Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.11.1904, Qupperneq 3
XVII. , 45.
Þjó» vir.jiNN
179
Frsí ísafirði
er „Þjóðv.“ ritað 2. nóv. síðastl.: „Hér hefir
í haust gengið versta ótið. Jsvo að elztu menn
muna eigi slíka. — Jörð er öll hulin þykkri snjó-
hreiðu, svo að haglaust er fvrir allan sauðpening,
þar sem ekki nær til fjörubeitar. — Fiskafli
hefir hrugðizt nær algjörlega, ekki sízt sakir
gæftaievsis, enda fisktregt bá sjaldan, er á sjó
gefur. — Verð á blautum fiski er nú almennt
6 aur. fyrir þorsk, og 4 aur. fyrir ísu, pd1" —
Fj árkláða-útrýmingin.
Norski fjárkláða-læknirinn, hr. 0.
Myklestad, er hefir á hendi framkvæmd-
arstörfin, að því er snertir útrýmingu
fjárkláðans, hefir óskað, að grein hans, er
hér fer á eptir, yrði birt í „Þjóðv.“:
Síðari hluta þessa sumars hefi eg dval-
izt hér á Akureyri, og nú um réttirnar
hefi eg notað tækifærið, til þess að rann-
saka fé, bæði í Þingeyjarsýslu, ogíEyja-
firði. Mér er ánægja að því, að geta
skýrt frá því, að þar sem eg hefi rann-
sakað féð, hefi eg hvergi orðið var við
fjárkláða, og engar skýrslur hafa enn
til mín komið um það, að féð væri
grunað um kláða á svæði þvi, er baðað
var á síðastliðinn vetur.
Engu að síður víl eg brýna það alvar-
lega fyrir mönnum á þessu svæði, að þeir
rannsaki fé sitt opt á næstkomandi vetri,
og ef þeir verða varir við kláða í fé sinu,
eða fá nokkurn grun um kláða i því, að
þeir þá tilkynni það tafarlaust hlutað-
eigandi hreppstjóra. er þá gerir ráðstaf-
anir eptir reglum þeim, er honum eru
settar.
Ráðgert er, að eg fari héðan af Akur-
eyri um 24. okt., og verða þá með mér
2 vanir aðstoðarmenn, en hinn þriðja
sendi eg í miðjum októbermánuði sjóveg
til Isafjarðar.
Baðanir á fé eiga að byrja í Skaga-
firði, vestan Héraðsvatna, nálægt 27. okt-
óber. Snemma í nóvembermán. vona eg,
að eg geti verið kominn í Húnavatns-
sýslu, og þaðan er förinni heitið í
Strandasýslu.
Yerði undirbúningur góður, vona eg,
að hægt verði að koma böðunum á á öllu
Suður- og Vesturlandi á næstkomandi
vetri, enda er þess hin mesta þörf, þvi
með því sparast mikið fé; þá verður hægt
að komast hjá þvi, að skipa verði á kom-
andi sumri, sem mundi kosta ærið fé, án
þess þó að veita fulla tryggingu fyrir
því, að baðað og óbaðað fé gangi ekki
saman á afréttum.
En þá verð eg lika að brýna fyrir
mönnum, hve áríðandi það er, að hver
einasta kind verði böðuð. Ef út af því
er brugðið, getur það valdið því, að allar
lækningatilraunirnar verði til ónýtis.
Hreppsnefndirnar vil eg biðja þess, að
leggja kapp á, að flutningur á tóbaki og
'kötlum gangi sem allra greiðast að’auðið
er, eptir reglum þeim, sem um það eru
settar.
Eg fuiltreysti því, að sýslumennirnir
i Suður- og Yesturamtinu veitimérhina
sömu velvild, sem þeir hafa gert, sýslu-
mennirnir í Norður- og Austuramtinu.
Akui-eyri 28. september 1904.
0. Myklestad.
Stækkun stjórnarblaðanna.
