Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.05.1907, Side 2
90
Þjóðv*iljinn.
XXI., 23.-24.
ina (rBörsen“), og var i honum lík at'
nokkura daga gömlum dreng, sem auð- j
sætt þykir, að ha.fi verið kyrktur.
Biskup, i stað Friðriks sáiuga Níelsen, ;
hefir vorið skipaður Carl Wegener, próf- j
astur, mikilsv’rður klerkur, 56 ára að aldri. j
t Ijátinn er í Danmörku dr. Driebein, j
71 árs að aldri. — Hann var fyrrum tal- j
inn einn af helztu læknum Dana.
Skólakennari á Sjáiandi gaf nýlega j
einum námspilta sinna svo duglega sitt j
undir hvorn, að talið er liklegt, að dreng- j
urinn verði heyrnarlaus alla æfi. — I
öðrum skóla á Sjálandi barði kennari 13
vetra gamian dreng, svo að hann féll, og
tókst svo óheppilega til, að drengnrinu
fótbrotn iði. — - —
Noregur. Norskur klerkur i Bergen,
Carl Kovow að nafni, sem talinn er merk-
ur guðfræðingur, og lærður vol, lýsti því
ný skeð yfir i fyrirlestri, er hann flutti,
að hann tryði þvi eigi, að Kristur hefði
fæðzt af óspjallaðri jómfrú, og leggði held-
ur eigi trúnað á það, að hann hefði risið
upp á þriðja degi. — Söfnuðurinn hefir
nú krafizt þess, að prestinum sé vikið
frá embætti, og verður þvi höfðað mál
gegn honum. Björnstjeme BjÖrnsson
hefir tekið svari prestsins all-einarðlega,
sem hooum er lagið.
3. mai næstk. ætlar visindafélagið i
Kristianiu að minnast 50 ára aímælis síns.
Björn Björnson, soniir Björnstjerne
skálds, hefir nýlega lýst þvi yfir, að hann
muni hætta leikhússtjóm í Kristianíu
næsta ár, með því að honum hefir boðizt
lifvænlegri staða í Kaupmannahöfn, og
á Þýzkalandi, ef hann vill gjörast leik-
hússtjóri þar. — — —
Svíþjóð. Ríkisþing Svía hefir nýlega
samþykkt breytingu á grundvallarlögum
ríkisins, er veitir konurn rétt til þess, að
gegna kennara- og læknaembættum, sem
og embættum við vísindasöfn o. fl. —
Presta- og lögfræðinga-embættum mega
þær þó ekki gegna. — Grundvallarlaga-
breyting þessi fær og eigi lagagildi, nema
ríkisþingið samþykki hana aptur, eptir að
kosningar eru um garð gengnar. — —
Bretland. Sýning danskra málverka
var haldin í Lundúnum í aprílmánuði.
I næstk. ágústmán. ætla „Esperanto“-
menn frá ýmsum löndum að halda fund
i Cambridge, og verður þá leikið eitt af
leikritum Shakespeare’s, ér snúið verður á
rEsperanto“. — Mælt er, að veitinga-
þjónar, og lögreglumenn, er verða fund-
armönnum til aðstoðar, eigi og að nema
þetta nýja mál.
Forsætisráðherrar brezku nýlendanna
hafa setið á fundi i Lundúnum í april,
og hófst fundurinn 15. apríl. Hefir
hver dýrindisveizlan rekið aðra, og sátu
1600 manna að borðum í einni þeirra.
Sérstaklega hafa Bretar sýnt Louis
BotJia, forsætisréðherranum í Transvaal,
mikið dálæti, enda gat hann sér frægðar-
orð mikið í ófriði Breta og Búa, sem kunn-
ugt er.
Fundi þessum er ætlað, að ræða ýms
málefní, er tryggi sem bezt samband ný-
lendanna við Bretland, og styrki sem
bezt heimsveldi brezka þjóðflokksins.
Hundasýning var haldin i Lundúnum
25. april, og hlutu fegurstu hundarnir verð-
laun; einri þeirra, er verðlaunum var
sæmdur, átti Alexandra drottning. — —
Holland. I héraðinu Ering, sem er í
grennd við borgina Dortmund, gjörðist
nýlega hryllilegur atburður, með því að
verkmannafjölskylda, hjón, og fimm börn
þeirra, fundust öll myrt, og fljótandi i
blóði sínu, er að var komið. — — —
Brakkland. I næstk. júnímánuði legg-
ur hertoginn af Orleans af stað frá Bergen
í Noregi í norðurheimskautaför, á skip-
! inu „Belgica“, og er gert ráð fyrir, að j
: ferðin standi yfir í 5 mánuði; en vistir ]
! ætlar hertoginu að hafa með sér til tveggja
; ára.
Bankastjóri, Benoit að nafni, er stýrði '
i einum af stærstu bönkunum í Paris, var j
i nýlega skotinn til bana á skrifstofu sinni. I
i — Kaupmaður, er Caroit nefnist, vann ^
: verkið, 0» kvað hann hafa skuldað banka- I
7 O i
stjóranum all-mikið fé, og þeim að lík-
indum samið miður vel.
Blóma-sýning verður haldin i París í
sumar. — Mælt er, að LeopoJd, Belga
konungur, YHhehnína, Hollands drottning,
og Vilhjáhnar keisari, ætli öll að senda
blóm úr blómgörðum sínum á sýningu
þessa.
