Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.01.1909, Side 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.01.1909, Side 2
6 Þj ÓBVLIJ iSTíf . XXIIT., 2. Donum af sinni sláttu, saKÍr þess, að tækin og vinnan yrði ekki þeim mun ó- dýrari, sem framleiðslan væri minni. Þess- vegna væri það sjálfsagt heppilegt fyrir Isieodinga, að vora i félagi viðDani,eða aðrar Norðurlanda þjóðir um peningasiátt- una, en á þann hátt, að þeir fengju sinn hlut af ágóðanum. Jafn framt ættu og Danir, að greiða Islendingum ágóða þann, sem þeir hafa af því haft, að valdbjóða hér dansba peninga, með ákveðinni fjár- upphæð eptir samkomulagi, eða gerð ó- vilhallra manna. Hitt verð jeg að telja alveg óhæfilegt, aö myntrétturinn sé falinn Döuum end- urgjaidsiaust um langt árabil að minnsta kosti, eins og gert var ráð fyrir í upp- kasti milíilandanefndarinnar. L. Ritsímaskeyti. til „Þjóðv.w —o— Kaupmannahöfn 14. janúar 1909. Frá Tyrklandi: Samningar gerðir milli Tyrklands og Austurríkis. Tyrkland fær Novíbazar og 60 millj. austurrikskra króna fyrir landmissinn. Friðarhorfur. (Eins og áður hefir verið getið um í blaði voru, lýsti Franz Jósep, Austurrík- iskeisari, því yfir 5. okt. siðastl., að hann inniimaði fyikin Bosníu og Herzegovínu tii fulls í ríki sitt. — Ibúatalan í hóruð- um þessum er samtals uin D/2 milljón, og hafði Austurrikiskeisara með friðar- samningunum í Berlín 13. júni 1878 ver- ið faliu yfirumsjá i héruðum þessurn, er áður lutu Tyrkjasoldáni. — Ibúar eru flestir serbnesks þjóðemis, og vakti ofan- greind ráðstöfun Austurríkiskeisara megna óánægj i i Serbíu, Tyrklandi og öðrum ríkjum á BalkanskagaDum, sem tóku að hervæðast, og horfði all-ófriðvænlega um hríð. — En nú hafa, að því er símskeyt- j ið skýr:r ffá, komizt þær sættir á milli ! Tyrkja og Austurríkismanna, að Austur- j ríkismenn halda nefndum héruðum, en j láta Tyrki íá héraðið Novíbazar, og fjár- upphæð þá, sem símskeytið nefnir). Böndinn á Hrauni. —0— Á Rnnað dag jóla var leikur þessi, sem getið hefir verið hér i blaðiuu, fyrst sýndar á leiksviði. Yiðtökurnar voru góðar, en stórhrifnir voru áhorfendurnir auðsjáanlega ekki. Sveinunga bónda leik- ur Árni Eiriksson. Er það vandamesta hlutverkið, enda fer því fjarri að leikur hans sé gallaiaus, göngulag og limaburð- ur ber vott um rniklu veiklundaðri og kjarkn inni mann, en Sveinungi er, og ólíklegt mun mörgum þykja, að Svoin- ungi skilfi og DÖtraði allur á beinunum, þótt eitthvað bæri út af ioið. Og i mínum augum getur það ekki átt sór stað, að SveinuDgi eða iíkar hans hegðuðu sér eins og leikandinn siðast í leiknum, þá er bann er orðinn einn eptir við bæjar- rústirnar. Það er langlíklegast að hann drepi sig í hreinu og beinu æoi, og þá hetði hann ekki verið að skögra fram og aptur, líta yfir túnið, kíkja inn í rústirn- ar, hann hefði gengið rakleitt og án þess að reika inn i rústirnar. Hann á í erigri baráttu við sjálfan sig, hann er í engum vafa um, að það eina sem hann getur gert, er