Epirtektavert er það, að þrjú af blöð-
um stjórnarinnar, „Reykjavíkin, „Austri“
og „Yestri“, látast munu stækka, er næsti
árgangur þeirra byrjar.
Þetta er ekki tilgangslaust.
j Stjórninni fellur það illa, sem von er,
i h.ve fáir kaupa blöð hennar*, og því er
j nú gripið til þess neyðarúrræðisins, að
i reyna að stækka blöðin, ef ske kynni, að
I almenningur liti þá á blaðstærð, eða blaða-
fjölda, svo að kaupendunum fjölgaði þá
eitthvað.
Yanséð mun þó, hvort vonir þessar ræt-
j ast, því að þeir mvinu vera færri. blað-
| lesendurnir hér á landi, sem betur fer,
j er einblína á stærð blaða að eins.
Það er og sannast, að það er lítið
i gleðiefni, ef blað hefir kynnt sig tudda-
j iega, sem farandi með blekkingar og ó-
j sannindi, ástæðulaus smjaðuryrði um
! flokksbræður, en íllmælgi um mótflokk-
j inn, að vita það fara að þenja sig út á
i alla kanta, tii að flytja meira af því
j góðgætinu(I), sem gert hefir það frá fæl-
! andi, í góðra manna augum, og ekki í
! húsum hafandi.
Myndu margir gangast upp við stækk-
un slíkra blaða?
Fáir að líkindum.
En gæti þá eigi hugsast, að stjórn-
inni væri það eins happasælt, að hafa
betra gát á því, hvað blöð hennar bjóða
almenningi, eins og þessi stækkun þeirra?
Gretur henni eigi hugkvæmzt, að or-
sökin til þess, hve fáir kaupa stjórnar-
blöðin, geti verið sú, hvað þar er haft á
boðstólunum?
Myndi því eigi nákvæmara eptirlit
af stjórnarinnar hálfu vera öllu heppi-
legra, en stækkunin?
Það er töluverður kostnaður, sem af
stækkuninni leiðir, en eptirtekjan hæpin,
að því er oss virðist.
t Þorgeröur Einarsdóttir
frá Kleifum.
Líkt og geisli, ljóss á öldu
leiptrar og deyr á augnabliki,
svo er mannleg æfi og yndi,
allt á lífsins hjólum völtum.
Breytast hagir brátt; í skyndi
bjartir vonar geislar deyja.
Yinir, börn og frændur fara
frá oss, út í lífsins geima.
Nú er Gerða frænka farin
frá oss, heim að undralöndum.
Henni kveðju hinnsta sendi
á hörpu minnar veikum strengjum.
Nú eru blys þín brúna slokkin,
*) Allt gasprið um útbreiðslu „Reykjavik-
ur“ er vitanlega að eins auglýsing, sniðin eptir
amerísku auglýsinga-glamri.
björtu’ og fránu, kæra vina.
Blóm af vöngum bleikum flúin
brátt, við kalda heljar náttu.
Of ung varstu Gerða gefin
gjálpar boðum lífsins óigu.
Erábær varstu’ á ungri æfi;
enginn manna sköpum rennir.
Far nú vel að friðarströndum
frábær svanni, vina kæra.
Senn að máli munum finnast,
myrkrið fer, þá kemur vorið.
J. J.
Bessastöðum 12. nóv. 1904.
Tíðarfarið hefir í þessari viku verið nokkru
hagstæðara, en að undanförnu, stillviðri, og væg
frost, all-optast, unz ígær sneri til landsunnan-
áttar, með jeljum.
Strandferðaslcipið „Yesta“ kom til Reykja-
víkur að morgni 9. þ. m., norðan og vestan um
land. — Meðal farþegja með „Vestu“ var kaup-
maður P. J. Thorsteinson frá Bíldudal, á leið til
litlanda.
