Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1909, Page 1
*
Ver9 árgangsin» (minnst
fíO arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
i Ameríkn doll.: 1.50.
ÞJOÐVILJINN
• i
Birgist fyrir júnimán-
atiarlok.
TuTTCIASTI C * ’IÐJI ÁBGANGUS.
H—RITSTJÓRI: SKÓLI THORODDSEN. =1*
Vppsögn skrifleg ogild
nema komið si til útgeý-
ancla fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninn i
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 30.
B.EYKJA 'tt, 30. JÚNÍ.
1909.
Frá 1. júlí þ. á. til árslokanna geta
nýir kaupendur t'engið „Þjóðv.u fyrir að
eins
1 kr. 75 aur. •—
Sé borgUDÍn send jafn frarnt því, er
beðið er um blaðið, fá nýir kaupendur
einnig ef óskað er
alveg ókeypis,
sem kaupbæti, freklega
200 bls. af skemmtisögum,
og geta, ef vill, valið um 8,9., 10., 11,,
og 14. söguheptið í sögusafni „Þjóðv.u
í lausasölu er hvert af þessum sögu-
heptura selt á 1 kr. 50 a., og eiga nýir
kaupendur því kost á, að fá allan síðari
helming yfirstandandi árgangs blaðsins
(samtals 30 nr.) fyrir
að eins 25 aura, ——
og kostar hvert tölublað þá minna,
en einn eyri.
Til þess að gera nyjum á-
skrifendum,ogöðrum liaup- j
endum blaðsins,sem hægast
íyrir, að l>vi er greiðslu aricl-
vii'ðisins snertir, skal þess
getið, að borga má við u 11-
ar aðal-verzlanir landsins,
ersliliainnskript leyía,enda
sé útgefanda ní kaupand-
anum sent. innsilii’ipt sti-slcir-
teinið.
Gjörið svo vel, að skýra kunn-
ingjum yðar, og nábúum, frá kjörum þeim,
er „Þjóðv.u býður, svo að þeir geti grip-
ið tækifærið.
Þeir, sem kynnu að vilja taka að
sér útsölu „Þjóðv.u, sérstaklega í þeim
sveitum, þar sem blaðið hefir verið lítið
keypt að undanförnu, geri svo vel, að
gera útgefanda „Þjóðv.u aðvart um það,
sem allra bráðast.
Utanáskript til útgefandacs
er: SJcúli Thoroddsen, Von-
arstrœti 12, lieylcjavík.
lornraeiijarannsóknir.
— O—
Eins og kunnugt er, hafa þeir prófessor
Finnur Jónsson og kapteinn Daníel Bruun
fengist við fornmenjaranDsóknir hér á
laDdi undanfarin tvö sumur. í fyrra sum-
ar rannsökuðu þeir meðal annars gamalt
hof á Hofstöðum við Mývatn. Um þessa
rannsókn höfum vér fengið eptirfarandi
skýrslu:
Hofið snýr frá norðri til suðurs, og
skiptist, eins og flest hof, í tvennt, afhús
og veizluskála. Afhúsið var um 7 metra
á lengd, skálinn rúmlega 36 metrar, lengd
alls hofsins 45 metrar. Dyrnar á afhús-
inu voru á vesturhlið, en á skálanutn á
austurhlið, Dálægt þverbálkinum, sem
greindi skálann frá afhúsinu. I skálan-
um fundust greinilegar leifar af langeld-
um, og fram með langveggjunum upp-
hækkaðir pallar til að sitja á. Nokkuð
frá veggjunum, langsetis eptir húsinu,
fundust merki til að staðið hefðu tvær
súlnaraðir, sín hvoru megÍD, er hefðu hald-
ið uppi þakinu. Auk leifanna eptir lang-
eldana fundust gryfjur, sem virtist hafa
verið eldað í, á 2 stöðum inni í skálanum.
1 rústunum fundust ekki margar, en
þó nokkrar fornleifar og eru þessar hinar
helztu:
Bein af húsdýrum, einkum nautum,
kindum og geitum, og líka af hestum og
svínum og ísubein, og hafa þessi bein
verið ákveðin af herra Herluf Winge, um-
sjónarmanni við dýragripasafnið i Kaup-
mannahöfn.
