Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.06.1904, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.06.1904, Blaðsíða 3
XVIIj., 25. ÞjÓB’VILJINN. 99 þeim, sem meira láta yfir sér, enda þó hann yrði með fiokkshræðrum sínum í minni hluta, en það er alkunnugt. hvernig sá sigur var tilfenginn, þeirra sem urðu í meiri hluta. Eyj- ólfur fylgdi vei timanum; hann las þau hlöð, sem einarðlegast studdu framsóknarflokkinn, og hann skildi vel hvað rétt og satt var, frá því ranga og ósanna. Það hafa þótt tíðindi hér, að um þessa daga Eafa verið hér á ferð tveir menn frá Armeníu, að leita samskota handa nauðlíðandi mönnum, sem orðið hafa fyrir hörmulegri meðferð Tvrkja. Margir þeir sem orðið hafa á vegi þeirra, hafa rétt þeim hróðurlega vinarhönd, og sumir örlát- lega eptir efnum, enda er það steinhjarta, sem ekki viknar, þegar slíkar hörmungar heyrast. Það eru að eins stórvelda-stjórnendur Norður- álfunnar, sem geta sofið vært á heði svívirðing- arinnar, meðan slík hlóðhöð eru framin, — en öllum öðrum ofbýður, enda er það skaplegt, að því hærri sem völdin eru, því meiri er opt þræl- mennskan11. sinni og 'tvö börn þeirra. Lifir nú að eins eptir Benedikt sonur þeirra, er nú býr á Setbergi og Gruðrún sál. hafði dval- ið hjá hin síðustu ár sin. Þótt hún væri orðin blind síðustu 10 árin, bar hún það með þolinmæði og stilling. Mun vera leitun á annari eins hógværðar og stillingarkonu, þótt kjör hennar væru opt og einatt erfið. Sakna hennar allir, sem þekktu, og þykjast þar eiga á bak að sjá einhverri beztu og vönduðustu húsmóður og guðhræddustu og ástríkustu móður. L. 21. maí síðastl. andaðist enn fremur að Möðruvöllum í Hörgárdal ekkjan Jór- unn Magnúsdóttir, 74 ára að aldri. — Hún dó í svefni. — Meðal barna hennar er frú Steimmn Frímannsdóttir, kona Stefáns kennara Stefánssonar á Möðruvöllum. Mannalát. 28. dag febrúarm. 1904 lézt að heim- ili sínu, Setbergi á Skógarströnd, merk- iskonan Gudriin Vflrnharðsdóttir, prests Þorkelssonar í Hitarnesi, og konu hans Ragnheiðar Einarsdóttur. G-uðrún sál. var fædd að Nesi í Aðalreykjadal og flutt- ist vestur með foreldrum sinum ung að aldri. Hún var fædd 1. ág. 1821. Hún eignaðist son áður en hún giptist, Jó- hannes Vigfússon, er lærði prentaraiðn og dvaldi um hríð í Reykjavík og á Isa- firði, en er nú í Vesturheimi. Um 1850 giptist Gruðrún sál. Birni Magnússyni, alkunnum hagleiksmanni og gullsmið, er bjó á Narfeyri. Þau áttu saman 8 börn. Björn var dáinn löngu á undan konu Bessastöðum 22. júní 1904. Tíðarl'ar. Siðan „Þjöðv.“ var síðast á ferð- inni, hafa haldizt þurrviðri, og sólbjal-tir dagar, en þó optast kaldur norðan-andi, er sólar ekki nýtur. Póstg'ui'uskipið „Laura11 lagði af stað frá Reykja- vík til útlanda 17. þ. m. -- Meðal farþegja, er með skipinu fóru, voru: cand. med. Þorvaldur Pálsson, ungfrú Baufey Vilhjálmsdóttir (trá Rauð- ará), frú M. Lund (lyfsala), ýmsir Ameríkufarar úr Mýrarsýslu, o. fl. ý 12. júní andaðist i Reykjavík Ðaníel Símon- arson söðlasmiður, nær 66 ára að aldri, fæddur í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi 6. júlí 1838. Ekkja hans er Kristbjörg Helgadóttir, systir Jón- asar sál. organista, og eiga þau hjónin eina upp- komna dóttur á lifi, Ghiðrúnn að nafni, sem nú dvelut- erlendis. S. d, andaðist enn fremur í Reykjavík, eptir fárra daga legu i lungnabólgu, Þorsteinn Narfa- son, fyrrum bóndi að Brú í Biskupstungum, nær 74 ára að aldri, fæddur 31. júlí 1830. — Meðal harna hans eru þeir Hannes ritstjóri Þm-steins- son og stúdent Þorsteinn Þorsteinsson í Kaup- mannahöfn. Dæmdur botnverpingur strokinn. 