Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1908, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1908, Qupperneq 2
118 Þjóðvljinn. XXII., 30. um í Kansas. — HruDdu þar mörg hús, og 51 maður beið bana. — I Gladstone í Kalíforniu fórust og 23 menn. 5. júní rákust tveir sporvagnar á í Baltímore, og biðu 8 menn bana, en 20 urðu sárir. — — — Kína. Fólksflutningaskipi hvolfdi ný skeð á Amurfijóti, og drukknuðu alls 89 menn. — — — Persaland. Keisarinn („shahinnu) hefir farið brott úr höfuðborginni, Teheran, eða flúið þaðan, og hefir þingið skorað á hann, að hverfa heim tafarlaus, þvi að ella taki það til annara ráostafana. Keisarinn hefir á hinn bóginn vikið ýmsum embættismönnum úr embættum, og sett aðra í þeirra stað, sem honum, og hirð hans, er betur að skapi. — Nokkr- um embættismönnum hefir hann og vís- að úr landi, og vilja ráðherra sinna sinnir hann alls eigi. Þingið hefir heimtað, að keisari láti dómstólana skera úr, hvort embættismenn þeir, sem liann hefir rekið úr landi, h»fi gjörzt sekir í landráðum; en þvi hefir hann neitað, og hótað, að láta sprengja borgina Teheran í lopt upp, ef ráðstöfun- um hans sé veitt mótspyrna. Þetta hefir, sem von er, valdið mikl- um æsingum i Teheran, og jafuan er mik- il) mannfjöldi í grennd við þinghúsið, til þess að verja þingmenn, ef á þarf að halda. Mælt er, að keisari hafi, þrátt fyrir aðfarir þessar, talsvert fylgi meðal þjóð- ariunar. — •5553555.....g# Sambandslagafrumva! pið. (Freg-nir úr héruðuin). Bjarni Jbnsson frá Vogi, er býður sig fram til þingmennsku í JJalasýslu brá sér nýlega þangað, og hélt þar átta fundi, og er þass eigi getið, að neinn hafi greitt frumvarpi meiri hluta sambandsnefndar- innar atkvæði á fundurn þessum, en á 6 fundum voru í einu ldjóði samþykktar til- lögur þess efnis, að krefjad breytinqa á frumvarpinu í þá átt, sem breytingartillög- ur minni hlutans (Sk. Th.) fara. Framsögumenn að tillögum þessum segir „Ingólfur“, að verið hafi: síra As- y&ir Asqeirson í Hvammi, Eggert Magn- ússort í Tjaldanesi, Indriði Indriðason á Ballará, Magnus Friðrilcsson á Staðarfelli, prófastur Ól. Ólafsson Hjarðarholti, og síra Sveinn Guð<»undsson í Skarðsstöð. Mælt er, hr. Bj. J. hafi mikinn byr í kjördæminu, og að þingrnannsefni stjórn- arflokksins, hr. Asgeir Jorfason, efnaíræð- fræðingur, sem einnig hafði brugðið sér vestur í Dalasýslu, til þess að leita sér þar kosninga-fylgis, sé hættur við þing- mennskuframboð. Hr. Einar Hjörleifsson, fyrrum ritstjóri, hefir nýlega haldið stjórnmálafundi í Vest- ur-Skaptafelhsýslu, og mun vera tvísýnt, að Guðlaugur sýslumaður Guðmundsson verði endurkosinn þar, með þvi að fjöldi ikjósanda kvað vera sambandslagafrum- varpinu andvigur. Úr Húnavatnssýslu berast þær fregnir, að allur þorri kjósenda sé sambandslaga- frumvarpinu öndverður, og muni stjórn- armönnum því eigi til neins, að leita þar kosningtir. í