Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Page 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Page 6
14 Þ JÓÐTILJINN. XY, 3.-4. en bændum á hinn bóginn veittur greið- ari aðgangur til lána, til þess að bæta jarðir sínar. Þessar atbugasemdir br. H. Hafstein á kjörfundinum hafa gefið einum kjós- anda hans tilefni til þess, að senda blaði voru nokkrar línur, þar sem hann telur þessar tillögur mjög ísjárverðar, og hygg- ur þær eigi mundu verða búnaðinum til framfara, og færir hann til þess ýms rök, sérstaklega að bændur myndu yfirleitt mjög tregir til þess, að fara að veðbinda jarðir sinar, til þess að kosta upp á jarða- bætur, yrðu þá hræddir um, að missa þær, ef einhver óhöpp yrðu þess valdandi, að þeir gætu eitthvert árið eigi staðið í skilum með rentur og afborgun. Þeim komi það að ýmsu leyti betur, að fá styrk, þótt lítill só, fyrir þær jarða- bætur, sem unnar séu, og væri þeim styrk nú kippt í burtu, þá myndi það draga til muna úr þeim litla áhuga á jarðabótastörfum, sem vaknaður er. Vór erum og þeirrar skoðunar, að það væri mjög misráðið, að svipta búnaðar- félögin jarðabótastyrk þeim, er þau hafa haft nú um hríð. Það er enginn efi á því, að það myndi draga að mun úr framkvæmdum búnaðarfólaganna, og mjög hætt við, að félögin lognuðust þá sum algjörlega út af. Styrkurinn til búnaðarfólaganna hef- ur og þann kostinn, að hans verða ekki síður leiguliðar, en sjálfseignarbændur, aðnjótandi. Jarðabótalánin yrðu aptur á móti mestmegnis notuð af efnamönnunum, sem sett gætu jarðarveð, eða aðra full- nægjandi tryggingu. Hvort tveggja, búnaðarfólagastyrkur- inn, og kostur á lánum til langs tíma, og með vægum vaxtagreiðslum, þarf að fylgjast að, að minnsta kosti all-mörg árin enn. ísafirði 31. jan. 1901. Tíðarfar. Með þorra komunni, 25. þ. m., sneri tií kulda og frosta, og gerði fannkomu, og norð- anveður, er stóð til 29. þ. m.; síðaa stök bliðvirði. Aflabrðgð. 22. þ. m. var góðfiski, 1—3 hundruð af ný gengnum, vænum þorski, bjá bátum þeim, er á sjó fóru, og hafa aflabrögð síðan verið all-góð hér við Djúp þá fáu dagana, er á sjó hefur verið farið. fíýtt barnaskölaliús er nú ákveðið, að hyggt skuli hér i kaupstaðnum á sumri komanda, og á það að verða fuilgjört svo snemma, að kennsla geti byrjað þar að hausti, 1. okt. næstk. Húsið verður byggt í Norðurtanganum, á svo nefndu Hæðstakaupstaðartúni, rétt fyrir norðan sölubúð consúls S. H. Bjarnarson&r, og hefur hr. kaupmaður Leonh. Tang tekið að sér að koma því upp að öllu leyti, fyrir 9,500 kr.. enda hét hann að leggja ókeypis fram lóð fyrir barnaskólann, ef bygging hússins yrði falin sér á hetidur, og samþykkti bæjarstjórnin það á fundi sínum 24. þ. m. Auk skemmda þeirra, er getið var í 52. nr. 14. árg. blaðsins. að orðið hefðu i Þjóðólfstungu í Bolungarvík í þrettánda veðrinu 6. þ. m., fauk þar og 6 álna hjallur, með áfastri 4 alna skúr, er fyrrum hreppstjóri Jens Óla/sson i Þjóðólfs- tungu átti, og missti hann bæði kaupstaðar- varning o. fl., sem þar var geymt. í sama veðri fauk enn fremur geymsluhús hjá Bjarna Báröarsyni á Hvammi í Bolungar- vík, og skemmdist megnið af vetrarbirgðum hans. Væru menn trúaðir á veðurspádóma gömlu mannanna, þá ætti þetta nýbyrjaða ár ekki að verða landsbúum mikið fagnaðarár, eptir þvi sem viðraði á Pálsmessu (25. þ. m.). — Veður var þá að vísu bjart að morgni, en nokkuru fyrir hádegi tók mjög að syrta í lopti, og var síðan kafaldsfjúk, það sem eptir var dagsins. En þegar slík þykkviðri vilja til á Pálsmessu: „þá deyja bæði menn og féð“ segja veðurspárnar. Síra Þorvarður Brynjólfsson, fríkirkjuprest- ur Reyðfirðinga, er sótt hafði um Staðarpresta- kall i Súgandafirði, kvað hafa tekið umsókn sína aptur, þegar fréttist um undirtekfir sókn- armanna, og verða þvi Súgfirðingar