Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.05.1900, Qupperneq 3
XIV, 19.
Þjóðviljinn.
75
á Strandseljum í Ögursveit, Sigurður, Asgeir,
Valgerður og Sigurborg. —■ Guðrún heitin var
systir Sannveigar, konu Ásgeirs keitins Magn-
ússonar á Kleifuin i Seyðisflrði, og þeirra mörgu
systkina.
18. s. m. andaðist hér i kaupstaðnum konan
Kristjana Þorláksdöttir, Daðasonar í Hnifsdal,
rúmlega þrítug. — Hún dó úr taugaveiki. —
Ekkili hennar er Benedikt Schram, husmaður
hér í kaupstaðnum, og eiga þau hjón 1 barn
á lífi.
Kufuskipið „Einar Símers'' kom 19. þ. m.
til Önundarfjarðar, og með þvi skipi kom hr.
Hans Ellefsen hvalveiðamaður frá útlöndum.
Strandbáturinn „Skálholt", skipstjóri Aasberg'
kom hingað að sunnan 20. þ. m. — Meðal far-
þegja hingað með „Skálholti“ voru: sýslumaður
H. Hafstein, og frú hans, verkfræðingur Sig-
urður Thoroddsen, Bjarni skipstjóri Jóhannsson
frá Stykkishólmi, verzlunarmaður Jón Jónsson
úr Reykjavík, og ungfrú Elízábet Guðmundsdótt-
ir úr Æðey.
„Skálholt lagði af stað héðan norður aðfara-
nóttina 21. þ. m., og tók Ijósmyndari Björn
Pálsson, og frú hans, sér far með þvi til Ak-
ureyrar.
„Inlluenzan“ hefur geysað hér í héraðinu
nú um hrið, og fjöldi manna, sem dregst á fót-
um með veikum burðum. — Veikin hefur lagzt
þungt á margt gamalt fólk, og virðist vera
mjög langvinn, og þrálát, tekur sig á sumum
upp aptur og aptur.
Verkfræðingur Sig. Thoroddsen kom hingað
með „Skálholti“ í þeim erindum, að gera mæl-
ingar og áætlanir um brimgarð i Bolungarvík,
en sýktist þegar af „influenzu“, og hefur því
enn eigi getað byrjað neitt á því starfi.
•j- 14. þ. m. andaðist að Kleifum i Seyðis-
firði unglingsstúlkan Anna Einarsdóttir, 19 ára
að aldri. —■ Hún var elzta dóttir Einars Jóns-
sonar, og konu hans, er lengi hafa húið að
Kleifum, og var Anna heitin talin efnisstúlka.
— Það var lungnahólga, afleiðing „influenza"-
veikinnar, er hana dró til bana.
20. s. m. andaðist úr sams konar veiki ungl-
ingsmaðurinn Þorgeir Baldvinsson, sonur Baid-
vins heitins Jónssonar, fyrrum hónda a Strand-
seljum, er andaðist 80. marz síðastl. (shr. 15.
nr. hlaðs þessaf. — Þorgeir heitinn var við
sjóróðra í Bolungarvík, og andaðist þar.
Ekkja Baldvins sáluga, Halldóra Sigurðardóttir
á Þórðareyri, hefur því á yfirstandandi ári
misst hæði mann sinn, og tvo uppkomna sonu,
því að annar sonur hennar lézt í síðastl. jan-
úarmánuði, og er það ærið sárt skarð höggvið
á eigi lengri tíma.
Skipstrand. „Ólafur“, eitt af hinum minni
þilskipum Á. Ásgeirssonar verzlunar, rak í
land í Keflavik á Rauðasandi í norðanhretinu
4. þ. m., og brotnaði þar i spón. —Mennhjörg-
uðust allir. — Skipið kvað eigi hafa verið í
sjóáhyrgð.