Skagafjarðarsýslu hefir Stefán kenn- ari Stefánsson haldið fundi að Reykjum, Sauðárkrók, og á Hofsós, og mælt ein- dregiðnieð sambandslagafrurnvarpinu, sem vænta mátti. A Sauðárkróksfundinum mæltu þeir sira Hallgrímur Ihorlacíus í Glaumbæ, og Pálmi kaupstjóri Pétursson, gegn frumvarp- inu, og er mælt, að það muni eiga frem- ur fáa stuðningsmenn í Skagafjarðarsýslu. — Fregnir af fundum þessum eru þó enn óljósar. Fullyrt er, að Ólafnr Briem só frum- varpinu mótfallinn, og muni hann gefa kost á sér til þingmennsku, ásamt ein- hverjum öðrum, sem likrar skoðunar er. Sennilegt, að kosningar-róðurinn verði því ali-örðugur hjá Stefáni kennara Stef- ánssyni að þessu sinni. Mælt er, að Sigurður bóndi Jónsson á ArnarvatDÍ bjóði sig fram tiiþingmennsku í Suður-Þingeyjarsýslu, og sé á móti sam- bandslagafrumvarpinu, en hittþingmanns- efnið, Pétur Jbnsson á Gautlöndum, frum- varpinu fylgjaudi Óskandi, að Sigurður verði hlutskarp- ari við kosningarnar. í Mýrasýslu hefir Þorsteinn skáld Er- lingsson nýlega verið á ferð í kosning&r- j erindura. Hann er einbeittur gegn sam- | bandslagafrumvarpinu, og er vonandi, að Mýramenn veiti honutn f'remur fylgi sitt, en hinu þingmannsefninu, yfirdómara Jóni Jenssyni, sem er frumvarpinu fylgjandi' I Borgarfjarðarsýslu keppa þeir Krist- ján háyfirdómari Jónsson og dbrm. Björn Bjarnarson i Gröf um þingmennsku, og hafa haldið þar fundi — Björn er flokks- maður stjórnarinnar, og ekki líklegt, að hann greiði atkvæði gegn þvi, er hún fylgir fram í sambandsmálinu, enda höf- um vér heyrt, að hann hafi verið frum- varpinu fylgjandi fyrst, þó að fylgi hans væri öllu linara á síðustu fundunum, sem Kr. J. og hann héldu í Borgarfirði — Yæntanlega hafna Borgfirðingar eigi jafn reyndum, og nýtum þingmanni, sem há- yfirdómari Kr. Jönsson er. Ritsímaskeyti til „Þjóðv.L Kaupmannahöfn 24. júní 1908. Persa-konungur tekur þinghús Persa. — Stórskota-orusta. — Manndráp. — Rán. (Um ástandið í Persalandi er getið í útlendu fréttunum, sem birtar eru fremst í blaði þessu, og er nú svo að sjá, sem þar sé byrjuð borgarastyrjöld.) Jerzlunarírcttir. Frá Kaupmannahöfn hafa „Þjóðv.u borizt þessar verzlunarfréttir 6. júuí þ. á.: Saltfiskur hetir lækkað í verði í vor, og er nú 5 - 6 kr. lægri á Spáni, en hann var um miðian tnaí. — I Kaup- mannahöfn hafa ýmsir selt austfirzkan og norðlenzkan fisk fyrir fram þannig: mál- fisk á 71 kr., smáfisk á 62 kr. og 50 aur., og isu á 53 kr., skpd., en áskilið, að var- an só vönduð og ve) verkuð. I Kaupmannahöfu er verð á vestfirzk- um jagtafiski, vel verkuðum, um 82 kr. skft., laDga á 5S—60 kr., keila á 55 kr., og upsi á 40 kr. — Síld hefir lækkað i vorði, og er göm- ul sild litt seljanleg, neraa hún sé því betri vara, og mundu þó að eins fást 10 —12 kr. fyrir tunuuna. — Fyrir nýja síld fengjust að líkindum 14 kr. fyrir tunn- una. — tjýsi fremur að lækka. — hákarls- og