Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.03.1899, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.03.1899, Qupperneq 2
106 Þjóðviljinn ungi. VIII, 27. var á all-góðum batavegi, er síðast frótt- ist. — — — í Noregi er látinn í síðastl. febr. há- skólakennari Sophus Lie, 56 ára, írægnr stærðfræðingnr, er gjört hefur ýmsar upp- götvanir í þeirri vísindagrein. —------ Á Grikklandi andaðist 25. febr. síðastl. auðmaðurinn Syngros, er gefið hefur til opinberra þarfa fé, sem mörgum milj. skiptir, svo að gríska þjóðin harmar mjög lát hans.--------- Abdul Hamíd, soldán Tyrkja, fékk ný skeð i lúkurnar; hann erfði 1,200,000 tyrkneskra punda, eptir eina frændkonu sína, og mátti þá segja, að þeim gafst, sem þurfti.------— Biaðamannafundur verður haldinn í Eómaborg 4.—11. apríl, og sækja þangað blaðamenn úr ýmsum löndum. „I eigin hagsmuna skyni“. „Já, það er óhætt að trúa því, piltar!“ Það er i eigin hagsmuna skyni, sem þeir vilja ganga að þessu tilboði ráð- herrans. Haílgrímur biskup Sveinsson ætlar sór ráðherrasessinn. — Dr. Valtýr er sama sinnis. — Hinir ætla sér einhver há embætti. — Þorsteinn Erlingsson kemst aptur að landsjóðsjötunni; og sinn bitann á nú hver að fáu. Svona veglegar voru þær, getsakirn- ar, sem blöðin „Dagskráu og „Stefniru, „Austriu, og enda „Þjóðólfuru gamli, báru á borð fyrir almenning eptir síðasta þing. Og munnlega var þetta svo allt saman útskýrt og útlistað nákvæmar, og látið ganga mann frá manni, þar sem enginn mátti þó hafa neitt eptir neinum, þó að sögurnar væru vafalaust sannar, eptir þvi sem ólýginn sagði. Með öðrum orðum, það átti að koma þeirri hugsun inn hjá almenningi, að allir þeir, sem vildu fá sérstakan ráðherra, — er eigi hefði öðru að sinna, en Is- landsmálum einum, skildi og talaði mál vort, mætti á alþingi voru, og bæri á- byrgð á stjórnarathöfnum sínum —, fylgdu þessu að eins fram af eigingjömum hvöt- um, væru varmenni og þorparar, sem þjóðinni bæri að varast. En hinir, sem á móti þessari stjórn- arbót börðust, já — þeir voru auðvitað af allt öðru sauðahúsi, ef ekki englar, þá þó að minnsta kosti einlægir ættjarðar- vinir, sem ekkert gat annað til mótspyrn- unnar gengið, en umönnun íýrir þjóðar- innar lielgustu réttindum og sönnustu farsæld. Þenna skilning átti þjóðin að fá, og þá var henni það vitaskuld vandalítið, að gera fullan greinarmun á blessuðum sauðunum og bansettum höfrunum. Og þá var lika stjórnartilboðið strax kveðið niður. En — margt fer öðru vísi, en ætlað er. Stjórnmálastefnan, sem kennd er við dr. Vultý, vinnur æ fleiri og fleiii áhang- endur, svo að vafalaust þykir, að hún muni sigri hrósa, á næstk. þingi. G-etsakirnar hafa þvi verkað í allt aðra átt, en ætlað var, og fer svo á stund- um, þegar allt of lygilega er logið. Fásinnan var, að getsökunum var beint að svo raörgum, er almenningi voru að allt öðru kunnir, en að ódrengskap þeim, er að framan er á vikið. Og engla-átrúnaðurinn, er hafður skyldi á hinum, hann hefur heldur eigi viljað fá sem fastastar rætur í áliti al- mennings. Og meinið var hór einnig, að dýrð- lingarnir áttu að verða sva margir. Það gengur ekki nú á tímum, að vilja i einni svipan hefja heilan hóp manna til dýrðlinga tignar. Látum vera, að þeir hefðu t. d. viljað dýrðlinga Magnús vorn Stephensen, dánu- manninn þann. En að ætla sér, að hefja suma aðra, eins og t. d. fyrverandi ritstjóra „Dag- skráru, Einar Benediktsson, til dýrðlinga tignarinnar, kunni naumast góðri lukku að stýra. Það er hægra, að lauma einum hlutn- um inn i landið, undir fölsku vörumerki, en að taka skipsfarm í senn. Og þvi vill nú einnig svo illa til, að eini — aleini maðurinn, sem sýnt verður fram á, að haft hafi persbnulegan hagnað af politiskri framkomu sinni í stjbrnar- skrármálinu, heitir einmitt -- Einar Benediktsson. Það