Mörg brýni.
2 sökkur (eða steinkylfur?)
Ymisleg járnbrot, þar á meðal af 2
skærum, járnnaglar o. fl.
Einkennilegt verkfæri úr beini.
Allt, sem fannst, er afhent Fornmenja-
safni Islands.
Að lobinni rannsókn var rústin færð
í samt lag aptur, svo að engum steini
er haggað úr sæti og þakið yfir.
í sumar ætla þeir félagar meðal ann-
ars að rannsaka hofið í Ljárskógum í
Dalasýslu.
x+y
Ritsímaskeyti.
til „Þjóðv.u
—o—
Kaupmannahöfn 23. júní 1909.
Frá Danmörku.
Christensen neitar samningum um land-
varnarfiumvarpið á þeim grundvelli að
reist verði landvirki.
(Eins og sjá má af flokkaskipuninni
í danska fólksþinginu, er getið var í síð-
asta nr. blaðs vors, verður Neerqaard's-
ráðaneytið, að koma sér saman við Christen-
sen, fyrrum forsætisráðherra, og flokks-
bræður hans, eigi hervarnarmálið fram að
ganga á þingi Dana, því að um samn-
ÍDga við jafnaðarmenn, eða gjörbreytinga-
paenn, getur ekki verið að ræða, jafn gagn-
ólík og stefna þeirra er stefnu hinna
þingflokkanna.)
Keisaramót
á að halda í Eystrasalti.
(Það er Nicolaj, Rús mkeisari, og Vil-
hjálnmr, Þýzkalandskeisari, sem hér mun
vera átt við, og má vera að Játvarður,
Breta konungur, sæki einnig fundinn; en
um þetta keisaramót vantar yfirleitt glögg-
ar fregnir.
Að fundurinn er haldinn á herskip-
um í Eystrasalti, en eigi á landi, það er
óefað gjört, vegna öryggis Nicolaj, Rússa-
keisara, eins og gjört var fyrir nokkrum
árum, er hann og Játvarður, Breta kon-
UDgur, mæltu sér mót.)
Skotið á enskt farmskip.
Rússnest herskip hefir skaðskotið enskt
farmskip, er fór fram hjá þvi, og eru
Bretar óðir og uppvægir, og raótmæla
heimsókn Rúsoakeisara tii sin.
BanKastjóra landsbanKans, hr. iryggva
Gunnarssyni, hefir ráðherra sagt upp stöðu
hans við landsbankann frá næstk. nýári,
og barst honum uppsagnarbréfið um það
leyti, sem ráðherra sigldi nú í júni.
Á ný afstöðnu alþingi voru hr. Jryyqva
Gunnarssyni ákveðin 4000 kr. eptirlaun
árlega, ef hann færi frá bankanum, enda
hefir það þá að líkindum þegar legið í
loptinu, að skipt yrði um bankastjóra við
landsbankann.
A hinn bóginn er enginn fótur fyrir
þvi, sem gefið var í skyn í einu af blöð-
um stjórnarandstæðinga ný skeð, að upp-
sögnin væri gjörð, eptir flokksráðstöfun,
því að sjálfstæðisflokkurinn hefir alls enga
ályktun um það málefni tekið.
erzlunartf r cttir.
í skýrslu, dags. Kaupmannahöfn 11.
jÚDÍ síðastl., er skýrt frá verði, og sölu-
horfum, á íslenzkum afurðum, sem hér
segir:
SALTFISKUR. Eptirspurn nokkru
meiri, en verið hefir, og verðið hefir hækk-
að um allt að 5 kr., siðan í öndverðum f.
m. — Líkur eru til, að málfiskur seljist
á 60 kr., smáfiskur á 45 — 50 kr., og ísa
á 35—40 kr., en þó því að eins, að var-
an sé vel verkuð, enda einatt örðugt, að
selja vöruna ella, og fáist boð í lakari
vöru, þá er verðmunur mikill. —
HARÐFISKUR. Engin eptirspurn, og
verðið naumast yfir 60 kr. sk$. —
HROGN seljast á 38— 40 kr. tunnan
(240 M. netto). —
SUNDMAGAR seldir fyrir fram á 68
aur. —