Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 25.09.1905, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 25.09.1905, Blaðsíða 2
T54 Þ: ó & XIX.. 3?. ielenzkt vaeri ósamboðið siðuðu fóiki, og þvi bæri Islendingum að leggja af sér nllan sinn islenzka ham, þegar þær kæinu til Danmerkur eða á önnur siðuð lönd. Danir fundu því ekki að búningnum af þvi hann væri ljótur eða færi ílla, held- ur af því einu að hann var íslenzkur og sæmdi því að eins mönnum á lægra stigi, því mennirnir voru þá svo smekklitlir, að þeir gátu ekki sóð að þetta var fag- urt jafnvel þó það væri frá skrælingjum, beldur stara þeir á það eitt, að þeir halda að það sé frá hálfviltri þjóð og þá var það óhafandi. Dönum var að því leyti vorkunn. að við höfum sjálfir styrkt þá hvað mest í þessari trú á okkur, þar sem við höfum opt verið svo lítilsigldir og istöðulausir að roðna og fyrirverða okkur fyrir margt, sem íslenzkt var og gott undir eins og Dönum varð á að lita hornauga til þess. þó það gerðu, ef til vill, alls ómenntaðir jnenn, smekkiitlir og lítilsverðir*. Það er í rauninni alls ekki láandi. þó Danir fengi litið álit á menningu okkar hafi þeir séð, að hún lá svo laust utan á fólkinu, að ekki þurfti annað en benda á buxur karlmannanna og brosa að húf- um kvennfóiksins til þess, að okkur fynd- ist minnkun að hafa þett.a utan á okkur. Ef einhver útlendingur andaði dálít’.ð hvat- skeytlega á Islenzkuna okkar, þá fauk allt, húfan og buxurnar. *) Mér er alls ekkí grunlaust um, að þessi hafi einmitt verið cin af orsökunum til þoss, að af- ar okkar lögðu niður á fyrra hlut síðustu aldar sínar fallegu og hentugu stutthuxur og tóku upp þessa ófögru langhrók. sem gerir allt jafnboÞ og fótleggina jafn digra lærunum. Ekki gátu þeir gert þetta til að spara efnið og skítsælli eru skálmarnar að neðan. Það er allt óhentugt sem vandhæfi er á, og á skálmun- um eru einmitt töluverð vandhæfi. Opt eru skálmar snúnar, og er ljótt; og séu þær of síð- ar, þá hrukka þær á leggnum eða við rístina, og ei þá líkast sem spíta sé innan í en ekki fót- ur, en aptur á móti fer fátt eins illa með svip karlmanna á velli eins og það, ef hann streng- ir hrækurnar svo upp eða skálmarnar eru svo stuttar, að slettast um öklann eða legginn Því hefir að minnsta kosti ráðið eitthva 5 rmn- að en fegurðartilfinningin þegar skipt var á stutt- buxanum fyrir löngu hólkana Þegar þeir voru orðnir hátíðska erlendis, þá þarf ekki neitt sér- legt hugmyndaflug til að hugsa sér, að lærðu yngismennirnir hali roðnað á stuttbuxunum ís- lenzku þegar þeir komu til Danmerkur eða há- skólanse ða heldri mennirnir og snyrtimennin þeg- ar þau komu í kaupstaðinn og sáu þar Dansk- | inn allann jafnbolan, en þeir sjálfir með gömlu j lagi og íslenzku, og fór þá fyrir þeim „sigldu11 í eins og fyrir kvennfólkinu „siglda11 að þeir „höfðu j vanið sig við útlenda húninginn11 og gátu svo ekki j verið að fara i hinn aptur. Færeyingar fyrirverða sig enn þá flestir treynd- ar ekki allir) fyrir að ganga á stutthuxum sín- um um Hafnar götur og þó fer búningurinn þeim mætavel þegar hann er vandaður og huxurnar hæfilega viðar. Þegar nú Færeyingar 'tiafa reynzt svo tryggir þjóðháttum sínum og húningi að þeir bera hann enn þá nær allir saman og telja það