að láta sér lynda prestsþjómustu síra Janusar í Holti fyrst í stað, eins og hún fellur. Lausn frá embætti. Héraðslæknir Þorv. Jímsson á ísafirði hefur f'engið lausn frá embætti, með eptirlaunum, frá 31. des. síðastl. Sonur hans, oand. med. Jón Þorvaldsson, gegnir nú héraðslæknisembættinu, sem settur. Sýslanin, sem yfirkennari við barnaskólann hér á ísafirði, verður nú, samkvæmt ályktun á bæjarstjórnarfundi 24. þ. m., auglýst laus, og er umsóknarfrestur til maíloka næstk. — Árs- launin eru 900 kr. ý 11. þ. m. andaðist að Flateyri í ðnund- arfirði Ghuðlaug Pálsdóttir, 73 ára að aldri, ekkja Rósinkranz heitins Kjartanssonar í Tröð. Hún var fædd á Melanesi á Rauðasandi í Barða- strandarsýslu árið 1827, og voru foreldrar henn- ar hjónin Páll Pálsson og Bergljót Jónsdóttir, er þá bjuggu að Melanesi. — Með foreldrum sín- um fluttist hún í æsku til Dýrafjarðar, og ólst upp hjá föðursystur sinni, Málfríði Pálsdóttur og Sveini Magnússyni, manni hennar, og bjuggu þau hjón þá fyrst í Botni, en fluttu síðar að Svalvogum í Þingeyrarhreppi. Arið 1849 giptist hún Bósinkranz Kjartans- syni, Olafssonar á Eyri í Önundarfirði, og reistu þau bú að Tröð í Önundarfirði, sem að nokkru var fóðurerfð Rósinkranz heitins, og bjuggu þau þar all-góðu húi. einatt fremur veitandi, en 16 væri á hinni sorglegu tilveru yðar, ef þór yrðuð nú að yfirgefa þetta líf, sakaður um glæp, sem þór eruð saklaus af, og sem þér hafið gengizt undir, sem raggeit. íhugið enn fremur, að hve lítils sem þér kunnið að meta dóm meðbræðra yðar um yður, þá er það þó skylda yðar, gagnvart konunni yðar sálugu, að segja: „Nei, nei, það var ekki jeg, sem róð þér banau. Það var auðsætt, að vesalings maðurinn barðist nú harðri baráttu við sjálfan sig. Hann varð ýmist rjóður eða fölur í framan, og á enni hans sáust stórir svitadropar. Yerjandi ávarpaði hann þá enn á ný, innilega og hvetjandi, svo felldum orðum': „Bichardson! Tjáið yður, sem mann! Grefið sann- leikanum dýrðina!“ Yið þessi orð spratt Richardson upp, og kallaði með skjálfandi röddu: „Nei, nei, það var ekki jeg! — En rótti morðing- inn, guð minn góður, hvar er hann?“ Um leið og Richardson mælti þetta, renndi hann augunum yfir áheyranda hópinn, sem hólt niðri í sér andanum af eptirvæntingunni. Allt í einu var, sem leiptur brynni úr augum hans; hann teygðist allur upp, benti á með skjálfandi hendinnii á einn í áheyrandahópnum, og kallaði: „Þarna, þarna, þetta er hann! Haldið honum fast“. Allt komst nú þegar í uppnám. Það vildi svo til, að maður sá, er ákærði hafði bent á, stóð rótt í grennd við mig, og sneri hann sér nú snögglega við. 21 San delsvidar-kistillinn. i. Móðurbróðir minn hét Samuel Nangle, og hafði hann fjárhald mitt á hendi. Hann hafði tekið mig að sér, sem sitt eigið barn, er faðir minn drukknaði, og gekk mér því í föður stað. Móðir mín hafði og gjörzt ráðskona hans, að föður mínum látnum. Hún hafði bústjórn alla, er hann var í sæförum, og á henni bitnaði einnig allt ógeð hans, þegar hann var heima. Ekkert gat hún gert honum til hæfis, því að af öllu þurfti hann endilega að ónotast. Það var þvi lánið móður minnar, að hún lifði ekki þa tið, er Samúel, frændi minn, varð stirðastur til geðsmunanna. Þegar svo var komið, að hann mátti heita orðinn fótalaus, svo að hann varð að styðja sig við húsveggina, ef hann staulaði eitthvað út fyrir, þá varð hann fyrst önugur og uppstökkur að marki. A því mátti jeg, systursonur hans, Marteinn Towsend, kenna. Mest urðu brögðin að þessu, þegar jeg hafði fimm um tvítugt. Það var þá enginn, sem neinu tauti gat við hann komið, allra sízt jeg. Frændi minn átti ölstofu, ernefiidist: „Hinn fljúg- andi fiskur“, og ofurlítinn gufubátur, er „Flugfiskur“ var nefndur.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.