Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.01.1902, Page 2
14
Þjóðviljinn.
XVI, 4.-5.
sem getið er hér að framan, þá hefir
þjóðin nú fyrirheít um staðfestingu á
stjórnarskrárfrv. síðasta alþingis, ef það
nær samþykki aukaþingsins í sumar.
Apturhaldsliðið hafði margsinnis lýst
því yfir, að frv. þetta væri algjörlega úr
sögunni, og sér nú þjóðin, hvað satt er
i því.
En jafn framt því, að fá frv. síðasta al-
þingis óbreytt gjört að lögum, þá gefur
ráðherrann oss einnig kost á því, að taka
upp í frv. ákvæði um búsetu ráðaneytis-
ins hór á landi, ef vér kjósum það held-
ur, og viljum leggja fram kostnað þann,
sem því er samfara.
Só ráðaneytisbúseta á ekkert skylt
við búsetu þá, sem apturhaldsliðið var
að þvæla um á siðasta þingi í því skyni,
að reyna að hindra framgang stjórnar-
skrármálsins, og þar sem gert var ráð
fyrir dönskum ráðherra í Kaupmanna-
höfn, er í reyndinni myndi hafa orðið
yfirráðgjafi.
Búsetutillagan, eins og hún kemur frá
ráðherranum, fer þvert á móti fram á, að
hérlendi ráðherrann verði eini milliliður-
inn milli alþingis og konungsvaldsins,
eins og bent var á i bréfi stjórnbóta-
manna til ráðherrans, dags. 6. des. síð-
astl., að óhjákvæmilegt væri
íslenzka stjórnardeildin í Kaupmanna-
höfn, sem löngum hefir verið ýmsum
framfaramálum vorum Þrándur í Götu,
leggst þá niður, og það er á sjálfs vors
valdi, hvort vér viljum hafa þar stjórn-
arskrifstofu, til að gæta þar hagsmuna
vorra.
Enginn neitar því, að búseta ráðherr-
ans hér á landi hefir ýmsa kosti, sé henni
svo fýrir komið, að þjóðinni só full-
tryggjandi.
Yandinn er auðvitað, að búa svo um
hnútana, að hag vorum í ríkisráði só
borgið, og að eigi beri aðrir fram mál
vor þar, en þeir, sem beri ábyrgð gagn-
vart alþingi, svo að búseta ráðherrans hér
geti undir engum kringumstæðum dregið
hann undan fullri ábyrgð á allri stjórn-
arathöfninni yfir höfuð.
Takist að koma þessu svo vel fyrir í
frv. því, er ráðherrann ætlar sér að leggja
fyrir þingið, að hagsmunum þjóðar vorr-
ar só fyllilega borgið, þá má ætla, að
þjóðin telji eigi kostnaðinn eptir.
En úr því verður eigi til fullnustu
skorið, fyr en frv. birtist.
Að öðru leyti munum vér síðar ræða
þetta nákvæmar, en nú eru tök, þar sem
blaðið er á leiðinni í prentsmiðjuna.
Ekki apturhaldsliði.
Sýslumaður //. Hafstein hefir látið
blað sitt „Yestra“ spyrja sig — en við-
höfnin og látalætin hjá þessu fólki! —,
hvort það væri ekki satt, sem „Stefnir“
sagði, í fylgisnepli sínum, að dr. Þorv.
Thoroddsen hefði tjáð sig apturhaldsliðinu
fylgjandi í stjórnarskrármálinu.
Og sýslumaður er svo náðugur, sem
vita raátti, að hann staðfestir það orði
til orðs(!)
Gagnvart þessu skulum vér láta oss
nægja að segja, «4 vér höfum í höndum
bréf frá dr. Þorv. Thoroddsen, sem stað-
festir sögusógn vora, sbr. 40. nr. XV. árg.
blaðs þessa.
Það er því eitt af tvennu, að velborn-
um sýslumanni og apturhaldsliðs-„erinds-
reka“ Hannesi Hafstein hefir orðið það á,
að kríta nokkuð liðugt um þetta — hann
skáldaði, sem kunnugt er, svo afar-margt
í hinni víðfrægu utanför sinni —, eða
ummæli hans eru sprottin af misskiln-
ingi á einhverjum meðaumkunnarorðum,
er dr. Þorv. Thoroddsen kann að hafa
látið falla, velnefndum „erindsreka“ til
huggunar og harmalóttis, er hann eigraði
um erlendis, farandi algjörða erindisleysu,
og fáandi ekkert svar upp á sinn þjóð-
lega(!) erindisrekstur, landshöfðingja-nafn-
breytinguna m. m.
Að öðru leyti er það kunnugt, að dr.
Þorv. Thoroddsen, sem er vakinn og sof-
inn í vísindastörfum, skiptir sér lítt af
politík, og mun hann þvi sízt hafa vænzt
þess, að „erindsrekinn“ blandaði svo nafni
hans í stjórnarskrárdeilurnar hór á landi,
sem raun er á orðin.
En eitthvað varð „erindsrekinn“ að
segja sór til frægðar, er hann kom úr
siglingunni — „da liegt der Hund begra-
ben!“
Bessastöðum 22. janúar 1902.
