Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.12.1898, Qupperneq 2
VIII, 13.
Þjóðvilji.vn ungi.
50
fullkomna játningu á broti sínu, sem að
framan segir, í réttarhöldum 10., 13. og
27. ágúst; en eptir að hann var sloppinn
úr varðhaldi, ritaði hann amtmanni bréf,
og apturkallaði játningu sína, er hann
kenndi íllurn aðbúnaði í fangelsinu, veikl-
un á sál og líkama, heimilisástæðum sín-
um, og voninni og lönguninni að sleppa
úr varðhaldi, og telur hann þar, að mis-
fellur þær, er á reikningum sínum séu,
hafi stafað af vangá og fljótfærni, en ekki
af ásetta ráði; og þessu sama hefir hann
síðan fram haldið við ný próf, er haldin
voru í Skaptafellssýslu; en apturköllun
þessa þykir landsyfirrétti eigi ástæða að
taka til greina, þar sem hún komi í bága
við annað, sem í málinu só fram komið.
I hóraði hafði ákærði verið dæmdur
í 8 mánaða einfalt fangelsi, en lands-
yfirróttur hefir hert hegninguna í betr-
unarhús, sem að ofan segir.
Að líkindum verður máli þessu skot-
ið til hæztaréttar.
Bæjarmál.
Á bæjarstjórnarfundinum, sem lialdinn var
hér bænum 25. nóv., voru þessi helztu málin
er tiJ umræðu komu:
I. Um lögskipaða ddsvoðaábyrgð á húsum.
Nefnd sú, er falið hafði verið sótaramálið til
meðferðar, hafði komizt að þeirri niðurstöðu,
að lagaheimild brysti til þess, að ákveða fast
sótaragjald, er tekið yrði lögtaki. ef gjaldtregða
væri sýnd, og taldi því nauðsynlegt, að fá lög um
brunamál kaujistaðarins yfir höfuð, og að jafn-
framt yrði á komið lögskipaðri eldsvoðaábyrgð
á kaupstaðarhúsum. — Bæjarstjói'nin samþykkti
því, að beina þeirri áskorun til Btjórnarinnar,
að fá lögleitt fyrir kaupstaðinn samskonar fyrir-
komulag, hvað eldsvoðaábyrgð húsa snertir, eins
og á sér stað í Reykjavík — sbr. lög 13. des.
1895 —, svo framarlega sem stjórnin eigi leggði
fyrir næsta alþingi lög um innlent brunabóta-
félag.
II. VerzlunaHóðir á Isafirði. Með því að
nokkur vafi þykir geta á þvi leikið, hver tak-
mörk séu verzlunarlóðarinnar í kaupstaðnum,
samþykkti bæjarstjórnin að beina þeirri áskor-
un til löggjafarvaldsins, að verzlunarhús megi
reisa hvar sem vill í kaupstaðnum fyrir neðan
nýja veginn úr Króknum í Buginn.
III. Lögsagnarumdœmi lcaupstaðarins. Eptir
tillögu bæjarfulltrúa Arna Sveinssonar var bæj-
arfógeta falið að leita álits hreppsnefndar Eyr-
arhrepps um það, að jörðin Seljaland, er kaup-
staðurinn keypti fyrir nokkrum árum, verði
löggð undir sveitarfélag og lögsagnarumdæmi
ísafjarðarkaupstaðar.
IV. Skipakví. I fyrra vetur skipaði bæjar-
stjórnin nefnd manna, til þess að íhuga, hvar
haganlegast myndi að byggja skipakví, og taldi
nefndin haganlegast, að byggja hana hér i sund-
unum, i framhaldi af svo nefndri Skólagötu. —
Jafn framt gerði og einn nefndarmanna, Arni
kaupmaður Svámson, áætlun um kostnaðinn
við byggingu skipakvíarinnar, er hann taldi, að
verða myndi 40908 kr. 11 a. — Um mál þetta
urðu all-miklar umræður á fundinuin; vildu
sumir jal’n vel eigi horfa í, að leggja allt að
helmingi kostnaðar á bæjarsjóð (Á. Sv. og bæj-
erfógeti), en öðrum þótti það viðsjárvert (próf.
£>. J. og SK. Th.), og málið ekki svo undirbúið,
sem þyrfti; væri og hyggilegra að bíða, og sjá,
hver niðurstaðan yrði, að því er skipakví á
Faxaflóa snerti, þvi að yrði þar sú raunin á,
að landssjóður kostaði hana að öllu leyti, ættu
. Vestfirðingar lieimtingu á sama. Að lokum
v..: samþykkt með meiri hluta atkvæða, að
lresta að gjöra ályktun um málið, unz heyrt
væri álit borgarafundar uin málið.
