Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.02.1900, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.02.1900, Page 1
Verð árgangsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. — Fjórtándi ároanöur. =| 1 '•' ■:==— I Uppsögn skrifleg, ógiht ! nema komin sé til útgef- I anda fyrirSO. dagjúní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 8. ÍSAFIRÐI, 16. FEBR. i ao o. Prestar á íslandi, og kjör þeirra fyr og síðar. Eptir alþm. S. Stefánsson. I. Bók sína „Um jarðskjálfta á Suður- landiu, er út kom í sumar,- endar dr. Þorvaldur Tkoroddsen með þessum orðum um prestastéttina á Islandi: „Prestar á íslandi hafa enn þá yfir- leitt, eptir minni reynd, miklu meiri á- huga á fróðleik og vísindum, en við mætti búast, eptir hinum örðugu kring- umstæðum flestra þeirra. Ahugi þessi hefur kaldist alla leið framan úr fornöld; hver, sem þekkir bókmenntir vorar, veit hve mikil áhrif prestar jafnan hafa haft á menntalíf íslendinga. Eg hefi á ferðum mínum komið i allar sóknir á íslandi, og á flest prestsheimili, og er það skoð- un mín, að ekkert land, sem eg þekki. hafi jafh frjálslynda og þjóðlega presta- stétt, eins og Island; hin íslenzka presta- stétt hefur einmitt einkennilega skapast eptir hæfi og þörfum Islendinga“. Þessi vitnisburður er all-ólíkur um- mælum sumra nýmóðins herranna, er hyggjast munu afla sér lýðhylli með því, að niðra prestastéttinni, og telja presta óþarfagripi í þjóðfélagi voru. En það er því meira varið í þessi ummæli, sem þau eru byggð á yfirgrips- mikilli Og nákvæmri þekkingu á þjóðlífi vor Islendinga fyr og síðar, og auk þess þess manns orð, sem er einn hinn fjöl- fróðasti og lærðasti Islendingur, sem nú er uppi, og eflaust alveg óhlutdrægur dómari í þessu máli. Það er vist óhætt að fullyrða, að bók- menntir vorar að fornu og nýju myndu hafa orðið æði lítilfjörlegar, ef andlega stéttin hefði ekki fyr og síðar lagt eins drjúgan skerf til þeirra, eins og hún hefur gjört. Þetta er og i raun og veru all-eðliiegt; allt fram á þessa öld, má svo að orði kveða, að prestarnir hafi verið nær því einu menntuðu mennirnir hjá oss. — Þg þegar þess er gætt, að lífskjör þessara manna hafa jafnan verið svo ná- tengd hag íslenzkrar alþýðu, eða réttara sagt öllu lífi þjóðarinnar á Islandi, þá er ekkert undarlegt, þótt áhrif þeirra á menntalíf hennar hafi verið mikil og víðtæk. Frá því ísland kristnaðist, og allt fram á þenna dag, hafa prestarnir svo að segja verið hinir einu kennendur, og andlegir leiðtogar íslenzkrar alþýðu. Nú á timum heyrast þær raddir, sem ekki vilja gefa mikið fyrir þessa leiðsögu og forystu klerkanna, en hverju öðru skyldi það þó frernur vera að þakka, að islenzk alþýða hefur fyrir löngu fengið það orð á sig, að hún væri betur að sér, en alþýða hjá mörgum stórþjóðum heims- ins? — Að þvi, er kemur til afskipta prest- anna af veraldlegum málum hér álandi, þá gjörðist klerkastéttin um eitt skeið að vísu ærið ráðrik, og beitti þá opt töluverðum ójöfnuði, en aldrei vann þó klerkavaldið hér á landi örnrar eins hryðju- verk, og það framdi í öðrum löndum um sama leyti. Ofriki klerkastéttarinnar á 15. og 16. öldinni stafaði og að mestu frá útlendum biskupum, sem hingað komu til þess, að svæla undir sig eignir landsmanna; þekkja flestir þá frændurna Oiaf Rögnvaldsson og Gottskálk grimma, Hólabiskupa. Klerkavaldið á íslandi var þó inn- lent; það var að vissu leyti áframhald af gaðavaldinu forna, og þótt klerkastéttin þætti stundum ekki fara vel með völd sin á páfatrúartimunum, þá tók sannar- lega ekki betra við, er valdi þeirra lauk, og hið útlenda konungsvald spennti ís- land þeim heljartökum, er það enn ber margar og miklar menjar eptir, og mun lengi hér eptir bera. En þótt klerkavaldið yrði að lúta í lægra