Xiðurjöliiun aukaútsvara í Gaiðahreppi (og
Hafnarfjarðarverzlunarstað) fór fram 2. þ. m., og
eru útsvör hæðstu gjaldendanna, sem hér segir:
Brydesverzlun í Hafnarfirði 500 kr. — Thor-
steinson’sverzlun s. st. 400 kr. — Aug. kaupm.
Flygenring, hreppsnefndaroddviti 250 kr. — Próf.
Jens Pálsson i Görðum 160 kr. — Sýslumaður
Páll Einarsson 150 kr. — Kaupm. Einar Þor-
gilsson, Oseyri 125 kr. — Þórður Edílonsson
læknir 80 kr. — Þorsteinn kaupm. Egilsson
80 kr. — Verzlunarstjóri Sigfús Bergmann 80
kr. — Skólastjóri Jón Þórarinsson 75 kr, — Jó-
hannes Reykdal, verksmiðjueigandi 75 kr. — Jón
Gunnarsson verzlunarstjóri 70 kr. — Jörgen
Hansen kaupm. 70 kr. — Böðvar bakari Böðvars-
son 60 kr. — Finnur Gíslason, fyr stýrimaður
60 kr. — Útgerðarfélagið við Hafnarfjörð 60 kr.
— Ogmundur kennari Sigurðsson 45 kr. — Hróm.
Jósepsson skipstjóri 40 kr. — Björn Helgason
skipstjóri 40 kr. — Guðjón bóndi Gíslason 40 kr.
— Guðm. Tjörfi Guðmundsson, bóndi á Straumi
40 kr. — Guðjón óðalsbóndi Sigurðsson, Óttar-
stöðum, hreppsnefndarmaður 35 kr. — Halldór
óðalsb. Halldórsson, Setbergi 35 kr. — Síra Magn.
Helgason kennari 35 kr. — Sig. Jónsson skip-
stjóri 85 kr. — Verkstjóri Sigurgeir Gíslason,
hreppsnefndarmaður, 35 kr. — Jón A Matthíesen
verzl.maður, Hafnarfirði 30 kr. — Markús Gísla-
son, lausamaður s. st. 30 kr. — Sig. bóndi Sig-
urðsson, Óttarstöðum 80 kr. — Guðm. Jónsson
skipstjóri 30 kr. — Jón Jónasson, kennari, Hafn-
arfirði 28 kr. — Runólfur verzl.maður Þórðarson,
Hafnarfirði 25 kr. — Verzl.m. Ólafur Böðvarsson
i s. st. 25 kr. — Þorlákur Þorláksson, fyr skip-
stjóri 25 kr. — Jón Jónsson frá Laug 25 kr. —
Hjálmar Sigurðsson verzl.maður, Hafnarfirði, 25
kr. — Árni Árnason s. st. 22 kr. — Guðm.
Helgason, hreppsnefndarmaður, s. st. 22 kr. —
l Jón trésmiður Steingrímsson s. st. 22 kr. — Kr.
Guðnason í „Heklu“ 22 kr. — Ólafur Jónsson
(Garða) 22 kr. — Oddur ívarsson skósmiður 22
kr. — Sig. bóndi Arnfinnsson, Vífilsstöðum 22
kr. —
Niu gjaldendur hafa 20 kr. útsvar, en allir
aðrir lægra, og or tala gjaldanda alls 230. —
Upphæð sú, er jafnað var niðui að þessu sinni,
nam alls 5215 kr.
Gufuskipið „Breiford“ kom 4. þ. m. til Reykja-
víkur frá Bretlandi, fermt ýmis konar vörum til
„Edinborg“-verzlunarinnar.
Kaxaflöa-gufubáturinn „Reykjavík11 fór 10.
þ. m. upp í Borgarnes, og fer þangað einnig 19.
þ. m., 6. og 15. des., og kemur við á Akranesi
í hverri ferð. Til Keflavíkur fer „Reykjavíkin“
23. og 28. þ. m., og 20. des. — Skipið fer jafnan
af stað frá Revkjavik kl. 8 f. h.