Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.12.1898, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.12.1898, Blaðsíða 5
VIII, 16.- -17. Þjóðviljinn ungi. 65 son á Yopnafirði, og póstafgreiðslan í Bæ í Króksfirði veitt ekkjufrú Elísábeth Jónsdöttnr, ekkju Olafs sáluga Sigvaldasonar læknis. Upsaveiði var afar-mikil í Hafnarfirði um mánaðamótin síðuatu. — Að öðru leyti segja síðustu fréttir lítið um afla’brögð við Faxaflóa, en allvel í Höfnum, og í Grinbavík, þegar sjó- gæftir eru. — Hlutir í Miðnesi orðnir 500—800 fiskar. Engin bráðapest hefir í vetur gert vart við sig á Vesturlandi, að teljandi sé, og stafar það að iíkindum af því, að snjóþyngsli lögðust fljótt á í liaust, svo að menn urðu nauðugir viljugir ad taka fé sitt á rftjöf, og féð losaðist þannig við hina at'ar-háskalegu haust-útibeit. sem drepur það hrönnum saman, og kallast svo bráði. Aí' uilarvinnuyélunum í Ólafsdal var að eins kembingarvélin komin upp, er síðast fréttist þaðan. rétt fyrir jólin; spunavélin og vefstaður- inn var aptur á móti ekki komið í gang. Talsvert hafði kembingarvélinni borizt af ull í fyrstu úr Saurbænum, og næstu sveitun- um; en síðan að kalla ekkert, svo að fyrirsjá- anlegt þykir, að vélarnar tái lítið að starfa í þessum stað, enda er staðurinn ærið óhentugur, svo sem samgöngum er háttað. Það sé fjarri oss að árna fyrirtæki þessu annars, en alls góðs. en eigi það ekki vonum bráðar að fara á höfuðið, þyríti sem fyrst að flytja þær það'an, sem þær nú eru settar. Verzlunarfréttir. Frá Kaup- mannahöfn er skrifað 14. nóv. síðastl.: „Fisksalan er nú farin að ganga betur. Fvrir vanalegan stóran fisk hafa fengizt 50—52 kr.; fyrir stóran, fallegan jagtafisk óhnakkakýldan 60 kr., en hnakkakýldan 65 kr.; ísa selst á 31 kr., og smáfiskur 35—36 kr. sk//.. Kaffi er enn i lágu verði, og sykur svipað og áður; kornvara ofur-lítið hærri nú siðast, og spá sumir, að hún muni hækka, þegar fram á líður, af því að forði frá næstl. ári var ekki teljandiu. íslenzku kaupfólögin sendu í haust 28 þús. fjár til útlanda, og var sá hópur allur seldur í Liverpool. — Askil- ið hafði verið, að engin kind væri send, er ekki hefði að minnsta kosti 105 pd. þunga, er útskipun færi fram, en ýms félaganna höfðu þó sent nokkuð af rírari kindum. — Salan tókst nokkuru skár, en í fýrra, svo að fengizt hafa að með- altali 12 kr. fyrir kindina, nokkru meira auðvitað fyrir tvæ- og þrevetra sauði, en að þvi skapi aptur minna fyrir vetur- gamalt fé. Hrossa-útflutningur frá Islandi varð i ár meiri, en nokkuru sinni fyr, og er talið, að alls liafi verið flutt utan 23—24 þús. hross. — Salan hefir gengið drærat, og eptirspurn verið lítil, en netto hafa þó að meðaltali fengizt 53— 54 kr. fyrir hross, og er það 4 kr. hærra, en meðal- verðið var i fyrra, og stafar það af því, að hross þau, er send voru í ár, voru öll eldri en tvævetur. n;i l:it. Þessi mannalát eru ný frétt: 5. okt. siðastl. andaðist á Ósi á Skógarströnd Sigurd'ur Hjaltálín gullsmiður, 76 ára að aldri, sonur Jóseps Jónssonar, prests Hjaltalín á Breiðabólsstað á Skógarströnd. 20. s. m. andaðist húsfrú Helga Jóns- dóttir á Nesi í Norðfirði eystra, kona Ólafs trésmiðs Asgeirssonar, fædd 6. ágúst 1853. — Hún hafði verið gipt eptirlifandi manni sinum i 16 ár, og lætur eptir sig 5 börn. I sama mánuði lézt að Stóra-Fljóti í Biskupstungum i Árnessýslu konan Sig- ríður Skídadóttir, fyrrum alþm. á Berg- hyl, og lifir hana bóndi hennar Hallur Guðmundsson á Stóra-Fljóti, og 5 börn í æsku. Loks andaðist og í sama mánuði að Kirkjubæ í Hróarstungu konan Járngerð- ur Eiríksdóttir, móðir Einars prests Jóns- sonar alþm., er þar býr. Hún var á ní- ræðisaldrí. 11. nóv. síðastl. andaðist Þorkell bóndi Ingjaldsson á Álfsnesi í Mosfellssveit, gildur bóndi, 54 ára að aldri. 