Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1905, Page 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1905, Page 4
100 Þjóbviljjnn. XIX., 26. dönsku grandvallarlaganna hér á landi, o. fl. Auðvitað hefir enginn frarasóknarflokks- manna, hvorki fyr né síðar, látið í ljósi, að hann fylgdi skoðun dr. Valtýs í þess- um efnum, heldur hafa blöð framsóknar- manna þvert á móti andmælt þessum skoðunum hans, og talið þær all-óheppi- legar; en um það þegja stjómarblöðin. því að þau þykjast bezt geta komið við níði sínu, ef sérstaða dr. Valtýs íýmsum málum sé rituð í reikning flokksins. Jafn framt æpa þau og í sífellu um það, að dr. Valtýr sé foringi framsóknar- flokksins, hið fyrirhugaða ráðherraefni hans, o. s. frv., enda þótt hið sanna sé, að framsóknarjlokksménn liafa aldrei, hvorki fyr, né síðar, kosið sér foringja, eða valið tér ráðherraefni, og geta þvi eigi viður- kennt dr. Valtý, sem slíkan, enda þótt ■tjómarblöðin hafi talið sínum málstað hollast, að skapa úr honum nokkurs kon- ar ráðherragrýlu fyrir fólkið, sakir óheppi- legra sérskoðana hans i nokkram þjóð- málum, og sakir margvíslegs niðs, er þau hafa ausið yfir hann, og sem þau búast við, að borið hafi árangur. Finni framsóknarflokksmenn einhvern tíma ástæðu til þess, að kjósa foringja, eða ráðherraefni — og sízt munu stjórn- arblöðin gera ráð fyrir, að þess sé þörf i bráðina —, þá munu þeir væntanlega hafa fulla einurð á því, að segja til þess sjálfir, og því myndi stjórnarblöðunum hyggilegast, að geyma eiturskeitin að sinni, meðan óvíst er, hvert örvunum skal beint. Væri þvi ekki réttast, að spara nú ögn níðið um dr. Valtý, og sleppa alveg upp- nefnunum „valtýska“ og „Valtýingar“, en safna heldur kröptunum, unz vissa væri um það fengin, bvern framsóknarflokks- menn kynnu að kjósa sér, sem foringja? Að eigna framsóknarflokknum, sem slikum, allar skoðanir, sem dr. Valtýr, eða einhver annar stjórnarandstæðinga, kann að láta í ljós, væri álíka skynsamlegt, eins og að skrifa t. d. brennivínsritgjörð- ir Arna vors á Höfða-Hólum i reikning „heimastjórnarflokksins“. Nafnið „valtýska“ og „Valtýingar“, er nú orðið svo slitið, að hætt ör Við, að slík vopn bíti ílla, ekki sízt eptir þann „forsmekku hinnar glæsilegu(!) „heima- stjórnar11, sem þegar er fenginn. ftkuiGijrar=þingkosningin. Þingkosningin á Akureyri 15. maí sið- astl., vekur óefað mikinn fögnuð i her- búðum stjórnarinnar. Að vísu er það óneitanlega fremur leiðinlegt fyrir stjórnina, að hennar menn skuli telja sér það vænlegast til sigurs, að afneita henni gjörsamlega, og öllu hennar athæfi, og látast Vera „utan flokkau, eins og ný kosni þÍDgmaðurinn hr. Magn- ut Kristjánsson, gerði síðastl. vetur. En þetta er þó, í augum stjórnarinn- ar, að eins auka-atriði, og í fyllsta sam- ræmi Við ýmsar blekkinga-tilraumrstjóm- arliða, bæði fyr og síðar. Aðal-atriðið er það, að stjórnin telur hr. Magnús kaupmann Kristjánsson vera sinn mann, og væntir öflugs fylgis hans á þinginu, og hvaða meðulum hann kann að hafa beitt, til að ginna kjósendur, sem þursa, og hafa út úr þeim atkvæðin, skiptir engu í hennar augum. Að ýmsir kjósendur hafa sýnilega byggt á þeirri yfirlýsingu hr. Magnúsar Kristj- ámsonar, að hann yrði utan flokksmaður, þrátt fyrir hið alkunna samband hansvið „Grjallarhomsu-klíkuDa, og enda þótt hann væri þingmannsefni stjómarflokksins við kosninguna i sept. síðastl., virðist á hinn bóginn bera vott um býsna mikið hugs- unarleysi og trúgirni, því að það hefir löngum mælt verið, að það þekkist hver af þeim félagsskap, sem hann er i, og væri það þvi undantekning frá þeirri reglu, ef hr. Magnús Kristjánsson yrði lengi „utan flokka“ á þingi, og drægi ekki dám af kunningja sínum, „Gjallarhornsu-mann- inum. Og víst er um það, að sem slika und- antekningu skoða stjórnarliðar þenna nýja þingmann ekki, og því er kætin í þeirra liði mikil. Annars er það í meira lagi einkenni- legt, að kjördæmi, sem á síðastl. hausti kaus Pál sáluga Briem á þing, með yfir- gnæfandi atkvæðafjölda, skuli nú senda politiskan andstæðing hans á þing, sömu- leiðis með all-miklum atkvæða mun, og hafna í hans stað einum af mestu áhuga- og skynsemdarmönnum landsins, sem hverjum manni var vitanlegt, að halda myndi í sömu stefnuna, sem Páll sálugi Briem var kosinn, til að fylgja. Þetta bendir á politískt festu- og þroska- leysi í kjördæminu, sem Akureyrarkaup- stað er vissulega til vanheiðurs. Það staðfestir