Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.12.1904, Page 2
206
Þjóðviljin'n'.
XVm, B2.
um. Tveir menn úr Btjórnarnefndinni sömdu og
sendu ávarp þetta án vilja eða vitundar annara,
og annar þeirra borgaði skrautritun á því úr
sinum vasa. Þetta tiltseki vakti, sem von var,
megna óánægju meðal pilta, því þeirn fannst
sízt ástæða, til að færa þakkarávarp manni, sem
margsinnis stóð í vegi fyrir nauðsynlegum laga-
breytingum í félaginu, og var svo naargskiptinn
um stjóm þess, að hann meinaði stjórnarnefnd-
inni nauðsynleg fundahöld, og sýndi að öðru leyti
svo mikla stirfni, að 8 nefndarmenn gátu ekki
við unað, og neyddust til, að segja af sér störf-
unum. Og eins og allir vita, var hann eigi svo
vinsæil, sem skólastjóri, að kunnugir gætu látið
sér detta í hug, að piltar sendu honum slikt á-
varp. Þetta er i fullu samræmi við það, hvernig
þessir 2 piltar fara í felur með ávarpið, og láta
það birtast á prenti einmitt á þeim tíma, er pilt-
ar voru á heimleið úr skóianum, og því von til
þess, að þeir veittu því ekki eptirtekt.
Samþykkt á „íþöku“-fundi 19. des. 1904.
Fyrir hönd félagsmanna.
Stjórnarnefnd „Iþöku“.
Olafur Qunnarsson, Steindór Björnsson,
('p. t. forseti.) • ('ritari.)
Jakob Ó. Lárusson. Haraldur Jónasson.
Quðm. Asmundsson.
Bessactöðum 29. des. 1904.
Tiðarfar. Einkar mild veðrátta hefir haldizt
um jólin, og jörð öll marauð, enda getur naum-
ast heitið, að snjó hafi fest á láglendi hér syðra
þann tima vetrar, sem liðinn er.
Drukknun. Fiskiskipið „Golden Hope“, er
sent var í haust til Noregs, til viðgerðar, kom
til Reykjavíkur 21. þ. m., eptir 18 daga ferð frá
Mandal,og hafði á leiðinni hingað misst einn
skipverja útbyrðis, og varð honum eigi bjargað.
— Maður þessi hét Helgi Jóhannsson, ókvæntur
maður frá Ármóti, er dvalið hafði í Reykjavík
um hríð.
-j- 18. þ. m. andaðist i Reykjavík prestsekkj-
an Helga Magnúsdótíir, yfir sjötugt, systir Ólafs
sáluga Norðfjörðs, er lengi var verzlunarstjóri í
Keflavík. — Hún var ekkja síra Jóns Jakobsson-
ar, er var prestur i Glæsibæ. — Meðal barna
þeirra hjóna eru: frú Helga Andersen, gipt H.
Andersen, klæðskera í Reykjavik, og JaJcob Jóns-
son verzlunarmaður.
Niðurlag sögunnar „L.eðurtrektin“ gat
því miður eigi komið í þessu nr. blaðsins, og
verður því prentuð í fyrstu nr. 19. árg., en þo
með áframhaldandi blaðsíðutali, þar sem svo er
til ætlast, að hún fylgi öll sögusafni 18. árgangs.
Sklrnir
timarit liins islenzka Bókmenntaíélags.
Ritstjóri:
Guðm. Finnbogason;
ársfjórðungsrit með myndum. Stærð: 24 arkir á ári. Yerð: 3 kr. fyrir áskrifendur,
4 kr. í lausasölu. Sölulaun 25°/0. 1. heptið kemur út í marz næstkomandi. Skírnir
ætlar að flytja:
1. stuttar, vel samdar, ritgjörðir um framfaramal þjöðar vorrar, svo sem mennta-
mál, atvinnumál, heilbrigðismál, skattamál, samgöngumál, sveita- og fátækra-mál,
um samband ríkis og kirkju o. s. frv.;
2. ritgjörðir um íslenzkt þjóðlíf, sógu vora og bókmenntir að fornu og nýju;
3. ritdóma um helztu nýjar íslenzkar bœkur, og skrá yfir allar bækur, sem koma
út á íslenzku. Verður það góð leiðbeining fyrir lestrarfélög. Jafn framt verður
getið einstakra merkra útlendra bóka;
4. stuttar, auðskildar, ritgjörðir um nátturuna og rnannlífið, einkum það er nýtt
gjörist, t. d. merkar nýjar uppgötvanir, breytingar á hugsunarhætti, lifskjörum
og lífsskoðunum annara þjóða, og því um líkt;
B. stuttar ritgjörðir um merka menn, með myndum af þeim;
6. ritgjörðir um listir og íþróttir;
7. skáldskap, einkum frumsamdar íslenzkar sögur og kvæði;
8. Vög, eptir islenzk tónskáld;
9. fréttir um merkustu viðburði heimsins um síðastliðinn ársfjórðung; verða þær f
hverju hepti;
10. hitt og þetta — ýmis konar fróðleikur.
