Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1904, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1904, Qupperneq 1
Verð árganqsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. -Átjándí ÁRöANGUR. =| 1 — -i—æ»g|= RITST.T Ó R I: SKÚLI THORODDSEN. =1 ***£—*— I Uppsögn skrifleg, ógild | nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júni- ! mánaðar, og kaupandi i samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 7. BeSSASTÖÐUM, 19. FEBR. 19 0 4. púnaðarskólarnir. í „Norðurlandi“, ‘23. janúar siðastl.. birtist nafnlaus grein um búnaðarskólann á Hvanneyri, þar sem því er farið fram, að réttast sé, að nota nú tækifærið, brun- ann á Hvanneyri, til að flytja búnaðar- skólann til Eeykjavíkur. Vór segjum, að greinin sé nafnlaus, því að það gefur í raun og veru sára litlar leiðbeiningar, þó að höfundurinn kalli sig „Stefán Stefánsson“, þar sem má ske eru fleiri hundruð manna hér á landi, sem því nafni nefnast, og leiðum vér því alveg hest vorn frá því, að reyna að ráða þá gátuna, hver höfundurinn só, enda skiptir það ekki málum. Aðal-tillaga höfundarins er, svo sem áður var getið, í því fólgin, að flytja Hvanneyrarskólann til Reykjavíkur, og ætlast höfundurinn til þess, að búnaðar- skólinn í Reykjavík sé þriggja ára skóli, og veiti að eins bóklega fræðslu, 7—8 mánaða tíma að vetrinum, og skiptist í tvö námsskeið þannig, að fyrra náms- skeiðið sé tvö ár, en hið siðara eitt ár, og ætlað þeim, er meira vilja nema, eða þeim, er lokið hafa prófi við aðra búnaðar- skóla landsins. Það er ekki ólíklegt, að þessi tillaga höfundarins þyki nokkuð nýstárleg, og þar sem málið er mjög mikils varðandi, virðist rétt að íhuga tillöguna, og fara nokkrum orðum um búnaðarskólamálið yfir höfuð, því að óheppilegt væri, ef hlaupið væri til þess, að leggja fram ærið fé, til þess að koma Hvanneyrarskólan- um upp aptur, ef niðurstaðan yrði svo sú, er málið hefði rætt verið, að heppi- legra væri, að hafa þar alls engan bún- aðarskóla, eða þá með allt öðru sniði, en verið hefir. Það hefir löngum verið fundið að búnaðarskólum vorum, að námspiUarnir nytu þar állt of lítillar verlclegrar frœðslu, og hefir sú umkvörtunin naumast verið um skör fram, enda hefir sfi raunin orðið á, að margir þeirra búfræðinga, er út- skrifazt hafa af búnaðarskólum vorum, hafa tekið að gefa sig við allt öðrum störfum, er námi lauk, og hafa notað þá litlu bóklegu fræðslu, er þeir hafa feng- ið á búnaðarskólunum, til að koma sér að verzlunarstörfum, barnafræðslu, o. fl. Af því að verklega kennslan á bún- aðarskólunum hefir verið af skornum skammti, hafa bæði einstakir bændur, og búnaðarfólög, verið miklu tregari á, að raða til sín búfræðinga, en ella myndi, og afleiðingin hefir þvi verið sú, að land- búnaður vor íslendinga hefir haft búfræð- inganna miklu minni not, en vænta mátti. En að btmaðarskólarnir hafa veitt svo ófullnægjandi verklega fræðslu stafar af því, að búnaðarskólarnir hafa haft of lít- ið fó, og hafa því að sumrinu orðið að nota námssveinana til ýmsra algengra heimilisstarfa, aðflutninga að skólabúinu o. fl., í stað þess að láta þá sýsla stöðugt að jarðabótastörfum, svo að þeir yrðu sem leiknastir í þeim, og er búnaðarskólastjór- um vorum, sem sumir eru ágætismenn, því alls eigi svo mjög gefandi sök á þessu, sem opt má heyra á máli manna. Ekki verður því heldur neitað, að lögð hefir verið meiri. áherzla á bóklegu fræðsluna, en heppilegt virðist,p,ognáms- sveinarnir t. a. m. látnir sitja að dönsku námi o. fl., sem naumast getur þó verið ætlunarverk búnaðarskólanna að' kenna. En það, sem íslenzkur landbúnaður fyrst af öllu þarfnast, það eru húfrœðing- ar, er hafa nœga verklega œfinga og þekk- ingu í húnaðarstörfum, samfara dugnaði, og ást á landbúnaðarvinnunni. Að ætla sér að gera alla búfræðinga að vísindalega menntuðum búðfræðing- um,|það er óðs"manns æði, ogíþar á ofan allsendis