennina rannsakandi anda, og lagt jafnframt efasemdirnar í manns- brjóstið, líti ekki á trúna, heldur á breytn- ina. Dr. Grhnur sálugi Thomsen, sem fáir munu telja vilja trúleysÍDgja, lýsir snilld- arlega skoðun þeirri i kvæði sínu „Stjörnu- Oddadraumur nýrri“, er liann segir: „Hvort Buddhas þessi, heiðnum hinn hallaðist kreddum að þriðji kenndist við kóraninn kemur i sama stað; hið sanna ef hann að eins vill, eins er hann velkominn; mörg kristins villa manns var ill, en minni vorkunnin“. En þó að vér þykjumst vita, að sá fiokkur manna, er þannig lítur á trúar- málin, sé orðinn all-fjöimennur hér á landi, þá ætlum vér, að síra Sigurður Stefánsson taki þó í grein sinni helzt til djúpt i árinni. Vér göngum út frá því, sem vísu, að öllum þeim prestafjölda, sem þjóðinni er lögskylt að halda, hafi ekki orðið svo hörmulega lítið ágengt, að allúr slíkur fjöldi sé þegar undan kristindómsins merkjum genginn. En sé nú svo, að tala kristinna manna hér á landi sé orðin svo fámenn, — eða þó að eins sé um tölu þeirra að ræða, sem elikert vilja í sölurnar leggja fyrir þá trú sina, sem, eptir kristninnar kenn- ingum, á að greiða þeim götuna til himnarikis, og forða þeim frá helvitis pisluiu —, þá virðist sannarlega tími til þess kominn, að farið sé að íhuga það alvarlega, hvort það sé rétt og sanngjarnt, að gera þjóðinni í heild sinni að skyldu, að kosta árlega ógrynni fjár, til að halda uppi prédikun þeirrar trúar, sem svo fáir leggja trúnað á, eða vilja nokkru til kosta. Meðan landslýður var allur, eða því sem næst, trúaður á kenningar kristin- dómsins, og guðlegan uppruna þeirra, þá var eðliiegt, þó að greitt væri úr sam- eiginlegum sjóði þjóðarinnar gjald til prests og kirkju, og almenningi lögð ýrns skyldugjöld á herðar. En þegar svo er komið, að mikill fjöldi þjóðarinnar hefir misst trúna á keDningar kirkjunnar, eða álítur sig ekki þurfa á kirkju og kennilýð að halda, til þess að sjá sál sinni borgið gegnum hinn ókunna eilífðarsjó, þá verður það beinlínis ranglátt, að neyða út úr mönnum fó til slíkra liluta. Fyrir síra Sigurði Stefánssyni, sem

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.