heiður sinn sem rétt er, og eru þó ekki upp- burðameiri en þetta við Dani, þá er ekki líklegt nð við höfum verið sterkir á svellinu, sem minni áttum tryggðir við þjóðbúning okkar enþeirvið sinn. Skotthúfu karlmannanna syrgi jeg þar á móti ekki; hún er óhentug og ljót, ef hái er snoð- klippt eða skellt af um eyru. v;;.j:n n. V. •Jeg hef vikið á þetta til vara, ef eitt- hvað kynni að vera satt í þvi, að kvenn- fólk hafi haft óþægindi eða óvirðingu af búningi sínurn i Danmörku, en mér þyk- ir alveg eins sennilegt að þessi óþægindi hafi að eins verið til í ímyndun þess sjálfs eða þá annara kvenna heima, sem hafa haldið, að það „ætti ekki viðu eða væri „of almúgalegt“ að vera á íslenzkum búningi erlendis eða í mannahóp; það hef jeg bæði hlýtt á sjálfur og séð skrifað í bréfum og verið spurður um optar en einu sinni. En sennilegast þykir mér að þessi ó- þægindi af Dana hendi sé ekkert annað en fyrirsláttur, og þær taki upp útlenda búninginn og beri hann eptir að heim er komið af þvi einu að þeim þykir hann „fínni“, tilbreytinga meiri og _dömulegria eins og „Kvennablaðið“ líklega myndi orða það, og þær noti svo utanförina eins og eins konar afsökun við sjálfar sig og aðra, til þess að dylja eða breiða yfir hina sönnu ástæðu, af því þær grunar að sú ástæða verði kölluð hégómaskapur og skortur á menntun og sjálfsvirðingu. VI Jeg er þess þó fullvís að utanförin ein, eða skömm dvöl erlendis, hefir aldrei ver- ið eina orsökin, og jafnvel ekki aðalor- sökin til þess, að konur skiptu um bún- ing. Hinar sönnu orsakir til þess eru allt aðrar og verður síðar getið. Hitt er í alla staði eðlilegt, að þeim sem lang- vistum eru utanlands sé mjög óhægt og jafnvel ókleift, að halda íslenzka búningn- j um og er í rauninni tilgangslaust að streit- ast við það þá, nema ef svo stæði á, að þær af einhverjum ástæðum vildu taka I sig út úr til þess að sýna, að þær væri j íslenzkar, og er slík nauðsyn þó tæplega j hugsanleg. Þjóðemi okkar getur það naumast ! nokkurs staðar orðið að liði, ekk' einu j sinni i Ameríku. þó konur héldi þar bún- i ingi sínum.* Framh. ^pjcg almenna ódnxgju, út af *) Þó landar okkar í Vesturheimi verji öll- um kröftum með ritum og félögum til þess að ; halda þar við þjóðerni sínu, þá er oss nú flest- um ljóst, eins og þeim er mörgum sjálfum, að Iíf þjóðernis vors þar er ekkert annað, en von- laust dauðastríð. Síðan menn hættu að hyggja vonir sínar á sérstakri nýlendu er nú vízt öll- um sýnilegt, að hver íslendingur undirskrifar dauðadóm þjóðernisins þá stund, sem hann stig- ur á land i Vesturheimi. sem útflytjandi, bæði fyrir niðja sína og eins fyrir sjálfan sig, nema hann hafi markað sér hér spor áður en hann fór eða komi aptur til að marka það, nerna hann hafi afl á að tengja sig þvi bandi við þjóð og þjóöerni, eem tími og fjarlægð vinni ekki á eina og Stefán G. Stetánsson hefir gert. Jeg veit að fjöldi manna vestra, einkum eldri kynslóðin, elskar ísland og þráir þaðstöðugtog ann íslenzku þjóíerni meira en margur, sem heima situr, en Islandi getur það ekki orðið til fram- búðar, því þeir hafa engin tök á að verða þjóð- erni sínu og okkar að liði, því þó ísland hafi verið og sé enn látið ala þjóðernið þar vestra á blóði sínu, eða halda í þvi Jífinu, þá er það frest- ur