Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Page 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Page 5
XV. 3.-4. Þjóðviljimn. 13 fullorðin sauðkind er, og skal siðar leggja kindina á hrygginn niður í löginn, og halda uin fæturna, en gæta þess, að höf- uðið só upp úr, svo að lögurinn komist ekki í eyru, augu eða munn kindarinnar. Kláðalausar kindur telur hann nægilegt að láta liggja niðri í leginum í 2 mmut- ur, en ella minnst 3 mínútur, og verður að nudda leginum vandlega um allan kropp kindarinnar, og núa sérstaklega, og rífa upp hrúðurblettina. Höf. getur þess að lokum, að dýra- lækningaráðið í Kaupmannahöfn, er telji karbólsýrubaðið óhultast, hafi gert ráð- stafanir til þess, að karbólsýrubaðið fáist bráðlega í verzlununum samsett, þ. e. karbólsýran blönduð sápunni, svo að bændur þurfi að eins að blanda lyfjunum saman við vatnið. III. Um búnaðarskóla í Noregi. Ept- ir Sigurð Sigurðsson frá Langholti. Höf. skiptir grein þessari í 6 kafla: um upphaf búnaðarskófanna, búnaðarhá- skólann, fyrirkomulag skólanna, eins og það nú er, væntanlegar breytingar á þeim, og um aðra skóla, er stunda annað nám í sambandi við landbúnaðinn. Ritgjörð þessi er að mörgu leyti fróð- leg, og getur gefið oss Islendingum ýms- ar góðar bendingar, að því er fyrirkomu- lag búnaðarskóla vorra snertir, sem enn eru mjög í bernsku, og gæti verið ástæða, til að athuga það málefni síðar i sérstakri grein. — (Niðurlag síðar.) Markusar guöspjall. í nýrri þýðingu eptir frumtextanum. Beykjavik. Hið íslenzka biblíufélag. 1900. Þessi útgáfa af Markúsar guðspjalli er sýnishorn af bibliuþýðingu þeirri, sem cand. theol. Haraldur Níélsson starf- ar að, í samráði, og undir umsjá vorra færustu manna í þeirri grein: Hallgr. biskups Sveinssonar, lectors Þorhalls Bjarnarsonar og Steingríms yfirkennara Thorstemsen. Þýðingin er gjör eptir sama gríska frumtextanum, sem fylgt hefur verið í nýju ensku biblíuþýðingunni, og er það talið bezta handritið, sem til er af guð- spjalli þessu. Hór eru auðvitað engin tök á, að dæma um það, hvernig verk þetta er af hendi leyst, enda má það vera kirkju-sinnuðum mönnum næg trygging, að verk þetta er í góðum höndum. Hvað íslenzkuna snertir, fáum vér eigi betur sóð, en að þýðingin só svo vönduð, sem vænta mátti; um val ein- stakra orða má jafnan deila, og eins um hitt, hvort ekki hefði verið róttara, að halda meira, en gjört hefúr verið, sum- um orðatiltækjum óbreyttum úr eldri biblíuþýðingunni, sem fengið hafa festu, því að hvað trúar- og siða-lærdómana snertir, þá mun reyndar á litlu standa, hvort verk þetta er unnið eða óunnið; nýja biblíuþýðingin mun naumast gera neina breytingu í þeim efnum. Á hinn bóginn er það eðlilegt, að þeir, sem skoða bibliuna, þessa „bók bókannau, er þeir svo nefna, sem guðs- orð*, vilji gjarna eiga hana í sem rétt- ustum og vönduðustum búningi, og var það þá óneitanlega hyggilegt, að láta nýja testamentið, með sínum mörgu gull- fögru siðalærdómum, sitja í fyrir- rúmi, og hætta að glíma við þýðingu gamla testamentisins, sem naumast verður talin mjög uppbyggileg bók, þegar á allt er litið. Styrkur til búnaðarfélaga og lán til jarðabóta. Á kjörfundinura 1. sept. síðastl. fórust sýslumanni H. Hafstein orð í þá átt, að hann vildi leggja það til á þingi, að styrkur til búnaðarfólaga yrði afnuminn, (* Sú skoðunin, að biblian sé orð guðs til mannanna, virðist nú annars fara að eiga frem- ur fáa áhangendur úr þessu, þar sem jafn vel eins bá-kirkjulega trúaður maður, sem síra Jón Hélga,8on, vill nú mega vinza úr biblíunni, sem honum sýnist, og skoða sumt, sem guðsorð, en sumt ekki. — Fyrir aðra hlýtur þá sama regl- an einnig að gilda, og geta