Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.07.1905, Blaðsíða 2
ÞjÓfiVLJIlNS.
XIX.. 30.
i:b
iua, ef þeir feugju eigi að jarða Omelt-
sliuk í fnði, og með slíkri viðköin, sem
hermanni sæmdi. — 8iðan hefir „Knjas
Potemkinu sveimað fiam og aptur um
Svartahafið, með rauðan uppreisnar-fána,
og hafa skipverjar nýlega hertekið gufu-
skip, er lá á höfninni i Odessa, og var
fermt 2 þús. smálestum af kolum. Yoru
kolin flutt yfir i „Knjas Potemkín“, og
hjálpuðu verkamenn i Odessa fúslega til
þess. — Stjórnin hefir sent herskip á
móti uppreisnarmönnum, en þeir höfðu
þó enn eigi gefizt upp, er síðast fréttist,
enda mælt, að hermenn á öðrum herskip-
um Kússa á Svartahafi séu mjög ófúsir
á, að ráða á félaga sína, enda mælt, að
uppþot sé á 4 öðrum herskipum, og muni
þau nú vera á valdi uppreisnarmanna, og
vist er um það, að á sumum herskipun-
um hafa hermenn skotið yfirmenn sina.
— En yfir höfuð eru fregnir um þessa
atbuiði mjög ógreinilegar, enda gerir rúss-
neska stjórnin sitt ýtrasta, til að aptra
því, að fregnir berist af óstandinu þar í
landi.
28. júní síðastl. er mælt, að faliið hafi
um 1000 manna í götu-bardögurn í Odessa,
og svipaðar fregnir berast frá Sebastopol,
og fleiri borgum við Svartahafið.
I héruðum ítússa við Eystrasaltið er
og mesta ókyrrð um þessar mundir. —
Aðfaranóttina 29. júní brutust hermenn
t. d. inn í vopnabúr í Líbau, og rændu
þar vopnum, og hafa skotið á yfirmenn
sína; en aðrir hermenn hafa ýmist neitað,
að skjóta á félaga sína, eða skotið upp ,í
loptið, svo að við ekkert verður ráðið.
I höðuðborginni, Pétursborg, og í borg-
inni Kronstadt, og viðar, er herinn einn-
ig talinn mjög ótryggur.
Seint í júni héldu fulltrúar úr fjölda-
mörgum borgum í Rússlandi, er hafa yfir
60 þús. íbúa, fund í Moskva, og kröfðust
þess, að þjóðin fengi stjórnarbót, og að
stefnt væri tii þjóðfundar. — Fullyrt er,
að Nicolaj keisari hafi og nýlega lýst því
yfir, við sendinefnd, er fór á fund hans,
að hann vildi, að efnt væri þegar til
þings, þar sem allar stéttir landsins ættu
fulltrúa; en hvað sem hæft er í þessu,
þá er það víst, að ekkort er enn gjört,
tii að fulJnægja þessu boði keisarans, enda
mun það sannast, að hann ráði í raun og
veru harla litlu, þegar öllu er á botninn
hvolft.
Nýlega varð það uppvíst, að ýmsir
liðsforingjar í Pétursborg hefðu gjört sam-
særi, til að myrða stórfurstana, og þeir
þvi allir handteknir, áður en nokkuð yrði
af framkvæmdum.
Slys varð nýlega í námuhéraðinu Jek-
aterinoslav, og biðu 500 menn bana. —
Austroeni ófriðurinn. Þaðan er nú allt
stórtiðindalítið, að eins smá-orustur i Mand-
sjúriinu öðru hvoru, en engin stór-orusta,
er nokkru skipti.
Mælt er, að Rússar ætli nú að verja
70 milj. rubJa árlega í sjö ár, til að koma
sér upp nýjum herskipaflota.
Oðru hvoru er verið að tala um, að
byrjað verði á friðarsamningum þá og
þegar, en einatt dregst það. — Sennilegt
er þó talið, að það dragist eigi Jengur,
en fram í ágúst, að sezt verði á þing,
líklega í Washington, til að semja friðar-
skiimáíana. — —
Cuba-iýðveldið. Látinn er nýloga Max-
ímo Qomez, 69 ára. — Ásamt frelsishetj-
unni Maceo gekkst hann fyrir uppreisn-
inni gegn Spánverjum, er hófst í janúar
1895, og stóð sem hæðst, er Bandamenn
skárust í ieikinn 1898, og yfirstigu siðan
Spánverja, sem kunnugt er. — Sama dag-
inn, sem Gomez andaðist, veitti þing
Cuba-manna honum 100 þús. dollara heið-
ursgjöf.
»■'........
Hréttir frd aljDinqi.
-
Stórmálm á þingi.
Að því er snertir undir.skriptarmálið,
hefir það enn eigi verið flutt inn á þing,
en verður nú að Jíkindum borið þar fram
mjög bráðlega, og væri mikilsvert, að
þingmenn gætu sem flestir fylgzt að ináli,
þar sem hér er um það að ræða, að vernda
réttindí landsins gegn ásælni danskra vald-
liafa.
Að því er kemur til ritsímamáhins,
sem verður aðal-stórmálið á þinginu, hefir
nefndin, sem skipuð var, til að íkuga það,
enn ekki lokið störfum sínum, og getur
það að likindum eigi komið til umræðu
á þinginu, fyr en seinustu dagana í júlí,
eða í öndverðum ágúst, og verður því
enn engu spáð um forlög þess.
Toll-hœkkunin.
Það mál var til 2, umr. í efri deild 13. j
júli, og flutti Jóhannes sýslumaður Jó- j
hannesson þá einkar glögga ræðu gegn j
toll-kækkuninni, sem kæmi þyngst niður j
á lægri stóttunum, þar sem stjórnin á j
hinn bóginn hlífði verzlunarstéttinni, eig- !
endum húsa og fasteigna, og landbænd- j
um, er hvorki væri farið fram á hækkun ;
tekjuskatts: húsaskátts, eður ábúðarskatts- j
ins.
