Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.06.1906, Blaðsíða 1
ferð árganqsins (minnst
90 arkir) 3 kr. 60 aur.;
erlendis 4 kr. 60aur.,og
i Ameríku doll.: 1.60.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
—.-.. 11= Tuttuoasti Akoanoub. =| -
—i_y~r= rttht.T (*)RT: SKÚLI THOBODDSEN. =h<-+--
| TJppsegn skrifleg, 6g\ld
|netna komin sétil útget-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupardi
sam hliða uppsögninni
íborgi skuld sína fyrit
blaðið.
M 30.
Bbssastöuum, 28. JÚNÍ.
19 0 6.
Útlönd.
í Síðustu útlenduni blöðum og Marconi- i
loptskeytum, er hingaðhafaborizt, eruþess-
ar fréttir helztar.
Danmörk. Þar er mönnum um þess-
ar mundir tíðræddast um þrjú morð, hvert
öðru hryllilegra, er framin hafa verið ný-
lega yfir á Jótlandi. Fyrir rúmuin mán-
uði siðan var unglingspiltur einn frá Ár-
ósum rnyrtur til fjár rétt fyrir utan bæ-
inn. Nefnd þeirri, er falið var að rann-
saka málið, hefir enn eigi tekizt að finna
morðingjann, en hefur þó einn mann
grunaðan öðrum fremur. — Annað og
enn þá viðbjóðslegra ódáðaverk var fram-
ið í sama bæ fyrir skemmstu. Tvö stúlku- j
börn voru að leik rétt fyrir utan bæinn.
Hét önnur stúlkan Ástríður, dóttir verk-
mannahjóna í bænum, og var hún að eins
7 ára að aldri. Til þeirra kom rriiðaldra
maður, vel búinn. Vildi hann fá þær
með sér inn i skóginn, sem var rétt hjá.
Fylgdist Ástríður með honum, en hin
stúlkan hljóp heim til sin og sagði frá,
hvað fyrir sig hefði borið. Þegar leið á
daginn og Ástríður kom eigi heim, var
farið að leita hennar. Fannst hún loks
næsta morgun, hangandi upp í tré einu,
allsnakin og hörmulega til reika. Var
hún þá dauð fyrir mörgum tímum. Hafði
mannhrakið brugðið snöru um háls henni 1
og fest hana upp í tréð, er hann hafði
svsflað fýsn sinni. Grunurinn féll brátt á
skósmið einn og sjómannatrúboða, er
Thygesen nefndist. Var hann þegar tek-
inn fastur og játaði hann glæpinn upp á
sig eptir nokkra vafninga. Maðurinn er
eigi talinn með öllum mjalla og verður
að líkindum settur á geðveikrahæli æfi-
langt. Hafði hann áður verið á slíkri
stofnun, en var þá sleppt út að tilhlutun
innratrúboðs klerka, er töldu hann verk-
færi í guðshendi tii að boða hans ríki
meðal mannanna. Árangurinn af afskiptum
þeirra er nú kominn í 1 jós. — Við jarðar-
för Ástríðar voru um 20,000 manna, og j
gjörðubæjarbúarsérallt farum að sýnafor- i
eldrunum hluttekningu sína og draga úr
sorg þeirra.
Þriðja og síðasta morðið var framið
á bóndabæ einum í nánd við Skive. Hjón-
in voru að heiman um daginn, en er þau
komu heim seint um kvöldið, fann bóndi
mjaltastúlkuna, hggjandi dauða á fjós-
gólfinu. Var hun særð þrem stórum sár-
um, hendurnar bundnar á bak aptur og
fötin tætt utan af henni. Það vitnaðist
brátt, að morðinginn var einn af vinnu-
mönnum bónda. Flýði hann á náðir bróð-
ar sins, er bjó þar i grenudinni, og ját-
aði á sig glæpinn. Kvað hann afbrýðis-
semi hafa knúð sig til morðsins. Var
hann þegar seldur lögreglunni í hendur.
Illvirki þessi hafa slegið hinum mesta
j ugg og ótta yfir Jóta, því að morðsýkin
virðist ganga eins og faraldur yfir landið.
Norska skáldið Björnstjerne Björnson
hefur verið á ferð um Danmörku að und-
anförnu. Hélt hann nýlega fyrirlestur
yfir á Jótlandi, um framtið Norðurlanda-
Voru þar viðstaddar 12,000 manna og
gjörðu hinn bezta róm að ræðu hans. Var að-
alkjami hennar sá, að allar þjóðir af ger-
mönskum uppruna ættu að taka höndum ■
saman og mynda eitt allsherjarsamband I
til varnar gegn öðrum þjóðflokkum. Kvað
hann framtíð þeirra þá fyrst fullkomlega
tryggða, er þessu væri til vegar komið, i
og mundi það verða hið öflugasta ráð til
| að útrýma stríði og styrjöldum úr heim-
inum.
Dómsmálaráðgjafi Dana hefur skipað |
svo fyrir, að rjúfa skuli lögþing Færey-
inga í sumar og efna til nýrra kosninga.