Augiýsingar fylgja ritinu.
Skirnir hefir þegar fengið loforð um aðstoð margra ritfærustu íslendinga.
Allur frágangur verður vandaður.
Reykjavík 30. nóv. 1904.
Stjórn Reykjavíkurdeildar Bókmenntafélagsins.
Otto Monsteds
danska sinjöi-líki
er bezt.
„Testa“ lagöi af stað frá Reykjavík til út-
landa 18. þ. m., samkvæmt áætlun. — Með „Vestu“
sigldu: Jóh. Beykdal, verksmiðjueigandi í Hafn-
arfirði, söngfræðingur Sigfús Einarsson, og Ól.
Hjaltested,
Jarðslijálítiikipp, all-snarpan, varð vart við
að morgni 27. þ. m.. kl. nær 6; munir hristust,
en féllu þó ekki.
í verzlun Einars Þorgilssonar,
óseyri, fást ýmsar
vörur
til Hátíöanna
svo sem:
JXjöt, hangið og saltað.
íslenzkt smjör, tólg-.
Il veiti, melís, strau-
sykur. fSiti-oiiolíii
Cliooolatle
Búsinur
Púðui-sykur.
Tvíbökur.
Kringlur.
.1 ólakerti.
Spil-
V indlar*.
Eun fremur fæst i sömu verzlun:
Hrisgrjón.
Bankabygg.
Smjörlíki.
Hænsnabygg.
IVetagarn.
Nóttlampar, og margt fl.
Ofan greindar vörur eru seldar m j ö g
ódýrt fyrir peninga.
UMBOÐ.
Með þvi að hr. Magnus Ólafsson, sem
að undan förnu hefir veitt verzlun minni
á Isafirði forstöðu, sleppir þeirri stöðu nú
um áramótin, hefi eg falið hr. Jóni verzl-
unarmanni Hróbjartssyni á ísafirði að veita
verzluninni forstöðu frá 1. janúar næstk’,
og ber mönnum því að snúa sór til hans,
að því er öll viðskiptí við tóða verzlun
snertir, og vona eg, að hann njóti sömu
velvildar af hálfu viðskiptamanna, sem
fyrirrennari hans.
Þess skal getið, að hr. Jón Hróbjarts-
son hefir einnig fullt umboð, til þess að
innheimta útistandandi skuldir verzlun-
arinnar, hvort sem er með lögsókn, eða
án lögsóknar, eins og hann einnig hefir
fulla heimild, til þess að sættast á slík
mál, og yfir höfuð skulu gjörðir hans í
þessum efnum vera jafn gildar, sem eg
sjálfur gjört hefði.
Bessastöðum 22. des. 1904.
Skúli Thoroddsen.
lý markaskrá.
Með því að sýslunefnd Kjósar- og
G-uUbringu-sýslu ákvað á fundi sínum í
dag, að láta semja og prenta markaskrá
fyrir Kjósar- og Gullbringu-syslu og Reykja-
víkurbœ á komandi ári, og fal mér undir-
skrifuðum að annast um samningu, og
prentun á markaskrá þessari, þá er hér
með skorað á hreppsnefndirnar í Kjósar-
og Gullbringu-sýslu, og bæjarstjórn
Reykjavikur, að safna sauðfjármörkunum,
og senda mór fyrir 15. aprU næsta ár
glögga skrá um sauðfjármörk, hver í sín-
um hreppi, og í bæjarfólagi Reykjavikur.
Hverju marki eiga að fylgja 2B aur.,
til borgunar kostnaðinum við samningu
og prentun markaskrárinnar, því að ella
verður markið eigi tekið í skrána.
p. t. Hafnarfirði 19/12 ’04.
Þórður Guðmundsson
frá Neðra-Hálsi.
H’Steensen
JYlargarine
er aCtió öen 6eóste.
PrentsmiÖja ÞjóÖviljans.