Úr Bolungarvík er ekrifað: „Þar sem í 13.
nr. „Þjóðv.“ er minnzt á fríkennsluna í Bol-
ungarvík, og á málfundafélagið þar, þá hefur
láðzt að geta þess, að hr. Sturla F. Jónsson
skipstjóri hefur haft fríkennsluna á höndum,
jafnframt hr. Þorgrími Sveinssyni. — Sömuleiðis
her þess að geta, að téður Sturla F. Jónsson er
einn i stjórn málfundafélagsins, en ekki hr.
Magnús Bárðarson í Kálfavík".
-}- 21. þ. m. að kvöldi andaðist að Heimabæ
í Hnífsdal útvegshóndinn Páll Halldórsson, einn
af ötulustu og merkustu hændum í héraði þessu.
— Helztu æfiatriða þessa merkismanns verður
síðar getið hér i blaðinu. — Hann dó úr lungna-
hólgu.
20. s. m. andaðist í Vatnsfirði í Vatnsfjarð-
arsveit Jökanna Pálsdóttir, um sextugt, systir
Guðm. hónda Pálssonar í Jfremi-i-Hnífsdal. —
Hún dó úr afleiðingum „influenza"-veikinnar.
Aflilbrögð. Síðustu viku voru aflahrögð
prýðisgóð, opt 2—4 hundruð með hát á dag, á
Snæfjallaströndinni, og í verstöðunum innan
Arnarness í vestanverðu Djúpinu, þar sem skel-
íiski er heitt. í ytri verstöðunum við Djúpið
hefur aptur á móti verið mun tregara um afla,
vegna heituskorts, þar sem hrognkelsa-aflinn
er farinn að verða mjög stopull, enda skemmd-
ust net margra til muna, eða eyðilögðust, í
norðanhretinu i öndverðum þ. m.
Sild fékkst loks nokkur í Skötufirði nú fyr-
ir helgina, líkl. um 40—50 tn., svo að aflabrögð-
in fara nú vonandi að lifna í Út-Djúpinu, þar
sem heituleysið hefur verið tilfinnanlegast.
-þ Aðfaranóttina 25. þ. m. andaðist hér á
hæjarspitalanum Páll Halldórsson, sonur hjón-
anna Halldórs heitins Pálssonar og Sigríðar Özz-
ursdóttur í Búð í Hnífsdal. — Var hann fluttur
hér á spítalann fyrir fáum dögum, fárveikur af
taugaveiki, og dró sótt sú hann til bana. —
Páll heitinn var ötull formaður, og dugnaðar-
maður í hvivetna, sem hann átti kyn til, og
má það þykja ærið sviplegt og sorglegt, að þeir
Búðarhræður hafa þannig látizt þrír, allir upp-
komnir og mannvænlegir, á siðustu þrem mán-
uðum.
ý 14. dag maimán. andaðist á Grundum í
Hólsbreppi konan Elízabet Brynjólfsdóttir, 65 ára
gömul, ekkja Jens Sigfússonar, sem andaðist í
Bolungarvík 31. jan. 1880. Elízabet var greind
kona og guðhrædd, og einstaklega hrjóstgóð við
alla hágstadda; en efnahagur hennar var jafnan
erfiður, því hún þjáðist allan síðari hluta æfi
sinnar af heilsuleysi (sinnisveiki), sem eigi varð
hót á ráðin. Hún lætur eptir sig 5 hörn, 3
syni og 2 dætur, öll uppkomin. (Þ.)
f Látin er 25. þ. m. að Sandeyri í Snæ-
fjallahreppi konan liagnhildur .Jakobsdóttir, á 27.
aldursári, dóttir bjónanna Jakobs heitins Kol-
heinssonar og Elísahetar Þorleifsdóttur við
Berjadalsá. — Ekkill hennar er Guðm. Helgi
Jósepsson á Sandeyri, og eiga þau hjón tvö hörn
á lífi, hæði í hernsku. — Ragnhildur heitin
hafði legið veik, síðan um sumarmálin.