14. þ. m., er sýslumaður Páll Einarsson var staddur i verzl- unarstaðnum Keflavík, á manntalsþingaferðum, lá enskur botnverpingur þar á höfninni, sökk- hlaðinn af fiski, og albúinn til heimferðar; en. með því að sýslumanni hafði nokkru áður hor- izt kæra frá tveim mönnum í Leirunni, er höfðu séð botnverping þenna vera að hotnvörpuveiðum í landhelgi, hrá sýslumaður sér þegar út í hotn- vörpuskipið, tók skipstjórann í land með sér, og höfðaði mál gegn honum, og með því að lög- fullar sannanir fongust um brotið, þrátt fyrir neitun skipstjóra, var hann dæmdur í 1800 króna sekt, og afli og veiðarfæri gert upptækt. Varðskipið „Hekla“ var statt í Reykjavík um þessar mundir, eg með aðstoð þess var „trawl- arinn“ fluttur til Hafnarfjarðar, og setti sýslu- maður þar fjóra menn, íslenzka, út í skipið, til þess að hafa þar vörzlu, með því að danska herskipið þóttist ekki hafa tíma til þess, að bíða þar, unz málinu væri lokið. Lá nú botnvörpuveiðaskipið nokkra daga í Hafnarfirði, og átti að skipa aflanum i land 20. þ. m , en skipstjóri hrá sér til Reykjavíkur, og lézt mundi áfrýja dómnum, sem auðvitað var þýðingarlaust, og að líkindum að eins fyrirslátt- ur. —- En aðfaranóttina 19. þ. m. gera skips- mennirnir á hotnvörpuskipinu sér lítið fyrir, stela hriplekum, og áralausum, pramma í landi, slá hring um varðmenn sýslumannsins, létta at- kerum í snatri, og neyða síðan varðmennina, til að fara ofan í prammann, er skipið var komið nokkuð út á fjörðinn, og náðu þeir iandi i Hafn- arfirði við illan leik, vöktu sýslumann upp, og sögðu honum, hvar komið var. Sýslumaður hrá þá við, og hélt þegar inn í Reykjavík um nóttina, ef ske kynni, að skip- stjórinn á botnvörpuveiðaskipinu væri þar enn, og næðist; en hann var þá allur horfinn, og 104 „Er þetta ekki satt?u mælti hann enn fremur, og leit til Durrant’s „Alveg réttu, svaraði Durrant lágt. „Jeg vildi kaupa hringinn handa amerískum milljóna-eiganda, er hét niér tíu þúsundum sterlingspunda fyrir hann; en Piers lávarður vildi ekki selja hann“. „Ekki þáu, mælti William, „af því að Líonel, frændi minn, var staddur í herberginu, og honum þótti ekki hlýða, að selja slíkan ættar-helgidóm. Jeg fór svo upp. til að hátta, en gat ekki sofnað, vegna áhyggja minna, og með því að jeg vissi, að Píers lávarður var enn á fótum, í bókaherbergina. þá ásetti eg mór, að ná tali hans, skýra honum frá vandræðum mínum, og beiðasb hjáipar hansu. „Hvers vegna gjörðuð þér það eigi fyr?“ spurði Drage. „Af þvi að lávarðurinn hafði bundið samþykki sitt, að því er snerti trúlofun mína og dóttur hans, því skil- yrði, að jeg væri skuldlaus, og það var jeg reyndar þá, þó að hiekkir vinar mins kæmu mér síðar í vandræði". „Jeg skil það. Haldið þér áfram hr. Kynsamu. „Jeg taldi nú snjallast, að leita á náðir hans, þar sem jeg var í raun og veru saklaus, og hafði eigi sóað peningunum. Með þessum ásetningi fór jeg ofan i bókaherbergið, og hitti lávarðinn þar. Hann var að virða hringiun fyrir sér, þvi að sira Ching hafði skilið hann þar eptir. Hann hlýddi á játningu rnína, og skýrði mér þá frá nokkru, sem gerði mig forviðau. „Hvað var það?“ spurði Drage forvitnislega. 101 Durrant varð afar-vandræðalegur, og horfði ýmist á Drage, eða William, því að hann skildi ekkert i því, er fram fór. Af andliti Kynsam’s, sem var náfólt, réð hann þó, að eitthvað væri öðruvísi, en vera átti. „Jeg skil ekki — mér er óljóst —mælti hann vandræðalega. „Hvað er . . .? Hr. Kynsam, segið, fyrir alla rnuni, hvað þetta á að þýðau. William hrissti höfuðið, og benti á Drage, er tókst á hendur, að skýra málið. „Það þýðir það, að Píers lávarður hefir verið myrtur“. „Myrtur?“ „Já, vegna hringsins þess arna, og jeg er kominn hingað, til þess að taka hr. Kynsam fastan, sem valdan að glæpnum, og yður, sem samsekan“. Durrant skildi enn naumast til hlýtar, hvað um var að vera, en hné niður á stól, og horfði fram undan sór, sljór og hugsunarlítill. Kynsam spratt á hinn bóginn á fætur, og mælti: „Jeg er saklaus; jeg hefi ékki myrt frænda minn“. „En hvernig er hringurinn þá í yðar vörzlur kom- inn ?“ Aður en William gæti svarað, spratt Durrant á fæt- ur, og var geðshræring hans svo áköf, að hann gat ekki talað í réttu samanhengi. „Píers lávarður dauður!“ æpti hann. „Myrtur! — hringurinn! — Jeg veit ekkert — heyri fyrst núna um morðið“. „Bin hringurinn?u mælti Drage. „Hann hefi jeg fengið hjá hr. Kynsarn. — Þér getið

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.