Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1904, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1904, Blaðsíða 4
xvrrt.. y 23 velja hana fremnr, en fleiri styttri sög- ur, sem minna er í varið. Ófriöur byrjaður! Með botnvörpuskipi, er kom til Reykjavíkur 17. þ. m., bárust þær frétt- ir, að ófriður milli Japana og Eússa hefði byrjað 7. febr. Mælt, að Japanar hafi þegar sprengt í lopt upp, á einum eða fleiri stöðum, Síberíu-jámbrautina, er liggur um Mand- sjúríið, alla leið austur að Kyrrahafi, til þess að gera Rússum örðugra fyrir, að því er her- og vista-flutninga snertir. Nákvæmari fregnir væntanlega í næsta nr. blaðsins. Bessastöðum 19. feb-. 1904. Tiðaríar. Síðan síðasta nr. „Þjóðv.“ kom út, hefir veðráttan all-optast verið við norðanátt, og talsverð frost öðru hvoru f 13. þ. m. andaðist í Reykjavík Ilalldór Ouðmundssov, fyrrum kennari við lærða skólann í Reykjavík, 78 ára að aldri, fæddur 3. fehr. 1826. — Hann tók stúdentepróf 1851, og var kennari við lærða skólann 1862—1885, er hann fékk lausn frá emhætti, með eptirlaunum. Hann var kvæntur Stefaníu, dóttur Páls amt- manns Melsted, en missti hana, eptir örstutta samhúð, og áttu þau ekki barna. í lærða skólanum kenndi Hálldór sálugi jafn- an „mathematik“ og grasafræði, er hann hafði sérstaklega lagt stund á á háskóla-árum sínum, þótt eigi lyki hann þar embættisprófi, og þó að kennsla hans væri affarasælust fyrir þá náms- eveina, er vel voru lagaðir fyrir þessar náms- greinar, en síður fyrir hina, þá var hann þó jafn- an vel þokkaður af skólapiltum, svo að flestir þeirra munu minnast hans með hlýjum huga, enda gegndi hann lengstum emhætti sínu með skyldurækni, þótt hann að vísu á síðari árunum væri breiskur um of, að þvi er dýrkun gamla Bachusar snerti, enda voru lítt „templara“-hættir á landi voru, er Halldór sálugi stóð í blóma lifsins. Aður en Halldór varð kennari, hafði hann um hríð verið amtsskrifari í Stykkishólmi, og kvænt- ist, og missti konu slna þar. Launson átti Halldór, er Tómas er nefndur, og er hann enn á lifi, kvæntur maður. Mjög mikinn þátt átti Halldór sálugi Ouð- mundsson í stofnun og stjórn sparisjóðsins í Reykjavík, ef síðar var sameinaður landsbank- anum, og var það mjög þarfleg stofnun á þeim tímum. A síðari árum var heilsa Halldórs, sem von var, tekin mjög að bila, en sálarkröptum sínum hélt hann þó jafnan furðanlega. Áuk farþega þeirra, er getið var i siðasta nr., að farið hefðu með „Lauru“, sigldu einnig: kaup- mennirnir Ólaýur Arnason frá Stokkseyri, Kjart- an Þorlcelsson frá Búðum, Ouðm. Jónasarson frá Skarðstöð, og Ben. S. Þórarinsson frá Reykjavík, slökkviliðsstjóri Matthías Matthíasson, frú Kirstín Pltursdóttir, kona síra Lár. Halldórssonar, verzi- unarstjóri Ingólfur Jónsson frá Stykkishólmi, stúdent Eirílcur Kjerulf, ungfrú Katrin Gunn- lögsdóttir, o. fl. Þilskipin hér syðra munu flest eiga að leggja af stað til fiskiveiða í öndverðum marzmánuði, eins og í fyrra, enda þótt margir játi, að full snemmt væri, að byrja um miðjan mánuðinn; en þetta strandar, sem fleira, á samkomulagsleys- inu. Ráðningasamþykktin, er þilskipa-eigendurnir fóru eptir í fyrra, kvað nú einnig veraaðmiklu, leyti úr sögunni, svo að ýmist er ráðið upp á part eða kaup, og þykir hásetum það eigi miður. Allt er enn í óvissu um það, hvenær hluta- félagsbankinn byrjar störf sin, en talið er lik- legt, að það drægist eigi lengur, en fram í apríl, eða má ske til apríl-loka i lengsta lagi. Talið er vist, að kosning islenzka bankastjór- | ans fréttist, annað hvort með „Skotlandi“ i þ, m., eða þá með „Lauru“, er hún kemur næst, Konan mín, sem í mörg ár hefir þjáðst af tœringu, og leitað liefir ýmsra lækna, hefir náð töluverðum bata með því, að nota stöðugt Chína-lífs-elexír Valdemars Petersens, og haldi hún áfram að brúka