Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.07.1907, Side 1
Verð Argangsins (minnst
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50•
Borgist fyrir júnimán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
— -1= Ttjttugasti og fye'sti ÁKGANGUB. =1..—
RITST JÓRI: SKÚLI THO.RODDSEN, —>—
TJppsögn skrifleg, ógild
nema komið sé til útyef-
anda fyrir 30. dag júní-
j mánaðar, og kaupandi
■ samhliða uppsögninni
borai skuld sína fyrir
blaðið.
M 35.
Bessastöðum, 29. júlí.
19 0 7.
fjtj órnarskrdrbreijtingin
í síðasta nr. „Þjóðvú var stuttlega
drepið á aðal-ákvæði stjórnarskrárbreyt-
ingafrumvarpsins.
Frumvarp þetta var til fyrstu nmræðu
í .neðri deild 24. júli, og voru þá tveggja
kl.tíma umræður um málið. — Vildu stjórn-
arandstæðingar, er umræðurn var lokið,
að málinu væri þegar vísað til 2. umræðu,
eins og siður er um flest frumvörp, nema
fjárlögin, til þess að flýta fyrir meðferð
þeirra á þinginu. — En þessu hafnaði
stjórnarflokkurinn, og var tiilagan þvi
felld, að viðhöfðu nafnakalli, með 16 atkv.
gegn 8, og fyrstu umræðu málsins frestað.
I nefnd, til að íhuga frumvarpið, voru
síðan kosnir, með hlutbundinni kosningu:
Ouðl. OuðmuncLsson, Guðm. Björnsson, Skúli
Thoroddsen, Pétur Jbnsson, Hannes Þor-
steinsson, Einar Þbrðarson og Jbn Jónsson
frá Múla. Formaður nefndarinnar er Ouðl.
Guðmundsson, en skrifari Ouðm. Björnsson.
Af hálfu flutningsmanna töluðu: Skúli
llioroddsen og Stefán kennari Stefánsson,
en af hálfu stjórnarmanna: Guðl. Guð-
mundsson og Lárus H. Bjarnason.
Ef byggja má á ræðum þeirra Guðlaugs
oí Lárusar, að því er afstöðu stjómar-
armanna til frumvarpsins snertir, virðist
eigi blása sem býrlegast, að koma máli
þessu fram á þingi.
Væntanlega gerir „Þjóðvú í næsta nr.
sínu nokkra grein fvrir umræðunum, s im
udj málið urðu.
Ritsímaskeyti
til „Þjóðv.u
Kaupmannahöfn 23. júlí 1907.
Konungsförin.
Þegar „Birmau, „Atlanta" Og „Geys-
iru lögðu af stað á sunnudaginu (21. júlí),
var mikill mannfjöldi samankominn, er
kvaddi konung með húrra-ópum. — Veð-
ur var bjart og fagurt, og kveðjuskot
dundu frá virkjunum, er farið var fram
hjá. — I gær fréttist af skipunum í Skage-
rak, og var þá kyrr sjór. — „La Couru
fer héðan i kvöld. .
I grennd við Ilolstebro hengdi ráðs-
kona húsmanns nokkurs þrjú börn hans,
sem og þrjú börn, or hún sjálf átti, og
síðan sjálfa sig.
Frá Koreu.
Koisarinn hefir sagt uf sér völdum, og
selt þau í headur krónprinzinum.— Róst-
ur all-miklar í Koreu, en líklegt, ið Jap-
önum takist að sefa þær.
Manntjón.
Frá Saiifi anci«co símritað, að gufu«kip-
ið ,,Columiau hafi rekizt á annað skip, og
farizt. - Drukknuðu 69 menn, en 144
varð bjargað.
Frá Frakklandi.
Æfingatilraunir loptfarsins „Patria“
hafa tekizt einkar vel.
Kaupnsannahöfn 25. júlí 1907.
Konungur í Færeyjum.
Frá Trangisvaag er símritað, að _Birma“,
„Atlantau, „Geysiru og „Heklau hafi kom-
ið þangað í gær (24. júlí), eptir að hafa
komið við í Vogi („Waag“). — Af ibú-
um Suðureyja var helmingurinn viðstadd-
ur. — Konungur horfði i landi á þjóð-
dansa, og bauð helztu mönnum til veizlu
út á skip sitt. — I kvöld er lagt af stað
til Þórshafnar.
Eldsvoði
er í borginni Victoría í British Columbía.
gregnir frd alfjingi.
IV.
Húsmœðraskólar.
Frv. um stofnun tveggja húsmæðraskóla
bera fram í neðri deild: Pétur Jönsson,
Stefán í Fagraskógi, Stefán kennari, Jon
Magnússon og Þbrh. Bjarnarson. — Skól-
arnir skulu vera í sveit, cg hafa jörð til
afnota, og sé annar fyrir Suður-og Vest-
urland, en hinn fyrir Norður- og Aust-
urland.