V. Vitabygging á Arnarnesi. Bæjarstjórnin
ályktaði að beina þeirri áskorun til landstjórn-
arinnar, að taka upp á fjárlagafrumvarp það, er
lagt verður fyrir alþingi á komanda sumri,
hæfilega fjárveitingu til vitabyggingar á Arnar-
nesi, og vænti bæjarstjórnin máli þessu því
fremur góðs byrs hjá stjórn og þingi, þar sem
vitagjaldið úr Isafjarðarsýslu og kaupstað nem-
ur nú árlega nálega 3 þúsundum króna, svo að
sæfarendur virðast eiga fyllstu sanngirnis-
kröfu til þess, að nokkuð sé gert fyrir sigling-
arnar; enda myndi og viti þessi eigi að eins
verða til gagns siglingnm inn Djúpið, heldur
og ágætur leiðarvísir öllum sæfarendum, er
leið eiga fram hjá Djúpinu. sbr. 7—8. nr. „Þjóðv.
unga“ þ. á.
oooggcoo-----
Bátstapar. í „Þjóðólfi11 í þ. m. er þess get-
ið, að 3—4 bátstapar hafi orðið á Eyjafirði í ó-
veðrinu mikla 14. nóv., og hafi þar farizt 12
menn. — Fregnir um skipskaða þessa eru þó
enn mjög óljósar.
Afli hefir í haust verið allgóður í Höfnum
á Miðnesi, svo að þar höfðu um miðjan nóv.
fengizt 600—700 til hlutar. — Dágóður afli var
og kominn i Garðsjó, er ytri veiðistöðvarnar í
Faxafióa sækja til.
Ahlaupið, er hófst hér vestra 14 nóv., hefir
gengið um land allt, og er enn lítt til spurt
um manntjón og skaða, er það kann að hafa
valdið. — Á Eyrarbakka hafði brim gengið svo
langt á land upp, að elztu menn muna slíks
engin dæmi; braut brimið þar sjógarð, og gerði
nokkur spell fleiri. — 1 Reykjavík fauk sam-
komuhús, er oddfélagar í R.vik. áttu, heyhlaða við
Lauganesspítalann skekktist á grunni, og sömu
forlögum sætti nýtt hús, er kaupmaður V.
Breiðfjörð hafði í smíðum. — Þiljubátur einn,
er Tr. bankastjóri Gunnarsson átti, brotnaði í
spón, og fleiri urðu minni skemmdir í höfuð-
staðnum.
Jörðin Breiðholt, skammt frá Reykjavík,
eign Reykjavíkur-dómkirkju, hefir ný skeð, að
fengnu konungsleyfi, verið seld Englendingi
einum, Payne að nafni, sama mannínum, er
veiðirétt í Elliðaánum keypti af Thomsen kaup-
manni fyrir 54 þús. — Kaupverð Breiðholts var
10,500 kr.
Danskt fiskiveiðafélag. í „Dimmalætting“ 8.
okt. síðastl. er skyrt frá því, að danska fiski-
veiðafélagið í Friðrikshöfn ætli að taka 14 segl-
skip frá Færeyjum í félag með sér, til þess að
reka heilagfiskisveiðar við strendur íslands. —
Er þá gert ráð fyrir, að félagið hafi á komanda
sumri 20 seglskip, og eitt gufuskip, við fiski-
veiðar hér við land, og auk þess 2gufuskip, er
flytji fiskinn í is á markaðinn á Englandi, og
er svo að ráða af „Dimmalætting“, sem Fær-
eyingar vænti sór góðs hagnaðar af félags-
skap þessum.
-----©ooggooo------
Mann alát.
Látinn er 30. okt. síðastl. sýslunefnd-
armaður Eirikur Ketilsson á Járngerðar-
stöðum í Grindavík í Gullbringusýslu,
rúmra 36 ára að aldri, fæddur 7. ág. 1862.
— Faðir hans er merkisbóndinn Ketill
Ketilsson í Kotvogi. — Eiríkur sálugi
var eitt ár í latínuskólanum, veturinn
1877—’78, en hætti síðan skólalærdómi,
og reisti bú nokkruin árum síðar, og
þótti dugnaðar- og atorku-maður. —
Hann lætur eptir sig ekkju, Jóhönnu
Einarsdóttur að nafni, og þrjú börn í
æsku. —
1. nóv. þ. á. andaðist á Hala í Rang-
árvallasýslu uppgjafa}irestur J'on Brynj-
blfsson, 88 ára að aldri, fæddur 19. nóv.