elexírinn, vona jeg, að hún verði fylli- lega heilbrigð. Hundested, Sjálandi, 19. júní 1903. J. P. Amorsen. Iv íri;i-liís-elexír*i nn fæst bjá flestum kaupmönnum á Islandi, án nokk- urrar tollhækkunar, svo að verðið er, sem fyr, að eins 1 kr. 50. aur. fyrir fiöskuna. — Til þess að vera vissir um,aðfáhinn ekta Kína-lífs-elexir, eru kaupendur beðn- jr að líta vel eptir því, að LlZl. standi á fiöskunni í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan- um: Kínverji með glas í hendi, ogfirma nafnið Yaldimar Petersen, Prederikshavn Kontor & Lager Nyvej 16. Kjöbenhavn’ Hús til sölu í Bolungarvík í Isafj.sýslu 7—j—6 al. að stærð, vel innréttað, og meðf. geymslu- húsi 10-j-5 al. Lysthafendur semji sem fyrst við eig- andann, Ólaf Hafliðason í Bolungarvík. ’04. PRENTSMIÐJA U.TÓÐVILJ ANS. 26 það eitt af ætlunarverkum heimilisprestanna, að rifja upp fyrir þeim sögu ættarinnar öðru hvoru. Sira Ching var eini presturinn að Landy-Court, er saga þessi gjörðist. Landy-Court var fagurt, gamalt ættar-setur, frá dögum Elísabethar drottningar, og hafði Richard La- metry lávarður reist það fyrstur manna, og varið til þess spánversku ránsfé, því að þó að hann væri sjálfur góður páfatrúarmaður, hafði hann þó eigi gert sér sam- vizku af því, að fara í víking, og tókst þá að ná svo miklu mexíkönsku gulli, að fjárhagur hans lagaðist, og hann gat byggt stórhýsi þetta. Höllin var byggð á hæð einni, skógi vaxinni, skammt frá sjávar-ströndinni, beint á móti Landy-eyjunni, og dró nafn af henni, enda hafði höfundur ættarinnar flutzt þaðan á dögum Játvarðar II., og tekið sér nafnið Lametry, eptir skaga þeim, er Marisco-kastalinn stendur á; en hvað hann hafði heitið áður, vissi enginn, né hirti um að vita. Eignin hafði jafnan gengið að erfðum frá fóður til sonar, nema þegar hún var látin ganga til þess ættliðs- ins, er mótmælenda trú játti, til þess að forða þvi, að Elísabeth drottning gjörði hana upptæka. Sá ættliðurinn hefði, með fullu samþykki þingsins og konungsvaldsins, getað haldið eigninni óskertri, sem eign sinni, ef hann hefði viljað; en þótt eldri ættleggur- inn væri kaþólskur, virti vngri ættliðurinn réttindi hans svo mikils, að hann skiiaði honum eigninni aptur, er ofsóknum gegn kaþólskum mönnum var hætt. Svona stóð á því, að kaþólski Lametry-ættliðurinn hélt óðals-eigninni, ásamt ýmsum frjósömum jörðum, er 27 henni fylgdu, og þegar Píers lávarður tók við erfðinni,. var hann einna auðugasti jarðeignamaðurinn i Norður- Devon. Hann hafði verið ekkjumaður árum saman, og þar sem hann átti að eins eina dóttur, en Landy-Court gekk að eins að erfðum í karl-liðinn, þá furðaði marga, að hann skyldi eigi kvongast aptur. En þar sem engin hætta var á því, að hið gamla, góða ættarnafn Lametry-ættarinnar dæi út, þó að Píers lávarður ætti engan soninn, hirti hann eigi um, að kvong- ast aptur, en lét sér nægja að lifa í endurminningunni um konuna sína sálugu. Yið lát hans átti eignin því að ganga að erfðum- til Líonel’s, bróður hans, og dæi hann, sem var piparsveinn, án afkvæmis, þá var William Kynsam, sonur Margrétar, systur Píers lávarðar, næstur til erfða. „Og ef Villi gengur að eiga Eleonoru, dóttur mína-, mælti Píers lávarður við síra Ching, „þá kemst eignin aptur 1 hendur eldri ættliðsins.- „En það er þó því að eins, að bróðir yðar kvong- ist ekki, og eignist erfingja-, svaraði sira Ching þurr- lega. „Lionel kvongast!- mælti lávarðurinn, og hló mjög dátt. „Það er nú ekki hætt við því um hann, bóka- orminn þann, sem naumast þekkir víst mismuninn á kvennmanni og bókarskræðu-. „Getur verið“, muldraði síra Ching í barm sér, sýnilega mjög efablandinn. „En stundum þarf hann þó, að bregðasértil Lundúna“. „Að eins til þess, að ná sér í fleiri bækur, en ekki

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.