Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.07.1906, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.07.1906, Qupperneq 1
Ýerð árganqsing (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 awr.; erlendis 4 kr. 50 aur., og i Ameríku doll.: 1.50. Borqist fyrir júnímán- a larlok. M 31.-32. Uppssgn skrifleý, ógfld nema komin sé til anda fyrir 30. dfiqjúnt- tnánaðar, og kaupai.di samhliða uppsögninni borgi skuld síria fyrie jblaðið. Bessástöbum, 7. JÚLÍ. Frá 1. júlí þ. á. til árslokanna geta nýir kaupendur fengið „Þjóðv.“ fyrir að eins 1 kr. ^^5 aur. •BC33IZ1# Sé borgunin send jafnframt því, er beðið er um blaðið, fá nýir kaupendur einnig alveg öKeypis, sem kaupbæti, freklega 200 bls. af skemmtisögum, og geta, ef óskað er, valið um nokkur söguhepti. Þar sem sögusafn þetta kostar í latisa- sölu 1 kr. 50 a., eiga nýir kaupendur þannig kost á því, að fá allan síðari helming yfirstandandi árgangs blaðsins (samtals 30 nr.) fyrir •ttiiwmi.mi.iiiii^ Q A1 fl C OP* Q11|*Q ai iiiiiiiiiiiiiiiiuii nMMiiliiiniiiHtiW (IV/ UtJ (1111 d W'IiiiiiihihiiiiiiiiiiiW það verður þá minna, en einn e’grir*, sem hvert nr. kostar. PT Svona kjör bjóðast ekki á hverri stundu, og væntanlega verða þeir því mjög margir, sem nota þetta tækifæri, til að gjörast kaupendur „Þjóðv.“ er öllum, sem kynnzt hafa, kvað bera saman um, að ætti að vera á sem allra flestum heim- ilum. Grjörið svo vel, að skýra kunn- ingjum yðar, og nábúum, frá kjörum þeim, sem „Þjóðv.“ býður, svo að þeir geti notað tækifærið. Þeir, sem kynnu a'ð vilja taka að sér útsölu „Þjóðv.“; sér8taklega í þeim sveitum, þar sem blaðið hefir verið lítið keypt að undanförnu, geri svo vel, að gera útgefanda „Þjóðv.“ aðvart um það sem allra bráðast. ■BKB Bréf til útgefanda sendist áð Bessastöðum pr. Beykjavik. Um ábyrgð á opnum bátum, Bátaábyrgöarfélag ísfiröinga o. fl. Ein af styrkustu stoðunum undir fjár- hagslegri sjálfstæði og velmegun hvers þjóðfélags, er öll trygging gegn stórkost- legu efnatjóni einstaklinganna, og því meira nytsemdarverk, sem eignirnar eru meiri hættu undirorpnar. Fáar atvinnugreinar eru áhættu meiri en sjósókn á opnum bátum, þar sem opt og tíðum verður að sækja afla svo míl- um skiptir út til hafs á litlum fleytum, og hvergi ætti því trygging á eignum sjómanna að vera sjálfsagðara áhugamál en einmitt þar, sem þessi atvinna er aðal- bjargræðisvegur manna. Allar siðaðar þjóðir, er fiskiveiðar stunda, telje það fjárhagslega flónsku og fjarstæðu að hafa skipastól sinn óvátryggðan, þótt fiskiveiðarnar séu reknar með stórum og vel útbúnum gufuskipum og seglskipum, og hættan því dálitið minni en á opnu bátfleytumun vor Islendinga. Þær sjá það fullvel, að án vátrygg- ingar eru fiskiskipin þeirra næsta stopul og óviss eign. Hjá þeim þykjast stórauðugir menn ekki mega við þvi að missa eina ein- ustu fleytu, án þess fullt verð komi á móti, ef hún ferst, og þess vegna stnfna þeir ábyrgðarfélög, er tryggja þá gogn öllu verulegu tjóni i þessari atvinnr , : i. Skyldum vér íslendingar, ein fátæk- asta þjóðin í heiminum, þá fremur stand- ast við því tjóni sem opt hlýtur að leiða af vátryggingarleysinu? Sannarlega ekki. Yér megum i raun og veru ekki við því að láta nokkra bátfleytu fara óvá- tryggða á flot til fiskiveiða, og ort er það i lófa lagið, alveg eins og stórþjóð- unum, ef ekki bristi eins átakanlega fjár- hagslega fyrirhyggju, samtök og félags- skap. Með því að vátryggja fiskiskipin og fiskibátana okkar tryggjum vér og líf