þá farið að verða ærið skiptar skoðanirnar, og mismunandi út- gáfurnar, um það, hverju beri að trúa, sem guðs- orði, og hverju að hafna, því að ómögulega get- ur síra Jón Helgason krafizt einn súrskurðarvalds sér til handa i þessu efni. Vér sjáum því eigi betur, en að guðfræðing- ar vorir séu staddir á glerhálum ís, ef þeir að- hyllast almennt skoðanir síra Jóns Helgasonar um þetta efni, og verður þá líklega snjallastúr því, að fara að viðurkenna það uppskátt og hreinskilnislega, að biblían eigi að því leyt. sammerkt við aðrar bækur, að hún sé manna-1 verk, og kenningar hennar og frásagnir mis- jafnlega sannar og háfleygar, eins og í bókum gerist. 15 Virðist yður eigi hitt öllu fremur, að hér standi frammi fyrir yður maður, sem af sorg og blygðun, út af gjörspilltu lífi — og af því, að liann finnur sig bresta siðferðisþrek, til þess að byrja nýtt og betra líf — hefur tekið það strik, að játa sig sekan í glæp, sem hann veit, að leitt getur til þess, að gera enda á tilveru, sem er orðin honum óþolandi?u Verjandi tók því næst að kryfja skýrslur þær, er Richardson hafði gefið rannsóknardómaranum, og leiddi rök að því, að þær gætu auðveldlega átt rót sína að rekja til sálarástands mannsins, er fyr var á vikið. Sórstaklega vakti hann athygli kviðdómaranna á því, að ákærði hefði, allsendis að ástæðulausu, neitað að gefa skýrslu um það, hvernig hann hefði farið að kom- ast inn í húsið. En er rannsóknardómarinn hefði sagt honum, hvern- ig það liefði atvikazt, þá hefði hann strax kannazt við, að einmitt á þann hátt, sem dómarinn sagði, hefði hann farið að. Allt þetta benti ljóslega a, að hann hefði ekkert vitað, hvernig morðinginn hefði farið inn í húsið, fyr en rannsóknardómarinn hefði skýrt bonum frá því. Það mátti segja, að ræða málsverjanda festist, sem í skuggsjá, á andliti Richardson’s. Tárin streymdu stöðugt niður eptir mögru, fölu kinnunum hans, og ekki hafði hann augun eitt augna- blik af verjanda sínum. Verjandi sneri sór þá snögglega að ákærða, og mælti með hljómfagurri, og viðkvæmri röddu: „Og nú vik eg máli mínu að yður, ákærði! Glefið nú sannleikanum dýrðina! Ihugið, hve ljótur endir það 22 Með hvorutveggja þessu átti eg umsjá að hafa. „Láttu þór ekki koma það til hugar, að þú eigir að eignast ölstofuna og bátinn, eptir minn dag, Marteinnu, sagði frændi minn, meðal annars, einu sinni. „Það er hvorttveggja allt of gott fyrir þigu, mælti hann enn fremur, „og jeg hefi sannarlega ekki verið að þræla alla mína löngu æfi, til þess að auðga annan eins slæping, eins og þú ert. Þú þarft ekki að gera þór neinar vonir um það, að þú erfir eptir mig eins eyris virði. Þú hefur verið allt of aulalegur, latur og montinn, til þess. Þú getur því þakkað þér þetta sjálfum. Þig mun einhvern tíma iðra þess, Marteinn, að þú hefur ekki sýnt mór meiri rækt og álúð, þótt eg hafi tekið þig mór í sonar stað. Og snáfaðu nú strax í burtu, heyrirðu það!u Jeg let auðvitað ekki segja mór þetta tvisvar, og let hann þvi vera einan eptir í litla herberginu, sem var innar af veitingastofunni. I veitingastofu þessa matti heita, að enginn stígi nu framar fæti smum, með þvi að frændi minn lét skamm- irnar ospart dynja a gestunum engu siður, en öðrum. En þeir eru fæstir, sem inn á veitingastofu ganga, er hirða um, að láta gæða sór þar á öllum verstu hnífil- yrðunum, sem málið á til. Samuel frændi hafði þa föstu og obifanlegu skoðun — sem líklega flestir móðurbræður hafa —, að enginn hefði neitt vit á nokkrum sköpuðum hlut, nema hann sjálfur, og að enginn annar hefði framkvæmt neitt að marki, eða hefði yfir höfuð veruleg hyggindi til að bera-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.