Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.01.1907, Page 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.01.1907, Page 4
4 ÞjÓBVIL.TINM. XXI., 1. ur aí stað frá Kaupmannahöfn 13. þ. m., kemur til Reykjavíkur 23. janúar, og fer þaðan til Stykkishólms 26. janúar, kemur til Patreksfjarð- ar 29. janúar, til Dýrafjarðar 30. jan., og til ísa- I fjarðar 31. janúar. Til Reykjavíkur kemur skipið aptur 2. febr,. og fer til útlanda 4. febrúar. Leikfblag Reykjavíkur. 23. des. f. k. lék leikfélagið í síðasta skipti leikritið „Drengurinn minnu, og sýndi hr. KR. Ó. ÞORGRIMSSON. konsúll, sig þá á leiksviði í siðasta skipti, þar sem hann mun eigi telja það geta samrýmzt stöðu sinni, sem sænskur konsúll, að fást við sjónleiki eptirleiðis, enda hefir hann i 25 ár verið einn af helztu stuðningsmönnum félagsins, og jafnan mikið þótt til hans koma á leiksviði, og fáir skemmt áhorfendum betur. Þegar leiknum var lokið, tjáði hr. Kr. Ó. Þorgrímsson beztu þakkir fyrir það, hve vel honum hefði jafnan verið tek- ið á leiksviðinu i umliðin 25 ár, og svöruðu á- horféndur því með lófaklappi. — Pormaður leik- félagsins, t>r. ÁRNI EIRÍKSSON, afhenti hr. Kr. Ó. Þorgrímssyni síðan í samsæti, er félagið hélt honum, fágran stcinbaug, sem gjöf frá fé- laginu, og tjáði honum þakkir þess. -- Leikfélagið er nú nýlega farið að leika nýtt leikrit, „Kamelíu frúin“, eptir ALEXANDER DIJMAS yngri. ý 14 f. m. andaðist að heimili sínu í Hafnar- firði STEFAN SIGURÐSSON, trésmiður, fœdd- ur 9. april 1858 að Saurbæ í Vatnsdal, uppalinn á Þingeyrum hjá alþru. ÁSGEIRI EINARSSYNI. — Til Hafnarfjarðar fluttist hann um tvitugt, og þar gekk hann 1884 að eiga SOLVEIGU GUNNLÖGSDÓTTUR. — Af 8 börnum þeirra lifa 7, öll mannvænleg. — Hann lagði einkum stund á húsasmiði, og skipa, og þótti gæðasmið- ur, velyrkur og traustyrkur, onda var mjög sótt eptir vinnu hans, svo að aldrei brast hann at- vinnu, og var frábœr iðjumaður. Hann var hógvær i lund, stillingarmaður mesti, viðmótsþýðnr, jafnan glaður i bragði, og að öllu hinn háttprúðasti. — Heimili sínu veitti hann prýðilega forstöðu. — Þungan heilsubrest bar hann árum saman með kailmennsku og stöku þolgæði, æðrulaust til enda, og tók dauða sínum með rósörnu trúarþreki. — Að slikum manni er því mikil eptirsjá, og þótt ekkja hans, og börn hans, eigi um sárast að binda. er hann þó fleirum harmdauði, og almennt er hans saknað úr byggðarlaginu. J. ý Skólastjóri JÓN ÞÓRARINSSON í Flens- borg missti fyrir fáum dögum unga dóttur, KRISTÍNU að nafni, eptir nokkra daga legu. f 4. þ. m. andaðist í Reykjavík, eptir fárra daga legu í botnlangabólgu, ÓLAFUR bókhald- ari ÞÓRÐARSON, bróðir ÞORGRÍMS læknis ÞÓRÐARSONAR í Keflavík. — Ekkja hans er VILBORG JÓNSDÓTTIR, Þórðarsonar í Hlíð- arhúsum. Islandsbanki gefur nú kost á 4‘/,,°/0 ársvöxt- um af innlánsfé, frá 1. janúar þ. á. að telja. Tilhoð þetta mun þó bundið þvi skilyrði, aú féð standi eigi mjög stuttan tíma. Nýi isl. i'áuinn. Hann blakti í fyrsta skipti á stöng í Reykjavík á nýársdag. — Það var hjá SVEINI kaupmanni SIGFÚSSYNI. — Good- templarar, er áttu leið þar fram hjá, á skrúð- göngu sinni, er þeir tóku