Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.07.1907, Side 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.07.1907, Side 2
138 Þjóðviljinn. XXI., 35. þess að íhuga fræðslu-frumvarp stjórnar- innar, tjáir sig frumvarpinu samþykka, og leggur að eins til, að gjörðar verði á því fáar breytingar, flestar mjög smávægi- legar. — Fræðslusamþykktarákvæðinu i frumvarpi efri deildar frá síðasta alþingi er nefndin á hinn bóginn mjög mótfall- in, telur þau að eins munu notuð á þeim stöðum, þar sem þeirra sé minnst þörf. í'járbænir til alþingis. Helztu fjárbænir, er borizt hafa til alþingis að þessu sinni, eru: 1. Cand. jur. Einar Arnórsson sækir uin 1500 kr. styrk, til þess að rannsaka réttarsögu Islands, og rita um hana. 2. Samband Ungmennafélagaíslands sæk- ir um 3000 kr. styrk. 3. Síra Arnór Þorláksson á Hesti sækir um 1000 kr., í þágu unninna jarða- bóta, og steinsteypuhúss, er hann hefir unnið á prestssetrinu. 4. Ungfrú Ingibjörg Guðbrandsdóttir i Reykjavik sækir um 600 kr. árlegan styrk, til að kenna sveitastúlkum leik- fimi. 5. Yfiríiskimatsrnaður Jón A. Jónsson á Isafirði sækir um 600 kr. launahækkun. 6. Yfirfiskimatsmaður Þorst. Guðinunds- son í Reykjavík sækir um, að laun sín verði hækkuð upp í 1600 kr., og að liann fái ferðastyrk. 7. Bæjarpóstur Guðm. Jónsson á Akur- eyri sækir um launahækkun. 8. Gullsm. Páll Þorkelsson, Beykjavík, sækir um 2000 kr. styrk, til að gefa út táknmál. 9. Guðm. skáld Guðmundsson sækir um skáldlaun. 10. Sig. Þorvaldsson sækir um 400 kr., til að stunda kennaranám í Kaup- mannahöfn. 11. Kennslukona Halldóra Bjarnadóttir í Noregi sækir um styrk, til að ferðast um Norðurlönd, og kynna sér kennslu- aðferðir og skólamál. 12. Asgrímur málari sækir um styrk, til ' að ferðast til Suðurlanda. 13. Bjarni Jónsson frá Vogi, og Jón 0- feigsson, sækja um styrk, til að semja þýzk-íslenzka orðabók. 14. Rósamunda G. Friðriksdóttir sækir um 400 kr. styrk, til að fullkomna sig í bljóðfæraslætti og söngfræði. 15. iDdriði Helgason sækir um 300 kr., til að stunda rafmagnsfræði í Askov. 16. Jón H. ísleifsson sækir um 500 kr. á ári, til að ljúka námi í efnafræði í Þrándheimi. 17. Tómas Skúlason sækir um 200 kr. st.yrk, til greiðasölu í Borgarnesi. 18. Bogi Th. Melsted sækir um styrk, til að koma á fót lýðháskóla í Árnessýslu. 19. Magnús Einarsson á Akureyri sækir um 600 kr. árl. til útbreiðslu söng- listarinnar. 20. Þóra Matthíasardóttir og Margrét Jóns- dóttir sækja um styrk, til að halda haDdavinnuskóla á Akureyri. 21. Einar Hjörleifsson sækir urn 2000 kr. árlega til ritstarfa. 22. Jónas Jónsson sækir um 300 kr. árlega, til að stunda kennaranám erlendis. 23. Ben. Gröndal skáld sækir um 300— 400 kr., sem viðurkennÍDgu fyrir starf sitt, sem rithöfundur. 24. Póstafgreiðslumaður Páll Steingríms- son sækir um 500 kr. launahækkuD. 25. Handa náttúrufræðisfélaginu í Reykja- vík er sótt um 200 kr. hækkun á styrk þeim (800 kr. á ári), sem félagið hefir haft, sem og um 800 kr. annað árið, til að kaupa jurtasafn Ólafs sáluga Davíðssonar. 26. Iijörtur Snorrason á Hvanneyri sækir um 400 kr. launahækkun á ári. 27. Guðm. J. Hlíðdal sækir um 1700 kr. fyrra árið, til að nema rafmagnsfræði erlendis, og um 700 kr. seinna árið, til að rannsaka og mæla fossa hér á landi. 28. Ó. J. Halldórsson sækir um 2000 kr. til utanfarar, vagnhjólakaupa. 