Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.07.1905, Qupperneq 1
Terð árganqsins (minnst
52 arleir) 3 kr. 50 aur.;
trlendis 4 lcr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
- 1 — [= Nítjándi ÁBGANGUK. —1 -■—
_>._RTTST.TÓRT: SKÚLI THOKODDSEK. =| fcxa®—J-
I Vppsögn skrifleg, ógild
| nema komin sé iil útgef-
\anda fyrir 30. dag júní-
\mánaðar, og kaupandi
isamhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 30.
Bessastöðum, 20. JlÍLÍ
19 0 5
fifna og ildavolai
selur
Kristjdn ||»orgrímsson.
lítlöiicl.
Helztu tíðindi, er nýlega haia borizt
frá útlöndum, eru þessi:
Danmörk. Konungur vor, Christian
IX, brá sér til Gmunden, ásamt Hans,
bróður sínum, seint í júní, og dvelur þar
hjá tengdasyni sínum, hertoganum frá
Cumberland, nokkra hríð.
Aðfaranóttina 26. júní síðastl. vildi
það sorglega slys til, skammt frá Amager,
að enska gufuskipið „Ancona" rakst á
danskt heræfingarskip, er á voru um 80
drengir, 14—17 ára að aldri, og sökk
heræfingaskipið eptir tæpar tvær mínút-
ur, og drukknuðu 22 drengir. — Mjög
er gert orð á þvi, hve fábæra hugprýði,
og stillingu, ýmsir drengjanna, er af kom-
ust, sýndu við þetta tækifæri, og sömu-
leiðis kona skipstjórans, er var eini kvenn-
maðurinn á skipinu.
ý Látin er nýlega Frederik Hörup,
fyrrum skólakennari, faðir Hörup's sáluga
ráðherra, fæddur 1811.
Um 4 þús. vefarar hafa nýlega hætt
vinnu í Danmörku, og krefjast hærri
launa, og styttri vinnutíma.
Nýlega hefir Albertí skipað milliþinga-
nefnd. til þess að gjöra tillögur um.end-
urskoðun hegningarlagalöggjafarinnar, og
þykir hafa sýnt það þá, sem optar, hve
mjög hann hallast að hægrimönnum í
skoðunum sínum,þar sem hann hefir veitt
ýmsum gömlum Estrupsliðum sæti í nefnd-
inni, en gengið fram hjá ýmsum frjáls-
lyndum mönnum, sem sjálfkjörnir þóttu
í nefndina, frá sjónarmiði frjálslyndra
manna. -— —
Noregur 0g Svíþjóð. Aukaþingið („Ur-
tíma“-rikisþingið), er kvatt var til fundar
í Svíþjóð, er Norðmenn sögðu ríkja-sam-
bandinu slitið, situr enn á rökstólum. —
Hefir ráðaneyti Svía, er Ramstedt stýrir,
viljað jafna allt friðsamlega milli þjóð-
anna, en ýmsir aðalsmenn á þingi láta
all-ófriðlega, og vilja berja duglega á Norð-
mönnum. — Norðmenn hafa því þegar
dregið nokkurt lið að landamærunum, og
er enn óséð, hvað verða muni, þó að
sennilegast sé. að þær raddir sigri í Sví-
þjóð, er eigi vilja beita hervaldi gegn
Norðmönnum, enda gæta Norðmenn að-
dáanlegrar stillingar, en sýna jafn framt
mestu festu, og eru einráðnir í því, að
verja sjálfstæði sitt til hins ýtrasta.
Talið er líklegt, að Oscar konungur
muni eigi leyfa, að neinn ættmanna hans
taki konungdóm í Noregi, og er bá Vatde-
mar, prinz í Danmörku, talinn líklegt
konungsefni: en þó eru mjög margir í
Noregi, er helzt myndu kjósa, að Noreg-
ur yrði lýðveldi, ef samþykki stórveld-
anna ynnist til þess. — — --
Bretland. Nýlega hefir orðið uppv'st
um ýmis konar fjárdrátt, er framinn hefir
verið í Suður-Afríku. eptir Búa ófriðmn,
og eru ýmsir, stjórninni mjög nákomnir,
við þá pretti riðnir. — Ætlaði Balfour,
íorsætisráðherra Breta, að hliðra sér hjá,
að láta rannsaka má.lið, en mótflokkur
stjórnarinnar hefir sótt málið svofast. að
Balfour hefir loks séð sig til knúðan, að
fela rannsóknarnefnd máiið til meðferðar.
Frakkland 4. júlí samþykkti fulltrúa-
þingið, með 341 atkv. eegn 233, frnmvarp
stjórnarinnar nm aðskilvað ríkis or/ kirJcju,
enda hefir Rouvíer, núverandi forsætis-
ráðherra, sótt það mál engu linar, en
CWióe.s-ráðaneytið gjörði. —
Nú er fullyrt, að stjórn Frakka hafi
loks samþykkt, að senda fulltrúa á ríkja-
fund, til að ræða. um Marocco-málið, enda
hefir Vilhjálmur, keisari Þýzkalands, ver-
ið ærið berorður í garð Frakka, út af af-
skiptum þeirra í ríki soldáns, og notað
sér það, að bandamenn þeirra, Rússar,
hafa nú öðrum blöðum að fietta, en að
styrkja bandamenn sina. — Þó hafaFrakk-
ar sett ýmsa skilmála, sem óvíst var enn,
hvort Vilhjálmur keisari myndi ganga að,
er siðast fréttist.