að drepa sig. Hann getur ekki unnið bug á ofureflinu, en honum getur heldur aldrei dottið í hug að flýja. Því er eins varið með hann og sagt var um um Khrl XII Svíakonung. „Á hæl ei hopa kunni, en hnigið að eins gat.w Þá ber og rni.klu minna á kæti hans í fynta þætti, þegar komið er úr kaup- staðDum, en vera ber. Jóruon húsfreyja (Þ. S.) er allsstaðar sæmilega leikin, og sumstaðar mikið vel t. d. þar sem hún segir dóttur sinni ástarsögu sína, hvernig hún þar handleikur prjónana er ágætt. Þá er Sölvi (J. B. W.) prýðilegaleikinn, og Ljót (S. GL) einnig mikið vek Leik- ur þeirra, þá er Sölvi gefur henni fugls- haminn er snildar góður, sérstaklega þar som þau kveðjast. Leikurinn í gjánni er og mjög góður, þó er mér nær að halda, að hann sé helzti kaldur, sérstak- lega frá Ljótar hlið. Þá er og Jakobína kerling (E. I.) mjög vel leikinD, sá einn galli þykir mér á þeim leik, að húu segir Sveinunga drauminn, likara því, sem það væri ung tilfioningarnæm stúlka, en göm- ul kerlingarnorn. Yinnufóikið er allt vel leikið, og Indriði (H. H.) ágætlega. I öðrum þætti talar fólkið alt of hátt, þeg- ar hiæðslan hvílir á mönnum sem mara, iækka þeir einmitt röddina, og enginn vali er á þvi að fólkið er hrætt. Að öllu samanlögðu má þó segja, að leikendurnir leysa starf sitt velaðhendi og er leikurinn þess vel verður að vera sóttur. Það gæfi ekkert fagra hugmynd um menningarstig bæjarbúa, ef aðsóknin á „Bóndann á HraunÞ yrði ekki meiri en á jafn lítiifjörlegan leik sem „Skuggasveinw. Þakkir á leikféiagið skilið fyrir að hafa ráðist i að sýna leik þenna, og vand- að til hans, sem föng voru til. L. ’Zaamaí Enda þótt ritstjóri „Þjóóv.11 geri eigi athugasemdir við greinar eptir aðra, sem í blað- inu hirtast, hvort sem með nafni höfundarins eru, eða birtar undir einhverju dularnafni eða dularmerki, óskar hann, að eigi sé litið svo á, sem hann sé samþykkur þeim skoðunum, sem í siíkum greinum er haldið fram. Ýms atvik geta valdið því, að ritstjórinn hafi eigi tök á því, að gera athugasemdir i svip, eða þyki þess eigi brýn þörf. Húsbruui. Nýársdagskvöldið brann timburhús, og bær í Siglufjarðarverzlunarstað, hvorttveggja eign Jdns kaupmanns Jóhannessonar á Siglufirði, og kvað það hafa verið í 5500 kr. eldsvoða-ábyrgð Búnaðarfneðsla við Þjórsárbrú. Búnaðarnámsskeiðið hófst við Þjórsárbrú i öndverðum janúar þ. á. — G-arðfræðingur, Einar Helgason, Magnús dýralæknir Einarsson, og ráða- nautur Sigurður Siqurðsson, annast um kennsluna Um kirkj utokiu í irnessýslu er „ísafold11 nýlega skrifað þat' að austan. „Hólakirkja var hundin á 4 stöðum, með sterk- um járnböndum, neðst niður í grunn, og stífur undir gólfinu á aila vegu út í grunninn; en það dugði ekki; grunnurinn rótaðist um, þar sem járnhöndin voru, og kirkjan tókst á lopt, og hentist í hoilu lagi fram undir tuttugu faðma, upp í miðja hrekku fyrir ofan bæinn, sjálfsagt einum 4—5 álnum hærra, en þar sem húnstóð. i. — Þav klesstist hún saman, og sat kyr, nema kórinn. — Hann hafði losnað frá, og hélt áfram . yfir balann, og er dreifin úr honum alla leið út á mýri. — Ekki er aðal-kirkjan mjög mikið hrot- - in. Núpskirkja (á Stóra-Núpi) hafði tæzt mjög í Sundur. — Hún lenti þó innan kirkjugarðs. .