Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.05.1907, Side 2
93
Þjóðviljinn.
XXI., 25.
Þýzkaland. 1. maí rann járnbrautar-
lest á sporvagn í Berlín, og biðu tveir
menn bana, en ellefu hlutu meiðsli
4. maí varð bruni mikill í Bremen, og
•er skaðinn metinn 6 millj. rígsmarka. —
Meðal annars brunnu þar 20 þús. ballar
af bómull.
Þjóðverjar hafa tjóð sig þvi móthverfa,
að rætt sé um takmörkun herbúnaðar á
friðarfundinum í Haag. — — —
Austurríki. 4. maí var nafnkunnur
myndhöggvari í Yín, Huttírer að nafni,
veginn, rekinn í gegn, og var aðstoðar-
maður hans, er hann hafði fyrirskömmu
látið fara frá sér, valdur að vorknaði þess-
um. — — —
Rússlaud. Mælt er, að stjórnin sé
hrædd um; að töluverður byltingahugur
sé í hernum, ekki sízt að því er setuliðið
í Oronstadt snertir, og hafa margir verið \
handteknir í Pétursborg og í Moskva.
Nýiega var járnbrautargjaldkeri myrt-
ur í grennd við Walkovo, og rændu morð-
ingjarnir 60 þús. rúblna.
A Síberiu-járnbrautinni, milli Atschuisk
og Irkutsk, hefir rússneska stjórnin á-
kveðið, að tvöfalda járnbrautarsporið, til
að greiða fyrir flutningum.
í Lublin á Pólverjalandi varpaði ung-
ur máður vítisvél að lögregluembættis-
manni aðfaranóttina 5. maí, og beið einn
maður bana, en annar særðist. — Sá, er
TÍtisvélinni varpaði, náðist ekki.
I pósthúsinu í Sebastopol rændu bylt-
ingamenn ný skeð 250 þús. rúblna.
Yerkfail hófst í borginni Warschau
1. maí, og var þá lokað fjölda sölubúða;
strætavagnar stóðu óhreifðir, og fá blöð
gátu komið út. — Svipað var og í verk-
smiðjuborginni Lodz.
Aicolaj keisari hefír nýlega varið 50 j
þús. sterlingspunda, til þess að koma eld- |
húsi sínu, og eidhúsgögnum, í sem bezt I
horf, og myndi fé þessu hafa verið betur
varið, til þess að seðja himgur ýmsra, er
bágt eiga á Rússlandi um þessar mundir
Hermáiaráðherrann fór þess ný skeð
á leit við þingið, að auka herliðið um
456 þús. rnanna, ,og kvað þingið verða
að gjalda því samþykki sitt. — „Talaðu
ekki við oss, oins og vér værum hermemP1,
kvað við í þingsalnum, og gerðist svo
mikil ókyrrð, að Golovín, forseti, sleit
fundi. — Einn úr flokki jafnaðarmanna
gat þess, að herlið Rússa myndi jafnan
bíða ósigur, meðan einveldið væri eigi al-
veg úr sögunni, og þjóðleg stjórn komin
í staðinn. — Niðurstaða máls þessa varð
þó sú að lokum, að þingið samþykkti
heraukann, til þess að komast hjá þing-
rofi.
Lögin um herdóma, i málum gegn
byltingamönnum, eru nú loks úr gildi
numin, eptir tillögum þingsÍDS. — Lög
þessi hafa gilt í 8 mánuði, og á þeim
tima hafa 1144 byltingamenn verið af
lífi teknir, enda telja sum rússnesk blöð,
að þau hafi alls eigi dregið úr glæpum,
en á hinn bóginn stutt drjúgum að þing-
kosningu ýmsra þeirra manna, er lengst
vilja fara. — — —
Bandaríkin. 1. maí varð námuslys í
Vestur-Virginíu, og biðu 8 menn bana,
en inargir hlutu meiðsli, og er þó eun
eigi frétt um afdrif allra námumamiaiina.
1 kolanámu í Pennsylvaniu náðust 7
menn með lifi, eptir að þeir höfðu verið
104 kl. stundir niðri í námunni, sem hrun-
ið hafði saman.
Nýlega hafa fundizt þúsund vindlar,
sem 'oúnir voru til, áður en frelsisstrið
Bandamanna hófst (1772).
5 þús. manna, er vinna að formingu
og affermingu skipa í New-York, hættu
vinnu í öndverðum maí.
Líkneski af sönglagasmiðnum Grieg,
sem enn er á lífi, hafa menn ákveðið að
reisa í Brooklyn. — — —
Mexico. 7. apríl var Borillas hers-
höfðingi,- fyrrum ríkisforseti í Guatemafa,
mj-rtur í þingsalnura í Mexíco, og hét sá
Jose Líma, hershöfðingi í Guatemala, er
verkið vann. — Heimtuðu Mexicomenn'1
hanD fram seldaD, svo að mál hans yrði
rannsakað, og dæmt, þar sem glæpurinn
var framinD; en því hefir Guatemala
neitað, og horfir því fremur ófriðlega
milli landanna. — Hefir Díaz, forseti í
Mexico, þegar sent 10 þús. hermanna til
landamæranna, og 30 þús. manna kvað
verið að hertýgja í tveggja mánaða herför.
Guatemala. 30. apríl, er Cabreras for-
seti var á ökuför, sprakk vítisvél, er særði
vagnstjórann, og Orelland, hershöfðingja,
en forseta sakaði ekki.
Nokkru síðar fannst vítisvél í grennd
við bústað forseta, svo að full alvara virð-
ist hafa verið, að ráða hann af dögum.