selslýsi selst á 31—32 kr., en þorska- lýst á 30 kr., 210 pd. Meðalalýsi er litt soljanlegt, og naum- ast von um hærra verð, en 34 kr. fyrir 210 pd. - Sundmagar seljast að líkindum fyrir 60 aura. — Hrogn á 15 kr. tunnan, séu þau ný. — Gömul hrogn eru óseljanleg. — XTll. Að því er hana snertir, eru söluhorfur mjög slæmar, með þvi að í Ameríku er nú alls engin íslenzk uli keypt. — Fyrir beztu hvíta vorull, norðlenzka, myndu að líkindum fást um þessar mund- ir 60 aur., en 55 aur. fyrir sams konar ull úr Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum. — Fyrir sunnlenzka og vestfirzka vorull, hvíta, fengjust á hinn bóginn líklega að eins 52 aur. — Æðardúnn selst á 11 —13 kr., eptir gæðum. — I nii, hvít á 50—60 aur., mislit á 25—30 aur., og gölluð lambskmn hálfu lægri í verði, en mislit. — Selskinn- Dröfnótt selskinn, ó- gölluð, hafa verið seld fyrir fram á 5 kr. hvert. — JPrjónles- Af sjóvethngum er mik- ið óselt, og er ekki bvust við hærra verði, en 25 aur. fyrir parið. -- Sokkar eru í hærra verði, og vænzt sama verðs, sem síðastl. ár. Prestakall veitt. Holt í Önundarfirði var 13. júuí veitt síra Páli Stcphensen k Melgraseyri, samkvæmt kosn- ingu safnaðarins. Aí’mæii Jéns Sigurðssonar. ísfirðingar minntust þess IT.júni’í Goodtomplara- húsinu á ísafirði á þann hátt, að sungin voru samkomuljóð, er GlutÍM. skáld Guðmundsson hafði ort, og enn fremur kvæði um ísland, eptir Lárus Thorarensen. — Fyrir minni J&ns Sigurðs- sonar mælti hæjarfógeti Magnús Torýason, banka- stjóri Helgi Sveinsson fyrir minni íslands, og Sigurjon kennari Tónsson minntist Ísafjarðarkaup- staðar. Ólafsviknrprestakall. Um prestakall þetta hafa þessir sótt: sira Jóhannes L. L. Jóhannesson á Kvennabrekku, eand. Guðm. Einarsson í Reykjavík, síra Sig. Guðmundsson, fyrrum aðstoðarprestur í Ólafsvík j og síra Vilhjálmur Briem k Staðarstað. I Kennaraskélinn. I Við hinn væntanlega kennaraskóla í Reykja- j vík er síra Magnús Ilelgason skipaður skólastjóri frá 1. okt. þ. á., en kennarar, dr. Bi'órn Bjarna- son frá Viðfirði og cand. mag. Ólafur Dan. j Daníelsson. I Settur prðfastur. Síra Þórður Ólafsson á Jíöndum í Dýrafirði er 15. júní settur prófastur í Vestur-ísafjarðar- sýsluprófastsdæmi. Prestkosning. fór fram að Stað í Steingrímsfirði 15. júní, og hlaut síra Guðkiugur Guðmundsson, prestur í Skarðsþingum, 78 atkv. af 100 atkvæðum, er greidd voru. — Síra Böðvar Eyjólfsson, aðstoða- prestui- í Árnesi, hlaut 19 atkvæði. Verselu narbluð. Mánaðarblað, sem ræðir verzlunarmálefni, eru Grímólfur H. Ólafsson og Ólafur Ólafsson, verzl- unarmenn, nýiega farnir að gefa út í Reykjavík. — Árgangurinn kostar 3 kr. Próí í guðfrœði. Embættisprófi við prestaskólann luku 22. þ. m. Þorsteinn Briem, er hlaut I. einkunn 95 stig Guðbr. Bjórnsson „ — I. — 87 — og ' Brynj. Magnússon „ — I. — 84 —

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.