Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.11.1901, Page 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.11.1901, Page 7
XY 44.-45. Þjóðviljinn. 179 fólkið, áður en eldurinn næði að læsa sig í baðstofuna, og tókst því að bjarga henni, með því að logn var um nóttina. Sá grnnur lagðist brátt á, að vinnu- maður í Dölum í Fáskrúðsfirði, Sturla Vilhjálmsson að nafni, myndi vera að verki þessu valdur, og var hann því tekinn til rannsóknar, og meðgekk hann þá glæpinn, en sagði þó brennuna óvilja- verk, er atvikazt hefði á þá leið, að log- andi eldspita hefði dottið ofan í kistuna, ■er hann framdi peninga þjófnaðinn. Af peningunum hafði Sturla þegar varið 80 kr., til að kaupa hross fyrir, og eytt 30 kr. á annan hátt, en 429 kr. hafði hann falið undir steini í gili einu, •og fannst það þar, eptir tilvísun hans. --------------------------- Úr Álptiilii'ði, ísafjarðarsýslu, er skrifað 27. okt.: „Síðan norðanhi-etið gekk til þurrðar 21. þ. m. hafa verið frostalítil stillviðri, og í dag suðaustan bleytukafald. Fiskfátt er hér í innri veiðistöðunum, sem stendur, og það sem fiskast mest smáfiskur og ísa. — Hvalveiðamaðuv P- Herlufsen fór heimleiðis 22 þ. m., og hefir alls allað 130 hvali á 3 báta. — Sagt er, að von sé á nýju blaði frá ísafirði, — ékki samt framsókn- •arblaði. Mörgum er hér farið að bjóða við „Grettis11- lyktinni af „Þjóðólfi“; og það ber ölium saman um, að sira Sig. Gunnarsson í S tykkishólmi vaxi se meir og meir í áliti hjá þjóðinni við hnúturn- ar, sem „Þjóðólfur1* er látinn senda bonum . .. “ ------------------------- Staðfest lög’. Auk laga þeirra, er getið var í 41. nr. blaðs þessa, hefir konungur vor 27. sept. síðastl. enn frem- ur staðfest þessi lög: XIX. Fjáraukalög fyrir árin 1900 og 1901. XX. Lög um bólusetningar. XXT. Lög um fiskiveiðar hlutafélaga í landhelgi. Mannalát. 23. sept. síðastl. and- aðist í Akureyrarkaupstað Sigfús kaup- maður Jónsson, 66 ára að aldri, fæddur að Hömrum í Eyjafjarðarsýslu 1835. Hann stundaði lengi trésmíði, en hóf svo verzl- un á Akureyri 1887, og rak þá atvinnu til dauðadags. — Hann var tvíkvæntur, og hót fyrri kona hans Asdís Jónsdóttir (f 1891); eignuðust þau hjónin 7 börn, og lifir nú að eins eitt þeirra: Þóra, gipt kona á Akureyri. — Árið 1892 kvæntist Sigfús heitinn í annað skipti, og gekk þá að eiga Marsélíu Kristjánsdóttur, er nú lifir hann.—Sigfús heitinn var maður vel látinn, og mikilsvirður. Aðfaranóttina 15. okt. síðastl. andaðist og á Akureyri Stefán Oddsson Thorarensen, fyrrum sýslumaður Eyfirðinga, 76 ára að aldri, fæddur að Nesi á Seltjarnarnesi 4. marz 1825. Foreldrar hans voru Oddnr lyfsali Thorarensen, sonur Stefáns amtm. Þórarinssonar, og kona hans Solveig Bogadóttir frá Staðarfelli. Nam Stefán skólalærdóm sinn í Kaupmannahöfn, og tók þar stúdentapróf 1846, en las síðan lögfræði við háskólann, og lauk þar em- bættisprófi 1855. — Honum var veitt sýslu- mannsembætti í Eyjafjarðarsýslu 1858, og gegndi því embætti, ásamt bæjar- fógetaembættinu á Akureyri frá 1863, unz hann fékk lausn frá embætti 1891, nema lítinn tíma, er hann var „suspen- deraður“. Hann var kvæntur danskri konu, sem látin var nokkrum árum á undan honum. Meðal barna þeirra hjóna er Oddur, lyfsali á Akureyri. 