Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.04.1906, Blaðsíða 1
Verð árganqsins (minnst \
60 arkir) 3 kr. .50 aur.;
crlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríkn doll.: 1.50. j
Rorgist fyrir júnímán-
alarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
— =|ir~ Tutti'öasti ákgangur. =! -:—
• -Sar>H= RITSTJ ÓRI: SKÚLI THOHODDSEN. ==|=*ts|—
I Vppsögn xkrifirq. óqild
\nema kowiv xétilútqej-
\anda fyrircO. tmg júrn-
mánaðar, og kmcpandi
samhliða nppsögninni
borgi sknld sína fyrir
blaðið.
M 18.
Bessastöðum, 19. apbítj.
1 9 0 6.
Tir ilönd.
Eptir síðustu blöðum, er borizt hafa
frá útlöndum, og nýjustu Marconí-lopt-
skeytum, eru helztu tíðindi frá útlönd-
unn:
Danmörk. Breyting grundvaliarlag-
anna, að því er fjölgun kjördæma snertir,
mætti all-mikiili rnótspyrnu i landsþing-
inu, af hálfu hægrimanna, og nær þvi
eigi fram að ganga, enda fá.tt nýtilegra
laga, sem núverandi ráðaneyti fær fram-
gengt, þar s >m hægrimenn hafa enn tögl-
in og hagldirnar í landsþinginu. — Hækk-
un á launum liðsforingja er því mark-
verðasta nýmælið, sem þingið hefir sam-
þykkt, og hætt við, að það verði núver-
andi stjórnarflokki lítil meðmæli, er fil
kosninganna kemur í næstk. júnímánuði,
þar sem það ríður mjög í bága við stefnu
vinstrimanna í hermálum að undan förnu.
Bæjarfulltrúakosningar fóru fram í
Kaupmannahöfn 27. marz, og fylgd-
ust hægrimenn, og stjórnarliðar, að
málum við þær kosningar, eins og í fyrra,
gegn frjálslyndari vinstrimönnum, og
„soeíalistumu.
Kvennlæknir í Kaupmannahöfn, ung-
frú Elí Möller, hlaut 9. marz síðastl. doct-
orsnafnbót fyrir ritgjörð um læknisfræði,
og er það fyrsti kvennlæknirinn í Dan-
mörku, er þann titil hefir hlotið.
Seint í marz lögðu af stað „legátaru
frá Kaupmannahöfn, sem eiga að tilkjmna
það við hirðir allra konunga, og keisara,
í Évrópu, að Cliristján IX. sé látinn, og
að Friðrik VIII. sé til ríkis kominn. —
Detta er gömul venja, sem sjálfsagt þykir
að fylgja. enda þótt það sýnist í raun og
veru harla óþarft, að fara nú að tilkyrma
lát Christjáns IX., eptir að flestir þjóð-
höfðingjar hafa verið við útför hans, eða
þá fulltrúar þeirra; en svona er vaninn
ríkur.-----—
Noregur. Aðfaranóttina 8. marz síð-
astl. varð snjóflóð 20 mönnum að bana
í verstöð einni í Vestur-Lofoten, og um
40 meiddust. — Verstöðin var undir brattri
hlíð, og sópaði snjóflóðið burt verbúðum,
bátum, og öðru, sem á vegi þess var.
Til minningar um krýningu Hákonar
konungs, og Maitd’s, drottningar hans,
sem fer fram í dómkirkjunoi í Þránd-
heimi 24. júní næstk., er áformað, að sleg-
in verði medalía, með mynd konungshjón-
anna, i öllum konungsskrúða. — — --
Svíþjóð. ] grennd við Haparanda,
sem er norðarlega i Svíþjóð, var póstur,
og fylgdarmaður hans, nýlega myrtir, og
höfðu morðingjarnir brott með sór 70 þús.
króna. — — —
Bretland. Látinn er ný skeð Gatacres
hershöfðingi, sem margir munu kannast
við, ef þeir renna huganum til Búa-ó-
friðarius. — Hann var þar miður hepp-
ínn, fór ófarir miklar fyrir Búum í or-
ustunni við Stormberg 9.—10. des. 1899,
og síðan í orustunni við Beddersburg B.
apríl 1900, svo að Roberts lávarður svipti
hann þá herstjórninni. — Ensk blöð geta
þess nú einnig, að svipuð slysni hafi og
ásótt liann i daglega lifinu öðru hvoru.
Frakkland. 16. narz síðast-1. varð lopt-
sprengÍDg í efnafræðis-verkstofu í París,
og urðu 10 menn sárir.
Einn maour hefir enn náðzt með ’ífi
úr Couríeres-námunum. — Hann hafði
fundið eitthvað af brauði, og kognakki,
í vösum látinna félaga sinna, og lifað á
| því.
Játtvarður, Breta konungur, hefir gefið
3600 kr. til styrktar þeim, er misst hafa
venzlamenn sína við manntjónið í téðurn
' námum. — — —
I
Spánn. Þar er nýlega lát.inn Blanco
I hershöfðingi, er fyrrum var landstjóri
i Spánvérja á Cuba. — —
Ítalía. í öndverðum marzmánuði eyddi
skriða þorpinu TaVernao.
5. marz kviknaði í danssal i þorpinu
Eueeceio, og biðu 16 meiin bana, e.n
margir hlutu brunasár.