2. des. síðastl. andaðist í Reykjavik ungfrú Guðrún Waage, dóttir Eggerts stúdents Waage, rúmlega hálf-fertug. — Hún var mjög hneigð fyrir söng og hljóðfæraslátt, og fékk eitt sinn styrk nokkurn úr landssjóði, til þess að framast erlendis í þeirri list; en vegna megns keilsuleysis síðari æfiárin, gat hún miður stundað þá list sina, en ella hefði vænta mátt. — Hún var greind stúlka, og vel menntuð. I sama mánuði andaðist merkur bóndi í Suður-Dölum Sumarliði Jónsson, Sæ- mundssonar, uppeldissonur Jóns bónda, er lengi bjó að Breiðabólsstað i Sökkólfs- dal. — Gaf Jón bóndi Sumarliða, upp- eldissyni sínum, þá jörð, og fieiri eignir, og bjó Sumarliði þar síðan góðu og gildu búi til dauðadags. — Sumarliði heitinn var starfsmaður mikill, og drengur góð- 68 unni í stofuglugganum hafði verið þrýst inn að utan- verðu ineð ferhyrndum grápappirslappa, er makaður hafði verið í tjöru; og síðan hafði morðinginn krækt upp glugg- anum, og komizt þannig inn.í herbergið. Glugganum var þrýst aptur, en ekki krókað. Tætlur af tjörupappírnum, og nokkur rúðubrot lágu á gólfinu, og óhrein fótspor mátti rekja alla leið frá glugganum að svefnherbergisdyrunuin. Dómarinn opnaði gluggann; og þar eð snjóað hafði um nóttina, mátti sjá spor í snjónum, og gátu vottarnir rakið þau hringinn í kringum liúsið, og alla leið út á þjóðveginn. En lengra var ekki hægt að rekja sporin, með þvi að fleiri menn höfðu þegar um veginn farið. Þeir sneru þvi aptur heim i húsið. Dómarinn sendi nú þegar til hreppstjórans, og bauð honum, að fara við annan mann um nágrennið, og grennslast eptir, hvort vart iiefði orðið við nokkurn um- renning, eður aðra tortryggilega menn. Heimafólkið á búgarðinum var siðan yfirheyrt, og vissi enginn neitt um neitt, því allir höfðu steinsofið í rúmum sinum, og hvorki séð eða heyrt nokkuð um nóttina. Húskarlinn, er áður var nefndur, var eini maður- inn, er mofðsins hafði orðið var um morguninn. En þar sem kunnugt var, að húskarl þessi hafði þjónað hinum framliðna í mörg ár með trú og dyggð, þá var bæði L... sýslumaður, og aðrir, sannfærðir um, að hann væri á engan hátt við morðið riðinn. Engu að síður var hann þó yfirheyrður all-ýtarlega, og leiddi sú yfirheyrsla að eins til þess, að sannfæra menn enn betur um sakleysi hans. 61 mig svo tilfínnanlega í handlegginn, að mér lá við að skrækja upp. Það hefði jeg og vafalaust gert, ef inér hefði eigi í sömu svipan orðið litið framan i hann. Það stóðu i honum augun, og hann starblíndi á einn stað i stóra veitingasalnum. Jeg hrökk við, sem lostinn af eldingu. Þarna voru alveg sömu andlitin, sem eg sá um nóttina: stóri maðurinn, með Ijósa skeggið, og ungi, dimmleiti maðurinn. Það var enginn efi á, að þetta voru sömu andlitin, og sömu mennirnir; þar var enginn munurinn á, nema hvað eldri maðurinn var nú skár til fara. „Þú þekkir þá víst?“ hvíslaði jeg að Húsar. „Já, hr. lautenant, upp á háru, svaraði Húsar. Við gengum nú, sem ekkert hefði i skorizt, að borði einu i veitingasalnum, rétt hjá þeim, og pöntuðum okkur morgunverð. Milli okkar og þeirra var þó súla ein, svo sem al- titt er i veitingahúsum á Þýzkalandi. En jeg skal hreinlega kannast við það, að við leit- uðumst við á allar lundir, að heyra, hvað þeir töluðu. Allt i einu hvislar Húsar að mér! „Nei, líttu á!u I sama vetfangi bar stóri maðurinn glasið upp að munninum, og með þvi að frakkaermin var víð, mátti greinilega sjá, að skyrtuermin var blóðug. Jeg sagði nú við Húsar, að liann mætti ekki missa sjónir á kumpánum þessum, heldur fylgja þeim eptir, hvort sem þeir færu; en sjálfur gekk jeg rakleiðis til lögreglustjóra borgarinnar. Sagði eg honnm, að eg hefði komizt á snoðír um,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.