2.—7. okt. næstk. verður í París hald-
inn alþjóðafundur, til þess að ræða um
líklegust.u ráðin í bardaganum gegnberkla-
veikinni. — •- —
Spánn. Þar eru ný skeð orðin ráðherra
skipti, og heitir sá Moniero Rios, er stýr-
ir hinu nýja ráða.ueyti. — — —
Balkanskaginn. Allan fyrri hluta júní-
mánaðar gengu jsrðskjálftar miklir i Skút-
arí, svo að þar hrundi fjöldi húsa, og
kvað hafa látizt 70—80 menn.
I Gfrikklandi er nýtt ráðaneyti nýlega
sezt á laggirnar, og er RalK formaður
þess. — — —
Ungverjaland. Með því að Franz Jo-
seppi keisara hefir eigi tekizt að fá neinn,
til að taka að sér forstöðu ráðaneytisins,
er njóti trausts þingsins, hefir hann falið
Feiervary að veita ráðaneytinu forstöðu
fyrst um sinn. — Feiervary barón er
gamall maður, 72 ára að aldri, og var
honum tekið svo fyrsta daginn, er hann
mætti á þingi, að báðar deildir þingsins
vbttuðu honum vantraust sitt.
Ungverjar hafa nú þegar bundizt sam-
tökum í ýmsum héruðum landsins, að
greiða enga skatta, fyr en ráðaneytið þoki,
þar sem það só eigi skipað i samræmi
við þingræðisraglujia, og er sennilegt, að
Foiervary óski, að losast við allan veg
og vanda af stjórnarstörfunum, enda seg-
ist hann að eins hafa tokið þau að sér
til bráðabirgða. — — —
Þýzkaland. Erfða-stórhertoginn í Meckl-
enburg-Strelitz, er Adolph Friederich nefn-
ist, er nýlega trúlofaðnr Olyu, dóttur her-
togans af Cumberland.
f 15. júní síðastl. andaðist Hermann
v. Wissmann, sem frægur varð af land-
könnunarferðum sínum í Afríku, einkum
í Kongo-ríkinu. — Arið 1895 var hann
landstjóri í landeignum Þjóðverja í Afríku,
en gengdi því embætti að eins í eitt ár,
sakir heilsuleysis, er hi nn hafði bakað
sér á ferðum sínum. — Hann varð að eins
52 ára gamall. — — —
Rússland. Rússneska stjórnin hefir
nú eigi séð sér annað fært, en að láta
hætta við sakamálið gegn skáldsagrahöf •
undinum Maxim Gorld, þar sem eigi hafa
fengizt nein gögn, er sýni, að hann hafi
framið lagabrot. — Maxím Gorkí, dvelur
um þessar mundir á Finnlandi, og hefir
ný skeð lokið við nýja skáldsögu, er nefn-
ist „Börn sólarinnar“.
Mjög er enn róstusamt víða á Rúss-
landi, enda eykur það mjög óánægju
manna, að stjórnin er nú að bjóða út liði,
til að senda austur í Mandsjúriið, og eru
synir bænda og borgara opt teknir á næt-
urþeli, og reknir á stað harðri hendi, án
þess að fá að kveðja vandamenn sína.
I verksmiðjuborginni Lodz á Pólverja-
landi urðu götu-bardagar miklir 23. júní,
og er mælt, að um 2 þús. manna hafi þá
beðið þar bana, eða orðið sárir, og síðan
hefir verið barizt þar öðru hvoru, og hafa
verkamenn hrúgað upp vögnum, og öðru,
sem hendi var næst til þess að gjöra
skotgarða, sér til varnar. — 24 júni var
í Lodz varpað sprengikúlu, er drap 4
hermenn, en særði 16, og fjöldi annara
liryðjuverka hefir verið framinn.
I stórborginni Odessa, við Svartahafið,
hafa og mörg hundruð manna beðið bana
í götu bardögum, og hefir borgin því
verið lýst í her-kvíum. Á herskipinu
„Knjas Potemkin“, sem er eitt af stærstu
herskipum Rússa í Svartahafi, urðu og
ný skeð þau tiðindi, að hermenn kvört-
uðu undan matnurn, er þeir fengu, og
sendu því einn félaga sinna, Omeltshuk
að nafni, til þess að bera fram kvartanir
sínar við yfirmenn skipsins, og með því
að Omeltskuk hefir ef til vill verið miður
kurteis, skaut einn yfirmannanna hann
þegar; en er skipverjar sáu einn félaga
sinn fallinn, réðu þeir á jdirmenn skips-
ins, og drápu þá alla. — Þetta gjörðist
á höfninni í Odessa, og fluttu hermenn-
irnir siðan lík hins fallna félaga síns í
land, og hótuðu að skjóta þegar á borg-