Bóklega kennslan á aðallega að fara
fram með fyrirlestrum í fræðigreinum þeim.
er að húsmóðurstörfum lúta, og skál lögð
sérstök áherzla á kenoslu móðurmálsins,
sögu landsins, og að skýrð sé þýðing
konunnar fyrir heimili og þjóðfélag. —
Reikning og reikningsfærslu skal og kenna,
og enn fremur dráttlist, söng og leikfimi,
ef timi og kennslukraptar leyfa.
Verklega kennslan sé fólgin í munn-
legri tilsögn, og verklegri æfing í nauð-
synlegum heimilisstörfum kvenna, og skal
þar einkum kappkosta, að innræta nem-
endum hagsýni, þrifnað, áhuga í verkum,
reglulega vinnustjórn og heimilisforstöðu..
Aðal-námskeiðið skal vera allt að 7
i mánuðum (frá okt. til maí) ár hvert, en
I auk þess skulu vera tvö stutt námsskeið,
| annað að vorinu, þar sem nemendur fá
j tilsögn í garðrækt, og fleiri vorstörfum,
| en hitt að haustinu, og skal nemendum
i þá veitt tilsögn í notkun og geymslu
garðávaxta, og matvæla, sem og fleira,
er að bauststörfum lýtur.
Forstöðukonum skólanna eru, hvorri
um sig, ætluð 1200 kr. árslaun, auk leigu-
lauss bústaðar. — I hvorum skóla er ætl-
ast til, að 30 námskonur geti haft heima-
vistir.
Ekki er gert ráð fyrir þvi, að skólarn-
ir verði settir á fót. fyr en héruðir. hafa
skuldbundið sig til þess, að ábyrgjast 15
þús. króna framlag, til stofnunar hvorum
skóla.
HÚBmæðraskólarnir verða án efa mjög
gagnlegar stofnanir, og er því vonandi,
að mál þetta fái góðan byr á þingi.
Frestun á framkvæmd túngirðingalaganna.
Efri deild skipaði þessa þrjá menn í
nefnd, til þess að íhnga ofangreint stjórn-
arfrumvarp: Guðjón Guðlauqsson, Eir. Briem
og Steingr. Jótisson.
í flskiveiðasjóðinn
ákvað neðri deild, að 10% ef útflutn-
ingsgjaldi af síld skuli renna, og sam-
þykkti jafnframt, að útflutningsgjaldið
skyldi vera 50 aur. af tn.
Þessi tíundi hluti er ætlast til, að varið
sé til þess að efla síldarveiðar innlendra
manna.
Skipun læknishéraða.
Nefnd sú, er neðri deild alþingis skip-
aði, til þess að íhuga frv. stjórnurinnar
um skipun læknishéraða o. fl., Iiefir
eigi orðið á eitt mál sátt. — Meiri hlut-
inn (Guðm. Bjömsson, 01. Thorlacius og
Guðl. Guðm.) fallast á frv. stjórnarinnar,
og ráða að eins til nokkurra broytinga,
að því er héraða-skipunina snertir. —
Minni hlutinn (Stefán Stefánsson, þm.,
Eyf., og Jbhannes Ólafsson) vilja á hinn
bóginn eigi, að borguu sú, er læknar nú
fá fyrir aukaverk, sé hækkuð, og fara
fram á, að í Vestur-Isafjarðarsýslu séu tvö
j læknishéruð: Þingeyrarhérað (Auðkúlu-,
i Þingeyrar- og Mýrahreppur, að undan-
j skildum Ingjaldssandi) og Flateyrarherað
(Ingjaldssandur, Mosvalla- og Suðureyrar-
hreppar).
Um ósk íbúa Kjósarhrepps í Kjósar-
arsýslu og Nauteyrarhéraðs i Norður-ísa-
fjarðarsýslu í þá átt, að Kjósarhérað og
j Nauteyrarhérað fái að halaast óbreytt,
! segir nefndin i heild sinni, að „héraðs-
j búar í þessum héruðum mundu engu bet-
ur settir með læknishjálp, þótt héruðum
þessum væri haldið óbreyttum; þau séu,
sem stendur, læknislaus, þar eð þeir lækc-
ar, sem þar hafa verið, hafa farið þaðan,
talið þau með öllu ólífvænleg, fyrir fólks-
fæð og strjálbyggð“, og séu því „litl.tr
líkur til, að í þau fengist nokkur læknir
að ttaðaldri, og væri þá vor furið en heima
setið, bæði fyrir héraðsbúa og landssjóð-
innu, enda megi „teljast all-vel kleift fyr-
ir íbúa Kjósarhrepps, að ná til sín lækni
úr Hafnnrfirði nú, þegar talsímastöð er
komin þaru. — „Mótorbátaferðir eiu nú
orðar mjög tíðar um ísafjarðardjúpu — seg-
ir nefndin enn fremur „svo hægt mun
vera, að ná lækni frá Isafirði á 4—5 tím-
um alls staðar að úr Nauteyrarhéraði,
þegar talsimi er kominn yfir héraðið, sem
nú er i vændumu.
Fræðsla barna.
I Nefnd sú, er neðri deild skipaði, til