óþarft. jíT-' - gpj-g i Vér þurfum“‘t. d. duglega 'plæginga- menn: vór þurfum menn, sem hafafeng- ið sérstaka æfingu og leikni í því, að rista ofan af þúfunum, menn, sem kunna sérstaklega að garðrækt, vatnsveitingum o. s. frv. o. s. frv. Aðal-atriðið er, að mennimir kunni vel til þeirra búnaðarframkvæmda, sem þeim er ætlað að annast um; en þó að j þeir góti ekkert slegið um sig með „kem- j iskum efnasamböndum“ áburðar eða fóð- j urjurta o. s. frv., þá gerir það ekki minnstu vitund til. Á hinn bóginn eiga þó verklegu b'inað- arframkvæmdirnar að sjálfsögðu að byggj- ast á visindalegri þekkingu og rannsókn- um, og því er nauðsynlegt, að vísindaleg búfræðisfræðsla sé til í landinu; en að ætla sér að troða henni inn í hvern bú- fræðinginn, teljum vér óþarft, og meira að segja til ógagns eins, þar sem afleið- ingin verður þá opt sú, að búnaðarskól- arnir framleiða mikið af hálf-menntuðum lýð, sem þykjast margir of fínir til vinnu, og verða má ske réttnefndari búslæping- ar, en búfræðingar. Til þess að veita þá vísindalegu bú- fræðisþekkingu, sem landið þarfnast, telj- um vér því nóg', að hafa einn húnaðarskóla, þar sem hókfræðileg búfrœðisfrœðsla er veitt; en sá skóli ætti að vera miklu betur úr garði gerður, en núverandi búnaðarskól- ar vorir, og vera nokkurs konar búnaðar- háskóli, þar sem ýmsar búfræðislegar rannsóknir og tilraunir væru gerðar. En jafn hliða þessum búnaðar-háskóla þyrftu að vera að minnsta kosti fjögur fyrinnyndarhu í landinu, styrkt af opin- beru fé, sitt í hverjum landsfjórðungi, þar sem eingöngu fœri fram verkleg hún- aðarkennsla, er stæði öllum verkfærum mönnum til boða, án tillits til þekking- arstigs. Ef til vill mætti breyta hinum nú- verandi búnaðarskólum vorum, eða sum- um þeirra, í slík fyrirmyndarbú; en að öðrum kosti ættu þeir, sem kák-stofnan- ir, að leggjast niður sem allra bráðast. Þar sem höfundurinn i „Norðurlandiu ætlast til, að hinir núverandi búnaðar- skólar vorir standi framvegis, jafnhliða þessum fullkomnari búnaðarskóla, (eða búnaðarháskóla), er hann vill, að stofnað- ur sé í Reykjavík, þá erum vér honum, samkvæmt áður sögðu, algjörlega ósam- þykkir. Yér álítum eigi, að landið hafi minnstu þörf á svo mörgum vísindalega mennt- uðum búfræðingum, að það taki því, að hafa hina núverandi búnaðarskóla, sem undirbúningsdeildir undir efri deildina í búnaðarháskólanum, eins og höf. í „Norðurlandi11 ætlast til. Um hitt atriðið, hvar búnaðarháskól- inn væri bezt settur, skulum vér eigi fjölyrða mikið að þessu sinni. Höfundurinn leitast við að færa ýms rök að því, að hann sé bezt settur í Reykjavík, þar sem þar sé"kostur beztra kennslukrapta, hvergi sé hægra að koma upp góðu áhalda- og kennslutækja-safni, og svo sérstaklega, að sparast myndi tölu- verður byggingarkostnaður, ef byggt væri í sameiningu hús fyrir skólann, efna- rannsóknastofu, mjólkur- og matreiðslu- skóla, fyrir landbúnaðarfélagið, o. fl. Yér skulum og játa, að ef búnaðar- skólamálinu væri komið í það horf, sem vér nú höfum lagt til, svo að einungis væri um búnaðarháskóla að ræða, er að eins hefði hóklega húnaðarfræðslu á hendi, þá ætlum vór eigi, að vera skólans í Reykjavík gæti orðið hættuleg. Frekari orðum finnum vér eigi ástæðu til að fara um málið að sinni, en getum að lokum tekið undir það með höfundin- um í „Norðurlandi“, að æskilegt væri, að búnaðarskólamálið yrði íhugað sem ræki- legast, áður en nokkuð verður fast ráðið, að því er endurbyggingu búnaðarskóla- húsanna á Hvanneyri snertir. Enska lækna-blaðið „Medical Press“ telur það geta haft óheppileg áhrif á taugakerfið, ef hörn séu látin byrja mjög ung að læra að leika á „fortepiano“, og það ekki hvað sizt, ef bömin séu hneigð fyrir söng. Blaðið vekur oinníg athygli á þvi, að ekki tjái að láta börnin sitja of lengi við hljóðfærið í senn, vanalega með hálsinn boginn, til að geta

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.