sjálfra vor, eða sjómannanna okkar, betur en ella. Hvert vátrygging‘"ríélag heimtar betri og traustari útbúnað á skipum þeim, er það tekur í ábyrgð, en trygging er fyrir, að hver einstakur skipseigandi hafi ótii- kvaddur. Að þvi leyti verður vátrygg- ingin óbeinlinis til þess að vernda líf sjómannanna. Annars ættu sjómenn að vátryggja Jíf sitt miklu almennara en gjörist, meiri velgjörning geta þeir trauðla gjört skyldu- liði sínu og þjóðfélaginu i heild sinni. Hjá oss er því máli nokkuð þokað á- leiðis með lögum um lífsábyrgð fyrir sjó- menn á þilskipum 10. nóv. 1903. En þau lög ná ekki til bátaútvegsins. * * * Hér við Djúp er bátaútvegurinn aðal- atvinnuvegur manna, allur fjöldi Djúp- manna lifir því nær eingöngu af því, er þessi atvinna gefur af sér. Fiskibátarnir og veiðarfærin eru eina eignin margs mannsins hérna við Djúpið, missi hann bátinn og lóðirnar, hefur hann jn" fc aleigu sína. Skiptjón og manntjón er vanalega samferða. Eigandinn ferst næsta opt með bátnum sínum og skilur ekk annað eptir en örsnauða ekkju og börn. Þau hafa ekki einungis misst aleiguna sína, heldur alla bjargarvon, frá bátstapanum liggur leiðin þeirra margra rakleiðis á sveitina. Það er ábætirinn á ástvinamissinn fyr- ir aumingja ekkjuna og börnin. Þar sem föðurhöndina þrýtur, tekur 8veitarstjórnin við börnunum, er þegar eptir drukknun föðursins er tvístrað £?a móðurinni, sínu í hverja áttina. Hve fegin myndi ekki mörg vesalings ekkjan, sem þannig er ástatt fyrir, hafa viljað gefa nokkrar krónur á ári til þees að slík skelfingarstund fyrir móðurhjart- að hennar kæmi aldrei yfir hana. Og að eins nokkrar krónur á ári kost- ar það að fá bátinn útborgaðan með mörg hundruð krónum, ef hann ferst, miklu færri, krónur en vér all-flestir útvegs- mennirnir hér við Djúp eyðum árlega í hreinan og beinan óþarfa. Með því að vátryggja bátinn sinn, stendur eigandinn jafnréttur eptir sem áður, þótt báturÍDn „sökkvi ísaltan inar“ og fari hann sjálfur með getur vátrygg- ingarféð forðað ástvinum hans frá einu hinu þyngsta böli, að verða þurfamenn þegar er hann þrýtur. Þetta er reyndar svo einfalt mál, að allir skilja það ofur vel, ef þeir vilja verja nokkrum augnablikum til að at- huga það. * * * Það eru þegar liðin þrjú ár síðan Bátaábyrgðarfélag ísfirðinga var stofnað og útvegsmenn gátu með tiltölulega ör- litlum kos+uaði fengið báta sina vátryggða. Þetta var þá talið mesta nytsemdar y:vk. En hver hefur svo raunin orðið? Að sárfáir hafa viljað nota þennan félagsskap til að tryggja aloiguna sina, bátinn sinn. — Þeir, sem, helzt hafa þurft þessara hlunninda með, hafa sízt notað þau. — Þegar félag þetta var stofnað, var það einkum haft fyrir augum \ið samn- ÍDga félagslaganna, að gjöra útvegsmönn- um sem auðveldsst að ganga i það, fyrir þvi var allt fyrirkomulag þess haft sem óbrotnast og kostnaðarminnst og iðgjöld- in svo lág, sem frekast var unnt, 2 af hundraði á ári. Fyrir 10 til 14 krónur gat hver bátseigandi tryggt sér eða sín- um fullt virðingarverð fyrir róðrabátinn sinn. En þrátt fyrir þesi lágu iðgjöld væri sjóð- ur félagsins orðinn allstór, ef hluttaka al- mennings hefði verið eptir þvi, sem vænta mátti. — * * * Siðan félag þetta var stofnað, hefur mikil breyting orðið á bátaútvegnum hér við Djúp. Síðastlið ár og það, sem af er þessu ári, hefur mótorbátum fjölgað svo ört, að þeir munu nú orðn’r milli 60 og 70; fjölgi þeim eins ört i næstu tvö ár, þá verða

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.