---- Síra Valdimar var svo hoppinn samt, að altarið hrotnaði ekki. — Þar átti bann mjög mikið af, óprentuðum handritum sínum, og ýmislegt, sem hann þorði oigi að geyma í húsinu, vegna bruQa- hættn. Hrepphólakirkja var ekki noma 3 ára, og þótti vera mjög vönduð, enda er í stórskuld. eptir. Núpskii'kja var eldii, en þó ekki gömul — Hún var vel vandað guðshús og stæðilegt11,. Veðrið aðfaranóttina 29. des., er nefndar kirkjur fulru, svo sem getið var um i s.íðasta nr. hlaðs vors, hafði verið afskaplega , hvasst,. svo að menn muuu eigi slíkt. Fólksfjöldinn í Reykjavik. Við manntalið i síðasti. nóvembermá'nnði var- fólkstalan i Beykjavík alls 10938. 25 ára afmæli Gioodtemplara-reglun,nar. 10. þ. m. minntust Goodtemplarar í Reykjavík 2Ö ára afmælis reglunnar. — Gengu.þeir i skrúð- göngu ft'á Goodtemplarahúsinu kl. 2. e. b, nrn allar aðal-götur bæjarins, og voru. hornleikar i fararbroddi. — Báru temlarar fána;. og voru skrýddir einkennum sínum. — Námu þeirsiðan staðar hjá dómkirkjunni, og tuc'ifat guðsþjónuf(tu- gjörð kl. 3 e. h. — Sté Haraldur prestaskóla- kennari Níelsson í stólinn, ag talaði um Good- templar-rogluna, og starfsemi honnar hér á landi síðastl. 25 ár. — Templarar höfði og boðiö ýms- um bæjarbúum, að vora við guðsþjónustugjörð- ina, og var dómkirkjan alskipuð fólki. Kl. 6. e. h. héldu Teamplrar blysför, og báru blysin um aðalgöturnar í rniðbænum, og er það lang-fjömennasta blysför, sem haldin hefir verið í Reykjavík, og var mörgum góð skemmt- un, að horfa á hana. Kl. 8. e. h. héldu Templarar samkomu i Good- templarahúsinu. —- Þar flutti stórtemplar Þórð- ur J. Thoroddsen ræðu, og las upp samfagnaðar- skeyti, er borizt höfðu frá konungi, ráðherra frá stórstúku Dana, stórstúku Svía. o. fl. — Fríkirkjuprestur Ólafur Olafsson mælti fyrir minni íslands, en Quðm. landlæknir Björnsson fyrir minni Goodtemplarareglunnar, og á eptii ræðu hans voru sungin „hátíðaljóð11, kvæða- flokkur í 5 köflum, og hafði Sigfús Einarsson, söngfræðingur, samið lag við ljóðin, og stýrði hann sjálfur söngnum. — Siðar um kvöldidið las Quðm. skáld Magnússon upp kafla úr óprentaðri skáldsögu eptir sig, en Stefán Bundlfson las upp þýdda sögu, og ungfrú Elín Muttlúasardóttir söng nokkur sönglög. Kl 10 um kvöldið hófst samsœti á Hótel ís- land, og tóku um 100 manna þátt í því. — Voru þar ýmsar væður fluttar, og kvæði sungið eptir Quðm. skáld Guðmundsson á ísafirði, og hafði Árni Thorsteinsson samið lag við það. — Sam- sætið stóð til til kl. 3 um nóttina. Dansleikur var og haldinn í Báruhúð, er stóð langt fram á nótt. Lögfræðispróf. 8. janúar lauk Bogi Brynjólisson embættisprófi í iögfræði, við háskólann í Kaupmannahöfn, og hlaut I. einkunn.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.