Marconi-skeyti cegja nýtt eldgos í
Yesuvíus, um nýjan gýg, er spýr hraun-
leðjunni 1500 fet í lopt upp. — Oskufall
töluvert í borginni Neapel, og húsin hrisst-
ast af jarðskjálfta, svo að fólkið lætur
fyrir berast á torgum borgarinnar.--------
Austurríki — Ungverjaland. Mareoni-
skeyti segir sáttir á komDar rnilli Franz
Jóseps keisara og frjálslyndu flokkanna á
Hngverjalandi, og hafa báðir inálsaðilar
slakað nokkuð til.
Seint í marz segja útlend blöð, að
keisarinn hafi verið mjög hættulega veik-
ur, og þar sem hann er nú yfir hálf-
átt-rætt (fæddur 18. ág. 1830), þykir ekki
ósennilegt, að veikindin hafi gjört keis-
arann sáttfúsari, því að mjög hæt-t var
við því, eÍDS og sakir stóðu, að ríkið
hefði ella liðazt sundur, ef hans hefði
misst við. — —
Þýzkaland. 22. marz síðastl. gjörðist
sá atburður í þorpinu Schaffhausen, að
kona ein fyrirfór sér, og þrem börnum
sínum, i fossi þar í g-enndinni.
f 22. marz þ. á. andaðist Karl von
Síemens, elzti forstöðumaður þýzka lopt-
skeytafélagsins Síemens & Halske.
Mælt er, að Vilhjálmar keisari hafi
æthð að bregða sér til Spánar, á fund
Alfonso konungs, i öndverðum april.
Nýlega hólt Biiloiv, ríkiskanzlari, langa
j ræðu í ríkisþÍDgmu, en fékk yfirlið, er
ræðunni var lokið, og raknaði ekki við
eptur, fyr en eptir nokkra kl.tíma. —
Félag er nýlega stofnað, að tilátuðlan
| Vilhjálms keisara, til þess að vinna að
I þvi, að smíða loptför, er stýrt verð', og
er höfuðstóll félagsins 1 milj. ríkismarka
(tæpar 900 þús. króna). — Mælt er, að
frakkneskur verkfræðingur, Juillot að nafni,
hafi nýloga smíðað loptfar, sem frakkn-
eska herrnálastjórnin telur geta orðið að
góðu liði í ófriði, og mun það hafa ýtt
undir Vilhjálm keisara. — —
íiússland. 5 þús. hafnaroriiðissnanna
hafa nýlega gjört verkfall í Odessa.
Nicolaj keisari hefir nú látið það boð
I út ganga, að aðal-hlutverk friðarfundnr-
! ins í Haag eigi að vera í því fólgið, að
j ræða um ýmsar hernaðarreglur, en alls
I ekki um t.akmörkun herbúnaðar að Deinu
! leyti.
Nýlega hafa bankamenn á Þýzkalandi
lýst því yfir, að Bússastjóm geti ekki
fengið neitt peningalán á Þýzkalandi.
Nieolaj keisari hefir dú ákveðið, að
j hann velji sjálfur helming allra þing-
manna, sem sæti eiga á rikisþinginu,
bæði að þvi er snertir fulltrúadeildina
(,,dumau), og efri málstofuna (ríkisráðið).
— Hinn helminginn á að kjósa, og gildir
kosning ríkisráðsmannanna í 9 ár, og eru
það aðalsmenn, „helga synódan“, háskól-
arnir, og meiri háttar verzlana-eigendur,
og iðnrekendur, sem mestu ráða um kosn-
ingarnar. — Keisari geymir sér og rétt
til þess, að staðfesta lagafrumvörp, þótt
önnur hvor þingdeildin hafi fellt það,
hafi báðar deildir eigi tjáð sigfrumvarp-
inu móthverfar. En eins og skipun þess-
arar ómerkilegu þingnefnu verður háttað,
þarf auðvitað eigi að óttast, að gjörðir
þess komi noklturu sinni i bága við vilja
stjórnarinnar.
Stössel hershöfðingi, er lengst, varði
Port-Arthur, er nú háður sérstöku lög-
reglu-eptirliti, og verður stefnt- fyrir her-
rétt, út af frammistöðunni. — Fyrirher-
rétt verðUr og stefnt Nebö/jatow aðmiráli,
er fór ófariruar miklu í sjóorustunni, sem
kennd er við Tsushíma. — Illt er íllurn
að þjóna.
Hungursneyð er nú i ýmsum héruð-
um á Rússlandi, og devja margir úr
t-augaveiki, sem sultinum er samfara.
Mjög er gert orð á því, að hersveitir
Bússa, Kósakkarnir, sem sefað hafa
uppreisnina í Eystrasaltshéruðunum, hafi
rænt, og ruplað, þar um slóðir, og er
mælt, að þeir muni alls hafa sent skyld-
mennum sinum um 5 milj. rubla, auk
dýrgripa, eptir 6 mánaða veru þar. —
Afríka. Bretar hafa nú bælt niður
uppreisnina í Norður-Nígeriu. — Attu
hersveitir þeirra orustu við her uppreisnar-
manna, 12. marz síðastl., og féllu þar 300
upprei.«narmanna, og lögðu hinir þá á
flótta. — Meðal þeirra, er féllu, var for-