Yeitingafiússþjónar gjörðu verkfall í
París um miðjan apríl, og gat forsætis-
ráðherra Frakka áunnið það, að ágrein-
ingurinn var lagður í gjörð. svo að verk-
fallið endaði 20 apríl. — Meðal annars,
sem ágreiningi olli, var það, að veitinga-
hússþjónarnir vildu hafa heimild til þess,
að láta sér vaxa yfirskegg, og áunnu þeir
sér heimild til þess. j
Eldur kviknaði í vopnabúri í Toulon
23, april, og urðu svo mikil spjöll, að
skaðinn skiptir millj. franka. — 30 inenn
fengu brunasár.
Þýzkaland. 23. apríl vildi það slys
til á einni af aðal-götunum í Dresden,
að mótorvagn rann á hjón, som voru á
gangi, og biðu bæði bana. — Vagninn
rann síðan á vegg, og hlutu tveir menn,
sein í vagninun voru, mikil meiðsli; en
vagnstjórinn, sem eigi hafði getað haft
neina stjórn á vagninum, skundaði brott,
og hengdi sig
Vakið hefir verið máls á því, að hald-
ie yrði heimsýning mikil í Berlín árið
1913; en nú er hætt við þá fyrirætlun,
og því borið við, að óvíst sé, nema Þjóð-
verjar lendi i ófriði innan þess tíma.
Þjóðverjar hafa nýlega tekið tuttugu
rnillj. sterlibgspunda að láni, og bauðst
þeim 45 sinnum meira fé, en þurfti.
t Látinn er 10. apríl þ. á. Ifjnaz Auer,
einn af foririgjum jafnaðarmanna. — —
Svissland. Seint í apríl hefst í borg-
inni Ziirich raál gegn fimm stjórnleys-
ingjum, er uppvísir hafa orðið að því,
að hifa bóið til vítisvélar. — Ætluðu
þeir að reyna eina þeirra, og skildu hana
því eptir á almannafæri á næturþe’.i; en
lögreglumenn fundu hana, og hlauzt því
ekki slys af. — — —
Spánn. Stjórnin hefir farið fram á, acf
auka útgjöld til flotans um 600 þús sterl-
ingspunda, og vill, meðal annars, verja
því fé, til að víggirða ýmsar hafnaborgir.
ítalía. Jarðskjálftar urðu all-miklir á
Italíu 25. apríl, en ollu þó, sem betur'
fór, engu tjóni. — En um sama leyti'
gjörðist- sá atburður i dómkirkjunni í
Camarata á Sikiley, að stúlka ein æpti
upp: .Frelsi sig hver, sem getur“. — Sló-
þá svo miklum ótta að söfnuðinum, aðJ
margir tróðust undir fótum, og hlutu
mikil meiðsli.
18. apríl kom Játvarður, konungur, og
Alexandra, drottning hans, til borgarinnar
Gaeta á Ítalíu, og veitti Victor konung-
ur Emanuel konungshjónunum beztu við-
tökur. — Tólf itölsk herskip, og tólf
tundursnekkjur, tóku á móti konungsskip-
inu, með fallbyssuskotum og húrra-ópum.
— Bæjarstjórnin í Gaeta sendi og Alex-
öndru, drottningu, fagran blómsveig, er
á var letrað, að hann væri til „heimsins
voldugustu og fegurstu drottningar“. —
Ekki fór Játvarður konungur til Róina-
borgar, og mun það valdið hafa, að hann
vildi eigi styggja stjórn Frakklands, sem
er lítill vinur Píusar páfa X. um þessar
mundir.
Yms blöð láta i Jjósi, að funuur kon-
unganna i Gaeta muni Jeiða til meira
vinfengis rnilli Breta og Itala, og er jafn -
vel gert ráð fyrir, að Bretar, Frakkar,.
Spánverjar og ItaJir, muni gjöra með sér
bandalag, og likar Þjóðverjum því þetta
vinfengi Breta og Itala mjög illa, enda
hafa Italir lengi verið bandamenn Þjóð-
verja og Austurríkis. — — —
Austurríki og IJngverjaland. 12. apríl
varð járnbrautarslys í grennd við Dorozsma,
og biðu 4 menn bana, en 23 hlutu meiðsli.
Púðurforðabúr i Mals sprakk í lopt
upp 24. april, og biðu 2 menn bana.
f Dr. Mosetíg, frægur læknir, drekkti
sér i Dóná 26. apríl síðastl., sakir geð-
veiklunar. — Hann er kunnastur af því,
að hann tók fyrstur lækna að nota joðo—
formið.
Vatnsflóð urðu mikil í Tyrol í april,
er sópuðu burt brúm, skemmdu járnbraut-
ir o. f 1., og streymdi vatnið inn í mörg
þorp, og ollu ýmsuin skemmdum. — Mann-
tjón varð þó lítið, því að eigi er þess
getið, að drukknað liafi, nema fjórir menn.
Rússland. Agreiningur varð milli rik-
isþingsins og Stolypin’s, forsætisráðherra,
og var tilefníð það, að þingnefodir höfðu
leitað upplýsinga hjá utanþingsmönnura,,.
að því er snerti hungrið í ýmsum héruð-
um landsins o. fl. — Taldi Stoiypin þacf
ólöglegt, og vildi, að þingnefndirnar leit-
uðu til stjórnarinnar, ef þær teldu sig
vanta einhverjar skýrslur, eða Þiðbeining-
ar. - Agreiningur þessi jafnaðist þó á
þann hátt, að nefndunum skyldi heimilt,
að leitu álits utanþingsmanna, ef þeir eigi
tækjn að neinu leyti þátt í störfum nefnd—
anna.
Golovin, forseti dumunnar, hefir mót—
mælt því, að stjórnin láti lögreglumeDn
yera i, þinghúsinu, nema forsetar þingsins'