Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1901, Blaðsíða 8
16 Þjóðviljinn. XV 3.-4. og eins jeg lóðarstokka sel, þvottaklemmur, æ þetta „pjalt“, jeg þreytist á að telja allt. Komið þið bara að kaupa og sjá, hvað á verkstaðnum seljast á. J. Jóakimsson. lamaskóliiin á ísafirði. Yfirkennarastaðan við barna- skólann á Isafirði verður veitt frá 1. október næst komandi að telja. — Árslaun eru 900 krónur. Umsóknarbréf stýlast til bæjarstjórnarinnar á Ísaíirði, og verða að vera komin til undirskrifaðs bæjarfógeta fyrir 31. maí þ. á. Bæjarfógetinn á ísafirði 26. jan. 1901. H. Hafstein. Gott kvennúr, með festi, er til sölu. Lyst- hafendur snúi sér á prentsmiðju „Þjóðv.“ Kaupifl JjóðT.11! Fimmtándi árgangur „Þjóðv.“ verður 52 nr., í sama broti, sem fjórt- ándi árgangur. Nýir kaupendur, er senda borgun fyrir fimmtánda árgang fyrir fram, fá ókeypis sögusafn fjórtánda árgangs, jafn skjótt er innheptingu þess er lokið. Það eru t¥ö hundruð blaðsíður af skemmtilegum sögum. Sögusafn „Þjóðv.“ hefur það almenn- ingsor.ð á sér, að taka sögusöfnum hinna blaðanna langt fram. Eins og að undan fórnu mun blaðið fylgja sjálfstjórnarmáli landsmanna öflug- lega fram, og auk þess gera sér sérstakt far um allt, er að efiingu atvinnuveganna lýtur. Banka-ástandið, sem nú er bændum, og öðrum atvinnurekendum, allsendis ó- nógt, vill blaðið gera sitt ýtrasta til, að komið verði sem bráðast í viðunanlegt horf. „Þjóðv.“ er óháð og sjálfstætt blað, sem hefúr fulla einurð á að víta það, sem afvega fer hjá landstjórnarmönnum. Um hver hinna blaðanna verður slíkt sagt? Kaupið og eflið því „Þjóðv.“ landar góðir. aO^ THE North British Ropework C°y, Kirkcaldy Corrtractors to H. M. Government búa til rússneskar og ítalskar fiskilóðir og focri. Manilla og rússneska kaðla, allt sérlega vandað og ódýrt eptir gæðum. Einkaumboðsmaður fyrir Danmörk sland og Færeyja r. •Takob Grunnlögsson, Kjobenhavn K. I mörg ár hefi eg þjáðst mjög af taugaveiklun, og af slæmri meltingu, og hafa hin ýmis konar meðul, sem eg hefi reynt, ekki orðið að neinu liði. En eptir að eg hefi nú í eitt ár brúk- að hinn heimsfræga Kína-lifs-elexír, sem hr. Valdemar Petersen í Frederikshöfn býr til, þá er mér ánægja að geta vottað, að Kína-lífs-elexírinn er hið bezta og örugg- asta meðal gegn hvers konar taugaveikl- un, eins og líka gegn slæmri meltingu Framvegis mun eg því taka þenna ágæta bitter fram yfir alla aðra bittera Reykjum. Rósa Stefánsdóttir. Kiína-lífs-elexírinn fæst hjá flestura kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elexir, eru kaupendur beðn- ir að líta vel eptir því, að standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan- um: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Yaldemar Petersen, Nyvej 16, Kjöbenhavn. PRENTSMIÐJA HJÓÐVILJANS. 18 „Á hverju byggið þér grun yðar?“ spurði dómsfor- setinn því næst, og sneri sér að Richardson. Richardson skýrði nú frá öllu því sama, er hann hafði áður sagt mér frá, og bætti því við, að hann þyrði óhræddur að sverja þess dýran eið, að þessi mað- ur, en enginn annar, hefði framið morðið. Á meðan hafði dómsforsetinn hvíslað einhverju að einum lögregluþjónanna, sem gengið hafði svo fljót- lega burtu. Jeg þóttist þess full vís, að hann væri sendur til yfirmanns míns, og brá mér því einnig út, og hraðaði ferð minni til lögreglustöðvanna. Kom eg þangað í sömu mund, sem lögregluþjónninn. Yar erindi hans þess efnis, að flytja yfirmanni mín- um þá skipun frá dómsforsetanum, að fara tafarlaust, og gjöra þjófaleit á heimili eineygða Jim’s. Yfirmaður minn fal mér starfa þeDna, ásamt einum stéttarbræðra minna, og héldum við því rakleiðife til heimilis Jim’s. Það var hrörlegur, og ógeðslegur skúrgarmur, sem hann bjó í, og tókst okkur að lokum að finna þar pyngju, með gullpeningum i, og nokkra dýrmæta skartgripi. I gömlu, mygluðu leðurkofforti fundum við enn fremur langan hníf, og fatnað, er var með blóðslettum hér og hvar. Munir þessir voru nú þegar fluttir allir til þing- stofunDar. Sakamáli Richardson’s var frestað, og eineygði Jim var settur í varðhald. Yfirmaður minn skýrði mér nokkuru siðar fVá þvi, að gamla vinnukonan frúarinnar, sem myrt hafði verið, 19 hefði þekkt gripina, og sagt þá vera eign húsmóður sinnar sálugu. Engu að síður hélt þó Jim áfram að þræta, og lót sem væri sér alls ókunnugt um, hvernig gripir þessir væru í sín hús komnir. En er vitni eitt var leitt, sem bar Jpað fyrir rótt- inum, að Jim hefði boðið því ýmsa af munum þessum til kaups, þá fór piltur að bila, eg meðgekk þá loks allt. Kom það þá í ljós, að Richardson hafði — ósjálf- rátt að visu — verið orsök í dauða konu sinnar, með því að hann hafði eitt sinn í ölæði gloprað því fram úr sór i veitingahúsinu, hvernig högum frúarinnar, og sam- bandi sinu við hana, væri varið. Jim var einn, sem þetta heyrði, og upp frá þeirri stundu hafði hann setið eptir færi, til að ræna konu þeesa, er bjó svona afskekkt, og ein sór. Hann gat hvorki komizt inn um forstofudyrnar nó um bakdyrnar, því að báðar hurðirnar voru jafnan harðlæstar. En kvöld eitt, komst hann svo að þvi, rétt af hend- ingu, að einn glugginn var opinn á öðru lopti, og ásetti hann sór þá þegar, að klifrast upp sperrumar, til að komast inn um gluggann, og þá leið inn í herbergin. Þessi fyrirætlan hans lánaðist svo betur, en skyldi. I herbergi því, sem hann kom fyrst inn í, var hurðin ekki tvílæst. Hann læddist svo hægt út á ganginn, og þaðan ofan stiganD. En er hann var ofan kominn, opnaði hann stofu- hurðina hljóðlega.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.