Síra Siff. Stef. og sira Sig. Jensson fóru
fram á, að tolJ-hækkunin næði eigi til
sykurs; en óhæfa þótti stjórnarliðum það,
og felldu því þá tillögu.
Þriðja umræða um málið fór fram í
efri deild 15. júlí, og stóðu þá, enn al.l-
langar og heitar umræður um málið, og
var, meðal annars, bent á, að sú aðferð,
sem ráðherrann tjáðist mundu hafa, að
því er staðfestingu laganna snertir, að fá
undirskript konungs utan ríkisráðs, til
þess að lögin öðluðust gildi sem fyrst, en
leggja þau síðan fram í jríkisráði, er hann
sigldi eptir þing, og fá gjörðina þar stað-
festa á ný, væri eigi samkvæm stjórnar-
skránni, þótt hagkvæm kynni að vera i
stöku tilfellum.
Að Joknum uinræðunum, var rnálið
síðan samþykkt, með 8 atkv, gegn 5; þeir,
sem aíkvœSi greiddu geqn málinu, voru:
Jóh, Jóhannesson, Sig. Jensson, Sig, Stefáns-
son, Þorgr. Þórðarson og dr. Valtýr.
Þar sem lögin öðlast. gildi, er kon-
ungur staðfestir þau, verður tollkækkun-
in að öllum líkindurn komin á fyrir júlí-
lok, eða Jöngu áður en almenningur hér
á landi hefir frétt afdrif laganna á þingi.
Það er vel að verið hjá stjórninni, og
hennar liðum!
Suður-Mulasýsiu-kosningm.
Fundur var haldinn í sameinuðu al-
þingi 17. |úií, til þess að ræoa um álit
nefndar þeirrar, er kosin hafði verið, til
að láta uppi álit sitt uœ misfellur á kosn-
ingunni í Suður-Mulasýslu, er fór fram
3 júní 1903. Nefndarmennirnir (Magn.
Stephensen, Július Havsteen, Lárus Bj.,
Jón Magnixsson og Guðl. (xuðm,) hafa
kornizt að þeirri niðurstöðu, að „væri far-
ið í strangan reikningsskap, ætti að ó-
nýta kosmngu beggja þingmannannau,
Quttorms Vigfussonar og 01. Jhorlacms,
þar sem að eins hafði verið notuð rétt
kjörskrá úr einum hreppi (Beruneshreppi),
en að öðru leyti notaðar kjörskrár, er eigi
voru í giJdi, og tilbúning kjörskránna
þannig háttað, að allar formreglur er þar
að lúta, höfðu verið brotnar.
Þratt fyrir þenria vitnisburð leggja
þó allir nefndarmenmrnir, nema Gudiaug-
ur sýslumaður, það til, að kosningin só
tekin gild(!)_ — A hinn bóginn báru síra
Sig. Stef., Sk. Th., Stefán keDnari, og Björn
Kristj., fram tillögu þess efnis, að fella
kosninguna úr gildi, en vildu þó eigi, að
kjördæmið væri gjört þingmannslaust, og
skyldu því þingmennirnir sitja á þingi,
unz yt’irstandandi al|jing«i væri lokið, en
stjórnin síðan láta nýjar kosningar fara
fram i Suður-Múlasýslu, áður en alþingi
kemur saman næst.
Urn þetta urðu töluverðar umræður,
er loks lyktaði svo, að samþykkt var,
með 20 atkv. gegn 19, að fresta umræð-
unni að sinni.
Mælt er, að æstustu stjórnarliðar muni
þó frelsta, að fá málið tekið sem fyrst
fyrir aptur, og samþykkja kosninguna,
hvað sem öllum lögbrotunum liður.
Gjafsóknarréttur embættismanna.
Prv. um afnám gjafsóknarrétts embættismanna
bera þeir Sk. Tb. og síra Ól. Ól. fram i neðri
deild.
Uin beitutekju
hefir síra ■Sig. Stef. borið fram frv. í efri deild,
of< fer frv. fram á, að hverjum, er heimild hefir
1il íiskiveiða í landhelgi, sé heimilt, að taka
skelfisksbeitn fyrir annars manns landi, þótt í
netlögum sé (netlög eru 60 faðmar frástórstraums-
fjörumáfi), og setja far íð og beitutekjuverkiæri
á land, en gjalda skal hann 10 af hundraði af
beituaflanum, og sömuleiðis bætur fyrir, landspjöll
og usla, eptir mati óvillhallra manna.
Jtýir verzlunarstaðir.
Frumvörp um löggildingu nýrra verzlunar-
staða eru all-mörg á ferðinni á þingi, og eru
staðirnir þessir: Maríuhöfn í Kjósarsýslu O'lutn-
ingsm. Bj. KrJ, Gerðaleir í Gullbringusýslu (fl.m.
Bj. Kr.). að Látrum í Aðalvík (flutningsm. Sk.
Th.) að Lambhúsvík í Hánavatnssýslu (flutningsm.
Herm. Jónasarson), og að SyðrarSkógarnesi í Snæ-
fellsnessýslu (flutningsmaður L. Bj.).
Verzlunarsvæðið i Bolungarvik fer Sk. Th.
einnig fram á, að stækkað sé um landsvæðið frá
Hólsá að Grundarhólsmerkjum á sandinum, 150
faðma á land upp frá hæzta sjávarmáli.
Lög um þorskanetalagnir,
frá 13. nóv. 1875, leggur Bj. Kr. til, að úr gildi
séu numin.