Er það gjört i þvi skyni að veita eyja-
skeggjum kost á að láta í Ijósi álit sitt
á ýmsum umbótum, sem í ráði er að veita
þeim. Eru þær fólgnar í meira sjálfstæði
á sérmálasviði þeirra en þeir áður hafa
notið.
Noregur. Jarðarför Henriks Ibsens fór
fram í Kristjaniu 1. þ. m. með hinni mestu
viðhöfn. Var konungur Norðmanna þar við-
1 staddur og fjöldi annars stórmennis frá
ýmsum löndum. Sóknarprestur Chiistopher
Bruun flutti líkræðuna.
Krýning Norðmannakonungs átti að
fara fram í Niðarósi (Trondhjem) 22. þ. ;
m. og var þar viðbúningur mikill í þvi
skyni. Meðal annara var von á 14000
Norðmönnum frá Ameríku, og flestir þjóð-
höfðingjar senda þangað fulltiúa fyrir sina
hönd. Illa mælibt það fyrir, að bæjar-
menn selja blaðamönnum og öðrum, er
krýninguna sækja, allan greiða svo dýran,
að fram úr hófi keyrir. Þykir það eigi
bera vott um gestrisni Norðmanna.
írland. Einn af langhelztu stjórn-
j málaskörunguin íra, Michael Davitt, er lát-
inn fyrir nokkru, 60 ára að aldri. Frá
blautu bamsbeini tók hann öflugan þátt
í frelsisbaráttu íra, og lét það eigi á sig
fá, þótt hann hvað eptir annað væri hneppt-
ur i varðhald sakir frjálslyndis síns. Lengi
fylgdi hann Parnell að málum, og mat
hann mjög mikils, en vegir þeirra skyld-
ust þogar missættið kom upp milli Par-
nell’s og Gladstone’s. Davitt mat heill
og heiður ættjarðar sinnar meira en allt
annað, og fyrir því gekk hann í lið með
Gladstone 1886, er hann gjörðist talsmað-
ur þéss, að Irar fengju heimastjórn.
Á þingi sat Davitt að eins stutta hríð,
og 1899 dró hann sig algjörlega í hlé,
en flestar þær umbætur, er orðið hafa á
högum íra á síðuri árum, eru þó að meira
eða minna leyti hónum að þakka.
Rússland. Gyðingaofsókn er liafin
einu sinni enn í ýmsum bæjum þar. Voru
tildrögin þau, að stjórnleysingi einn af
Gyðingakyni fleygði sprengikúlu inn i
manDþyrpingu í bænum Bielostok, og biðu
nokkrir menn bana. Siðan hafa Gyðingar
verið brytjaðir niður sem hráviði, og hafa
því málsmetandi Gyðingar í Pétursborg
símritað til Lundúna, og beiðst mikil-
lega ásjár gegn ósköpum þessum.
Rússakeisari kvað hafa frestað fund-
um „dumunnar-1 til 28. þ. m. og ætla
siðan á skemmtiferð, sjóleiðis. Er búizt
við. að þá muni verða róstusamt, er hann er
úr landi farinD.
Voðaleg sprenging varð fyrir skömmu
á farþegjaskipi frá Liverpool, á Atlanz-
hafinu. Fórust þar 8 menn, en um 40
meiddust.
Japanskt flutningaskip rakst á sprengi-
dufi i Kóreahafi og sökk. Týndust þar
50 manns.
Járnbrautarlest í Kina lenti út af
sporinu fyrir skömmu, og hlutu þar 100
manns bana eða meiðsl.
Weí/wami,norðurheimskautsfari, er lagð-
ur af stað frá París norður til Spitzbergen.
Ætlar hann að komast þaðan til heitn-
skautsins á loptfari.
Ír 09 í.
Harla eptirtektarvert virðist það vera,
hversu nýju stjórnarblöðin, „Lögrétta“ og
.Norðri“, slá bæði úr og í, að þvi er
snertir þá fyrirætlun andstæðingaflokks
stjórnarinnar, að nota „danska heimboð-
ið“, til þess að heyra álit helstu leiðtoga
dönsku þjóðarinnar, um það, hvort nokkuð
sé því til fyrirstöðu, að sambandi Islands
og Danmerkur verði skipað á þá leið, að
vér íslendingar fáum landstjórafyrirkorou-
lagið lögleitt.
Blöðin haga orðum sínum þannig, slá
þanDÍg úr og í, að enginn vorður í raun
og veru minnstu vitund fróðari um það,
hvað stjórnarliðið, eða sá hluti þessi, sem
hefir ráð á nefndum blöðum, ætlar fyrir
sér í utanförinni.
ÞingmeDn stjórnarliðsins geta, er til
Kaupmannahafnar kemur, orðið landstjóra-
fyrirkomulaginu fylgjandi, og þeir geta
snúizt móti því, án þess nokkur geti sagt,
að frumkoma þeirra, hvor sem hún verð-
ur, komi í nokkurn bága við það, sem
blöð þeirra hafa um málið sagt.
Þetta eru hyggindi, sem í hagkomn,
og — virðulegir kjósendur vel í huga
hafðir.