Skúli Thoroddsen.
tJtlöna.
Með gufuskipinu „Laura“, er kom frá
útlöndum 25. þ. m., eru þessi tíðindi helzt:
Bretland. 16. janúar gengu Bret-
ar á þing„ og bar stjórnin sig þá mjög
borginmannlega, sem fyr, að því er Búa-
ófriðinn snertir, en heldur þó enn áfram
hersendingum suður þangað. — Seint í
janúar áttu 1300 hermanna að leggja af
stað frá Bretlandi til ófriðarstöðvanna,
og Australíubúar höfðu lofað, að leggja
enn til 1000 manna.
11. janúar áttu 500 fulltrúar fram-
sóknarflokksins fund með sér í Derby, til
að ræða þar ýms flokksmál sín, og duld-
ist það eigi á þeim fundi, að frjálslyndi
flokkurinn er tvískiptur, að því er til
Búa-ófriðarins kemur, þar sem sumir
fylgja keisarastefnunni („imperialisme“),
og vilja, að Bretar láti til skarar skríða,
en aðrir vilja unna Búum viðunanlegs
friðar og sjálfsforræðis.
Bólusótt hefir verið að stinga sór nið-
ur hér og hvar í Lundúnum, síðan í sið-
astl. ágústmánuði.
írskir þingmenn hafa haldið æsinga-
fundi víða á írlandi, og hvatt landseta
til þess, að greiða eigi landsdrottnum
leigu, nema þeir fengju sanngjarna nið-
urfærslu, og hefir Tory-stjórnin því grip-
ið til kúgunarráða, og fengið ýmsa þing-
menn dæmda í fangelsi, svo sem þing-
mennina O’DonneU, O’Keily, Tully o. fl.;
en írskir þingmenn o. fl. héldu 11. jan-
úar fjölmennan fund í Dublin, til að
mótmæla aðförum stjórnarinnar, og hvetja
hver annan.
Redmond, foringi írska sjálfstjórnar-
flokksins, brá sér til Ameríku seint í nóv.,
og hélt þar fundi í Chicago, og víðar, tíl
styrktar sjálfstjórnarbaráttu íra, og komst
þá meðal annars svo að orði, að velvild
sú, er Búar mættu hvivetna, í baráttunni
fyrir frelsi sínu, sýndi Irum, hvers þeir
mættu vænta, og ætti því að skapa þeim
hug, til að hefjast handa.
Mælt er, að Játvarður konungur, og
drottning hans, ætli að bregða sér til ír-
lands seint í aprílmánuði næstk.
Fyrir nokkru brá Chamberlain ráð-
herra Þjóðverjum um það í ræðu, að
þeirn færist ekki, að tala margt um ílla
meðferð brezka hersins á Búum og fjöl-
skyldum þeirra, því að ekki hefðu Þjóð-
verjar hagað sór siðsamlegar, er her
þeirra brauzt inn á Frakkland 1870, og
hefir Bulow kanzlari svarað þeim um-
mælum stygglega, og spunnizt af miklar
deilur í enskum og þýzkum blöðum.
f 23. nóv. síðastl. andaðist einn af
merkismönnum Breta, John Eyre að nafni,
fæddur 1815. — Hann var fyrrum land-
stjóri Breta á New Zealandi, Jamaica,
og víðar. —-------
Búa-ófriðurinn heldur enn áfram
og ekki sýnilegt, að neinna úrslita sé
þar að vænta í bráð. — Búar hafa lið
sitt í smáhópum hór og hvar um þessi
miklu landflæmi, og lendir í smáorustum
við og við.
Mælt er, að hersveitir Búa muni vera
alls um 70, sumar mjög fámennar, en í
engri fleiri, en 1—2 þús. manna.
I öndverðum desembermánuði átti
hinn frægi Búaforingi De Wet orustu við
Dartnell hershöfðingja í nánd við Landberg
í Oranje-ríki, og var þá sigursæll, sem
optar, og misstu Bretar margt manna.
20. des. róð og Louis Botlia, með 800
manna, á brezku foringjana Damant og
Rimington suður í Oranje-ríki, og varð
Damant sár í bardaganum, en 2 brezkir
liðsforingjar fóllu, og 20 menn aðrir; en
manntjón Búa er eigi kunnugt.
í Transvaal eru Búaherforingjarnir
Muller, Tricliaardts og Brand Smit einna
atkvæðamestir, og eiga þar i smá-orust-
um öðru hvoru.
Annars eru allar fregnir af ófriðinum
mjög óglöggar um þessar mundir, þar
sem Bretar hafa fróttaþráðastöðvarnar á
valdi sínu, og leyfa eigi, að aðrar hrað-
fréttir sóu sendar, en þeim líka.
Bretar banna og allar ferðir til Suður-
Afríku, nema ferðamenn hafi áður fengið
sórstakt leyfi þeirra. ------
Þýzkaland. í des. fór einn bank-
inn enn á höfuðið, í Dresden, og nam
sjóðþurrðurinn þar 7 milj. rígsmarka.
Seint í nóv. brann stórt sykurgerðar-
hús, og var skaðinn metinn 3 milj. marka.