Til verzlunar
lar. Ir. ierlofson’s
á Dvergasteini í Álptaflrði
eru nú komnar miklar birgðir af vönd-
48
þó verið leitað að þeim, eins og að saumnáí, alls staðar
í skóginum“.
„Já, það er margt kynlegt og óskiijanlegt, sem
farið er að koma fyrir í héraðinu því arna“, inaelti Niklos
hestamaður, því að bæði í Míava, Brezova, ogvíðar,
hafa ungar stúlkur verið að smá-hverfa þessi síðustu ár-
in, án þess að foreldrar þeirra viti agnar-minnstu ögn
um það, hvað af þeim hefur orðið.
Þeir eru því grátandi og óhuggandi, aumingjarnir
þeir arna.
Sennilegast þykir mér, að einhvers staðar hér í
grenndinni hafist við stigamannahópur, er rekur ábata-
sama þrælaverzlun til Tyrklands, og gjörist æ djarfari
og ósvífnari, eptir því sem lengur líður, án þess glæp-
irnir verði uppvisirÁ
Um leið og hestamaður sleppti þessum síðustu orð-
um, stóð hann upp, setti loðskinnshúfuna á höfuð sór,
og mælti svo:
„En mér er nú líklega mál, að koma mér út í
hesthúsið, og líta eptir hestunum“.
Niklos tók síðan í hendur þeim feðgum, og mælti:
„Verið þið nú sælir, og látum oss vona, að bráðlega
róttist úr ölluu.
Hestamaðurinn gekk síðan út, og voru þeir feðgar
þá einir eptir.
„Heldurðu, að ungu stúlkurnar séu seldar til Tyrk-
lands?u spurði Lajos gamla skógarvörðinn.
Skógarvörðurinn ypti öxlum, svo sem efaðist hann
um það.
„í bænum Pösteny eru menn annarar skoðunar“,
45
um. „Greifafrúin er voðalega æst til skapsmunanna, og
fólkið í höllinni titrar og skelfur af hræðslu, hvenær
sem það sór hana. Hver yfirsjón, hve lítilfjörleg, sem
hún er, er látin sæta grimmustu refsingu, og það er að
eins Fitzka, Ludka gamla, og þessi langa og magra
förukerling, sem dvalið hefur þar í höllinni tvö síðustu
árin, er verða fyrir skaplegri meðferðu.
„Nú, hvað hyggurðu þá, að greifafrúin hafi fyrir
stafni?u spurði skógarvörðurinn lagsbróður sinn, er
Niklos hót, og var hestamaður greifafrúarinnar. „Þú
býrð nú þarna í höllinni, og ert einn í þeirra hóp, sem
sofa með opin augun. Fæst hún við galdra, rekur hún
út ílla anda, leitar hún að vizkusteininum, eða að einhvers
konar æsku-„elexír?“ Só flökkukerlingin með í spilinu,
þá er ekkert af þessu óhugsandi, þvi að þetta förufólk,
sem hór er á reiki, trúir hvorki á guð né góða titla“.
Niklos vaggaði gráa kollinum fram og aptur,
signdi sig í krók og kring, og anzaði síðan:
„Já, ef menn þekktu nú það; en það er víst eng-
inn, sem eptir því hefur grennslazt, og svo mikið er
víst, að ekki leiðir sú iðjan neina blessun inn í höllina.
Grreifafrúin er af Bathory-ættum, og allir af þeirri
ættkvísl hafa verið drambsamir og grimmir.
Það er að eins á kvöldin, þegar stórmennin eru í
boði, og fallega kvennfólkið safnast saman til dansleika
og skemmtana í skrautsölum hallarinnar, að greifafrúin
er með glöðu bragði, og hlífir oss við þessum voðalegu
dutlungum, sem ella gengur á allan daginnu.
„Hefurðu séð hana, er hún stendur frammi fyrir
gestum sínum?u spurði skógarvörðurinn.
„Ekki hefi jeg nú séð það sjálfur, en þýzki þjónn-