Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.10.1909, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.10.1909, Blaðsíða 3
XXIII, 47. Þjóðviljinn 187 'Or hafa fullt trau9t á Christensen. — Með- an konungur las up spvar sitt fyrir sendi- nefndmni, stóð forsætisráðherrann Hol- stein-Ledreborg hjá honum, til merkis ;þe88, að hann bæri ábyrgðina. Niðurstaðan hefir þó, þrátt fyrir svar konungs, orðið sú, er í símskeytunum greinir.) Frá Bretlandi. Deilan um fjárlögin, milli efri og neðri málstofunnar, harðnar óðum (Sbr. að öðru öðru leyti útlendu fréttirnar í þessu nr. blaðs vors). Kaupmannahöfn 14. okt. 1909. Líflátsdómur á Spáui: Ferrer, sem mjög hefir unnið að um- 'bótum á skólamálum á Spáni, og sem því var hataður af klerkastéttinni, var kærð- ^nr fyrir drottins svik, er stóðu í sambandi við uppreisn í Barcelona í sumar, og dæmdi herdómur hann til dauða, og var honum synjað um vitnaleiðslu, en dæmd- ur sannanalaust, eptir framburði ljúgvitna. Þetta hefir vakið alheimsmotmæli og .gremju. Óspektir hafa og orðið á Italíu, og á strætum Parísarborgar. Frá Danmörku: Háskólakennari í guðfræði, Peder Mad- sen, verður biskup á Sjálandi. (Peder Madsen er fæddur 28. ágúst 1843, og varð háskólakennari 1875. — Hefir hann samið ýms trúfræðisrit, þar á meðal skýringu á „Jóhannesar opinber- un“, en þykir fremur íhaldssamur í trú- málaskoðunum.). — j Simi milli Isafjarðar og Bolungarvíkur \ var tekinn til afnota 7. okt. þ. á., og er borg- ! un fyrir símtal milli ísafjarðar og Bolungarvík- ur 85 aur., en milli ísafjarðar og Hnífsdals 15. aurar. Stöðvastjóri í Bolungarvík er Pétur kaup- maður Oddsson, en í Hnífsdal Siqurður Þorvarð- arson. Frá ísafirði. fréttist kuldatíð, norðanhret í öndverðum okt. og jörð orðin alhvít til sjávar. „Föroya banki“ er nafnið á banka-útbúi, sem Landmands- bankinn i Kaupmannahöfn hefir sett á stofn í Þórshöfn á Færeyjum, og er Gunnar Hafstein. sem verið hefir fulltrúi við Landmandsbankann, forstjóri þess. Verð á slátursfð með lægra verði á Isafirði í haust, en al- meunt gjörist, ket að eins á 16—20 aura. Doktors-ritgjörð, þ. e. ritsmíði, sem veitir doktorsnafnbót hefir cand. raag. Ólafur Dan. Daníelsson samið, og á að verja hana við Kaupmannahafnarháskóla 30. okt. næstk. Kosniug í niðurjöfnunarnefnd fór fram á ísafjarðarkaupstað 29. sept síðastl. og hlutu kosningu: Helgi Sveinsson, bankaút-bú- stjóri, og Jóhann S. Þorkelsson, trésmiður, báðir endurkosnir, og Finnur bakari Thordarson (í stað Jóhauns kaupmanns Þorsteinssonar). Bankavcxtir liuekka. Þjóðbankinn danski í Kaupmannaböfn hefir 12. okt. síðastl. hækkað bankavexti uœ V2°/oj SVO að þeir eru nú 5—ð1///^. „ísafold11 getur þess, að Islandsbanki muni þó eigi hækka bankavexti at útlánum í bráð. Tveir mcnn drukkna. Vélarbátur, sem 9. okt. þ. á. fór frá Vestmanna- eyjum til Vikur í Vestur-Skaptafellssýslu, slitn- aði þar upp, með þvi að slæmt var i sjóinn, og brimasamt. — Rak vélabátinn síðan á Þykkva- bæjarfjörum i Landeyjum í Rangárvallasýslu 10. okt., og var þá mannlaus, svo að talið er víst, að tveir menn, sem á bátnum voru, hati farizt. Segl var uppi á bátnum, og þykir því líklegtj að vélin hafi bilað. Þegar báturinn lagði af stað frá Vestmann- eyjum til Víkur, voru á honum sex menn, en fjórir þeirra voru í landi í Vík, er bátinn sleit upp. Sig. búfr. Sigurðsson ferðaðist í júní og júlí um Arness- Rangár- valla- og Vestur-Skaptafellssýslu, var