29. Helgi Jónsson og Einar Helgason sækja * um 300 kr. árlega til grasgarðs í Reykjavík. 30. Hlutafélagið „Iðunn“ sækir um 50 þús. króna lán úr viðlagasjóði. 31. Edv. Brandt sækir um 3 þús. króna lán til jarðyrkjn. ■ 32. Björn Gaðnuindsson sækir um 300 kr. styrk, til að kynna sér kennsluaðferðir á lýðháskólum í Noregi. (Framhaldk Farandasalar og umboðssalar. í efri deild bera þeir Aug. Flygenring og Steingr. Jbnsson frram frumvarp þess efnis, að farandsalar og umboðssalar, sem { ekki hafa fast aðsetur hér á landi, og bjóða til kaups útlendan vaming, eða gefa j kost á að útvega, eða gjöra um kaup á J vörum, er siðar koma frá útlöndum, skuli ! leysa leyfisbréf, áður en þeir hefja at- vinnurekstur hér á landi. — Fyrir leyfis- bréfið greiðir leyfishafi 200 kr., hafi hann að eins umboð, eða vörur til framboðs, frá einu firma eða verksmiðju; en hafi hann umboð fleiri mauna, greiðir hann 100 kr. viðbótargjald fyrir hvern. Leyfisbréfið gildir í eitt ár frá dagsetn- ingardegi. Sala kirkjujarða. Nefnd sú, er efri deíld kaus, til að fjalla um kirkjumálin (Eir. Br., Sig. Stef., Gutt. Vigfússon, Sig. Jensson og Þór. Jónsson), er samþykk sölu kirkjujarða, en vill, að andvirði jarðanna leggist i sérstakan sjóð, og 8é oign kirkjujarðasjóðsins ávaxtað, sem óskerðanlegur höfuðstóll, og árlega aukin með 5% af árstekjunum; að öðru leyti ganga vextirnir í landssjóð, til að launa sóknarpresta þjóðkirkjunnar. Kalmausárós við Hvalfjörð. í neðri deild ber Þ'orh. Bjarnarson fram frv. um löggilding verzlunarstaðar við Kalmansárós við Hvalfjörð. Lögregluaðstoðarmannssýslan. NefndÍD í málinu um breyting á til- tilskipun 20. apríl 1872, um bæjarstjórn í Reykjavík, leggur til, að ráðherrann skipi lögregluaðstoðarmann í Reykjavík, frá 1. júlí 1908, með 1400 kr. árslaunum, er greiðist úr landssjóði. Ritfé það, sem bæjarfógetaembættinu er lagt úr landssjóði, falli niður, er em- bættið losDar. Þinghlé. Sakir væntanlegrar koinu konungs, og annara ge9ta, var fundum alþingis frest- að 26. júlí, udz konungur fer héðan aptur. Sakir þinghlés þessa er gert ráð fyrir, að alþingi verði eigi slitið, fyr en um 10. sept. Fni ísafirði. er „Þjóðv.“ ritað 20. júlí þ. á.: Tíð góð, en þurrviðrasöm, og grasspretta því lítil. — Fiski- afli á báta, og á þilskip, i betra lagi, og síld nægileg í vörpum hór á ísafirði, og ytri fjörð- unum við vestanvert djúpið. Taugaveiki hefir stungið sér niður i Hrútafirði, og eru þar 4 heimili sóttkvíuð. Úr Strandasýslu herma nýkomnar síma-fregnir, að vel hafi rætzt úr með grassprettuna, þótt útlitið væri þar mjög hörmulegt lengi fram eptir. Þýzkir feröiinienn drukkna. Þýzkur jarðfræðingur, dr. Iúicbej og málari B.udloff að nafni, drukknuðu nýskeð í vatni, sem er í einum eldgígnum í Oskju. — Höfðu þeir félagar farið frá Reykjavík sjóleið til Akureyr- ar í öndverðum júní, og héidu þaðan upp á fjöll, og var Ogmundnr kennari Sigurðsson í Hafnar- firði leiðsögumaður þeirr-a. —- Hafði Ogmundur i brugðið sér til Akureyarr, til þess að kaupa vist- ir, og varð slys þetta, ineðan hann var i þeirri för. -- Höfðu þeir Knebel og Rudloff haft bát meðferðis, og hafa farið á honum út á vatnið. Dr. Knebel hafði áður ferðast tvisvar hér á landi, og hefir hann ritað ýmislegt um ferðir sínar í tímarit á Þýzkalandi. Konungskouian. Gert er ráð fyrir, að Friðrik konutigur komi í land þriðjudagsmorguninn 