Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1899, Side 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1899, Side 4
164 Þjóbviljinn ungi. VIII, 41. Stálvírsstrengirnir eru nú ny lcomnir aptur til verelunarinnar í Læknis- götu. Síld! Síld! Síld! Það auglýsist hér með, að gjaldfrest- ur á síld, sem við undirritaðir seljum í júni- og júlímánuðum þ. á., er til ágúst- mánaðarloka næstkomandi; skal borgun greidd, annaðhvort í peningum, eða inn- skript í reikning Guðm. Bárðarsonar á Eyri, við Asgeirs-, Tang’s-, Thoroddsens- eða Lárusar-vérzlanir á Isafirði. Inn- skript til annara, en Guðmundar, ekki tekin gild. — Fiskiskip fá síld keypta að eins gegn peningaborgun út i hönd, eða skriflegri ábyrgð einhverra þeirra verzlana, sem nefhdar eru hér að framan. Vigur, Eyri og Kleifum í júnimánuði 1899. Sigurður Stef&nsson. Guðm. Bárðarson. Jón Magnússon. Einar Jónsson. Sonur minn, Sigurður Oskar, fæddist 12. april 1892, heilbrigður að öllu leyti. En eptir hálfan mánuð veiktist hann af inflúenzu (la gribbe), og sló veikin sér á meltingarfærin með þeim afleiðingum, sem Íeiddu til maga-katarrh (oatarrhus gastricus, gastroataxie). Eg reyndi öll þau homöopatisku meðöl, sem eg hélt að við mundi eiga, í þriggja mánaða tíma, en alveg árangurslaust. Fér eg svo til allöopatiskra lækna, og fékk bæði resepti og meðul hjá þeim í 9 mánuði, og hafði þeirra góða viðleitni með að hjálpa drengnum minum hin sömu áhrif, sem minar tilraunir. Alveg til einskis. Drengnum var allt af að hnigna, þrátt fyrir allar þessar meðalatilraunir, „diætu og þess háttar. Magaveiki hans var þann- ig: diarrhöe (catarrhus intestinalis, enteritis catharrhalis). Fór eg eptir allt þetta að láta drenginn minn taka Kína-lífs-elixir Yaldemars Petersens, sem eg áður hef „anbefalaðu, og eptir að hann nú hefur tekið af þessum bitter á hverjum degi */4 úr teskeið, þrisvar á dag, í að eins votri teskeið innan af kaffi, er mér ánægja að votta, að þetta þjáða barn mitt er nú búið að fá fulla heilsu, eptir að hafa að eins brúkað 2 flöskur af nefndum Kína- lifs-elixir herra Valdemars Petersens, og ræð eg hverjum, sem börn á, veik í mag- anum eða af tæringu, til að brúka bitter þenna, áður en leitað er annara meðala. I sambandi hér við skal eg geta þess, að nefndur Kína-lífs-elexír herra Yalde- mars Petersens hefur læknað 5 svo sjó- veika menn, að þeir gátu ekki á sjóinn farið, sökum veikinnar. Ráðlagði eg þeim að taka bitterinn, áður en þeir færu á sjó, sama daginn og þeir reru, og svo á sjónum, frá 5—9 teskeiðar á dag, og hef- ur þeim algjört batnað sjóveikin (nausea marina). Reynið hann því við sjóveiki, þér, sem hafið þá veiki til að bera. Að endingu get eg þess, að Kína-lífs- elixír þenna hef eg fengið hjá herra M. S. Blöndal, kaupmanni í Hafnarfirði. En landsmenn! varið yður á fólsuð- um Kína-lífs-elixír. Sjónarhóll, 18. júní 1893. L. Pálsson. Eptir að eg í mörg ár hafði þjáðst af hjartslætti, taugaveiklan, höfuðþyngslum og svefnleysi, fór eg að reyna Kina- lífs-elexír herra Yaldemars Peter- sons, og varð eg þá svo vör mikils bata, að eg er nú fyllilega sannfærð um, að eg hef liitt hið rétta rneðal við veiki minni. Haukadai. Guðríður Egjólfsdóttir, ekkja. Eg hef verið mjög magaveikur, og hefur þar með fylgt höfuðverkur og ann- ar lasleiki. Með því að brúka Kina- lífs-elexir fráhr. Val dem ar Peter- sen i Friðrikshöfn, er eg aptur kominn til góðrar heilsu, og ræð eg því öllum, er þjást af slíkum sjúkdómi, að reyna bitter þennan. Eyrarbakka. Oddur Snorrason, Ivina-lifs-clexii'inn fæst hjá flestum kaupmönnum á Islandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kina-lífs-elexír, eru kaupendur beðn- ir að líta vel eptir því, að standi á flöskunni i grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan- um: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Valdemar Petersen, Nyvej 16, Kjöbenhavn. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS UNGA 146 snoppungum, svona sínum til hvorrar handar, svo að Charlie fékk þá aptur að vera í friði. Charlie var annars laglegur maður, er kunni sig vel, og sómdi sér mun betur í vagnstjórasætinu, en vér lags- bræður hans. Vanalega kölluðum vér hann því „Charlie prúða“, og hamingjan veit, að engum þeim manni, er eg hefi kynnzt, hælði nafnið það betur. Tóbak reykti hann ekki, og gleymi eg því aldrei, hve aumlega hann bar sig jólakvöldið eitt, er eg hafði komið honum til þess, að kveikja sér í vindli. Jeg hló þá dátt, og varð að lokum að draga hann að landi með vindilinn, enda lék jeg það líka aldrei opt- ar, að fá hann tíl að reykja. Getur líka vel verið, að vindillinn hafi ekki verið neitt afbragð, því — yður að segja — hafði jeg fundið hann i vagninum mínum. Sjálfum fannst mér nú vindillinn að vísu vera full- góður; en það marka jeg nú ininua, þar sem jeg er svo afskaplegur reykháfur, að jeg gæti jafn vel svælt upp heilum stólfæti, ef þvi væri að skipta. Viðkvæmur var Charlíe, fremur fleetum öðrum, svo að nafn hans var jafnan efst á blaði, ef um samskot var að ræða, handa einhverjum bágstöddum bróður, enda þekkti hann það og af eigin reynzlu, hvað bágindi eru, og gat því ekki vitað, að neinn væri svo staddur. Einu sinni skall þó hurð nærri hælum, að hann kæmist í klípu, vegna greiðvikni sinnar við mann einn„ er í nauðum var staddur. Það var kalt og hráslagalegt veður það kvöld, og 147 við vorum báðir rétt að því kotnnir, að fara að aka vögnunum heim. Kemur þá ekki vasaþjófurinn einn, æðandi fyrir eitt húshornið, stekkur inn í vagninn hjá Charlie, og kallar um leið: „Hjálpaðu mér, vagnstjóri, í guðanna bænum, því lögregluþjónninn er í hælunum á mér; en konan mín var rétt til dauða dregin af hungri, svo að jeg hnuplaði mér fáeinum skildingum, til þess að geta útvegað henni brauðu. Án þess að hugsa sig eitt augnablik um stökk Charlie þegar upp í sæti sitt, sló í klárinn, og ók af stað. Stóðst þetta á endum, að í sömu svipan kom laf- móður lögregluþjónn hlaupandi fyrir húshornið, og kall- aði til mín: „Vagnstjóri! Þér fáið 20 kr. í þóknun, efþérnáið í vagninn þann arna“. „Ekkert hægara, hr. lögregluþjónnu, anzaði eg, og fór í hægðum mínum að búa mig af stað, svo að Charlie fengi tíma, til að komast á undan. „Við náum honum að tveim mínútum liðnum“. En vel má vera, að hr. lögregluþjóninum hafi fund- izt aksturinn sá verða full-langur, því að við ókum nú stræti úr stræti, og eltum alla mögulega vagna, nema einmitt þann eina, sem hann vildi ná í. „Vagnstjóri! Nú er komið meira, en nóg, af svo góðu gabbiu, kallaði lögregluþjónninn fjúkandi vondur,. „og skal jeg senda yður kveðju mína siðaru. Að svo mæltu teiknaði hann hjá sér númerið á vagni mínum, en — ekkert hefi jeg spurt til hans síðan. Litli drengurinn hans Charlie’s var nú orðinn svo stálpaður, að hann gat fært föður sinum miðdegisverðinn,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.