en ekki bati, því allt ér kulnað út undir eins og lánast að létta blóðtökönni \ „gamla landinu11, þar sem við vitum, að nllt hverfur í þriðja og jafnvel strax í annan lið eins og dreifð korn ofan í þennan marghærða þjóðavelling. ýmsum gjörðum stjórnarliðsins á alþingi, er nú að frétta úr flestum kjördæmum landsins, og gremjast mönnum sérstak- lega úrslitin í ritsímamálinu, þvert ofan í mjög eindreginn vilja þjóðarinnar. Margir fara og mjög hörðum orðum um gunguhátt stjórnarliða í „undirskrift- armálinu“, og telja það hátterni pnhthka dauða-synd flokksins; en þetta mál láta þó færri til sín taka, en ritsímamálið, sem beinlínis ræðst á buddu hvers einstakl- ings, og er það að vísu skiljanlegt, þegar þess er gætt, hve gjaldþol alls fjöldans er lítið, og baráttan fyrir lifinu örðug. Alls staðar heyrist því sama viðkvæð- ið, að nú sé of langt til kosninganna, til að hreinsa til á þinginu. En það er ekkert hæít við því, að ráð- herrann rjúfi þing, og stofni til nýrra þingkosninga, fyr en hann er neyddur til þess. Hann veit, sem er, að hann getur al- drei fengið þingið skipað betur að sína skapi, en nú er. Og að því er vilja þjóðarinnar snertir, heldur hann naumast vöku fyrir ráðherr- anum. Það hefir þegar sézt. Frá Isafirði er „Þjóðv.11 ritað 15. sept. siðastl.: „Sumarið óvanalega kalt, og stormasamt, og því miður hafa þær vonir manna. að hauslið yrði skát-ra, enn ekki viljað rætast. — 4. þ. m. gerði ákaft norð- an veður, er stóð í nær viku, með all-miklum kuldum, og fönn til fjalla. — Yeður þetta seink- aði mjög ferðum „Lauru11, er eigi treystist fyrir Hornbjarg, og lá því 3—4 daga á Aðalvik, unz veðrinu tók að slota, — Á stöku bæjum misstu bændur nokkur hey í veðrinu, cg var það mönn- um því bagalegra þar sem heyfengurinn er víð- ast í minna lagi, sakir íllrar sprettu. — Nýt'ng heyja hefit' á hinn bóginn gengið nokkurn veg- inn, þrátt fyrir töluverða óþurrka. Sumar-róðrar hafa yfirleitt orðið fremur arð- litlir við Djúp, sakir ótiðar, og einnig sakir þess að síld hefir verið lítil, og stopul. — Stðku mó- torbátar, er langt hafa sótt; hafa þó náð nokkr- um afla, enda fer þeim bátum sí-fjölgandi hér við Djúp, þó að þeir þyki eigi hafa reynzt vel að vetrinum. — Afla-horfur fremur slæmar, að því er komandi vetur snertir, þar sem alnienn- ingut- má heita beitulaus, og margar fjölskyidur munu því miður byrja veturinn með litlar, eða engar birgðir, sakir afla-tregðunnar i fvrra vetur. Verkafólk hér í kaupstaðnum hefir haft frem- ut- góða atvinnu í sumar, og trésmiðirnir sjá ekki út úr störfum sínum, sakir húsabygging- anna—Meðal annars eritnú Good-Templara stúk- urnar hér á Isafirði að láta reisa stórhýsi, sem sagt er, að kosta muni að minnsta kosti um 16 þús. króna11. Vcrðlag á Vesturlandi. Verðlag á íslenzkum varningi á Vesturlandi, var í sumarkauptíðinni, sem hér segir: Málfiskur Dr. 1............70 kr. sk«í. — — — 2.............48 — — — — — 3................35— — Smáfiskur nr. 1............60 — — — — — 2.............40 — — | Langa — 1.............60 — — — — — 2............40 — — — — — 3 ....... 25 — — ísa — 1.....50 — — — 2 ............35 — — Upsi ....................25 — — Keila .................. . 25 — —

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.