30. júlí kl. 9. f. h., og býður ráðherra hann þá velkominn með nokkr- um orðum, og þegar konungur gengur upp bryggj- una, verður kvæði sungið, eptir skáldið Matthias Jochumsson, og ekur konungur síðan að brúnni, sem liggur yfir lækinn upp að latínu skólanum, þar sem honurn er ætlaður bústaður. Kl. 10. f. n. koma ríkisþingsmennirnir í land og heilsar forseti sameinaðs [iings Eir. Briem, þeim á bryggusporði með nokkrum orðum, og fara þeir síðan til bústaðar síns á hótel „Reykja- vík“. Kl. 2 e. h. verður haldin móttökuhátíð í al- þingishúsinu. — Ráðherrann býður þá konung, og ríkisþingsmennina velkomna, og konungur svarar; en fyrir, og eptir, verða sungin hátíða- ljóð, eptir Þorstein skáld Gislason, og hefir tón- skáldið Sveinbjörn Sveinbjörnsson samið lagið við þau. Sama dag kl. 6 e. h. verður konungi og rík- isþingsmönnunum haldin veizla, í nafni þings og stjórnar, og sitja þá veiziu 250—270 rnanns. — Daginn eptir heldur alþingi ríkisþingsmönn- um veizlu, en konungur er þá í veizlu hjá ráðherra. Að landferðinni austur lokinni heídur bæjar- stjórn Reykjavíkur konungi, ríkisþingsmönnu'n o. fl. dansleik að kvöldi fíramtudagsins 8. ágúst, og er gert ráð fyrir, að þar verði alls 400—500 manna. Daginn eptir, föstudaginn 9. ágúst, heldur alþingi konungi og ríkisþingsmönnum morgun- verðarveizlu, og í ráði mun vera, að konungur hafi boð á skipi sínu „Birma“ að kvöldi sarna dags. Á þjóðhátíðinni, er haldin verður á Þingvöll- um 2. ág., verða ræður haldnar að Lögbergi, og sungin „Lögbergsljóð“, er síra Mattlnas Jochums- son hefir kveðið. — Þar verða sýndar glímur, og danspallur mikill er þar reistur, til þess að menn geti skemmt sér sem bezt. — Lúðrasveit Reykja- víkur leikur þar einnig á lúðra, og flugeldar verða sýndir um kvöldið. — I miðdegisveizlunni, sem konungi og ríkisþingsmönnum verður hald- in að Þingvöllum, verður sungið kvæði, eptir Steingrím rector Thorsteinsson. Skipsbruni. Frakkneska fiskiskipið „Norma“, frá Dukeryne brann 4. júní síðastl. 1—2 mílur undan landi, og var skipverjunum, 18 að tölu, bjargað af frakkneska fiskiskipinu „Figaró“, er flutti þá í land að Kálfafellsstað. — Fóru skipverjar síðan þaðan til Fkskrúðsfjarðar._ jjög, afgreidd af alþingi. Þessi lög hefir alþingi þegar samþykkt: I. Lög um breyting á lögum 10. febr. 1888, um söfnunarsjóð íslands. (Breyt- ing þessi fer í þá átt, að gera sötnunar- sióðnuin auðið, að greiða meira, en Al% vexti af innlögum i sjóðinn.) II. Lög um ákvörðun tímans. (Að telja skuli eyktir á íslandi eptir ineðal- sóltíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenvich.) III. Lög um manntal í Reykjavík. (Að maDntalið skuli fram fara á tímabil- inu frá 20. til 30. nóv. ár hvert,) IV. Lög um vemd ritsíma og talsíma neðan sjávar. (Sérstök hegningarákvæði sett, ef ritsímar eða talsímar ueðan sjávar eru 9kemmdir af ásettu ráði, nema slitið, eða skemmdirnar,Jiafi verið framkvæmt í þeim tilgangi, að vernda líf manna, eða skipa frá háska. ■— Enn fremur varða skemmdirnar og að sjálfsögðu skaðabót- um.) V. Lög um breyting á lögum 8. okt. 1883 um bæjarstjórn í ísafjarðarkaupstað. (Bæjaistjórninni húmilað, að setja bygg- ingarsamþykkt fyrir kaupstaðinn, og vald hennar ynr byggingarmálunum rýœkað. — Enn fremur eru og hafoarmálefnin fengin bæjarstjórninni í hendur.)

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.