Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.10.1904, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.10.1904, Page 1
Vert3 árgangsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; rrltndis 4 kr. 50 aur.. og í Amtríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- alarlok. ÞJOÐVILJINN. |= ÁtJÁNDI ÁR8AN6DB. -Sare|= RITSTJÓRI: SKTjLI THOKODDSEN. =1 Vpgsögn skrifleg, ógild I nema komtn sé til útgef- \ anda fyrir 30. dag júni- mánaðar, og kaupandi sarnhliða uppsögninni horgi skuld sína fyrir hlaðið. M 41. Bessastöbum, 17. OKT. 19 0 4. tJtlönd. Helztu tíðindi, er borizt hafa frá út- löndum, með síðustu skipaferðum, eru þessi: Danmörk. Ríkisþing Dana átti, eins og grundvallarlögin gera ráð fyrir, að taka til starfa fyrsta mánudaginn í októ- ber. — Ymsir vinstrimenn eru orðnir býsna óánægðir með Albertí, og hermála- ráðherra Madsen, er þykja i ýmsum greinum haga sér töluvert öðru vísi, en stefnuskrá vinstrimanna gerir ráð fyrir, og getur því vel farið svo, að ráðaneyt- ið eigi sér ekki langan aldur, enda fór- ust innanríkisráðherranum Enevold-Sören- sen svo orð á þingmálafundi í sumar, að ráðaneytið yrði að taka það til alvarlegr- ar íhugunar, hvort samheldi og sjálfstæði vinstrimanna væri eigi bezt borgið, ef ráðaneytið þokaði úr völdum. Fái Albertí því til leiðar komið, að „hýðingarfrumvarp“ hans verði á ný lagt fyrir ríkisþingið, þá er mjög hætt við, að samlyndi vinstrimanna fari allt út um þfifur, og verður þá óefað tíðinda von. — I sumar hefir hr. Alberti komið því til leiðar, að ýmsir héraðsdómarar í Dan- mörku hafa tjáð sig „hýðingarfrumvarp- inu“ meðmælta, einkum gamlir hægri- menn, og þeirra nótar, og þj'kir Albertí það mikill sigur, og telur álit þeirra meira að marka, en skoðun ýmsra há- skólal<ennara, og annara, er ekki styðjast við reynzluna. I Esbjerg var nýlega tekinn fastur fatasali, Jensen-Nyboe að nafni, sakaður um meiðyrði gegn konunginum, og er sakarefnið í því fólgið, að hann hafði haft mynd konungs vors liangandi i búðar- glugga sínum, og ritað fyrir ofan: „Þessi maður hefir kostað rikið langt yfir 30 milj. króna. Hefir hann unnið gagn fyr- ir fé þetta?“ Töluvert umtal hefir það og vakið, að japanskur barón, er brá sér til skemmt- unar norður á Skaga, var þegar tekinn fastur, með þvi að Danir hugðu hann vera þar í njósnar-erindum, þar sem bú- ist er við, að Eystrasaltsfloti Rússa eigi þar bráðlega leið fram hjá, ef hann verð- ur sendur austur til ófriðarstöðvanna. — En með þvi það sannaðist þegar, að mað- urinn var Taki-Kava barón, sem er einn í sendiherrasveit Japana í Berlín, var hann þó látinn laus aptur; en fremur hlægileg virðist þessi viðleitni Dana, 'að’ sýna Rússum vinarþel sitt, og hefir mælzt all-misjafnlega fyrir í Danmörku. — — Þýzkaland. 17. sept. varð eldsvoði mikill í þorpinu Binsdorph í Wiirtem- berg; þar brunnu 93 hús til kaldra kola, og stóðu að eins örfá hús eptir. f 18. sept. síðastl. andaðist Herbert Bismarck, elzti sonur „járnkanzlarans“ sáluga, 54 ára að aldri. Hann var lengi þingmaður, og átti sæti í prússnesku stjórninni, meðan faðir hans var við völd. Konsúl Þjóðverja í New-York hafa nýlega borizt ýms bréf, þar sem ' ViJ- hjálmi keisara er hótað bana, og eru bréf- in rituð i skrifvél, svo að menn vita enn eigi, hver höfundur þeirra er, en talið líklegt, að þau stafi írá einhverjum „an- arkistanum“, sem býr yfir miður hollum ráðum í garð keisarans. Stór ullarverksmiðja brann i sept. til kaldra kola i fylkinu Posen, og biðu nokkrir verkamenn bana, en margar þús- undir manna urðu atvinnulausir. Bretland. I þorpinu Ashton under Lyne í Lancaster-héraðinu hafa verkmenn í bómullarverksmiðjum nýlega hafið verk- fali, og hafa spunnizt út af því töluverð- ar róstur, og uppþot, svo að ráðgert var, að herlið yrði að skakka leikinn. Norskur maður, Adolf Beck að nafni, er sieppt var úr betrunarhúsi i Lundún- um í fyrra, eptir 8 ára betrunarhússvinnu, hefir orðið að þola hegningu