Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.05.1909, Blaðsíða 1
ÞJOÐVILJINN.
—_^|= TuTTUÖABTI 06 ÞEIBJI ÁBflANGUE. =-
Vppsöc/n skrifleg ögild
nemrt komið ai til útgeý-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupancLi
samliliða uppsögninni
borgi skuld s'ma fyrir
blaðíð.
19 09.
Vcrð árgangsins (minnst j
60 arhir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Btrgist fyrir júnlmán-
aðarlok.
M 21.
TJtlönd.
—0—
Helztu fréttir, er borizt hafa frá út-
löndura eru:
Danmörk. Vinnuhjú og verkraenn úr
sveitum í Danmörku, eða öllu heldur full-
trúar þeirra, héldu fund í Kaupmanna-
höfn 8. apríl, og snerust kröfurnar eink-
um um st}'ttan vinnutíraa, og um hærri
verkalaun.
f I apríl andaðist Hammershaimb,
fyrrum prófastur á Færeyjum, 90 ára að
aldri. Hann hefir safnað ýmsum þjóð-
siigum Færeyinga, ritað um tungumál
þeirra o. t’l.
Dáinn er 9. apríl þ. á. Carl Ih. Sclitegel,
hershöfðingi að nafnbót. — Hafði hann
tekið þátt í orustunni við Isted 25. júlí
1850, þar sem 36 þús. Dana börðust við
30 þús. slésvík- holsteinskra uppreisnar-
manna, og Danir hröktu uppreisnarmenn
út úr Suður-Jótlandi, þótt Schleppegrell,
hershöfðingi þeirra félli.
I apríl andaðist og Jakob Hansen,
skáldsagnaböfundur, að eins rúmlegafer-
tugur. — — —
Svíþjóð. Seint í maí leggur prófessor
Otto Nordenskjöld af stað til Grænlands,
ásamt floiri sænskum vísindamönnum, í
vísindalega rannsóknarferð. — — —
Bretland. Kitchencr lávarður, aðal-
hershöfðingi Breta á IudUndi, sieppir
þeirri stöðu, og heitir sá Craigli, er kem-
ur í hans stað.
10. apríl þ. á. varð Booth, aðal-foringi
hjálpræðishersins áttræður. — — — \
Italía. Þar gjörðist nýlega svo róstu-
samt á þingi, að í handalögmál sló í
þingsalnum. — — —
Serbía. Mikið hefir verið spjallað um
það, að Petur konungur vilji afsala sér,
og ættmönnum sínum, öllu tilkalli til
ríkis í Serbiu, og voru ýms blöð í Norð-
urálfu jafn vel farin að tala um Valdimar,
prinz í Danmörku, sem líklegt konungs-
efni, en aðrir nefndu Vilheim, prinz í
Svíþjóð, eða enskan prinz, er spornað
gæti við þýzkum áhrifum. — En nú hefir
Btjórn Serba nýlega lýst yfir því, að allar
sagnir um væntanlegt rikisafsal af hálfu
Péturs konungs séu að eins heilaspunþ
Georq prinz, elzti sonur Péturs kon-
ungs, er nýlega afsalaði sér ríkis-arftöku-
rétti, dvelur enn í höfuðborginni, Belgrad,
og eru margir hræddir um, að af veru
hans þar geti stafað einhver vandræði.
Tyrkland. Frjálslyndur blaðstjóri í
Konstantínopel, Hassan Fehmí að nafni,
var skotinn í öndverðum apríl. — Morðið
fraradi tyrkneskur liðsforingi, og varð
hann eigi handsamaður. — Mæltist morð
þetta afar-ílla fyrir.
Þegar Ung-Tyrkir náðu völdum i
Reykjavík, 6. MAÍ.
Tyrklandi, viku þeir úr embættum 2000 •
liðsforingjum, sem óþarfir voru, en þáðu |
þó laun. — Yakti þessi ráðstöfun megna
óánægju, og er mælt, að liðsforingjar þess-
ir hafi verið fremstir i flokki, er ráðið
var á þingið 13. april siðastl., að áeggjan
Abdul Hamíd’s soldáns, að því er nú er
upplýst orðið. — Kröfðust uppreisnar-
menn þess, að forsætirráðherra (stórvesír),
hermélaráðherra, og forseta þingsins, væri
vikið úr embættum, og var dómsmála-
ráðherrann, Nazim pascha, drepinn, er hann
ávarpaði lýðinn, og reyndi að stilla til
friðar, og ýmsir liðsforingjar, er stjórn
! Ung-Tyrkja voru fylgjandi. — Nazim
pascha hafði að eins gengt ráðherrastörf-
um, síðan 13. febr. þ. á.
Uppþoti þessu lauk svo, að stjórn
Ung-Tyrkja var steypt úr völdum, og
skipaði soldán lewik pascha forsætisráð-
herra, í stað Hilmí pascha, og réðu nú
íhaldsraenn öllu. — Soldán veitti upp-
reisnarmönnum embætti, og ýms heiðurs-
merki, og liðsforingjunum, er fyr var
getið voru veitt fyrri embætti þeirra.