Marocco. I grennd við borgina Tangier,
kviknaði nýlega í tveim smálestum af
púðri, og eyddust fjögur hús, en 7 meDn
biðu bana.
Mu'ai Ilafíd, bróðir soldáns, sem var
vara-konungur í suðurhéruðum í Marocco,
hefir nýiega sagt soldáninum, bróður sín-
um, upp hlýðni og hollustu, og liefir ver-
ið kjörinn soldán þar syðra. - Hann er
maður «m þrítugt, eindreginn Mahomeds-
trúarmaður, og mikilsvirður, og kvað vera
Evrópumönnutn hlynntur. — Enn fremur
hefir Midley Aziz, frændi soldáns, látið
gera sig að soldáni í héraðinu Mazagan
2. maí síðastl., og þar sem hér við bæt-
ist, að >Baisiúi, uppreisnarforingi, stýrir
enn nokkru liði, virðast horfurnar, sem
stendur, eigi vera sem friðlegastar í Mar-
oeeo, og er því hætt við, að Frakkar, og
ef til vill Spáaverjar, skerist þar bráð-
lega í leikinn. — — —
Australía. Þess hafði verið farið á
leit við stjórnina, að liún leggði lil milljón
ekrur af landi, til aðseturs rússneskum
GyðÍDgum; on þeirri ósk hefir stjórnin í
Australíu nýlega neitað að sinni. — —
Bersaland. Þing Persa tók að nýju
til starfa 4. maí siðastl., og lýsti forsæt-
isráðherrann, Amtn es SuUan, því þá yfir,
að keisari, og ráðanoyti hsns, myndi halda
stjórrinrskrá ríkisins, og kvaðst varaforseti
þingsins vona, að þetta reyndust eigi
orðin t)in, enda tæki þjóðin þá til sinna
ráða. — — —
Kína. 2. maí sprakk púðurforðabúr í
Kanton í lopt upp, og gjöreyddust þá 15
hús, en meira, en hundrað hús urðu fyrir
skemmdum. — Þegar síðast fréttist höfðu
fundizt 21 lik, og mörg hundruð manna
höfðu lilotið meiðsli.
Talsvorðum ótta hefir það valdið, að
í þeim hluta borgarinnar Tíentsín, þar
sem Kínverjar eiga heima, sáust nýlega
blóðblettir á húsahurðum, eins og á und-
an uppreisn „hnefamanna fyrir nokkurum
árum. — — —
Korea. Þar voiu nýlega handteknir
33 menn, er gjört höfðu samtök um, að
myrða fimm ráðherra, er ritað höfðu nöfn
síd undir samninginn við Japana, er fel-
ur Japansmönnum yfirumsjá í Koreu.—
Indland. 2. maí urðu all-miklar ó-
éyrðir i Rawalpindi. Múgurinn brenndi
mótorvagna, húsgögn o. fl., rændi kirkju
kristniboða, og eyddi bóksölubúð, þar sem
trúbækur voru seldar. — Herlið var að
lokum látið skakka leikinn.
•n
&inqYallafundarbo ðið.
I Þingvallafundarboðinu, sem birt var í 20—
21. nr. blaðs vors, og samið var í fjarveru ritstjóra
blaðs þessa, er farið fram á, að menn sendi ii
fundinn „helzt einn fulltrúa fyrir hvern hrepp 4
landinu, og að líkri tiltölu fyrir kaupstaðina11,
Vér efum eigi, að kjósendur i kjördæmum
þeim, er skemmst eiga til fundarstaðarins, sendi
greinda fulltrúatölu, eða því sem næst, og að
menn i fjarlægari héruðum geri oinnig sitt ýtr-
asta til þess, að vilji hvers kjöidæmis í .heild
sinni komi sem ljósast fram á fundinum.
A hinn bóginn dylst oss eigi. að úi’ fjarþeg-
ari héruðunum eru vankvæðin á fundarsókninni
— þar sem kjördæmin munu að líkindum helzt
kjósa innanhéraðsmenn til fararinnar — mjög
mikil, eins og ferðalögum hér á landi er háttað,
og því myndi ritstjóri blaðs þessa — hefði hann
verið viðstaddur, er fundarboðið var samið —
hafa talið heppilegra, að binda fulltrúatölu kjör-
dæmanna við alþingismannatöluna, eins og gert
var á JÞingvallafundinum 1895, ög höfum vér
talið rétt, að láta þessa skoðanamunar opinber-
lega getið.
Þingmálafundur, er haidino var
að Dröngmn á Bkógarströnd 1. maí þ. á.,
tjáði sig samþykkan „blaðamanna-ávarp-
inu“, lýsti óánægju sinni yfir því, að þing
hefði eigi verið rofið, svo að þjóðinni gæf-
ist kostur á, að kjósa þingmenn, með
sérstöhu tilliti til sambándsmálsins.
Knn freniur taldi fundurinn sjálfsagt,
að Islendingar ættu einir rétt til landhelg-
innar við Island.
A fundi þessum var sír.v Lárvs Hall-
dórsson á Breiðabólsstað fnndarstjóri, en
ritari Jón Jónsson á Valshamri: "■
Ritsímaskeyti
til „ÞjóðvJ
Kliöfn 21. maí ’07.
Mælingar við strendur ísland.
Herskipið „Beskytteren“ leggur af stað
27. mai, og á. að fást við tnælingar við
Island.
Frakknoskt herskip strandar.
Erakkneska herskipið „Chanzy“ er