26 s. m. andaðist í Stykkishólmi lyf- sali Carl Emil Oli Möller, 60 ára að aldri, fæddur í Reykjavík 14 sept. 1841. Hann var sonur Möllers lyfsala í Reykjavik og konu hans, er siðar giptist lyfsala Randrup. Til Stykkishólms fluttist Möller árið 1861, og rak þar lyfsölu nær 40 ár. Nokkur ár hafði hann og verzlun, sam- hliða lyfjasölunni. Á Isafirði hafði hann og lyfsölu í 1 ár, en ýmsra atvika vegna lánaðist það eigi, sem skyldi. Möller var kvæntur Málfríði Jónsdóttir frá Krossnesi, sein nú lifir hann, ásamt þremur uppkomnum dætrum: Dórótheu, Emilíu og Kristenzu. Möller heitinn var einkar vel að sér í meðalafræði, og hafði gott vit á lækn- ingum. Hann vnr og gæðamaður í raun, og mun þvi saknað af mörgum, er hann þekktu. Tll fiP DíÍVP — rl£ Oame, som er blevet 111 UC lfUYC. helbredet for Dövbed og Öre susen ved bjælp af Dr. Nieholsons kunstige Ti'ommebinder, bar skænket bans Institut 20,000 Kr., for at fattige Döve, som ikke kunde kjöbe disse Trommehinder, kunde faa dem uden Betaling. Skriv til Institut „Longcottu, Gunnersbury, London, W,, England, S n an din avi s 11 Bxpor Surrogat Kjabenhavn. — F. Hjorth & Co. Bindindisfélagiö „Morgunstjarn- anu við Álptafjörð, vottar hór með ung- frú Sigríði Quðmundsdóttur frá Dverga- 236 En nú sá hún hana þarna jafn greinilega, eins og maður horfir á hverja aðra lifandi manneskju. Hún var í hvítri, siðri morguntreyju, og hrafnsvart hárið fóll henni um herðar niður. Hún leit á frú Ulric de Fonvielle með stóru, dökku augunum sínum, rótti að henni hendina, og mælti á hollenzku: „Frú, nú fer jeg burtu. Getið þór fyrirgefið mér!u Urú Ulric de Fonvielle settist upp i rúminu, ætlaði að rétta henni hendina, og svara henni einhverju, en sýnin hvarf þá samstundis. í herberginu logaði á náttlampa, og allt, sem þar var inni, sást ljóslega. Strax á eptir sló klukkan tólf. Morguninn eptir sat frú Ulric de Fonvielle, og var að segja einni frændsystur sinni frá þessari undarlegu sýn, þegar tekið er í dyrabjölluna, svo að hún hringir Var þá komið inn með hraðskeyti frá Haag, er var svo látandi: „María dó í gærkveldi, er klukkuna vantaði eitt kortér í tólf“. Hr. Ulric de Fonvielle staðfestir það, að allt þetta sé óhrekjanlegur sannleiki. Um ráðning gátunnar erum vjer öll á hinn bóginn jafn fróð. Y. Frú M..., er var gipt frakkneskum manni, og komin af alkunnri, frakkneskri lækna-ætt, var kona mjög sannsögul, er aldrei vildi ósatt orð segja. 233 G-reifinn var af holsteinskum aðalsættum, og voru þeir Vogler og greifinn nær jafnaldra. I einni háskólaborginni á Þýzkalandi, er þeir komu til, ætluðu þeir sér, að halda kyrru fyrir þar um tíina, og leigðu sér þar því dálítið hús. Bjó greifinn þar í stofuherbergjunum, en Vogler á fyrsta lopti, og höfðu sinar götudyrnar hvor. Nótt eina, er Vogler var háttaður, en lá og las í rúmi sinu, heyrði hann allt í einu, að götudyrahurðin var opnuð, en lokað svo aptur. Vogler gaf þessu svo engan frekari gaum, með því að hann^kugði, að það hefði verið vinur sinn, greifinn, sem gekk um. Nokkuru síðar heyrir hann svo, að komið er upp stigann, og að fótatakið er þreytulegt, rétt eins og dreg- ist sé með veikum burðutn áfram. Fótatakið þagnar svo, er komið er að hurð hans. Sór hann svo, að hurðin er opnuð, og heyrir, að fótatakið heldur áfram að rúmi hans, þótt engan sjái hann manninn. Ljósið logaði skært í herberginu, og þó sá hann engan. En er honum þótti, sem fótatakið væri komið alla leið að rúminu, heyrði hann, að stunið var þungan. Hann kannaðist þá vel við þessa stunu; það var hún amma hans, sem andvarpaði svona. En hún hafði verið hraust og heilbrigð, er hann fór frá Danmörku. Og hann þekkti nú lika fótatakið. Það var engu líkara, en að hún amma hans gamla væri að dragast þarna áfram.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.