þar á bú- penings-sýningum, atbugaði jarðabótafyrirtæki bænda o. fl. Síðar var hann á búfjársýningum í Stranda- «Dala- og Borgarfjarðarsýslum, og ferðaðist um Norðurland, alla leið í Mývatnssveit. Stúdent Kristjiín Björnsson, kaupmanns Guðmundssonar á Isafirði, bjargaði nýlega barni, sem dottið hafði i sjóinn í Kaup- mannahöfn, varpaði sér til sunds og fókk náð því með lífi. Kristján er vanur sundmaður, og hefir um nokkur ár haft á hendi sundkennslu í Reykja- nesi við ísafjarðardjúp. Biirnaskðli ísafjarðarkaupstaðar hófst 1. okt. síðast]., og voru þá kominn í skól- ann alls 155 börn. Kennslan fer fram í 6 bekkjum. Blaðið „Þjðð<5ifnr“ kvað vera selt hr. Pétri Zdphoníassyni, ertek- ur við ritstjórninni á næstk. nýjári. Hr. P. Z. er aðstoðamaður í Landsbankanum og hefir um hríð haft á hendi ritstjórn „Templ- ars“. Saml'agnaðar-skeyti barst ráðherra vorum nýskeð frá „allsherjar miðsambandinu þýzka til útrýmingar áfengis- bölinu“, í tilefni af staðfestingu aðfiutningsbanns- laganna, sem talin eru „eitt hiðmesta menning- 8 Það er alveg ómögulegt! En þegar eg hefi lokið störfunum, tek eg mér hvíld um all-langan tírua. Var það annars ekki heimska af mér, að leita lækn- isráða? En jeg kenni megnrar taugaveiklunar, er eg eit aleinn að nóttu, sem og höfuðþyngsla, og ský sezt fyrir augun á mér. Mér datt í hug, að eitthvað meðal kynni að hressa °6 því, fór eg til læknis. — En að heimta, að eg bætti vinnu, það nær alls engri átt! Jeg held starfinu áfram! Jeg hefi þegar farið yfir tvær höfuðbækur, og talsvert í þriðju bókinni. Hann hefir leynt prettum sinum vel þorparinn!' En jeg skal þó koma þeim upp um hann. 9. JANÚAR — Jeg hafði eigi ætlað mér, að fara aptur til læknisins, en hefi þó neyðst til þesa. Hann telur mig hafa reynt of mikið á mig, oggeta 'mis9t vitið! Það er gaman, að fá slíkt í nasirnar, er maður leitar læknishjálpar! En eg gefst ekki upp, meðan eg fæ setið í stóln- 'um, og haldið-á pennanum. Annars get eg gjarna skýrt frá atvikunum, sem ollu því, að eg fór aptur til læknisins. Eéttast er og, að eg skrifi nákvæmlega í vasabók- ina mína, hvað fyrir mig ber. I herbergi minu hangir gamall spegill, sem eilfur- umgjörð er utan um, og er hann þriggja feta breiður’ en alin á hæð. 93 Hún gerðist þjónn hans rétt á eptir hinum sorglega dauða unnusta hennar, og beið lengi færis, og þegar það kom loks, hagnýtti hún það ósleitilega. Það var hún sem þeytti lúðurinn um kvöldið — notaði lúður unnusta sins sáluga. „En nú er enn eptir það, sem skemrotilegast er“. „Ekki get eg hugsað mér, hvað það getur verið“, mælti Hope-Peynell. „Avorsy hætti ekki, fyren hann fann Berthu Lalache. — Hann hitti hana að lokum“, mælti Gildershaw, ofursti, „í gamla heimkynninu hennar, í skóginum, í grennd við Königgratz, og hvort sem það hefir nú verið af því, að hún hefir verið hrædd við hann, eptir að hafa gert tilraun, til að skjóta hann, eða af því, að hún hefir komizt við af ást hans, og fyrirgefningu, og líkar tilfinningar hafa hrærzt i brjósti hennar, — þá fóru svo leikar, að nú er hún orðin konan hans og fullyrðir bann að hann hafi aldrei verið jafn ánægður með lifið sem nú“. „Aldrei hefi eg heyrt neitt þessu likt!" mælti Hope- Peynell. Að svo mæltu stóð hann þegjandi um hríð, yppti öxlum, og bætti þessu við: „Það eru einkennilegir menn, sem vér rekumst fitundum á i heimi þessum“.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.