er sami maðurinn, er þyngstar og strákslegastar bar sakirnar á oss stjórn- bótamennina, brígzlaði oss um eigin hagsmun ahvatirnar o. fl. Eins og lesendur „Þjóðv. ungau munu minnast hafði Magnús Stephensen lands- höfðingi litlu fyrir þing árið 1897 höfðað meiðyrðamál gegn Einari Benediktssyni, út af grein einni um bankamálið, þar sem dróttað var að landshöfðingja fóls- unum o. fl. o. fl., mjög meiðandi, og var hverjum manni auðsætt, að mál það hlyti að baka Einari stórsektir, ef ekki fangelsi. En svo hófst nú alþingi ’97. Ritstjóri „Dagskráru skipaði sér, sem „níhilistarniru hinir, landshöfðingjameg- in í stjórnarskrármálinu, bar skjall mikið og oflof á landshöfðingja, en reyndi á hinn bóginn að sverta og svivirða alla, er stjómbótinni vildu fá framgengt. Og svo skeði það þá nokkuru síðar, að Magnús Stephensen lét meiðyrðamál- ið gegn Einari Benediktssyni niður falla gegn því, að Einar heiddi forláts, greiddi áfallinn málskostnað, og apturkall- aði rneiðyrðin*. Það var enginn afslagur það. Og i framhaldi af sætt þessari, og að *) Sætt þessari var haldið leyndri um all- langa hrið, og er það furðu skiljanlegt, að lands- höfðingi liirti eigi, að gera makk þetta, og samband sitt við auðvirðilegasta „nihilista11- málgagnið, opinhert þá þegar, og hvorugur þeira kunningjanna. — Hvor um sig hafði sína orsök til þess. líkindum sem frekari umbun auðsýndra kjassmála, var Einar síðan dubbaður í fyrra til yfirréttarmálfærslumanns. Það er því óhætt að fullyrða það, að sé sá nokkur, er haft hefur persónuleg- an hagnað af politískri framkomu sinni í stjórnarskrármálinu, þá er það Einar Benediktsson, — þessi tannhvassi orðhák- ur „níhilistau-flokkanna. Refsinornirnar láta eigi ávallt að sér hæða. Þingmálafund héldu þingmenn Húnvetninga, Björn Sigfússon og Þorleif- ur Jbnsson, að Blönduósi 11. marz síð- astl., og hafði fundur sá áður verið mjög rækilega boðaður í kjördæminu. — Fund- urinn var all-fjölmennur, nær 100 manna, og voru þar saman komnir all-flestir helztu menn kjördæmisins. Fundarefnið var stjórnarskrármálið, og var Valtýsstefnan samþykkt þar með mild- um atkvæðamun. Með henni töluðu, auk þingmannanna, sira Stefán Jonsson á Auð- kúlu, oddviti Jbn Hannesson i Þórólfs- tungu, síra Þorvaldur Björnsson á Melstað o. fl., og lýsti hinn síðastnefndi því með- al annars yfir, að hann hefði í fyrstu verið á móti þeirri stjórnmálastefnu, en væri nú orðinn eindreginn með henni, og teldi að henni mikilsverða róttarbót. Á móti Yaltýsstefnunni töluðu aptur á móti þeir síra Bjarni Pálsson í Stein- nesi og Júlíus læknir Halldó’rsson á Klömbrum; en engum þóttu mótbárur þeirra veigamiklar, nema ef vera skyldi sjálfum þeim. A sýslunefndarfundi Húnvetninga, er haldinn var að Blönduósi 6.—10. marz- mánaðar var meðal annars ályktað, að fara þess á leit við alþingi, að veittar yrðu 2 þús. krónur, til þess að lengja bryggjuna á Blönduósi. Ullaryerksmiöju vilja Eyfirðingar fá komið upp við Glerá, i sainbandi við tóvinnuvólarnar þar, og ákvað þvi sýslunefnd Eyfirðinga á fundi sínum í þ. m. að leita 45 þús. króna styrks til fyrirtækis þessa úr landssjóði, og reyna að fá aðrar 45 þús. með sem vægustum vaxtakjörum. Það er tilgangur sýslunefndarinnar i Eyjafjarðarsýslu, að allar, eða sem flest- ar sýslur norðuramtsins eigi þátt i þessu fyrirtæki. ----------- Noregsaflinn. Um fiskiveiðarnar við Noregs strendur yfirstandandi vetur segir blaðið „Verdens Gang“ 28. febr. síðastl., að aflabrögðin sóu þá fremur að lagast, þó hægt fari, enda hafi þá viðrað skár siðustu dagana. I Finnmörk og i Tromseyjaramti seg- ir blaðið, að gizkað só á, að aflabrögðin muni reynast mun betri, en á horfðist, þar sem óveðrin hafi eigi gert fiskiveið- unum þar neinn tilfinnanlegan baga; en

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.