Var nú eigi annað sýnna, enaðUng-
Tyrkir væru algjörlega úr sögunni, en
þá tók þeim að berast herlið hvaðanæva
úr ýmsum héruðnm ríkisins, svo að þeir
settust um Konstantínópel, og náðu henni
á sitt vald, eptir talsvert mannfall, og
sviptn soidán völdum, svo sem skýrt hef-
ir verið frá i biaði voru, og glöggar er
getið um i hraðskeytum í þe9su nr blaðs
vors, og eru fregnir enn fremur óljósar
um alla þessa atburði.
Abdul Hamid soldán, er nú hefir verið
sviptur völdurn, er fæddur 22. sept. 1842,
sonur Abdul Meschíd’s soldáns (f 1861),
og koro hann til ííkis í Tyrklandi 1876,
er bróðir hans, Mnrad V., var rekinn frá
rikjum, og borið við, að hann væri geð-
veikur. — Árið 1877—1878 áttu Tyrkir
í ófriði við Rússa, og misstu þá lönd
nokkur. — Hefir Abdul Hamíd þóttíllur
stjórnandi, og fór vel, að endir er nú
loks bundinn á stjórn hans, og glæpa-
feril ýmis konar. — — —
RússJand. 2. apríl siðastl. voru há-
tíðarhöld mikil í Moskwa, í m'nningu
þess, að hundrað ár voru liðin, síðan
Nikólaj Vasíljevitsch Gogol, einn af fræg-
ustu skáldsagnahöfundum RÚ89a, fæddist.
— Hann var fæddur 1809, og andaðist
1852 — Helztu skáldrit hans eru: sorg-
leikurinn „Ræningjarnir“, gamanleikur-
inn „Endurskoðandinn“, erkommjögvið
kaun rússnesku embættismannastéttarinn-
ar, skáldsagan „Dauðar sálir“ o. fl. o fl.
— Ásamt Pushkin og 1urgenjev þykir
hann skipa öndvegissess meðal rússneskra
skálda.
Mælt er, að Nicolaj keisari ætli í vor
að bregða eér til Noregs, Danmerkur.og
Bretlands.
28. júní þ. á. eru tvö hundruð ár lið-
in, síðan Karl tölfti, Svía-konungur(1697—
1718), fór ófarirnar fyrir Rússuin í orust-
unni við Poltava, og va-ð að tlýja til
Tyrklands, og munu Rússar minnast at-
burðar þessar um það leyti.
Stolypín, forsætisráðherra Rússa, hefir
um hríð dvalið á Suður-Rússlandi, sér
til heilsubótar. — Hann er nú sagður
fremur valtur í ráðherra-sessi.
Á rikisþingi Rússa varð nýlega all-
mikill ágreiningur um fjárveitingar til
flotarnála, og er mælt, að við atkvæða-
greiðsluna hafi verið greidd 8 atkvæðum
fleiri atkvæði, en þingmemi eru.
Sagt er, að stjórn Rússa hafi nú ný
skeð gert ráðstöfun til þess, að smíðuð
verði sex ný herskip, og bcndir það til
þess, að þeim sé nú mjög um það hugað
að koma herskipastól sínum sem fyrst í
gott horf, eptir ófarirnar gegn Japans-
mönnum. — — —
Austurríki, Yíxlari nokkur, Beicher
að nafni, flýði ný skeð til Ameríku. —
Hafði hann vænzt þe99, að til ófriðar dragi
með Serbum og Austurríkismönnum, og
haft frammi ýmislegt gróðabrall, sem hann
gerði sór von um að ábatast á, ef ófriður
yrði. — En er ófriðurinn fórst fyrir, tap-
aði hann stórfé, og er mælt, að skuldir
hans hafi numið 5 millj króna. — —- —
Bandaríkin. I ríkinu Washington hafa
nýlega verið samþykkt lög, er láta það
varða hegningu, ef einhver þiggur, eða
gefur „drykkjupeninga“ á veitingahúsum.
landsbanka-rannsóknap-
nnfndin.
—O—
Á fundi efri deildar 3. maí síðastl.
svaraði ráðherra fyrirspurn frá 5. konung-
kjörnum þingmanni (Lárusi H. Bjarna-
son), er laut að skipun rannsóknarnefnd-
arinnar, sem getið var í síðasta nr. blaðs
vors.
Við umræðurnar um fyrirspurn bessar
kom það í ljós, að fyrstu fjóra dagana,
eptir það, er bljóðbært varð um nefnd-
arskipunina, höfðu um 80 þúa. króna ver-
ið teknar úr sp&risjóði landsbankans, og
65 þús. sagt upp til útborgunar siðar; en
yfirleitt verður þó eigi séð, að skipun
rannsóknarnefndarinnar hafi dregið úr
trausti almennings á bankanum, sem bet-
ur fer, enda fráleitt neitt að óttast í þeirri
grein, að því er vér hyggjum.
En gagnstætt því, er ráða virtist mega
af ummælum ráðherra í neðri deild 28.