haldi fyrir hinu erlenda valdi, þá hafði konungsvaldið hér á landi, til allrar hamingju, aldrei eins mikil og óholl áhrif á klerkastéttina, eins og á valdstjórnina íslenzku. Prestarnir urðu því aldrei eins háðir hinu útlenda ofríki, eins og hinir verzlegu embættismenn, er áttu léni sín og lífsbjörg undir náð og miskun út- lendra gseðinga. — Prestastéttin gat þvi betur varðveitt sjálfstæði sitt og þjóðrækni, en verzlegu embættismennirnir. Prestarnir höfðu lífs- uppeldi sitt af handafla sinum, eignum kirkjunnar, Og tekjum, er þeir fengu beint frá alþýðunni (prestsgjöldunum). Þeir lifðu samaD við alþýðuna, og eins og alþýðan, og liðu með henni súrt og sætt. Hagur þeirra var opt og tíð- um all-aumur; annálar geta þess, að séð hafi á prestum í sumum harðinda-árum, en þess er ekki sérstaklega getið um valdsmenn konungs, enda höfðu þeir flestir úr meiru að moða, en prestarnir. Prestarnir áttu hina sömu vini og óvini, eins og alþýðan; góðærið jók beinlínis lífsbjörg þeirra, eins og bændanna; búskap- urinn borgaði sig þá betur, og tekjurn- ar guldust betur, er gjaldþol og efna- hagur alþýðunnar blómgaðist; hafísinn, eldgosin og harðinda-árin voru aptur á moti hinir skæðustu fjendur þeirra, eins °S alþýðunnar; heimsóknir þessara óvina máfrtu þeir jafnan óttast, því að þá þvarr lífsbjörg þeirra, en „höfuðsmenn“, „stift- befalingsmenn“ og kommglega saksókn- ara þurftu þeir litið að óttast, þeir herr- ar voru verzlegu embættismönnunum meira hræðslugæði, þar sem þeir gátu tekið af þeim embættin, búslóðina og enda æruna. Prestarnir voru svo neðarlega i em- bættistigninni, — já, alveg fyrir utan röð hinna konunglegu embættismanna, — að stórvaldamenn veittu þeim almennt litla eptirtekt. En þetta var prestastéttráni til góðs; þótt efnahagurinn væri opt bágborinn, gátu þeir, fremur en verzlegu embættis- mennirnir, varðveitt persónulegt sjálfstæði sitt, og þjóðrækni. En það varð þjóðinni líka til góðs; hún átti þar, sent þeir voru, betur mennt- aða bændur, en þorri manna var, sem lilutu að láta sig miklu skipta hag al- þýðunnar, þar sem þeir sjálfir áttu bein- línis svo mikið undir vel líðan hennar. Þeir hafa lifað og liðið með alþýð- unni, og þess vegna „hefur hin íslenzka prestastétt svo einkennilega skapast eptir hæfi og þörfum íslendinga“. Við þessi kjör hefur prestastétt ís- lands lifað, allt fram á þenna dag. II. Árið 1800 voru 185 prestaköll á ís- landi. Um 1840 voru að eins ‘13 af þessum prestaköllum metin 50 rd., og þar yfir. Allur fjöldi hinna var metin frá 15—40 rd., og æði-mörg fyrir neðan 10 rd.* Við þessi laun, og þaðan af rninni, höfðu prestar átt að búa frá því um siðaskipti. Eptir að alþingi var endurreist, og ögn var farið að hugsa um hag íslands, kannaðist landstjórnin að vísu við, að þessi kjör hinnar fjölmennustu embætt- ismannastéttar landsins væru lítt við- unandi. Samt sem áður var engin veru- leg bót ráðin á launum presta, alla tíð hins ráðgefandi alþingis, eða allt fram að 1875, að undan teknum breytingum þeim, sem reglugjörð 27. jan. 1847, gjörði á aukatekjum presta. En eptir þvi, sem lengra leið á öldina, könnuðust æ Jleiri og fleiri við, að mikill fjöldi prestakall- anna væri lítt lífvænlegur fyrir prestana. Hið fyrsta löggjafarþing 1875 réði bót á kjörum allra embættismanna lands- ins nema prestanna, og 1877 voru sam- þykkt lög um nýja læknaskipun. Þegar þetta var gjört, þótti tími til kominn, að fara að hugsa um fjölmennasta em- bættismannaflokkinn; milliþinganefnd var skipuð, og 1879 lagði stjórnin fyrir þingið *) Peningar voru þá að vísu verðmairi gagnvart landsmönnum, en nú, svo að þessar tölur eru í rauninni nokkuð hærri, en tilsvar- andi upphæö í núgildandi peningum.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.