við „hotel ísland“, sem síðar mun getið, fögnuðu honum með húrra-hrópum. ÍGimboðsnGfnd alþingis kaupir til sumarsins 60 vandaða hnakka,. albúna til nota, með 2 gjörðum, alíslenzka að smíði. Sýnishorns verður krafizt af þeim, er semst við, og þvi haidið til samanburðar. Tilboð söðlasmiða séu komin fyrir 15. jan. til Þórhalls lektors Bjarnarsonar. Prentsmiðja Þjóðviljans. Otto Monsted3 (lanska smjörlíki er bezt 82 „Soffía er hór er>n þáu, svaraði forstöðukonan, „en mikiu lasnari, eu þegar þér voruð hér síðast. — Það fékk mjög á hana, er Maria svaraði ekki bréfum hennar. A jeg að vísa yður til hennar?a Stanhope hugsaði sig um stundarkorn. „Jeg ætla heldur að senda henni körfu með biómum", mælti hann. „Segið henni, að þau séu frá kunningja hennar, er sakni Mariu, engu síður en húnu: Á leiðinni þaðan, hugsaði Stanhope ráð sitt, og á- setti sér þá, að leggja af stað til Philadelphiu innan fárra daga. Á ferjunni, sem hann fór með, hugsaði hann málið betur, og renndi augum yfir kvöldblaðið, sem hann hafði keypt á leiðinni. I blaði þessu var nafn föður hans opt nefnt, lofs- orðum lokið á starfsemi hans í þarfir fósturjarðarinnar, og talið skarð orðið fyrir skildi við h’ð skyndilega frá- fall hans. Blöðin höfðu flutt margar greinar líks efnis síðustu dagana, en Stanhope hafði eigi getað fengið sig til, að lesa þær, og var það einkum sakir þess, að hann var í vafa um hugarþel föður síns til sin rétt fyrir andlátið. En er hann leit í fyrstu siðu biaðsins, brá honum i brún, er hann las þar svo látandi auglýsingu. „Dularfvillt hvarf mamisins nuð örið. SíðaD 20. þ. m. hefir Thomas Daiton eigi sézt á heimili hans, Markham-torg nr. 6. — Hr. Þalton er 62 ára, og sézt einkennilegt merki í vinstri lófa hans: tvö ör, sem skera hvort annað á ská. Þeir, sem kynnu að geta sagt, hvar xnaður þessi 83 er nú niður kominn, eru vinsamlega beðnir að gefa dóttur hans, á Markham-torgi nr. 6, vísbendingu um þaðu. Faðir Stanhopes hafði haft sains konar ör í vinstrí lófa. Þetta var dálítið einkennilegt! Og það var á dáuardægri hr. White’s, sem hr. Dalton hafði horfið. Enda þótt þetta gæti verið tilviljun, gat Stanhope þó ekki að því gjört, að láta sér detta í hug, að faðir hans, og Dalton þessi, er báðir höfðu alveg sams konar ör, hefðu haft eitthvað saman að sælda. Hvernig faðir hans hofði fengið örið var honum ó- kunnugt um. Hann mundi, að þegar hann var litill drenghnokki, hafði hann einhverju sinni spurt föður sinn að þessu, og hafði hann þá gjörzt dapur i bragði, og eDgu svarað. Móðir Stanhope’s vissi heldur eigi, hvernig faðir hans hafði fengið örið, og hafði hún að eins sagt drengn- urn, að haDn ætti aldrei að minnast á það optar, hvorki við hana, né við nokkurn annan. Stanhope hafði hlýtt þessari skipun móður sinnar; en nú var forvitnin vöknuð, og gat hann því ekki stillt sig lengur. Þegar hann sté á land í Philadelphíu, var hann því staðráðinn í því, að fara rakleiðis til Markham-torgs nr- 6, og vita, hvers hann yrði þar vísari um mann þenna, er hafði alveg sams konar ör í vinstri lófa, eins ogfaðir hans hafði liaft.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.