1809. — Hann útskrifaðist úr Bessastaða-
skóla 1831, en bjó síðan, sem bóndi, unz
hann árið 1870, kominn á sjötugsaldur,
vígðist sem aðstoðarprestur til Stefáns
prests TJiordersen á Kálfholti, og fékk
hann veitingu fyrir því prestakalli 1877,
og gegndi því embætti, unz hann árið
1886 fékk lausn frá prestskap, fyrir elli
sakir. — Fluttist hann þá nokkuru síðar,
ásamt konu sinni, Þbrunni Bjarnadóttur,
er hann hafði gengið að eiga árið 1838,
til alþingismanns Þbrcíar Guðmundssonar
á Hala, og var þar til dauðadags. —
Konu sína missti hann 1892. — Þau
hjón voru barnlaus.
I síðastl. sept. andaðist í Faney í
Danmörku hóraðsfógeti M. L. Aagaard,
fæddur 30. jan. 1839. — Hann var sýslu-
maður á Vestmanneyjum 1872—’91, og
þótti hæglætismaður.
----------------
ísafirði 3. dct. '98.
Tíöarfar. Síðan síðasta nr. blaðsins kom út
hefir viðrað all-bærilega, veðrátta verið frostlin,
og engir ofsar, þó að smá-vindþotur hafi verið
öðru hvoru. — 30. f. m. gerði þó all-harða
norðan hrynu, er helzt enn.
Drukknun. Að kvöldi 22. þ. ni. vildi það
slys til á Strandseljavík, að báti hvolfdi þar á
siglingu, og fórst einn hásetanna, en þremur
varð bjargað. — Um atburð þenna er oss ritað
innan úr Djúpi 27. þ. m.: „Það var að kvöldi
22. þ. m., að Halldór Benediktsson frá Kálfavik,
formaður Magnúsar bónda Bárðarsonar, er þar býr,
fór frá Melgraseyri, þar sem hann hafði verið
um daginn að kúfiskstekju, áleiðis út í Ogur-
nes. — Var á öðru skipi, samferða honum að
kalla, Jón bóndi Einarsson á Garðstöðum. — A
leiðinni gerði á þá dimmt jel, með stormi nokkr-
um austnorðan, og vissu þeir eigi vel, hvar fór;
en er Jón sá til lands, var hann kominn rétt út
undir Ögurhólma, og felldi þá seglið: en í þeim
svifunum heyrði hann hó eigi all-langt frá sér,
sneri þegar við, og reri á hljóðið: og er skammt
var komið, hitti hann bát Halldórs á hvolfi,
með þremur skipverjum á kjöl, all-góðan kipp
fyrir utan Strandsel. — Halldór hafði séð tii
fdrða Jóns á undan, unz liann felldi. og taldi
hann þá víst, að dregið hefði í sundur með
þeim í siglingunni, en vildi ekki missa sjónir
á honum, og frekaði siglinguna; en rétt í því
sló kviðu all-harðri í seglið, og fyllti; komust
tveir hásetarnir strax á kjöl, er bátnum hvolfdi,
og annar þeirra gat náð í Halldór, og komið
honum á kjölinn; hafði hann þá drukkið til
muna af sjó, og var þegar þrekaður nokkuð; en
einn hásetanna varð þegar laus við bátinn, og
drukknaði hann. — Hann hét Sigurður Sigurðs-
son, snikkara Jónssonar i Meðaldal í Dýrafirði,
vinnumaður Magnúsar Bárðarsonar. — Slysið
vildi til örskammt frá landi. — Sigurður þessi
var sami maðurinn, sem veikur var í fyrra, og
Sigmundur gamli í Vigur fór á sjóinn fyrir, er
hann drukknaði. „í dag mér, á morgun þér“.
Aflabrögð haldast enn fremur treg hér við
Djúp; reitingur nokkur kvað þó vera á skelfisks-
beitu, þar sem henni er beitt, og einnig dág óð
reita hjá stöku manni í Út-Djúpinu, er frá-
brugðna hafa beitu; en slikt nær ekki til al-
mennings. ______
Gufuskipið „Á. Ásgeirsson“ kom hingað 26.
f. m. sunnan úr Reykjavík, rneð nokkuðafkol-
um, sem Danastjórn leggur hér upp handa her-
skipi sinu. — Skipið hafði lagt af stað frá Bret-
landi 1. nóv., hreppt storma all-mikla, en komið
við á Eskilirði og í Reykjavik. — Skipið leggur
aptur af stað hóðan til útlanda í dag.
Hr- Hólmgeir Jensson, amtsdýralæknir, hefir
fyrir nokkru bólusett fé á ýmsum bæjum í
Inndjúpinu. í Ögurvikinni bólusetti liann lið-
ugt hundrað, og drápust sex kindur; í Vatns-
firði og Skálavik kvað hann og hafa bólusett
töluvert á annað hundrað, og kvað þar einnig