þessa al- saklaus, að því er nú er uppvíst orðið. — Hann hafði verið staddur i Lundúnum, og var þá tekinn fastur, og sakaður um ýmis konar stór-þjófnað, er þar hafði þá nýlega verið framinn. Töldu lögreglu- menn hann heita John Smith, og hafa framið ýmis konar stór-bjófnaði, og kall- að sig þá, ýmist Willoughby lávarð, John Smith, eða Thornas Will. — Beck sagði auðvitað, sem var, að hann væri Norð- maður, nýkominn til borgarinnar, og kvaðst geta sannað, að hann hefði verið í Suður-Ameríku, er ýmsir af þjófnuðum þeim voru framdir, er hann var sakaður um, en engu að síður dæmdi kviðdómur- inn hann þó sannan að sök, enda þótt- ust, bæði lögreglumenn, og ýmsir, sem stolið hafði verið frá, þekkja hann. — Nokkru eptir það, er Beck hafði verið laus látinn úr betrunarhúsinu, var hann aptur tekinn fastur, og sakaður um ýmis konar þjófnað, er John Smith hefði fram- ið, og dæmdi kviðdómurinn hann sannan að sök, þrátt fyril mótmæli hans; en með því að Beck hélt þá þrumandi ræðu, og kvaðst, telja það nægja, að hann hefði einu sinni orðið að þola hegningu sak- laus fyrir annara glæpi, þótt eigi færi nú aptur á sömu leið, kom hik á dóm- arann, svo að dómsuppsögninni var frest- að til næsta dags; en áður en sá dagur kæmi, vildi svo vel til, að hinn sanni John Smith náðist, og meðgekk ekki að eins glæpi þá, er Beck mt var sakaður ! um, heldur og glæpi þá, er hann hafði áður þolað hegningu fyrir, þá sannaðist sakleysi Adolf Beck’s fyllilega; ella hefði hann að líkindum verið dæmdur i 14 ára typtunarhússvinnu í seinna skiptið. Þykir Bretum þetta ærinn vanzi fyrir þjóð sina, og hafa boðið Beck 36 þús. króna í bætur, en Beck hefir leitað full- tingis hjá Oscari, Svía- og Norðmanna- konungi, og fleiri stórhöfðingjum, og krefst. þess, að öll meðferð málsins sé tekin til rannsóknar, dómurinn ónýttur, og að hann fái skaðabætur, er nemi minnst 30 þús. sterlingspunda, enda hafði atvinna hans (námagröptur í Þelamörk) farið alveg forgörðum, meðan hann var í betrunarhúsinu, móðir hans dáið af sorg yfir óförum sonar síns, o. s. frv. Annar maður, Isaac da Costa að nafni, er dæmdur hafði verið í 12 mánaða betr- unarhússvinnu á Bretlandi í síðastl. apr- ílmánuði, hefir og ný skeð verið látinn laus, með því að sannazt hefir, að hann hafði verið tekinn í misgripum fyrir ann- an mann. Frakkland. 22. sept. héldu „hotel“- þjónar i París fjölmennan fund, til þess að ráða ráðum sínum; vilja hafa einn „frídag“ í viku hverri, og fleiri ívilnan- ir; en í fundarlokin lenti í óspektum, grjótkasti, og barsmíðum við lögreglu- menn, svo að margir meiddust. — Ítalía. 15. sept. fæddi Helena drottn- ing ríkiserfingja, er i skírninni hlaut nafnið Umberto Nicola Tommaso Oíovanní Muría, og nefndur er prinz af Piemont. Hafði drottningin áður alið konungi tvær dætur, og var fæðing rikiserfingjans því kærkomin, enda gaf konungur þá ýmsum sakfelldum mönnum upp sakir, og lagði fram 1 milj. lira til ellistyrks handa verkámönnum. 23. sept. hófst eldgos mikið úr Yesú- vius, og stóð eldsúlan yfir 450 álnir i lopt upp. — Víða hafa komið nýir eld- gýgir, og vellur hraunleðjan úr þeim logandi niður eptir fjallinu, og dunur, og dj’nkir, heyrast í sífellu, sem skotið sé af mörgum fallbyssum í senn. — All- mikla jarðskjálfta hefir og orðið vart við þar í nærsveitunum, og hafa þeir valdið mikilli hræðslu, sem von er. „Eríþenkjarar“ úr ýmsum löndum, en þó flestir frá Frakklandi og Spánþhafaí sept. haldið fund í Rómaborg. — Fund- armenn voru alls um 3 þús., og líkar páfa það mjög illa, að þeir skuli hafa valið Rómaborg til fundarhalds þessa, og lét því loka öllum bóka- og lista-söfnum í páfahöllinni, meðan fundurinn stóð yfir. 20. sept. varð járnbrautarslys í grennd við Ferrara, og biðu þar nokkrir menn bana, en fleiri meiddust. Verkfall mikið varð í borginni Mil- ano, og breiddist þaðan til ýmsra annara borga á Italiu, og vildu verkamenn á

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.