Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.07.1904, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.07.1904, Blaðsíða 4
112 ÞjÓBViLJINN. XYIII., 28. son allýtarlegt erindi um samvinnu milli prests og saínaðar. Tóku svo ýmsir til máls út af fyrirlestrinum og urðu um- ræðu talsverðar. — Þar sem prestastefna þessi ekki ræddi nein ytri mál kirkjunnar verður hún ekki ásökuð um, að hafa gjörst nærgöngul hinni nýskipuðu kirkjumálanefnd. Bessastöðum 8. júlí 1904. Yeðrátta fremur stormasöm og hlýjulitil nema þar sem sólar nýtur, grasspretta samt víðast hvar orðin í betra lagi, og allviða byrjað að slá tún. Skipat'erðir. Póstgufuskipið „Vestaíl lagði á Stað frá R.vík vestur um land. t. þ. m. Með henni mesti fjöldi fólks, þar á meðal fjöldi skóla- pilta frá Norður- og Vestur-landi. „Tryggvi lcomngur“ Thorefélagsskip, fór til útlanda 2. þ. m. Meðal farþegja þar var: kon- súlsfrú Kristjana Thorsteinsson með börnþeirra hjóna, búferlum til Kmhafnar, Oddur Gíslason málfærslumaður með frú sinni o. fl. Strandbáturinn uHólaru kom til Reykjavíkur 4. þ. m., norðan og austan um land. Með þeim auk annara Páll Ólafsson skáld. Yeitt sýslan. Ráðgjafinnhefir 6. f. m. skipað Ind- riða revisor Einarsson endurskoðanda við íslands banka, og hluthafar hafa valið Júlíus Havsteen amtmann, til sama starfa, hvor um sig með 500 kr. þóknun. Mannalát. t júnímánuði síðastl. andaðist að Fola- fæti i Norður-ísafjarðarsýslu konan Jiilí- ana Þorvaldsdóttir, Þorsteinssonar. — Hún var gipt Magnúsi Guðmundssyni, hús- manni á Folafæti, og varð þeim hjónum alls 6 barna auðið, og eru fimm þeirra á lífi, öll i æsku. — Júlíana sáluga varð tæplega þrítug, og dó eptir ný-afstaðino barnsburð. — Hún var væn kona, og vel látinn, og er þvi mikil eptir sjá að henni á bezta aldri, frá fjölmennum barna- hóp. Hjá undirrituðum fást eptir taldar vör- ur o. fl.: Ferðakoffort —Dyramottur — Smíðatól — Regnkápur — Reyk- og munn-tóbak — Höfuðföt — G-ramophon- ar — Saumavélar — Yasahnífar — Skegg- hnifar — Skæri — Pakkalitir — Ger- pulver — Handsápur — Tommustokkar — Taublákka — Speglar — mikið af góðu en óvenjulega verðlágu Skótaui — Sjölin hrokknu — Nærföt úr alull — Milliskyrtur — Alna- og stumpa-sirz — Tvisttau, frá 0,25 al. — Svuntutau — Hálstau — Bomesi — Chocolade og fjölda margt fl. ísaf. 27.—6.—’04. S. A. Kristjánsson. Fyrir 1 h 50 anr. geta nýir kaupendur fengið „Þjóðv“. frá 1. júlí til loka yfirstandandi árs. Só borgunin greidd fyrirfram, fær kaupandinn einnig alveg ókeypis um 200 bls. af skemmtisögum, sem ella kosta 1 kr. 50 a. í lausasölu. Þeir, sem vilja sinna þessu kosta- boði, ættu að gera aðvart um það sem allra fyrst. H-Steensen’ ** Mnm " *** IITNffM jYlargaríne er aftió óen Sedste. 3 XJl Os o i—. N ö ö ö CQ 3 f "1 “ Kaupendur blaðsins, er skipta um verustaði, eru beðnir að gera ritstjóra „Þjóðv.“ sem fyrst aðvart um bústaða- skiptin, svo að blaðið geti borizt þeim reglulega. PRBNTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS. 114 „Jeg vona, að þér hafið samfærzt fyllilega um sak- leysi hr. Kynsam’s?“ mælti klerkur. „Ekki get jeg fullyrt þaðw, svaraði Dragi þurrlega. „Hvaða sannanir hafið þór, er þór teljið geta sak- fellt hann?“ Drage tók hringinn upp úr vasa sinum, og hélt honum milli visi- og þumal-fingurs. „Jeg hefi fundið hringinn þann arna“, mælti hann. En þvi fór fjarri, að síra Ching brygði við þær fróttir, og þótti Drage það kyniegt. „Jeg átti von á þvi, að þér mynduð finna hring- inn“, mælti síra Ching stillilega; „en leyfið mór, aðsegja yður, að þessi maðuru — hann lagði hendina á öxl Williams’s — „er saklaus“. „Hver getur sannað það?u „Dr. Sinclair, sem rannsakaði líkiðu. Drage leit ýmist á William, eða síra Ching, en sneri sér svo undan, og fór að blása með munninum. í þessu botnaði hann auðsjáanlega ekki. 11. kapítuli. Skýrslur vitnanna. Skýrsla dr. Sinclair’s: „15. júni var jeg kvaddur til þess, að skoða lik Píers Lametry lávarðar i Landy Court. — Klukkan var þá niu um morguniun, og hafði hann þá verið dauður í 8 kl.stundir. — Orsökin til dauðans var sú, að eitthvert biturt verkfæri, að líkindum daggarður, hafði þrengzt gegnum hjartað, og hlýtur það að hafa valdið dauða á 115 sama augnabliki. — Sárið var þrístrent, og hefir verk- færið verið rekið af miklu afli. Að likindum hefir hinn látni verið myrtur milli kl. 1—3 um nóttinau. Að öðru leyti laut skýrsla vitnis þessa að ýmsum læknisfræðislegum atriðum, sem eigi þýðir að skýra hór frá. Skýrsla A. Evans, stofuþernu. „Jeg er herbergisþerna í Landy Court, og erj'mér falið, að taka til í bókaherberginu kl. 7 á morgnana. 15. júni fór jeg inn í bókaherbergið, eins og vant er, og sá þá, að miðglugginn var opinn; en sá gluggi veit út að graspallinum. Mér þótti þetta kynlegt, og fór að litast um í herberginu, hvort þar væri nokkur, er kynni að* hafa opnað gluggann, og sá eg þá, að borðdúkurinn var hálf- dreginn ofan af borðinu, og ætlaði eg þá að kippa hon- um upp, en sá þá hinu megin við borðið — undir borð- dúknum — lík Píers lávarðar. Hann lá á bakinu, með hendur út i loptið, og hélt hann á tætlu af borðdúknum í vinstri hendi. Jeg gerði þá þegar í stað aðvart um hvernig komið varu. Skýrs7a LíoneVs Lametry. „Jeg er bróðir hins látDa, og fór snemma í rekkju kvöldið fyrir, og skildi við bróður minn í bókaherberg- inu, og voru þeir Kynsam og Durrant þá hjá honum. Þeir voru að skoða „hringinn helgau, sem síra Ching hafði sótt út í bænahúsið, sakir Durrant’s, og áður

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.