þessa gömlu sögu, sem þvi miður gerist upp áptur og aptur, að allt of margir kjósendur hér á landi, — eins og reyndar víðar láta per- sónulegan kunningsskap, og ýms önnur atvik, sem alls ekkert eiga skylt við skoð- anir manna á landsmálum, ráða atkvæði sínu við þingkosningarnar. Það er menntunarskorturinn, og ó- sjálfstæðið, roluhátturinn, og kæruleysið, sem þessu veldur. Akureyrarkaupstaður sýnist — þrátt fyrir mikið mannval — eiga meira af þannig löguðum kosninga-lýð, en margur myndi ætlað hafa. Á þann sorglega sannleika virðast kosninga-úrslitin 16. maí síðastl. benda ofur áþreifanlega. sömu röð: J5. Th. Melsted cand. mag, Thor h. Tuliníus stórkaupmaður, Arni Pálsson stud. mag. og Bjarni Jímsson stud jur. Af rittilboðum, er félaginu böfðu borizt, má nefna framhald af s- lendíngasögu Boga, og tilboð frá jHelga Jónssyni, náttúrufræðing, um að rita almenna grasafræði. Til þess að fjalla um sögu Boga voru kosnir Þorv. Thor., Finnur og Árni Pálss., en Þorv. Thor., Steingr. Matthfasson læknir og Sig. Jónsson stud. med. sky Idu athuga tilboð Helga. Til þess að dæma um ritsmiðar, er kynnu að verða send- ar stjórninni í verðlaunaskyni, samkv. ákvörðun síðasta fundar, voru kosnir Einar Hjörleifsson ritstj. og Jóhann skáld Sigurjónsson frá Laxamýri. Þriðja mann i nefndina, á stjórn félagsins að skipa. Nýir umboðsmenn. Múlasýsluumboð hefir ráðherrann veitt öuttormi alþ.manni í Geitagerði, og Þingeyraumhoð Árna bónda Árnasyni á Höfða- hólum. Barðastrandasýsla er veitt cand. jur. Guð- mundi Björnssyni. Kirkjumálanefndin. Formaður hennar, Kr. yfirdómari Jónsson hefir sagt af sér því starfi. Bessastaðir 15. júní 1905. Veðrátta hin óblíðasta sem að undanförnu. Kuldastormur og rigningar á degi hverjum. Gras- sprettuhorfur hinar hörmulegustu, ef eigi ræt- ist von bráðara úr. Stérstúkuþing templara hefir staðið yfir i Keykja- vík þessa dagana. Yar þar samþykkt, meðal annars, að leggja tyrir alþingi í sumar frumvarp um algjört aðflutmngsbann á áfengi. Stórtempl- ar var endurkosinn Þórður Thoroddsen. Þingið sóttu eitthvað 50 fulltrúar frá 38 stúkum. Dáinn er i Reykjavík 7. þ. m. Helgi Jónsson, aðstoðarmaður i landshankanum. Hann var fyrst kvæntur Kristínu Eggertsdóttur Waago, en sið- ar Sigríði dóttur Eggerts sýslumánns Briems. er lifir mann sinn, Helgi sál. var vel látinn af þeim, er hann þekktu. Skipafcrðir. Strandbáturinn „Hólar“ kom frá Austfjörðum 8. þ. m. með nokkra farþegja. Báð- ir bátarnir lögðu af stað i hringferðir sínar 10 þ. m. „Láura“ fór áleiðis til ísafjarðar að kvöldi þess 8. Er væntanleg aptur þann 15. Ráðherrann brá sér norður á Akureyri með varðskipinu „Hekla“ 7. þ. m., til þess að balda þingmálafundi með Eyfirðingum. í íör með hon- um var landritari Klemenz Jónsson, er mun eiga að „vitna“ með honum og vera huns hægri hönd á fundunum. Mikils þykir þeim við þurfa! Plœpgartenisla. Alfred Christensen á Sauðafelli í Döl- nm kennir þar í sumar plægingar, og þurfa némspiltar ekkert að gefa með sér. Heirtíilt er þeim að hafa hesta með sér til að venja þá við plægingar. Reykjavík 6. júni 1905. Þórh. Bjarnarson. form. Bf. ísl. Loptskeyti Marconis. Með síðustu ferð „Lauru“ kom til Reykjavikur maður einn, W. Ðensham að nafni, frá Marconifélaginu iLundúnum, með þeim erindum að koma hér upp Iöptskeytastöð, or tekið geti á móti skeytum frá Englandi. Er þegar byrjað að koma stöðinni upp. Hún á að vera fyrir innan Rauðará og verður þar reist 150 feta há stöng af tré, og er það aðalútbúnaðurinn. Mælt er uð stjórnarhöfðingjunum hafi orðið all-órótt við fregn- ir þessar, og er það sizt að undra. Enallir góð- ir drengir munu óska þess, að tilraunir þessar heppnist sem bezt. Væri þá ef til vill eigi ör- vænt um, að augu þingmanna sumra opnuðust svo, að þeir björguðu landinu úr þeirri ófæru, sem ráðherrann og hans aveinar nú eru á góð- um vegi með að steypa því í. Itókmenntafélagið. A ársfundi Hafnardeild- arinnar, ér haldinn var 9. f. m., skipti deildin um flesta ombættismenn sína. Forseti varð pró- fessor Þorvaldur Thoroddssen með 27 atkv. Dr. Valtýr Guðmundsson fekk 19 atkv. og Finnur 2. Aðrir embættismenn voru kosnir: gjaldkeii Gísli Brynjólfsson, læknir (endurkosinný, ritari sfra Hafsteinn Pétursson og bókavörður stud. mag. Mattkis Þórðarson. í varastjórn voru kosnir í ©: *★ ★ * -'Vt* /*iargaríne er aftit óen Geiiete. PKKVTKMrOJA XiJÓOVtLJANS.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.